Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1995, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1995, Page 4
4 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1995 Fréttir Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra: Ég læt ekki bjóða mérhvaðsemer DV-mynd GVA Hvert verður forgangsverkefni þitt? „Aö auka samvinnu sjúkrahúsa og tryggja aukna hagkvæmni og betri nýtingu þeirra fjármuna sem renna til heilbrigðis- og trygginga- mála. Þá þarf að tryggja að allir þeir sem þurfa á heilbrigðisþjón- ustu að halda fái notið hennar óháö fjárhag." Eitt fyrsta verk þitt var að fresta gildistöku tilvísanakerfisins. Ertu þar með búin að slá þetta kerfi af? „Nei, en það þarf að fara betur ofan í málið og vinna við það er að hefjast. Ef tilvdsanakerfið heíði tek- ið gildi 1. maí hefði það þýtt mikil útgjöld hjá sjúklingum fyrir minni háttar aðgerðir. Tilvdsanakerfið er ekki trúaratriði fyrir mér en lykil- atriðið er að tryggja skilvdrkari samgang milli heilsugæslunnar og sérfræðinga. Menn hafa verið að ræða tilvísanakerfið í 8 ár án þess að komast að niðurstöðu. Mér finnst ekki til of mikils mælst að ég fái minnst tvo mánuði til að kanna kostina í stöðunni. Það er mikill misskilningur að málinu sé lokið.“ Sérfræðingar eru flestir í launuð- um störfum hjá hinu opinbera og starfrækja að auki eigin stofur. Finnst þér þetta eðlilegt fyrirkomu- lag?_____________________________ „Ég sé ekkert óeðlilegt vdð það að sérfræðingar vinni á fleiri en einum stað. Þeir búa yfir mikilli sérhæfingu sem mikilvægt er að nýta sem best. Á hinn bóginn finnst mér óeðlilegt ef þeir geta verið á launum á mörgum stöðum samtím- is. Þá fæ ég ekki séð réttlætið í þeirri reglu sem heimilar sérfræð- ingum að vdnna svokölluð ferilverk á sjúkrahúsunum; vera þar í fastri vdnnu en geta þegið þóknun af sjúklingum fyrir aðgerðir. Þessu vdl ég breyta.“ Þarf að auka vald ráðherra yfir sjúkrahússtjórnum til að tryggja betri nýtingu fjármuna? „Menn verða að fara að vdður- kenna sérhæfingu sjúkrahúsa. Sér- hæfingin er dýr. Það geta ekki allir verið með fullkomna þjónustu á öllum svdðum. Ríkið á allar þessar sjúkrastofnanir og vdð verðum að fara að reka þetta sem eina heild. Á þetta mun ég leggja mikla áherslu. Það skortir á samvdnnuna og samhæfinguna. Það er óeðlilegt að það ríki samkeppni miili þessara stofnana um fjármagn." Betri heilsugæsla Á höfuðborgarsvæðinu eru allt að 10 þúsund manns án heimilislækn- is. Munt þú ráða bót á þessu? „Það gerist ekki í einu vetfangi en í ár er heimild til að' ráða þrjá heilsugæslulækna. Þörfin er fyrir hendi og því verða þessar heimildir nýttar í ár. En á allra næstu árum er Ijóst að það þarf að fjölga heilsu- gæslulæknum um 12 til 14 enda gert ráð fyrir uppbýggingu á heilsugæslunni í Reykjavík og bættri þjónustu þar.“ Sighvatur Björgvinsson greip til þess ráðs að hækka kostnaðarhlut- deild sjúklinga vegna lyfjakaupa. Munt þú lækka þessa kostnaðar- hlutdeild? „í ráðúneytinu er unnið að því að lækka lyfjakostnað með því að beina því til lækna að ávísa á ódýr- asta samheitalyfið hverju sinni. Þannig næst verulegur sparnaður, bæði fyrir sjúklinga og ríkið." Sighvatur greip einnig til þess ráðs að hækka komu- og þjónustugjöld á göngudeildum og heilsugæslu- stöðvum. Munt þú lækka þessi gjöld? „Öll heilsuvemd á að vera sjúkl- ingum að kostnaðarlausu, hvort sem það er ungbamaeftirlit eða mæðraeftirlit, til að tryggja þaö aö vdðkomandi mæti til nauðsynlegr- ar skoðunar. Sighvatur má eiga það að hann setti útgjaldaþak fyrir heimilin. Um það varð nokkuð góð sátt. Reynslan hefur hins vegar leitt í ljós að komum á heilsugæslu- stöövar hefur fækkað eitthvað eftir að gjöld hækkuðu. Það er hlutur sem vert er aö rannsaka." Aukin tekjutenging í almanna- tryggingum sætti gagnrýni. Munt þú beita þér fyrir afnámi tekjuteng- ingar? „Ég ætla að láta endurskoða al- mannatryggingalöggjöfina í heild. Löggjöfinni hefur verið breytt, oft án heildarendurskoöunar, og það er orðið erfitt að átta sig á henni. Aöalatriöið er að þeir njóti al- mannatrygginga sem mest þurfa á þeim að halda. Það verður gmnn- þátturinn í þessari endurskoðun en ég fæ ekki séð að ég komist hjá einhverri tekjutengingu." í ráðherratíð Sighvats var barnalíf- eyrir lækkaður og meðlög hækkuð á móti. Þetta hefur reynst mörgum meðlagsgreiðendum erfitt. Er að vænta breytinga á meðlagskerfinu? „Það er sjálfsagt að þeir borgi meðlag sem geta það. Margir eru hins vegar í þeirri stöðu að sjá fyr- ir stórri fjölskyldu auk þess að greiða meölög. Það getur enginn maður meö venjuleg laun.“ Spítalar verði sérhæfðari Á síðasta kjörtímabili lagði starfs- _ hópur á vegum heilbrigðisráðherra til fækkun sjúkrahúsa á lands- byggðinni. Ertu sammmála þeim tillögum sem þar komu fram? „Margt í skýrslunni var mjög skynsamlegt en í hana vantaði ýmislegt, einkum það að finna verðug verkefni fyrir þau sjúkra- hús sem þegar er búið að byggja. Yfirheyrsla Kristján Ari Arason Það er engin ástæða til að draga úr þjónustu sjúkrahúsanna úti á landi ef hún er ekki dýrari en ann- ars staðar. Það þarf hins vegar að nýta þessar fjárfestingar betur, til dæmis með því að fá sjúkrahúsun- um sérhæfð hlutverk, og létta þar meö á stóru sjúkrahúsunum." Þrátt fyrir að það væri talið hag- kvæmt að sameina Borgarspítala og Landspítala var sú leið ekki far- in á síðasta kjörtímabili. Munt þú huga að þessum kosti? „Ákvörðun um sameiningu Landakots og Borgarspítalans ligg- ur fyrir og nú er verið að púsla því dæmi saman. Ég var hins vegar á þeirri skoðun að það væri rétt aö sameina Landspítalann og Borgar- sj)ítalann. Sú leið var ekki farin. Eg vil auka samvinnu þessara stóru spítala enda er það óeðlilegt að þeir séu i beinni samkeppni. Eg sé ekki fyrir mér að af sameiningu verði á þessu kjörtímabili en ég vil halda þessu máli vakandi.“ Hvernig munt þú standa að niður- skurði og sparnaði í ráðuneytinu? „Það skortir fjármuni í nánast öll svið heilbrigðiskerfisins. Til að bregðast viö veröum við að taka upp einhvers konar forgangsröö- un. Þó við myndum bæta milljörð- um króna í kerfið myndi það að óbreyttu duga skammt. Því mun ég gera þá kröfu til stjórna sjúkra- húsanna að þau setji í forgangsröð þau verkefni sem eru mest aðkall- andi. Til þess ber einnig að líta að það hefur skort verulega á nauð- synlega samstöðu hjá heilbrigðis- stéttum. Úr því þarf að bæta eigi að nást árangur." Gjaldtaka neyðarúrræði Kemur til álita að taka upp almenn sjúkrahúsgjöld? „Þetta hefur oft komið til um- ræðu en til þessa hafa menn ekki treyst sér. Það er slæmur kostur að taka upp innritunargjöld. Það væri neyðarúrræði. Gjaldtaka má aldrei verða til þess að þeir sem lítið hafa á milli handanna þurfi að hugsa sig um áður en þeir nýta sér þjónustuna. Og þeir sem eiga peninga mega aldrei ganga fyrir.“ Kemur til álita að hækka skatta á almenningi til að tryggja óbreytta þjónustu? „Við getum ekki hækkað skatta á almenning. En innan skattkerfis- ins eru ef til vill póstar sem hægt er að kroppa meira úr. Ég nefni til dæmis fjármagnstekjuskatt í því sambandi." Sem hjúkrunarfræðingi er þér skylt samkvæmt lögum að taka við fyrir- mælum frá læknum. Mun þetta ekki torvelda þér þín störf sem ráð- herra? „Nú starfa ég ekki sem hjúkrun- arfræðipgur og hef ekki gert það síðan 1989. Sem ráðherra þá starfa ég samkvæmt þeim lögum sem gilda um ráðuneytið. Mín fyrri störf geta ekki vakið vonir hjá læknum né öðrum heilbrigðisstétt- um um neina sérstaka meðferð." Tryggingastofnun hefur sætt mik- illi gagnrýni, meðai annars vegna mannaráðninga og skattsvika starfsmanna. Munt þú beita þér fyrir róttækum breytingum innan stofnunarinnar? „Það er nauðsynlegt að endur- skoða starfsemi Tryggingastofnun- ar og koma á nútímalegum starfs- háttum þar innandyra. Margt af því sem Karl Steinar Guðnason hefur gert í stofnuninni er í rétta átt.“ Eina konan Pólitískir andstæðingar þínir benda á að þú sért sá ráðherra sem hafir minnstu reynsluna en sért með erf- iðasta ráðuneytið? „Á undan mér hafa verið fjöl- margir ráðherrar með margs kon- ar bakgrunn. Ég fæ ekki séð að þeir allir hafi haft meiri reynslu en ég. Ég hef starfaö í stjómmálum í 14 ár og verið á þingi í 4 ár. Sjaldan eru karlar spurðir svona spum- inga.“ Ert þú sátt við það að vera eina konan í rikisstjórninni? „Auðvitað hefði ég viljað sjá þær fleiri, en um það hafði ég ekkert val. Sem eina konan í stjórninni þá beinast augu fólks óhjákvæmi- lega að manni sem slíkri. Innan þingflokka beggja stjórnarflokk- anna em margar hæfar konur." Munt þú segja af þér sem ráðherra komi upp sú staða að þú sættir þig ekki við fjárframlög til þeirra mála- flokka sem þú ferð með? „Svo langt geta menn gengið að afsögn yrði óumflýjanleg. Ég mun að sjálfsögðu ekki láta bjóða mér hvað sem er. En ég býst heldur ekki við því að fá öllu því fram- gengt sem ég helst vildi gera. Til þess getur enginn ráðherra ætlast. Fyrirfram veit ég að ég þarf að gera hluti sem mér eru ekki kærir en ég mun ekki verða með sífelldar hótanir um afsögn. Það er hins vegar ljóst að ef þrengt verður verulega að mér þá mun ég heimta á móti að aðrir taki til hendinni hjá sér.“ -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.