Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1995, Page 28
28
LAUGARDAGÚR 13. MAÍ 1995
Eurovision-keppnin 1 Dublin í kvöld:
Keppnisskapið
verður í lagi
. - segir Björgvin Halldórsson sem ætlar að gera sitt besta
lögin heima aö frá mínum bæjar-
dyrum séö, og þá á ég viö músík-
lega, eru aðeins sjö góö lög í keppn-
inni. Viö erum meðal þeirra. Síðan
getur allt annað komiö upp þegar
komiö er að dómnefndarmönnum.
Mér finnst Slóvenía vera meö mjög
sterkt lag og nú er þaö land taliö
sigurstranglegast. Þau lönd sem ég
tel vera með bestu lögin eru Sló-
venía, Spánn, ísland, Irland, Port-
úgal, Sviþjóð og England er svolítið
öðruvísi. Noregur á líka eftir að
koma á óvart. Ég vil engu spá um
okkar lag, við ætlum að hafa gam-
an af þessu og gera okkar besta.
Það má í raun þakka fyrir að lítil
þjóð eins og okkar skuh vera með
í þessu því óneitanlega vekur þetta
athygU á íslandi. Hins vegar veit
ég að tungumálið hefur áhrif því
þegar við sungum lagið á ensku hér
fyrir gesti fengum við allt önnur
viðbrögð heldur en þegar við sung-
um það á íslensku."
Kaup og sala á stig-
um
- Sigríður Beinteinsdóttir sagði í
fyrra að stigin gengju kaupum og
sölum miUi landa. Hefur þú orðið
var við það?
„Sigga varð fyrir ómaklegri gagn-
rýni þegar hún kom heim í fyrra
og sagði þetta. Hins vegar verð ég
að staðfesta orð hennar, þetta er
alveg rétt. Við höfum orðið vör við
þetta. Það er ein þjóð sem reynir
þetta ár eftir ár og einhverjar þjóð-
ir taka þátt í því og telja að svona
eigi þetta að vera. Auk þess er póli-
tík í þessu. Ég las grein í norsku
blaði um mig og ísland og þar var
fjaUað að mestu um Smugudeiluna.
Mér finnst samt að við eigum að
vera með, þetta er nokkurs konar
vítamínssprauta og auðvitað á ís-
land að vera á kortinu. Það vantar
t.d. nokkrar þjóðir núna eins og
ítaUu, HoUand, Finnland og Lúx-
emborg.“
- En gætir þú hugsað þér að vera
með aftur þegar þú hefur séð
hvernig þetta er framkvæmt?
„Ég hef aUtaf gaman af spennu
og keppni. Ég tók mér mánuð í að
ákveða hvort ég ætti að taka þetta
verkefni að mér. Platan mín var
nýkomin út og sýningin á Hótel
íslandi hefur gengið mjög vel þann-
ig að ég sló tU og sé ekki eftir því.“
- En þú kviðir því ekki að syngja
fyrir 300 milljónir manna í beinni
útsendingu?
„Maður sér ekki allt þetta fólk
svo það er afstætt. Auðvitað verður
maður stressaður en það er jákvæð
streita. Viö getum lent hvar sem
er í þessari keppni og ég er búinn
undir það. Viö vUjum síðan skila
bestu kveðjum heim, við erum í
góðu skapi og hlökkum tU úrshta-
stundarinnar. Og auðvitað tökum
við þátt í þessu með smákeppnis-
skapi."
„Það er mjög skemmtilegt að taka
þátt í þessu. Þetta hafa verið góðir
dagar. Við eigum frí í dag (fimmtu-
dag) og hluti hópsins ætlar að ferð-
ast yfir til Noröur-írlands. Ég ætla
að labba um borgina, skoða kirkjur
og söfn. Við ætlum að slappa af en
á morgun (fóstudag) eru tvær stór-
ar æfingar í búningum og með
áhorfendum. Á laugardag verður
síðan lokarennsli. Mér líst vel á
þetta og hef gaman af þessu," sagði
Björgvin HaUdórsson söngvari,
sem syngur fyrir um þrjú hundruð
milljónir manna í beinni útsend-
ingu í kvöld, frá The Point Theater
í Dublin, lagið Núna. Þetta er í
fyrsta skipti sem Björgvin tekur
þátt í Eurovision-keppninni en
hann hefur alloft tekið þátt í und-
ankeppni hér heima og oftast veriö
nálægt því að vinna. Að þessu sinni
var engin undankeppni en Björg-
vin falið að velja lag og syngja fyr-
ir íslands hönd. Margir sakna þess
að Sjónvarpið hafi ekki haft undan-
keppni og telja að vegna þess sé
minni áhugi á keppninni nú en oft
áður.
Búast má við að í framtíöinni
verði sami háttur hafður á þar sem
reglur keppninnar munu breytast
á næsta ári. Þá verður sérstök II-
þjóðleg dómnefnd sett á laggirnar
sem mun velja lögin í keppnina -
sem sagt þau lög sem berast fara í
gegnum síu áður en þau verða end-
anlega gjaldgeng í Eurovision. Mik-
il ásókn er frá Austur-Evrópu-
löndum í að vera með í keppninni
og því hefur þurft að takmarka
aðgang að henni. Sú regla hefur
verið undanfarið að þau lönd sem
lent hafa í neðstu sætunum hafa
dottið úr keppni og þurft að sækja
um inngöngu á nýjan leik.
Undirbúningur
til fyrirmyndar
Björgvin var afar jákvæður er
Helgarblaðið talaði við hann’ í
fyrradag og sagði allan undirbún-
ing íranna til mikillar fyrirmynd-
ar. „Þeir eru orðnir vanir þessu.
Hins vegar er óhemjudýrt að halda
keppnina og þess vegna heyrist
manni að þeir vilji helst sleppa á
næsta ári. írar hafa fengið lottóið
til að kosta keppnina," sagði hann.
„Við gætum vel haldið keppni sem
þessa heima tæknilega séð en fjár-
mögnunin væri erfiðari."
Þess má geta að mál er komið upp
vegna lags íranna, Dreamin’, þar
sem aðrir telja sig eiga það og segja
það stoliö.
Með Björgvin í Dublin er fjórtán
manna hópur íslendinga sem alhr
hafa notið vorblíðunnar og dvalar-
innar. Hópurinn hélt blaðamanna-
fund og móttöku til að kynna sig
og sjá aðra. Jakob Magnússon,
menningarfulltrúi í London,
stjómaði veislunni með miklum
Björgvin Halldórsson syngur fyrir 300 milljónir manna i beinni útsendingu í kvöld.
glæsibrag og voru flestar þjóðir
með uppákomu á skemmtuninni.
Þá var boðið upp á íslenskar veigar
til að kynna land og þjóð. „Það var
troðfullt hús hjá okkur og þetta
heppnaðist frábærlega vel,“ sagði
Björgvin.
„Mér finnst gaman að kynnast
öllu þessu fólki hérna en við höfum
haft mest samband við írana, Eng-
lendinga, Svía og Norðmenn."
Góður andií hópn-
um
Björgvin sagði að laugardags-
kvöldið legðist ágætlega í sig. „Við
erum búin að æfa þetta mjög vel.
Eftir hveija æfingu höfum við
skoöað nákvæmlega það sem við
vorum aö gera og reynt að átta
okkur á hvað betur megi fara. Það
er góður andi í þessum hópi og all-
ir einhuga um að standa sig vel.
Þetta er því allt jákvætt. Þó ég sé
þannig gerður að vera aldrei fylli-
lega ánægður þá er ég nokkuð sátt-
ur með æfingamar. Þær eru afar
nákvæmar en við fáum ekki nema
sex rennsli í hvert skipti."
íslendingar hafa alltaf veriö vin-
sælir hjá erlendum blaðamönnum
í Eurovision og Björgvin sagði að
slíkt væri einnig nú. Hann var á
leið í viðtal við norska sjónvarpið
sem er að gera þátt um keppnina.
Venjulega eru búin til svokölluð
póstkort fyrir hvert land áður en
lögin eru leikin í keppninni. Björg-
vin og félagar hans fóru í hjólreið-
atúr um sveitir írlands og munu
birtast okkur í kvöld sem miklir
reiðhjólakappar á fjallahjólum.
Bakraddasöngvarar eru Berghnd
Björk Jónasdóttir, Erna Þórarins-
dóttir, Stefán Hilmarsson, Guðrún
Gunnarsdóttir og Eyjólfur Kristj-
ánsson.
Slóvenía
sigurstrangleg
Björgvin hefur áður tekið þátt í
söngvakeppnum á írlandi og segir
að þess vegna komi ekki margt á
óvart. „Þétta er ósköp svipað og
maður þekkir en þó talsvert stærra
í sniðum og fleiri lönd em þátttak-
endur.“
- En hvemig heldur þú að keppnin
fari?
„Ég sagði það strax og ég skoðaði