Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1995, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1995, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1995 39 íþróttir - dauðafærin í súginn og S-Kórea vann ísland, 26-23 Víðir Sigurðsson skrifar: Til hamingju, Suður-Kóreubúar. Þið eigið betra landslið en íslending- ar og sýnduð það og sönnuðuð í Laugardalshöllinni í gær. Sigur ykkar, 23-26, var verðskuldaður og mun öruggari en lokatölurnar gefa til kynna því ísland skoraði þrjú síð- ustu mörkin. Þið hafið burði til að ná langt i þessari keppni, en and- .. stæöingar ykkar, íslensku leik- mennirnir, féllu á prófinu. Þetta var háðuleg útreið. Dyggi- lega studdir af fimm þúsund íslensk- um áhorfendum, sem samkvæmt kenningunni eiga að hjálpa heima- liðinu um 5-6 mörk, brugðust ís- lensku leikmennirnir og landsliðs- þjálfarinn gersamlega. Það er sama á hvaða þátt leiksins er litið, sókn, vörn'og markvörslu, allt brást þetta. Afsakanir eru ekki til, hafa for- ráðamenn landsliðsins sagt að und- anfomu, og nú spyr ég: Hvað varð um alla þessa vinnu sem lögð var í að kortleggja Kóreubúana? Vissu menn ekki út í hvað þeir voru að fara og hvernig ætti að bregðast við? Hvers vegna var Patrekur ekki í byrjunarliði íslands? í svona leik er það sá sem þorir og getur smeygt sér i gegn á fjölbreyttan hátt sem á að nota. Patrekur sýndi það, hann skapaði sér færin, en nýtti þau síð- an ekki nógu vel, eins og flestir fé- laga hans. Kyung-shin Yoon er frá- bær skytta og það vissu allir. Hann hefur skotleyfi hjá Kóreu, en af hverju fékk hann skotleyfi hjá ís- lensku leikmönnunum, og af hverju gaf Þorbergur honum skotleyfi í 40 mínútur, jafnvel þótt leikmennimir væru farnir að biðja um að hann væri tekinn úr umferð? Það var eins og íslensku leik- mennirnir væru þrúgaðir af taugaó- styrk á meðan hinir ungu mótherjar þeirra spiluðu af ró og yfirvegun. Var ekki búið að afgreiða sálfræð- ina? Tíu sinnum töpuðu íslensku leikmennirnir boltanum án þess að ná að ljúka sókn með skoti. Slíkt er ekki hægt í mikilvægum HM-leik. Eini ljósi punkturinn var lokakaflinn þar sem ísland gerði þrjú síðustu mörkin. Þar með er enn von um sigur í riðlinum og leik gegn Kúbu. En annars skiptir senni- lega ekki máli hvort ísland mætir Tékklandi, Króatíu eða Rússlandi, það þarf mikið að breytast til að ís- lenska liðið eigi erindi lengra en í 16-liða úrslitin. Landsliðsmenn ís- lands. Þið fáið tækifæri í dag gegn Sviss til að reka af ykkur slyðruorð- ið - nýtið það. Sagt eftir leikinn gegn S-Kóreu Dagur Sigurösson „Það var allt á móti okkur. Taugaveiklun einkenndi leikinn frá byrjun og við náðum aldrei að spila okkar leik. Sóknarleikurinn var mjög einhæfur og vörnin var að sama skapi ekki nógu góð. Kóreumenn léku mjög yfirvegað allan leikinn og réðu ferðinni. Ég ætla að vona að við drögum lær- dóm af þesum afleita leik. Ég hef fulla trú á þessum mannskap og við ætlum að taka okkur tak fyr- ir leikinn gegn Sviss. Þetta var bara ekki okkar dagur og von- andi koma ekki fleiri slíkir,“ sagði Dagur Sigurðsson lands- liðsmaður við DV eftir leikinn. Gunnar Einarsson „Það lagðist allt á eitt hjá ís- lenska liðinu. Sóknin og vörnin voru aldrei í takt við leikinn. All- ar aðgerðir í sókinni voru sein- virkar og menn voru ekki nógu hreyfanlegir. Kóreumenn höfðu vinninginn á öllum sviðum. Það vofði kannski alltaf yfir liðinu að tapa leik í riðlakeppninni. Ég vil meina að það henti okkur betur að leika gegn Sviss en við verð- um þá að leika mun betur í þess- um leik svo okkur takist að leggja Sviss að velli,“ sagði Gunnar Einarsson handknatt- leiksþjálfari eftir leikinn. Ólafur Jónsson „Ég hélt alltaf að íslenska lið- inu tækist að rífa sig upp en því miður gekk það ekki eftir. Varn- arleikurinn hrundi algjörlega og við það skapaðist óöryggi sem smitaði út frá sér í öðrum aögerð- um. Það getur verið gott að taka út svona slappan leik strax í riðlakeppninni og ég á ekki von á því að það gerist aftur. Strákam- ir rífa sig upp á nýjan leik án nokkurs vafa ef ég þekki þá rétt. Ég hefði sett Gústaf Bjarnason á miðjuna til að leysa sóknina upp í 4-2. Sú uppstiUing hefði ef til vill komið róti á vörn Kóreu- manna. Lið Sviss leikur öðruvísi bolta og getur á vissan hátt hent- að liðinu betur,“ sagði Ólafur Jónsson, fyrrverandi landsliðs- maður, við DV eftir leikinn. ísland - Suður-Kórea (10-12) 23-26 1-0, 1-4, 3-4, 4-7, 5-10, 9-11, (10-12), 12-13, 13-16, 15-19, 17-19, 17-22, 20-23, . 20-26, 23-26. Mörk íslands: Geir Sveinsson 7, Gústaf Bjarnason 5, Valdimar Grímsson 3, Patrekur Jóhannesson 3, Bjarki Sigurðsson 2, Ólafur Stefánsson 2, Júlíus Jónasson 1. Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 7, Sigmar Þröstur Óskarsson 8. Mörk Suður-Kóreu: Kyung-shin Yoon 8, Sung-rip Park 6, Sang-suh Back 4, Chi-hyo Cho 3, Byung-wook Moon 3/2, Bum-yon Cho 2. Varin skot: Suk-hyung Lee 18. Brottvísanir: ísland 10 mínútur, S-Kórea 4 mínútur. Dómarar: Dancescu og Mateescu frá Rúmeníu, ágætir. Áhorfendur: Um 5.000. 55 A-RIÐILL L U J T MÖRK STIG j SVISS 4 4 0 0 109-92 8 M S.-KÓREA 4 3 0 1 110-92 6 ÍSLAND 4 3 0 1 99-83 6 UNGVERJALAND 4 1 0 3 95-97 2 TÚNIS 3 0 0 3 61-84 0 BANDARÍKIN 3 0 0 3 45-81 0 í dag ráðast úrslitin í riðli A. Leikurinn við Sviss hefst kl. 16:00. Hvað gerir tröllið Baumgartner gegn troðfullri Höll? Láttu þig ekki vanta, stuðningur áhorfenda getur ráðið úrslitum. Miðasalan opnar kl. 10:00. Og aftur bjóðum við 1.200 miöa í stæði í nýju viðbyggingunni á aðeins 1.000 kr. Miði í sæti kostar 3.300 kr. Láttu þig ekki vanta, troðfyllum Höllina. Áfram ísland! 4? o {.UMfiy % 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.