Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1995, Blaðsíða 50
58
Afrnæli
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1995
Kristján Þórðarson
Kristján Þóröarson, útvegsbóndi aö
Breiðalæk í Vesturbyggö, verður
sjötugur á morgun.
Starfsferill
Kristján fæddist að Innri-Múla á
Barðaströnd og ólst þar upp. Hann
stundaði nám við Héraðsskólann í
Reykjanesi við Djúp.
Eftir að Kristján kvæntist reistu
þau hjónin nýbýlið Breiðalæk í
Barðastrandarhreppi 1955 þar sem
þau hafa stundaö búskap síðan. Auk
þess hefur Kristján stundað útgerð
á trillu ásamt sonum sínum frá 1973.
Kristján stofnaði ásamt fleiri
fyrsta unglingaskólann í Baröa-
strandarhreppi og sá um allan
rekstur skólans 1964. Hann var
formaður Ungmennafélags Barð-
strendinga 1948-68, formaður skóla-
nefndar Barðastrandarskólahverfis
1952-78, sat í stjórn Ræktunarsam-
bands Vestur-Barðstrendinga
1964-79, var einn aöalstofnandi
Mjólkursamlags Vestur-Barö-
strendinga og sat í stjórn þess um
árabil, var formaður byggingar-
nefndar félagsheimilisins Birkimels
og síðan fyrsti formaður húsnefndar
í nokkur ár, hefur verið í framboði
fyrir Alþýðuflokkinn á Vestfjörðum,
sat í sýslunefnd Barðastrandarsýslu
1966-70, sat í hreppsnefnd Barða-
strandarhrepps frá 1970 og var odd-
viti til 1982, fulltrúi á þingi Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga frá
1970 og sat á fjórðungsþingi Vest-
fjarða og í stjórn Orkubús Vest-
íjarða.
Kristján er einn stofnenda Kaup-
félags Barðastrandar og var formaö-
ur þess um skeið. Þá var hann einn
af stofnendum saumastofunnar
Strandar hf. og er framkvæmda-
stjóri hennar frá stofnun 1978. Hann
var varamaður Landnámsstjórnar
ríkisins og sat í Sauðfjársjúkdóma-
nefnd 1978-80.
Fjölskylda
Kristján kvæntist 23.10.1954 Val-
gerði Kristjánsdóttur, f. 5.11.1932,
húsfreyju. Hún er dóttir Kristjáns
Finnbogasonar, b. í Líkabæ í Ogur-
hreppi við Djúp, og Guðbjargar
Jónsdóttur húsfreyju.
Börn Kristjáns og Valgerðar eru
Snæbjörn, f. 29.8.1954, rafiðnfræð-
ingur, kvæntur Siguriaugu Sigurð-
ardóttur, verslunarmanni frá Kefla-
vík, og eiga þau tvö börn, Valgerði
og Kristján; Finnbogi, f. 21.6.1956,
b. og búfræðingur á Breiöalæk,
kvæntur Ólöfu Pálsdóttur frá
Hamri og eiga þau fjögur börn, Guð-
rúnu, Pái, Kristján og Hafþór; Gísh,
f. 16.9.1957, magister í sagnfræði og
fréttamaður DV í Noregi, en kona
hans er Anne Árstad; Þórhildur, f.
27.4.1964, þroskaþjálfi, gift Sigurði
Má Halldórssyni ljósmyndara og
eiga þau tvíburana Sörú Björk og
Urði Maríu; Steinunn, f. 13.10.1965,
fornleifafræðingur, og á hún tvö
börn, Sigurhjört Snorrason og
Helgu Valgerði Snorradóttur; Erla
Bryndís, f. 16.4.1968, nemi í arkitekt-
úr i Ási í Noregi, í sambúð með Jóni
Gíslasyni og eiga þau eina dóttur,
Fanneyju.
Systkini Kristjáns eru Björg, f.
10.10.1916, b. í Tungnamúla; Olafur,
f. 21.8.1918, kennari í Reykjavík;
Jóhanna, f. 4.1.1920, húsmóöir á
Patreksfirði; Júlíus Ólafur, f. 29.4.
1921, b. á Skorrastað í Norðflrði;
Björgvin, f. 9.9.1922, var leigubíl-
Kristján Þórðarson.
stjóri í Hafnarfiröi; Karl, f. 16.10.
1923, d. 1993, var starfsmaður við
Áburðarverksmiðju ríkisins; Stein-
þór, f. 13.7.1924, d. 1995, b. á Skorra-
stað f Norðfirði; Sveinn Jóhann, f.
13.12.1927, kaupmaður og b. að
Innri-Múla.
Foreldrar Kristjáns voru Þórður
Ólafsson, f. 24.8.1887, d. 1985, b. að
Innri-Múla á Barðaströnd, og k.h.,
Steinunn Björn Júlíusdóttir, f. 20.3.
1895, d. 1885, húsfreyja.
Til hamingju með
afmælið 13. maí
85 ára
Sólveig Indriðadóttir,
Baughóli 21, Húsavík.
75 ára
Emili.a J. Simonsen,
Smyrilshólum 4, Reykjavík.
Vilborg Halldórsdóttir,
Kópavogsbraut 69, Kópavogi.
Brynhildur Pálsdóttir,
Hátúni 12, Reykjavík.
70 ára
Rögnvaldur Finnbogason,
Garðaflöt 17, Garðabæ.
Magnús S. ÓlaCsson,
Kleppsvegi 138, Reykjavfk.
60 ára
Jónas Þór Sveinbjörnsson,
BrautarholtilS, Reykjavík.
Björn Helgason,
Austurbergi 32, Reykjavík.
Haukur Frímannsson,
Espigerði 2, Reykjavík.
Ólafúr Þórður Ágústsson,
Réttarholtsvegi 85, Reykjavík.
Eiginkona hans er Hrafhhildur
Ásbjömsdóttir.
Þau taka á móti gestum i sal
Steypustöðvarinnar, Sævarhöfða
4, Reykjavík, i dag, laugardaginn
13.5., kl. 20.00.
Kristbjörg Bjarnadóttir,
Litlu-Brekku, Hofshreppi.
50ára
Kristín Harðardóttir,
Borgarflöt7, Stykkishólmsbæ.
Friðrikka Svavarsdóttir,
Bessahrauni 18, Vestmannaeyjum.
Elisabet E. Lunt,
Unufelli 25, Reykjavík.
40ára
Jósep Magnússon,
Grundargötu 15, Grundarfirði.
Hiidur Guðmundsdóttir,
Lyngbergi 7, Hafnarfirði.
Hallsteinn Guðmundsson,
Flatasföu 5, Akureyri.
Kjartan Garðarsson,
Borgarlandi 26, Djúpavogshreppi.
Kristborg Hafsteinsdóttir,
Borgarsandi 5, Hellu.
Júliana Sveinsdóttir,
Vesturgötu 51C, Reykjavík.
Hafdís Jakobsdóttir,
Unufelli 50, Reykjavík.
Gísli Sigurgeir Hafsteinsson
Gísli Sigurgeir Hafsteinsson bif-
reiðastjóri, Eyjabakka 12, Reykja-
vík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Gísli fæddist í Hafnarfirði og ólst
upp þar upp til sex ára aldurs en
síðan í Stórholtinu í Reykjavík.
Hann hefur stundað ýmis almenn
störf til sjós og lands en er nú bif-
reiðastjóri hjá ÁN-verktökum.
Fjölskylda
Kona Gísla er Heiður Þórunn
Sverrisdóttir, f. 14.8.1970, húsmóðir.
Hún er dóttir Sverris B. Guðmunds-
sonar sjómanns og Ástu S. Gísla-
dótturljósmóður.
Dóttir Gísla og Heiöar er Auður,
f.7.2.1995.
Böm Gísla frá því áður eru Helga,
f. 1962; Helga Bylgja, f. 29.1.1964;
Hafsteinn, f. 1966; Herborg, f. 1969;
Matthildur, f. 1970; Hafþór, f. 1976;
Sigþór, f. 1977; Hrólfur, f. 1983; Hilm-
ar Már, f. 1985; Hjalti Þór, f. 1987;
Bjöm GísM, f. 1988.
Hálfsystur Gísla, sammæðra, era
Gísli Sigurgeir Hafsteinsson.
Auöur Gísladóttir, húsmóðir í
Bandaríkjunum, og Helga F. Gísla-
dóttir, húsmóðir í Bandaríkjunum.
Foreldrar Gísla; Hafsteinn Bjöms-
son, f. 30.10.1914, d. 1977, miðill í
Reykjavík, og Jónína Þórdís Helga-
dóttir, f. 2.3.1906, d. 23.12.1985, hús-
móöir.
GísM er að heiman á afmælisdag-
inn.
Steinar Þór Jónasson
Steinar Þór Jónasson verslunar-
maður, Byggðarholti 9, Mosfellsbæ,
verður sextugur á morgun.
Starfsferill
Steinar fæddist í Hrísey en flutti
meö foreldram sínum til Siglufjarð-
ar er hann var sjö ára. Hann lauk
skyldunámi á Siglufirði og var síðan
fil sjós á togurum frá sextán ára
aldri og þar til hann varð tuttugu
ogeins árs.
Steinar flutti til Þýskalands þar
sem hann vann í kolanámu í Achen
í þrjú ár, lærði síðan matreiðslu á
Hotel Vier Jahrezeiten í Achen.
Hann kom aftur heim 1962, var
matreiðslumaður og bryti hjá Eim-
skip hf. og síðan hjá Jöklum hf. til
1965, starfaði hjá Loftleiðum hf. í
Keflavík í eitt ár, var yfirmat-
reiðslumaöur hjá Búrfellsvirkjun
1966-67 og réðst síðan aftur til Loft-
leiöa.
Steinar keypti Hótel Höfn á Siglu-
firði 1968, endurbætti hótelið og rak
það til 1980. Þá stofnsetti hann
saumastofuna Salinu á Siglufirði
ásamt nafna sínum, Steinari Bald-
urssyni, og var flugvaUarstjóri á
Siglufirðiísjöár.
I ársbyrjun 1981 flutti Steinar í
Mosfellsbæ. Hann var þar sölumað-
ur hjá Álafossi þar til fyrirtækið var
sameinað Sambandinu eri síðustu
árin var hann verslunarstjóri í Ála-
fossbúöinni. Síðan varð hann sölu-
stjóri hjá Fínuli hf. þar til fyrirtæk-
ið var selt til Borgarness en rekur
nú verslun á Hótel Sögu ásamt konu
sinni.
Á Siglufirði var Steinar frumkvöð-
ull að stofnun Kiwanisklúbbsins
Skjaldar, var fyrsti forseti klúbbs-
ins, svæðisstjóri Kiwanis á Óðins-
svæði í eitt þar og forseti Kiwanis-
klúbbsins Geysis í Mosfellsbæ í eitt
ár.
Fjölskylda
Steinar kvæntist 7.3.1964 Elísa-
betu Vilborgu Jónsdóttur verslun-
armanni. Hún er dóttir Jóns Óskar
Guðmundssonar, b. í Norður-
Nýjabæ í Þykkvabæ og síðar í
Reykjavík, og Sigurbjargar Ingvars-
dóttur saumakonu.
Börn Steinars og Vilborgar eru
Steinunn Júlía, f. 1.6.1964, prent-
myndasmiður í Mosfellsbæ, og á
hún þrjú börn; Jón Óskar, f. 21.4.
1967, nemi í byggingartæknifræði í
Horsen í Danmörku; Gyða Sigur-
björg, f. 15.11.1973, búsett í Reykja-
vík, í sambúð með Bergþóri Helga
Bergþórssyni, starfsmanni í Odda
hf„ og eiga þau eitt barn; Daði Þór,
f. 19.6.1976.
Steinar Þor Jónasson.
Dætur Vilborgar og fósturdætur
Steinars eru Ragnheiður Jenny, f.
12.10.1959, fasteignasali í Okinava í
Japan, gift Harold Dennis Evans,
Mðsforingja í Bandaríkjaher, og eiga
þau tvö börn; Kristín Helga, f. 22.2.
1963, skrifstofumaður í Mosfellsbæ,
gift Arnari Stefánssyni verktaka og
eiga þau tvö börn.
Foreldrar Steinars er Jónas Krist-
inn Tryggvason, f. 28.8.1911, hús-
vörður, og Helga Kristín Baldvins-
dóttir, f. 28.3.1914, húsmóðir.
Steinar tekur á móti gestum að
Hlégarði í Mosfellsbæ á afmælisdag-
inn, sunnudaginn 14.5., frá kl.
17.00-19.00.
Hildigunnur Þórðardóttir
Hildigunnur Þórðardóttir bankarit-
ari, HálsaseM 56, Reykjavík, er
fimmtugídag.
Starfsferill
Hildigunnur fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp á Sólvöllunum í vest-
urbænum. Hún lauk gagnfræða-
prófi frá Gagnfræðaskóla Vestur-
bæjar 1962 og prófi frá Skóla banka-
manna 1966.
Hildigunnur var bankaritari og
gjaldkeri í Útvegsbanka íslands
1965-71, bankaritari og gjaldkeri við
Handelsbanken í Helsingor í Dan-
mörku 1971—74 en hefur síðan starf-
að við Útvegsbankann og íslands-
banka þar sem hún starfar nú við
bókahald aö Ármúla 7.
Hildigunnur var trúnaöarmaður í
Útvegsbanka íslands og sat í stjórn
starfsmannafélags bankans.
Fjölskylda
Hildigrinnur giftist 29.4.1967 Finn-
boga Höskuldssyni, f. 30.8.1943,
tæknifræðingi BSc. Hann er sonur
Óskars Höskuldar Finnbogasonar,
prests í Staðahrauni á Mýrum, í
Stafholti og á Bíldudal en hann lést
1976, og k.h„ Rakelar Veturliöadótt-
ur húsfreyju sem lést 1984.
Dætur Hildigunnar og Finnboga
eru Rakel Þóra Finnbogadóttir, f.
7.3.1973, starfsstúlka í Reykjavík en
maður hennar er Einar Lee bifreiða-
stjóri og er sonur þeirra Þórður
Geir, f. 25.12.1990; Ásdís Margrét
Finnbogadóttir, f. 31.10.1974, nemi
í Bandaríkjunum.
Systkini Hildigunnar eru Kristín
Þórðardóttir, f. 14.9.1937, íþrótta-
kennari, búsett í Reykjavík, gift
Guðmundi Guðmundssyni, aðstoð-
aryfirlögregluþjóni hjá RLR; Sig-
uröur Þórðarson, f. 21.3.1939, verk-
fræðingur, búsettur í Garðabæ,
kvæntur Sigrúnu Andrésdóttur tón-
listarkennara.
Foreldrar Hildigunnar: Þórður
Hildigunnur Þórðardóttir.
Guömundsson, f. 19.5.1908, d. 19.10.
1988, verslunarstjóri hjá Hvann-
bergsbræðrum í Reykjavík, og k.h„
Margrét Sigurðardóttir, f. 29.1.1914,
húsmóðir.
Hildigunnur og Finnbogi taka á
móti gestum að heimili sínu á af-
mæMsdaginn.