Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1995, Síða 6
6
LAUGARDAGUR 13. MAl 1995
Stuttar fréttir
Bjartframundan
Allt stefnir í methagnað hjá
norskum iönfyrirtækjum og olíu-
gróðinn fer vaxandi.
Claesfyrirdómara
Willy Claes
NATO-sfjóri
kom tvisvar
fyrir dómara í
gær til aö svara
spurningum
um spillingar-
mál sem hann
hefur verið
sagður tengjast og lýsti yfir
ánægju sinni aö fá að tala hreint
ut um málið.
Segistsaklaus
Rosemary West, ekkja Fred-
ericks fjöldamoröingja, segist
saklaus af ákærum um aö hafa
myrt 10 stúlkur.
Enga glæpamenn, takk
Stjóm Suöur-Afríku íhugar að
herða réglur um innflytjendur til
að koma í veg fyrir að erlendir
glæpamenn setjist þar að.
Kínafagnar
Kínastjóm fagnar framleng-
ingu samnings um takmörkun á
útbreiöslu kjarrtavopna.
Á þriöja hundrað vísinda-
manna ætla að ræða ástand óson-
lagsins á ráðstefnu í Grikklandi
í næstu viku.
Sprengjunumvarpað
Rússneskar flugvélar vörpuðu
sprengjum á þorp í suðurhluta
Tsjetsjeníu í gær.
Ekkihrun
Síldarstofninn í Síldarsmug-
unni hrynur ekki þótt veitt verði
duglega úr honum í ár, segir
norskur fiskifræöingur.
Jan Henry viðurkennir
Jan Henry T. Olsen, sjávarút-
vegsráðherra Noregs, viður-
kenndi í samtali við Ríkisútvarp-
ið sögulegan rétt íslendinga til
norsk-íslensku síldarinnar.
Clíntonfagnað
Bill Clinton
Bandaríkjafor-
seti var hylltur
sem hetja af
tugþúsundum
manna, aðal-
lega ungu fólki,
i Kænugarði,
höfuöborg
Úkrainu, þar sem hann var í
heimsókn.
SÞ kannski á brott
SÞ hafa geftð til kynna að frið-
argæslulið í Bosníu veröi flutt
burt. Reuter, NTB, Ritzau
KauphaUir erlendis:
Dow Jones á
fullum dampi
Hlutabréfavísitalan Dow Jones í
kauphöllinni við Wall Street í New
York er á miklu skriði þessa dagana.
Talan hækkaði íjóra daga í röð í vik-
unni. Mikil eftirspurn er eftir hluta-
bréfum og mörg ný bréf að bjóðast.
Dow Jones var komin í 4412 stig þeg-
ar viðskipti hófust í gærmorgun.
Hækkun dollars gagnvart marki og
jeni hefur haft jákvæö áhrif á hluta-
bréfaviðskiptin.
Bensín á Rotterdam-markaði helst
enn nokkuð hátt þótt örlítil lækkun
hafi átt sér stað sl. miövikudag. Á
markaði í London hefur hráolían
lækkað um hálfan dollar tunnan.
Hrávörur eins og sykur og kaffi hafa
einnig lækkað í verði á heimsmark-
aðiaðundanfómu. -Reuter
Útlönd
Norskir útgerðarmenn hyggja á örþrifaráð 1 síldardeilunni:
Eina ráðið er að
veiða alla sfldina
- segir Audun Merok, forystumaður norskra útvegsmanna
Gísli Knstjánsson, DV, Ósló:
„Það er augljóst hvernig fer fyrir
síldarstofninum ef tugir ef ekki
hundruð skipa halda til veiða í Síld-
arsmugunni. Síldin verður drepin
niður á skömmum tíma. Þess vegna
er það rétt að við Norðmenn tökum
okkar hiut af síldarkökunni nú þegar
og sjáum svo til þess í framtíðinni
að stofninn verði aldrei það stór að
hann haldi út á hafið," segir Audun
Merok, formaður sambands útgerð-
armanna í Noregi.
Hann hefur leynt og ljóst í hótun-
um viö norsk stjórnvöld um að
norskir útgerðarmenn virði að vett-
ugi bann við löndun á síld úr Síldar-
smugunni í Noregi. Norðmenn halda
því fram að þeir hafi mestan rétt á
nýtingu síldarinnar þar sem þeir
hafi verndaö stofninn í 25 ár.
í gær var ljóst að Skotar ætluðu sér
að senda 15 skip á miðin og bætast
skosku síldarbátarnir viö fríðan flota
frá íslandi, Færeyjum, Danmörku,
Hollandi og nú hugsanlega einnig frá
Noregi.
Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs-
ráðherra Noregs, sendi fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
bréf í gær þar sem hann lýsir þung-
um áhyggjum Norðmanna yfir
stjórnlausum veiðum skipa frá ESB.
í bréfinu fer Olsen fram á það við
Emmu Bonino, sem fer með sjávarút-
vegsmál í framkvæmdastjórn ESB,
að hún geri ráðstafanir til að stöðva
veiðarnar.
Norska utanríkisráðuneytið krefst
þess einnig að ríki ESB haldi skipum
sínum frá Síldarsmugunni, enda eigi
þau ríki ekki sögulegan rétt á nýt-
ingu norsk-íslenska síldarstofnsins.
Þó munu Finnar telja sig eiga sögu-
legan rétt vegna þess að skip gerð
út frá bæ, sem nú tilheyrir Rúss-
landi, voru við síldveiðar á Norður-
Atlantshafi á' árunum milli striða.
Svíar segjast einnig hafa áunnið sér
rétt við Noreg fyrir daga 12 mílna
landhelginnar.
Mikill hiti er í útgerðarmönnum
hér í Noregi vegna veiöanna í Smug-
unni. Engin ráð virðast þó duga til
að stöðva veiðamar.
Nei, þetta er ekki sjálfur byltingarforinginn Lenin upprisinn sem þarna stendur og teflir við ungan vegfaranda i
Moskvu heldur er hér á ferðinni tvifari leiðtogans látna. Sól og bliða var í borginni í gær og notuðu margir góða
veðriö til að sýna sig og sjá aðra. Simamynd Reuter
Ebola-veiran breiðist út í Saír
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin
(WHO) tilkynnti í gær að hin bráð-
drepandi Ebola-veira væri aö breið-
ast út í Saír og að nú væri staðfest
að 48 hefðu látist af völdum hennar.
Veiran hefur stungið upp kolhnum i
þremur bæjum en ekki er vitað til
þess að hún hafi borist til höfuðborg-
arinnar.
Sérfræðingar WHO gera því þó enn
skóna að frekari útbreiðsla veimnn-
ar verði heft „mjög fljótlega" þegar
viðeigandi ráðstafanir hafa verið
gerðar til að vemda hjúkrunarfólk
sem annast fórnarlömb veirunnar.
Helsti veirusérfræðingur Saír er
þeirrar skoðunar að dauðsfóllum eigi
eftir að fjölga og faraldurinn nú gæti
orðið verri’en sá sem blossaði upp
árið 1976 þegar nokkur hundruð lét-
UStíeínuþorpÍ. Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis |
Hjákonaríkis-
arfansselur
rokkaravilluna
Camilla Park-
er Bowles, hjá-
kona Karls
Bretaprins,hef-
: ur selt sveita-
setur
trommaranum
Nick Mason úr
Pink Floyd fyr-
ir rúmar tvö hundruð milljónir
íslenskra króna.
Sveitasetrið er frá 18. öldinni
og þykir hið glæsilegasta. Sala
þess var eitt af ákvæðunum í
skilnaðarsáttmála Camillu og
eiginmanns hennar.
Nick Mason flytur inn með
konu sinni í júlí og sagði hann
að það hefðu ekki verið tengslin
við konungsfjölskylduna sem
freistuöu hans, heldur heitnilis-
draugurinn.
Ástinvekur
ungan mannaf
dauðadái
Hver segir svo að ástin geti ekki
gert kraftaverk? Ungur ítalskur
maður, sem læknar sögöu að
mundi aldrei vakna úr dáinu sem
hann var búinn að vera í í fjögur
ár, er vaknaður og getur (jáð sig
með einfóldu táknmáli og með því
að hreyfa handleggi og fótleggi.
Allt vegna þess að kærastan ann-
aðist hann og strauk honum blíð-
lega allan tímann.
„Ég haföi enga ástæðu til aö
vona þar til ég tók eftir á einum
skjánum að hjarta hans sló örar
þegar ég talaði við hann,“ sagði
kærastan, hin tvítuga Cecilia Or-
landi. „Læknarnir sögðu aö það
væri bara tilviljun.“
Pilturinn, Valerio Vasirani, 23
ára gamall, lenti i bílslysi í nóv-
ember 1991 og var búinn að vera
í dái síðan. Móðir hans segist
ekki hafa tölu á kossum kær-
ustunnar á þeim tíma.
Þýskir andnas-
istar myrtir
íFrakklandi
Lögregla í Frakklandi rannsak-
ar nú dularfullt morð á þýskum
hjónum sem sérhæföu sig í aö
fylgjast með starfsemi nýnasista.
Hjónin fundust skotin í bíl sínum
á Bretagne-skaga.
Ekki er ljóst hvaða ástæður
liggja aö baki morðunum en hátt-
settur embættismaður SÞ í Genf
segir hjónin fórnarlömb kyn-
þáttahatara. Þýska lögreglan seg-
ír þau hins vegar hafa verið á
flótta vegna skattsvika.
Svo viröist sem þau hafi skilið
eftir skjöl með upplýsingum um
nýnasista á útvarpsstöð á
Bretagne aðeins nokkrum
klukkustundum áður en þau
voru myrt.
Majoræflar
aðeflatengslin
viðalmenning
John Major,
forsætisráð-
herra Bret-
lands, sem á nú
í vök að verjast
vegna hrilta-
legra ófara
íhaldsflokksins
í héraðskosn-
ingum að undanfórnu, fullvissaði
flokksmenn sína í Skotlandi um
að flokkurinn ætlaöi að komast
aftur í samband viö hinn venju-
lega mann.
Tilgangurinn er aö safha saman
hugmyndum sem gætu gert
flokknum kleift að vinna næstu
þingkosningar. Reuter