Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1995, Page 19
LAUGARDAGUR 13. MAI 1995
19
Torfl Geirmimdsson:
Hlaut „óskarsverðlaun"
hárgreiðslumeistara
Hárgreiðslumeistarinn Torfi Geir-
mundsson var meðal nítján hár-
greiðslumeistara frá fimmtán lönd-
um sem hlutu sérstaka viðurkenn-
ingu í New York í mars síðastliðnum.
„Þetta var eins konar kennsluhátíð
eða ráðstefna alþjóðlegra samtaka
hárgreiðslumeistara,förðunarmeist-
ara, tískuljósmyndara og fleiri. Þessi
ráðstefna er haldin árlega og koma
menn víða að. Það voru sýningar að
deginum til og um kvöldið var svo
úthlutað nokkurs konar óskarsverð-
launum hárgreiðslunnar. Verðlaun-
in eru veitt fyrir framgang fagsins
og vinnu að því aö auka virðingu
iöngreinarinnar," greinir Torfi frá.
Torfi kveðst hafa verið tilnefndur
af bandarísku hárgreiðslufólki sem
hann hefur unnið með á alþjóðavett-
vangi, bæði sem dómari og sýnandi.
„Mér var sent bréf og ég beðinn að
senda inn greinargerð um það hvað
ég hefði unnið. Út frá því var metið
hvort ég ætti skilið að fá þessi verð-
laun. Ég fékk síðan tilkynningu um
að ég yrði meðal þeirra sem hlytu
þessi verðlaun sem nefnd eru World
Masters Award of the Craft.“
Verðlaununum fylgja ákveðin
skylduverk, að sögn Torfa. „I kjölfar
verðlaunaveitingarinnar kemst ég í
ákveðna akademíu og ber mér skylda
til að vinna að námskeiðum hvar sem
er í heiminum og endurgjaldslaust
ef ég er að vinna fyrir félagsmenn
eða með þeim. Ég er um leið kominn
í hóp þeirra sem geta fengið atvinnu-
tilboð frá framleiðendum og öðrum.
Grundvallaratriðið er aö auka þekk-
ingu og virðingu hársnyrtigreinanna
hvar sem er í heiminum."
Meðal frægra hárgreiðslumeistara
sem fengu verðlaunin var Lluis
Llongueras frá Spáni sem Torfi segir
vera í uppáhaldi hjá sér. „Hann sá
meðal annars um hárgreiðslu fyrir
sýningu sem var í tengslum við
ólympíuleikana í Barcelona fyrir ári.
Frægasti hárgreiðslumeistari Bret-
lands, Trevor Sorbie, fékk einnig sér-
stök verðlaun."
Verðlaunin voru veitt við sér-
stakan hátíðarkvöldverð. „Þetta
heppnaðist með afbrigöum vel og var
miklu stórfenglegra en ég hafði gert
mér í hugarlund. Fyrr um daginn
höfðu verðlaunahafarnir haldið sýn-
ingu á ráöstefnunni sem um 1800
manns alls staðar að úr heiminum
sóttu, Eg gat valið mér stúlkur á
módelskrifstofu til að greiða. Ég
hafði fjórar klukkustundir til að und-
irbúa tuttugu mínútna sýningu en
þetta gekk allt mjög vel.“
Þetta er í fyrsta skipti sem íslend-
ingur hlýtur þessi verðlaun og
kveðst Torfi líta á sig sem brauðryðj-
anda. „Ég vona að fleiri komi í kjölf-
arið og að þetta opni leið fyrir ís-
lenska hárgreiðslumeistara í fram-
tíðinni."
Úrval af verkfærum
í garðvinnuna
Kr. 3.650 stgr
20 metra
Siðumúla 34 (Fellsmúlamegin)
S. 588-7332
Opið: mánud.—föstud. 9-18
laugard 10-14
Torfi Geirmundsson með verðlaunagripinn sem hann hlaut í New York.
DV-mynd GVA
l'l
DAEW00 2800
■ 66Mhz Intel 486DX2
■ 128KB skyndiminni (mest 256KB)
■ 4MB vinnsluminni (mest 64MB)
■ 420MB diskur (256kb buffer)
■ 14" lággeisla skjár (örtölvustýrður)
■ Overdrive sökkull, ZIF
■ 32-bita VESA Local Bus skjákort
■ 1MB myndminni (mest2MB)
■ VESA Local Bus og ISAtengibrautir
■ MS-DOS, Windows og mús
■ Kr.^ ÍI|MjIlIllstgr. m/vsk
DAEWOO 5200 Pentium
■ 60Mhz Intel Pentium
■ 256KB skyndiminni (mest 1MB)
■ 8MB vinnsluminni (mest 128MB)
■ 420MB diskur (256kb buffer)
■ 14" lággeisla skjár (örtölvustýrður)
■ Overdrive sökkull, ZIF 237 pinna
■ 32-bita PCI Local Bus skjákort
■ 1MB myndminni (mest2MB)
■ PCI og ISA tengibrautir
■ MS-DOSJA/indows og mús
■ Kr.íEkffjTjTjl stgr. m/vsk
-\
DAEWOO D5320 Pentium
■ 75,90 og lOOMhz
1256KB skyndiminni (mest 1MB)
18MB vinnsluminni (mest 256MB)
1420MB diskur (256kb buffer)
114" lággeisla skjár (örtölvustýrður)
132-bita PCI Local Bus skjákort
með Windows hraðli
i PCI 32-bita Local Bus og ISA brautir
11MB myndminni (mest2MB)
1280x1024x256 liti
i ZIF sökkull (320pin) fyrir framtíðar
Pentium Overdrive
i Enhanced dual channel IDE á
32-bita hi speed PCI og ISA braut
i Uppfyllir EPA og Plug and Play staðal,
hljóðlát vifta
12-háhraða enhanced (UART 16550)
l Enhanced hliðtengi
(ECP og EPP) og músartengi
D0S 6.22, Windows 3.11 og mús
Verð frá kr.
159.000
Lykill; a§ alhliba tölvulausnum
stgr. m/vsk €
T ' *T"
EINAR J. SKULASON HF
Grensásvegi 10, Sími 563 3000