Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1995, Qupperneq 14
14
LAUGARDAGUR 13. MAÍ1995
Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JONSSON
Fréttastjórar: JÖNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNUSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RViK, SlMI: (91) 563 2700
FAX: Auglýsingar: (91) 563 2727 - Aðrar deildir: (91) 563 2999
GRÆN númer: Auglýsingar: 99-6272. Áskrift: 99-6270
Stafræn útgáfa: Heimasiða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritstj@ismennt.is - Auglýsingar: dvaugl@ismennt.is. - Dreifing: dvdreif@ismennt.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: (96)25013, blaðam.: (96)26613, fax: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF.
Prentun: ÁRVAKUR HF.
Askriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
Þeir vilja ná í fé þitt
Stöðugt verðlag hefur ríkt hér á landi um margra
missera skeið. Það á sér ýmsar forsendur, meðal annars
samdrátt í efnahagslífmu. Höfuðforsenda stöðugleikans
er þó verðtrygging Qárskuldbindinga, sem gerði það að
verkum, að niður féll verðbólgugróði af fengnum lánum.
Á verðbólguárunum streymdi fé frá almenningi og líf-
eyrissjóðum, sem lögðu fyrir, og rann í hendur þeirra,
sem póhtíska aðstöðu höfðu til að fá lán í bönkum og
öðrum ríkisreknum fjármálastofnunum. Þá snérist líf og
dauði í atvmnulífinu um forgang að ódýrum lánum.
Um nokkurt skeið hafa hthr möguleikar verið á að
nýta póhtíska aðstöðu til að græða á óheftum aðgangi
að fjármagni. Vextir og verðtrygging hafa gert fjármagn
verðmætt á nýjan leik. Forráðamenn fyrirtækja þurfa
að hugsa sig um tvisvar, áður en þeir taka lán.
Mörgum hefur orðið hált á svelli stöðugleikans. Fræg-
asta dæmið er auðvitað Samband íslenzkra samvinnufé-
laga, sem gufaði upp og hvarf, þegar það hætti að geta
lifað af eiturlyfinu sínu, aðgangi að ódýrum lánum, sem
brunnu upp. Það þoldi ahs ekki verðtryggingu lána.
Sumir hafa farið iha út úr stöðugleikanum, ekki vegna
eigin óráðsíu, heldur vegna óráðsíu viðskiptavina sinna.
Þannig hafa stór verktakafyrirtæki, sem orðið hafa gjald-
þrota, dregið með sér undirverktaka, er áttu sér einskis
ihs von. Markaðslögmáhn geta stundum verið grimm.
Af ýmsum slíkum ástæðum eru fjölmennir hópar and-
vígir verðtryggingu h árskuldbindinga og háum vöxtum.
Þeir telja, að hag sínum væri betur borgið, ef lán væru
ekki verðtryggð og vextir sanngjamir, svo notað sér orða-
lag frægs sjóðasukkara, sem nú er Seðlabankastjóri.
Þeir, sem vilja fá að leika sér með ódýrt fjármagn,
hafa verið að grafa undan verðtryggingu. Þeir hafa leitað
stuðnings hjá þeim hluta almennings, sem átt hefur í
erflðleikum við að standa undir húsnæðislánum. Saman
hafa þessir aðhar góðan aðgang að eyrum ráðamanna.
Þegar gæludýrum kerfisins hefur tekizt að stofna th
afnáms verðtryggingar í áfóngum, ætla þau að nota að-
stöðu sína í opinberum peningastofnunum th að komast
að nýju yfir ódýrt fé. Þannig munu gæludýrin að nýju
framleiða verðbólgu eftir nokkurra missera hlé.
Stjómarflokkamir tveir em hahari undir þessi sjón-
armið en.aðrir stjómmálaflokkar. Þess vegna má búast
við öhu hlu. Raunar hefur ríkissljómin þegar skrifað
Seðlabankanum bréf um þetta mál og fengið jákvæðar
viðtökur hinna póhtískt kjömu bankastjóra.
Bankastjórar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins í Seðlabankanum leggja nú th, að dregið verði
í áfóngum úr verðtryggingu fjárskuldbindinga, þannig
að eftir fimm ár verði bannað að verðtryggja fjárskuld-
bindingar, sem em th skemmri tíma en sjö ára.
Enginn vafi er á, að ríkisstjómin mun samþykkja þessa
thlögu Seðlabankans. Þess vegna sjáum við fram á, að á
þessu kjörtímabhi muni ekki borga sig að eiga peninga,
því að þeir muni rýma að verðghdi. Við sjáum líka fram
á, að óráðsía og verðbóga fari að nýju í gang.
Aðgerðir ríkisstjómar og seðlabanka í máh þessu em
hættulegar. Þær draga úr núverandi stöðugleika og
hvetja th verðbólgu. Þær verða í anda Steingríms Her-
mannssonar, sem staðið hefur fyrir mestu fjármagnsth-
færslum og verðmætabrennslu í sögu lýðveldisins.
Gæludýrin bíða í startholunum. Þau munu nota póh-
tíska aðstöðu th að ná í ódýrt fé, sem ekki þarf að endur-
geiða í jafngildum verðmætum. Það er kjami málsins.
Jónas Kristjánsson
Hátíðahöldum til að minnast þess
að hálf öld er liðin frá því heims-
styrjöldinni síðari slotaði í Evrópu
er lokið. Gömlu hermennirnir sem
enst hefur aldur geta aftur lagt til
hhðar viöhafnareinkennisbúning-
ana, margir í síðasta sinn.
Við tekur hjá ríkjaleiðtogum, sem
sótt hafa hver annan heim undan-
farna viku, að sinna aðkallandi
verkefnum líðandi stundar. Og enn
ber þar ofarlega framvindu mála í
Mið- og Austur-Evrópu, svæðinu
þar sem báðar heimsstyijaldir áttu
upptök sín.
Sameinuðu þjóðirnar, NATÓ,
sambandshópur fimmveldanna
Bandaríkjanna, Bretlands, Frakk-
lands, Rússlands og Þýskalands,
eru öll að komast í þrot við að leita
lausnar á ófriðnum sem síðustu ár
hefur ríkt í fyrrum Júgóslavíu og
átt sér brennidepil í Sarajevo.
Dæmigert fyrir ráöleysi stórveld-
anna er að ekk'i verður þess vart
að forsetar Bandaríkjanna og Rúss-
lands hafi reynt að leita úrræða við
hættuástandinu á Balkanskaga á
fundi sínum í Moskvu.
Meginviðfangsefni þeirra Clint-
ons og Jeltsíns var sambúð Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna eftir
vaxandi ágreining stjórna þeirra í
ýmsum málum síðustu misseri.
Þeir eru nauðbeygðir til að horfast
í augu við þann möguleika, sem
Jeltsín orðaði svo í Búdapest í des-
ember, að niðurstaða verði að eftir
kalda stríðið komi kaldur friður.
Tiiefni þessara ummæla Rúss-
landsforseta var sú yfirlýsing hans
að Rússlandsstjórn hefði séð sig um
hönd og væri ekki að svo komnu
máli fáanleg til að undirrita samn-
ing þann um friðarsamstarf við
NATÓ sem Vesturveldin höfðu
boðið ríkjum fyrrverandi Varsjár-
bandalags og einnig hlutlausum
ríkjum. Ástæðan sem Jeltsín til-
færði var áform NATÓ um að færa
út kvíarnar til austurs.
Það eina sem yfirstjórn NATÓ
hefur gert í því máli er að setja sér
að skilgreina fyrir stjórnum Pól-
lands, Tékklands, Slóvakíu og Ung-
veijalands hver skilyrði þessi ríki
þurfi að uppfylla áður en þau geti
fengið formlegar viðræður um inn-
göngu í bandalagið. Ekki er gert
ráð fyrir að slíku ferli ljúki með
inntöku nýrra ríkja fyrr en um eða
eftir aldamót.
Rússlandsstjórn heldur þvi fram
að með útfærslu endimarka NATÓ
sé í rauninni verið að draga nýja
markalínu í Evrópu og þá sérstak-
lega gagnvart Rússlandi. Hún legg-
ur til að í staðinn verði komið á
nýrri öryggisskipun sem taki til
álfunnar allrar.
Og frá sjónarhóli NATÓ er málið
síður en svo einfalt. Eystrasaltsrík-
ljóst að sambúð Rússlands við sjálf-
stæða Úkraínu verður ráðandi um
það hvernig afstaða nýs Rússlands
til umhverfis síns mótast og þar er
nóg af misklíðarefnum, sér í lagi
sjálfstjórnarstig Rússa á Krím-
skaga og Svartahafsflotinn.
Fyrir Moskvufór Clintons skýrðu
fréttamenn í Washington frá því
að Bandaríkjastjórn og yfirstjórn
NATÓ ynnu að tveim skjölum með
það fyrir augum að þau mættu síð-
ar koma að gagni í frekari öryggis-
málaviðræðum við Rússlands-
stjóm.
Annað er yfirlýsing um að
Bandaríkjastjórn sjái því í grund-
vallaratriðum ekkert til fyrirstöðu
að „nýtt Rússland" geti með tíð og
tíma orðið fullgildur aðili að
NATÓ. Hitt er yfirlýsing af hálfu
bandalagsins um aö það telji ríkja
fullnægjandi jafnvægi í kjarnorku-
vígbúnaði í Evrópu.
Enginn ímyndar sér að rússnesk
aöild að NATÓ sé raunhæfur
möguleiki um fyrirsjáanlega fram-
tíð, hafa fréttamenn eftir banda-
rískum embættismönnum. En á
einhveiju stigi viðræðna gæti yfir-
lýsing af þessu tagi orðið svar viö
því að Rússar telji verið að draga
markalínu gagnvart sér. Og yfir-
lýsing NATO ætti að jafngilda fyr-
irheiti um að engum kjarnavopn-
um veröi komiö fyrir í nýjum aðild-
arríkjum.
Bill Clinton Bandarikjaforseti og Boris Jeltsín Rússlandsforseti yfirgefa
fund með fréttamönnum í Kreml eftir viðræður sinar. Simamynd Reuter
in, Eistland, Lettland og Litháen,
telja sig ekki síður heima undir
verndarvæng NATÓ en Mið-Evr-
ópuríkin fiögur sem áður voru tal-
in. Vestræn ríki hafa á engan hátt
brugðist við málaleitunum þeirra.
Erlend tídindi
Magnús Torfi Ólafsson
Og hvað um Balkanríkin milli Ung-
veijalands og Grikklands? Og hvað
um Úkraínu, álíka fiölmennt land
og Frakkland?
Eftir að Jeltsín og Clinton höfðu
orðið ásáttir um það eitt í þessu
efni aö vera áfram ósammála hélt
Bandaríkjaforseti til Kíef á fund
Kútsjma Úkraínuforseta. Það er
Öryggisskipan
Evrópu mesta
ágreiningsmáliö
Skoðanir annarra
Lýöskrumari nær völdum
„Þrátt fyrir sjálfsánægju sem við finnum til viö
upprifiun á falli Hitlers megum við ekki gleyma
hvernig hann komst til valda. Hann framdi ekki
hallarbyltingu með nokkrum vopnabræðrum. Hann
var lýðskrumari sem gerði ótta fólks að leiksoppi
sínum. Hann fann blóraböggla fyrir vandræðum
þess og lofaði þjóð sinni vegsemd - endurreisn goð-
sagnakennds mikilfengleika sem einkenndist af for-
tíðarást. Og almenningur galt honum með stuðningi
sínum.“
Úr forustugrein USA Today 9. mai
Varðveitir úrelt viðhorf
„Eftir upplausn Varsjárbandalagsins og sundur-
limun Sovétríkjanna er þörfin fyrir NATO orðin
mjög óljós. En í staö þess að endurskoða bandalag
sem stofnað var 1949 í þeim tilgangi að mæta ógn
sem nú er horfin hafa stjórnvöld í Washington gert
stækkun Nato að þungamiðju í stefnu sinni gagn-
vart Evrópu. Það eru mistök sem ekki einungis
stofna tengslum við Rússa í hættu heldur varðveita
þau úrelt viðhorf gagnvart Evrópu sem heildar."
Úr forustugrein New York Times 10. maí
Víndrykkja lengir lífið
„Rannsóknarniðurstöður segja víndrykkju lengja
lífið, drykkju sterks áfengis stytta það en að bjór
hafi engin áhrif. Þá segja rannsóknir að vatn á flösk-
um sé ekki betra en kranavatn og að nikótín minnki
hættuna á ellihrörnun um helming. Viljirðu vita um
áhrif kjöts, mjólkurafurða, sykurs eða koffeins færðu
engin ráö hjá okkur. Við vekjum aðeins athygli á
örlögum Angier Biddle Dukes sem var á hjólaskaut-
um 79 ára gamall, varð fyrir bíl og lést.“
Ur forustugrein Independent on Sunday 7. maí