Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Page 2
2 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1995 Íréff/r Kötturinn Tumi slær öllinn öðrum köttum við: Skilaði sér eftir 40 mánaða fjarveru Hann rataði sjálfur heim eftir allan þennan tima. Þegar hann birtist vor- um við búin að fá okkur hund. Dótt- ir mín, sem á köttinn, er með hund líka. Þeir voru báðir staddir hér þeg- ar Tumi birtist á lóðinni en hann lét þá ekki fæla sig í hurtu.“ Sigrún veit ekki hvar kötturinn hefur haldið sig. En að minnsta kosti hefur Tumi látið á sjá því tvær vígtennur vantar hvorum megin frá því hann strauk að heiman. „Hann hefur greinilega þurft að hugsa mikið um sig sjálfur því hann er hrikalega grimmur þegar hann matast. Engu að síður er hann enn mannelskur," sagði Sigrún. -GJ/bjb Kötturinn Tumi er kominn í réttar hendur eftir 40 mánaða fjarveru að heiman. A myndinni, frá vinstri, eru Katrín Birg- isdóttir, Kristín Ásgeirsdóttir með Tuma og Hólmfríður Kristjánsdóttir. Systir Kristfnar, Eva, á Tuma en hún býr ekki lengur í foreldrahúsum þannig að hún komst ekki á myndina. DV-mynd ÞÖK Sautján ára drengur: Tók bilprof og flug- próf sama daginn Fyrir nokkru birtist frétt í DV þar sem sagt var frá ketti sem týndist og fannst aftur eftir 14 mánuði. Nú virðist það met hafa verið slegið út af honum Tuma sem skilaði sér sjálfur eftir 40 mánaða fjarveru. „Þegar ég sá konuna með köttinn, sem hafði komið heim eftir 14 mán- uði, í DV skellti ég upp úr. Fjórtán mánuöir, hvað er nú það? Það er líka merkilegt að hann skuli hafa skilað sér sjálfur," segir Sigrún Finnjónsdóttir en dóttir hennar, Eva Ásgeirsdóttir, á köttinn Tuma. Stuttar fréttír Minnisvardi um Friörik Minnisvarði um séra Friðrik Friðriksson, æskulýðsleiðtoga og stofnanda KFUM og KFUK, verður afhjúpaður á fæðingarstað hans, Hálsi í Svarfaðardal, á morgun kl. 14. Sungnir verða sálmar eftir séra Friðrik en bænagjörð annast séra Jón Helgi Þórarinsson. Smuguafli kannaður Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra hefur ákveðið að láta varðskipsmenn á Óðni fara í ís- lenska togara í Smugunni til að kanna hvort þeir fari illa með afla. Bylgjan greindi frá. Óánægja með samning Háskólaráð hefur lýst yfir megnri óánægju með nýgerðan kjarasamning ríkisins og háskóla- kennara. Ráðið segir samninginn sýna lítilsvirðingu við þá vinnu sem unnin er í skólanum. RÚV greindi frá þessu. Tveir vinir á fiugi Flugleiðir og SAS hafa gert samning um að Flugleiðir fljúgi frá og með 11. september milfi íslands og Skandinavíu í nafni beggja félag- anna. Bókanir verða þó í nafni hvors félags um sig. Laust í Hruna Biskupinn hefur auglýst Hruna- prestakall laust til umsóknar en séra Halldór Reynisson sóknar- prestur hefur verið ráðinn prestur að Neskirkju í Reykjavik. Fleiri feróamenn Alis komu ríflega 48 þúsund far- þegar til íslands í síðasta mánuði, þar af um 28 þúsund erlendir ferða- menn. t sama mánuði í fyrra komu til landsins ríflega 27 þúsund er- lendir ferðamenn. Lottókona Kona á Patreksfirði, sem höfðaði mál vegna glataðs lottómiða, tapaði málinu fyrir undirrétti. RÚV skýrði frá. Kötturinn er nú um sjö ára svo að hann hefur verið u.þ.b. hálfa ævina fjarri heimili sínu. Sigrún segir: „Vorið áður en hann týndist hvarf hann að heiman en kom aftur að hausti þegar kólnaði. Svo hvarf hann aftur snemma að vorinu og lét ekki sjá sig fyrr en bara núna i júlí. Hann birtist bara hérna á túninu. „Ég tók fyrsta tímann minn þegar ég var tólf ára. Þá byijaði ég að fikta við þetta og hef verið að dunda mér við það síðan. Og fimmt- án ára tók ég bóklega einkaflug- mannsprófið. Svo hef ég bara verið aö bíða eftir því að verða sautján ára til að geta tekið sólóprófið," segir Brynjar Örn Sveinjónsson sem tók flugpróf og bílpróf sama daginn, 6. september, þegar hann Brynjar Öm Sveinjónsson tók flugpróf og bílpróf sama daginn, þegar hann varð sautján ára. varð sautján ára. Hann tók bílpróf- ið um morguninn en flugprófiö síð- degis og fær skírteini upp á hvort tveggja. Brynjar er á öðru ári í Menntaskólanum við Hamrahlíð og er á eðlisfræðibraut. Hann segist hafa farið út í flugnám einungis af forvitni og áhuga en móðir hans er einnig flugmaður. Um það hvort erfitt hafi verið að taka prófið segir Brynjar: „Ég var a.m.k. þokkalega stressaður en þetta hafðist." Eftir að hafa tekið sólóprófið má Brynjar fljúga einn með samþykki kennara en bráðlega mun hann taka verklega einkaflugmannspróf- ið og þá má han fljúga með farþega. Sólóprófið er hluti af einkaflug- mannsprófinu. Stóð sig vel Þorleifur Einar Pétursson hjá flugskólanum Flugmennt hafði um- sjón með Brynjari og segir: „Hann stóð sig alveg með prýði, drengur- inn. Þetta er vel gerður strákur og mjög góður nemandi. Annars heföi ég reyndar ekki sent harn, hefði ég ekki treyst honum fyrir þessu. Ég mat það þannig að hann væri orð- inn þaö góöur að hann gæti farið þetta einn. Hann tók þrjú flugtök og þrjár lendingar og það gerði hann með stökustu prýði. Þetta voru góð- ar lendingar, ég horfði á þær allar.“ Segir Þorleifur að gott sé að Brynj- ar skuli hafa byrjað svona ungur því þá eigi menn auðveldara með að læra. -GJ niinui.ii.i Átti forseti íslands aö gagnrýna Kínverja í ræöu sinni í Kína? Nei ,r ö d d FOLKSINS 904-1600 Já Sjúkrahúsið á Siglufirði: Þriðjung- ur með gubbupest „Það var einhver lagður inn á sjúkrahúsið hjá okkur fyrir nokkrum dögum og smitaöi okk- ur. Ég held að óvenjumargir hafi verið veikir í dag og mér skilst á hjúkrunarkonu að um þriðjungur sjúkiinga sé veikur. Það er svolítið mikið. Þetta virð- ist vera bráðsmitandi en alveg hættulaust og gengur yfir á stuttum tíma,“ segir Andrés Magnússon, yfirlæknir á Sjúkra- húsinu á Siglufirði. Óvenjuslæm gubbupest hefur gengið á Siglufirði að undan- förnu og var um það bil þriðj- ungur sjúklinga á sjúkrahúsinu, auk starfsfólks, fjölskyldna þeirra og annarra bæjarbúa með pestina í gær. í fyrstu var talið að um matareitrun á sjúkrahús- inu væri að ræða þar sem veik- in hefur svipuð einkenni, niður- gang, magaverki og uppköst, en svo reyndist ekki vera. -GHS Haustakst- ur á 150 Haustblær er kominn á um- ferðina í Húnavatnssýslu sem þýðir að ökumenn eru teknir á allt að 155 kílómetra hraða. Hef- ur lögreglan tekið tíu bráðláta ökumenn síðustu tvo daga og hafa þeir margir skeiðað á 130 til 140. Telur lögreglan á Blöndu- ósi að minnkandi umferð á haustin leiði til fleiri fara yfir mörkin í hraðakstri. -GK Hafnaríjörður: Ljós- myndirn- ar dreifðust um allan bæ „Þetta er hræðileg óheppni. Viö höfum heyrt frá fólki sem sá myndirnar eins og skæðadrífu um bæinn og enn vantar 200 myndir," segir Hrafnhildur Blomsterberg, móðir stúlku sem var svo ólánsöm að dreifa 240 ljósmyndum úr sumarfríinu um Hafnarfjörð í gær. Stúlkan skildi myndimar eft- ir fyrir vangá á þaki bifreiðar sinnar þegar hún ók úr Set- bei'gshverfmu og niður í miðbæ Hafnarfjarðar. Sáldruöust myndimar smám saman af þak- inu og var engin eftir þegar í bæinn var komið. Síðdegis í gær höfðu 35 mynd- ir komist til skila en hinna 210 var enn saknaö. Vildi Hrafnhild- ur að árvökulir finnendur myndanna hefðu samband í síma 565 53 54 svo hægt væri að nálgast safnið. -GK KR gegn Everton: Fjölmenni með Everton Von er á 300 'stuðningsmönn- um enska liðsins Everton hing- að á leik liðsins við KR í Evr- ópukeppni bikarhafa í næstu viku. Þessir stuðningsmenn Liverpool-félagsins Everton ásamt félögum í Everton klúbbnum á íslandi ætla að koma saman fyrir leikinn í höf- uðstöðvum klúbbsins á sport- kránni Ölver og skapa þar stemningu áður en haldið er á völlinn.Danfel Ólafsson, Akranesi ■p

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.