Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1995
Íréff/r
Kötturinn Tumi slær öllinn öðrum köttum við:
Skilaði sér eftir 40
mánaða fjarveru
Hann rataði sjálfur heim eftir allan
þennan tima. Þegar hann birtist vor-
um við búin að fá okkur hund. Dótt-
ir mín, sem á köttinn, er með hund
líka. Þeir voru báðir staddir hér þeg-
ar Tumi birtist á lóðinni en hann lét
þá ekki fæla sig í hurtu.“
Sigrún veit ekki hvar kötturinn
hefur haldið sig. En að minnsta
kosti hefur Tumi látið á sjá því tvær
vígtennur vantar hvorum megin frá
því hann strauk að heiman.
„Hann hefur greinilega þurft að
hugsa mikið um sig sjálfur því hann
er hrikalega grimmur þegar hann
matast. Engu að síður er hann enn
mannelskur," sagði Sigrún.
-GJ/bjb
Kötturinn Tumi er kominn í réttar hendur eftir 40 mánaða fjarveru að heiman. A myndinni, frá vinstri, eru Katrín Birg-
isdóttir, Kristín Ásgeirsdóttir með Tuma og Hólmfríður Kristjánsdóttir. Systir Kristfnar, Eva, á Tuma en hún býr ekki
lengur í foreldrahúsum þannig að hún komst ekki á myndina.
DV-mynd ÞÖK
Sautján ára drengur:
Tók bilprof og flug-
próf sama daginn
Fyrir nokkru birtist frétt í DV þar
sem sagt var frá ketti sem týndist og
fannst aftur eftir 14 mánuði. Nú
virðist það met hafa verið slegið út
af honum Tuma sem skilaði sér
sjálfur eftir 40 mánaða fjarveru.
„Þegar ég sá konuna með köttinn,
sem hafði komið heim eftir 14 mán-
uði, í DV skellti ég upp úr. Fjórtán
mánuöir, hvað er nú það? Það er
líka merkilegt að hann skuli hafa
skilað sér sjálfur," segir Sigrún
Finnjónsdóttir en dóttir hennar, Eva
Ásgeirsdóttir, á köttinn Tuma.
Stuttar fréttír
Minnisvardi um Friörik
Minnisvarði um séra Friðrik
Friðriksson, æskulýðsleiðtoga og
stofnanda KFUM og KFUK, verður
afhjúpaður á fæðingarstað hans,
Hálsi í Svarfaðardal, á morgun kl.
14. Sungnir verða sálmar eftir séra
Friðrik en bænagjörð annast séra
Jón Helgi Þórarinsson.
Smuguafli kannaður
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra hefur ákveðið að láta
varðskipsmenn á Óðni fara í ís-
lenska togara í Smugunni til að
kanna hvort þeir fari illa með afla.
Bylgjan greindi frá.
Óánægja með samning
Háskólaráð hefur lýst yfir
megnri óánægju með nýgerðan
kjarasamning ríkisins og háskóla-
kennara. Ráðið segir samninginn
sýna lítilsvirðingu við þá vinnu
sem unnin er í skólanum. RÚV
greindi frá þessu.
Tveir vinir á fiugi
Flugleiðir og SAS hafa gert
samning um að Flugleiðir fljúgi frá
og með 11. september milfi íslands
og Skandinavíu í nafni beggja félag-
anna. Bókanir verða þó í nafni
hvors félags um sig.
Laust í Hruna
Biskupinn hefur auglýst Hruna-
prestakall laust til umsóknar en
séra Halldór Reynisson sóknar-
prestur hefur verið ráðinn prestur
að Neskirkju í Reykjavik.
Fleiri feróamenn
Alis komu ríflega 48 þúsund far-
þegar til íslands í síðasta mánuði,
þar af um 28 þúsund erlendir ferða-
menn. t sama mánuði í fyrra komu
til landsins ríflega 27 þúsund er-
lendir ferðamenn.
Lottókona
Kona á Patreksfirði, sem höfðaði
mál vegna glataðs lottómiða, tapaði
málinu fyrir undirrétti. RÚV
skýrði frá.
Kötturinn er nú um sjö ára svo að
hann hefur verið u.þ.b. hálfa ævina
fjarri heimili sínu. Sigrún segir:
„Vorið áður en hann týndist
hvarf hann að heiman en kom aftur
að hausti þegar kólnaði. Svo hvarf
hann aftur snemma að vorinu og lét
ekki sjá sig fyrr en bara núna i júlí.
Hann birtist bara hérna á túninu.
„Ég tók fyrsta tímann minn
þegar ég var tólf ára. Þá byijaði ég
að fikta við þetta og hef verið að
dunda mér við það síðan. Og fimmt-
án ára tók ég bóklega einkaflug-
mannsprófið. Svo hef ég bara verið
aö bíða eftir því að verða sautján
ára til að geta tekið sólóprófið,"
segir Brynjar Örn Sveinjónsson
sem tók flugpróf og bílpróf sama
daginn, 6. september, þegar hann
Brynjar Öm Sveinjónsson tók
flugpróf og bílpróf sama daginn,
þegar hann varð sautján ára.
varð sautján ára. Hann tók bílpróf-
ið um morguninn en flugprófiö síð-
degis og fær skírteini upp á hvort
tveggja. Brynjar er á öðru ári í
Menntaskólanum við Hamrahlíð og
er á eðlisfræðibraut. Hann segist
hafa farið út í flugnám einungis af
forvitni og áhuga en móðir hans er
einnig flugmaður.
Um það hvort erfitt hafi verið að
taka prófið segir Brynjar: „Ég var
a.m.k. þokkalega stressaður en
þetta hafðist."
Eftir að hafa tekið sólóprófið má
Brynjar fljúga einn með samþykki
kennara en bráðlega mun hann
taka verklega einkaflugmannspróf-
ið og þá má han fljúga með farþega.
Sólóprófið er hluti af einkaflug-
mannsprófinu.
Stóð sig vel
Þorleifur Einar Pétursson hjá
flugskólanum Flugmennt hafði um-
sjón með Brynjari og segir: „Hann
stóð sig alveg með prýði, drengur-
inn. Þetta er vel gerður strákur og
mjög góður nemandi. Annars heföi
ég reyndar ekki sent harn, hefði ég
ekki treyst honum fyrir þessu. Ég
mat það þannig að hann væri orð-
inn þaö góöur að hann gæti farið
þetta einn. Hann tók þrjú flugtök og
þrjár lendingar og það gerði hann
með stökustu prýði. Þetta voru góð-
ar lendingar, ég horfði á þær allar.“
Segir Þorleifur að gott sé að Brynj-
ar skuli hafa byrjað svona ungur
því þá eigi menn auðveldara með
að læra.
-GJ
niinui.ii.i
Átti forseti íslands aö
gagnrýna Kínverja í
ræöu sinni í Kína?
Nei
,r ö d d
FOLKSINS
904-1600
Já
Sjúkrahúsið á Siglufirði:
Þriðjung-
ur með
gubbupest
„Það var einhver lagður inn á
sjúkrahúsið hjá okkur fyrir
nokkrum dögum og smitaöi okk-
ur. Ég held að óvenjumargir
hafi verið veikir í dag og mér
skilst á hjúkrunarkonu að um
þriðjungur sjúkiinga sé veikur.
Það er svolítið mikið. Þetta virð-
ist vera bráðsmitandi en alveg
hættulaust og gengur yfir á
stuttum tíma,“ segir Andrés
Magnússon, yfirlæknir á Sjúkra-
húsinu á Siglufirði.
Óvenjuslæm gubbupest hefur
gengið á Siglufirði að undan-
förnu og var um það bil þriðj-
ungur sjúklinga á sjúkrahúsinu,
auk starfsfólks, fjölskyldna
þeirra og annarra bæjarbúa með
pestina í gær. í fyrstu var talið
að um matareitrun á sjúkrahús-
inu væri að ræða þar sem veik-
in hefur svipuð einkenni, niður-
gang, magaverki og uppköst, en
svo reyndist ekki vera.
-GHS
Haustakst-
ur á 150
Haustblær er kominn á um-
ferðina í Húnavatnssýslu sem
þýðir að ökumenn eru teknir á
allt að 155 kílómetra hraða. Hef-
ur lögreglan tekið tíu bráðláta
ökumenn síðustu tvo daga og
hafa þeir margir skeiðað á 130
til 140. Telur lögreglan á Blöndu-
ósi að minnkandi umferð á
haustin leiði til fleiri fara yfir
mörkin í hraðakstri.
-GK
Hafnaríjörður:
Ljós-
myndirn-
ar dreifðust
um allan bæ
„Þetta er hræðileg óheppni.
Viö höfum heyrt frá fólki sem sá
myndirnar eins og skæðadrífu
um bæinn og enn vantar 200
myndir," segir Hrafnhildur
Blomsterberg, móðir stúlku sem
var svo ólánsöm að dreifa 240
ljósmyndum úr sumarfríinu um
Hafnarfjörð í gær.
Stúlkan skildi myndimar eft-
ir fyrir vangá á þaki bifreiðar
sinnar þegar hún ók úr Set-
bei'gshverfmu og niður í miðbæ
Hafnarfjarðar. Sáldruöust
myndimar smám saman af þak-
inu og var engin eftir þegar í
bæinn var komið.
Síðdegis í gær höfðu 35 mynd-
ir komist til skila en hinna 210
var enn saknaö. Vildi Hrafnhild-
ur að árvökulir finnendur
myndanna hefðu samband í
síma 565 53 54 svo hægt væri að
nálgast safnið.
-GK
KR gegn Everton:
Fjölmenni með
Everton
Von er á 300 'stuðningsmönn-
um enska liðsins Everton hing-
að á leik liðsins við KR í Evr-
ópukeppni bikarhafa í næstu
viku. Þessir stuðningsmenn
Liverpool-félagsins Everton
ásamt félögum í Everton
klúbbnum á íslandi ætla að
koma saman fyrir leikinn í höf-
uðstöðvum klúbbsins á sport-
kránni Ölver og skapa þar
stemningu áður en haldið er á
völlinn.Danfel Ólafsson, Akranesi
■p