Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Page 8
Frönskunámskeið
Alliance Franciase
Haustnámskeið verða haldin 18. sept. til 15. des.
Innritun fer fram alla virka daga frá kl. 15.00-19.00
að Vesturgötu 2, sími 552 3870.
Alliance Francaise
Skattstjóri
Staða skattstjóra í Vestfjarðaumdæmi er laus til umsóknar.
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi í lögfræði, hagfræði,
viðskiptafræði eða hlotið löggildingu í endurskoðun. Æski-
legt er að umsækjendur hafi jafnframt góða þekkingu á
skattalögum og skattaframkvæmd. Staðan veitist frá 1.
janúar 1996.
Laun skattstjóra eru ákveðin af kjaranefnd samkvæmt lög-
um nr. 120/1992 um kjaradóm og kjaranefnd.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri
störf, sendist fjármálaráðuneytinu fyrir 10. október 1995.
Fjármálaráðuneytið, 7. september 1995
Starfsnám fyrir uppeldis-, meðferðar-
og stuðningsfulltrúa og fólk í hlið-
stæðum störfum.
Þann 9. október næstkomandi hefst í Reykjavík starfsnám
(grunnnám) fyrir uppeldis-, meðferðar- og stuðningsfull-
trúa og fólk í hliðstæðum störfum.
Námið er 160 kennslustundir og stendur yfir veturinn
1995-1996.
Markmiðið með þessu námi er að efla þekkingu og færni
starfsmanna sem vinna við viðkomandi störf.
Umsóknarfrestur er til 19. september og fást umsóknar-
eyðublöð í félagsmálaráðuneytinu, Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu, Reykjavík, s. 5609000 og hjá Starfs-
mannafélagi ríkisstofnana, Grettisgötu 89, Reykjavík, s.
5629644. Fræðslunefnd félagsmálaráðuneytisins
JAPANSKAR SKYIMINGAR
IAIDO
LIST JAPANSKA SVERÐSINS, FELST í EINSTAKLINGSBUNDNUM
ÆFINGUM Á FYRIRFRAMÁKVEÐNUM HREYFIMYNSTRUM (KATA)
SEM ERU AFRAKSTUR ÞROTLAUSRAR VIÐLEITNI SAMURAIANNA TIL
FULLKOMNUNAR Á LIÐNUM ÖLDUM.
KENNARI: TRYGGVI SIGURÐSSON 4 DAN.
KENDO
SKYLMINGAR í HLÍFÐARBÚNING ÞAR SEM ÁSTUND ER SETT
OFAR KEPPNI. GÖFUG OG KREFJANDIÍPRÓTT SEM EFLIR
LÍKAMAOG HUG.
KENNARI: INGÓLFUR BJÖRGVINSSON 3 DAN.
MEISHINKAN DOJO
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING í SÍMA 555 27 25 / 587 66 48
NÚ BJÓÐUM VIÐ UPP í QianSs
NÝ NÁMSKEIÐ SEM HEFJAST A HAUSTÖNN
BARNADANSAR
GÖMLUDANSARNIR
SUÐURAMERÍSKIRDANSAR
SAMKVÆMISDANSAR
KENNT I FRAMHALDS OG BYRJENDAFLOKKUM.
EINNIG ER BOÐIÐ UPP Á EINKATÍMA.
INNRITUN DAGLEGA FRÁ KL. 13 - 19.
KENNSLA HEFST LAUGARDAGINN 16 9 95.
AIVI DAhlSSKÓLm
REYKJAVÍKURVEGI 72 HAFNARFIRÐI
SÍMI 565 2285
NÝI DANSSKÓLINN SKILAR BETRI ÁRANGRI.
matgæðingur
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 JD"V
Tofu og þang
með grænmeti
„Þar sem það er krabbameins-
sérfræðingurinn og vinur minn
Sigurður Árnason sem skorar á
mig sem matgæðing vikunnar þá
kemur mér strax í hug tofu og
þang,“ segir Ingunn Benediktsdótt-
ir glerlistarkona og jógakennari.
„Hin lága tíðni brjóstakrabba-
meins meðal kvenna í Japan og
það hversu þær virðast komast
auðveldar í gegnum breytinga-
skeiðið en konur á Vesturlöndum
hefur meðal annars verið rakið til
mataræðis þeirra. En eins og
kunnugt er eru sojabaunir og soja-
baunamassi, það er tofu, fiskur og
þang, ein aðaluppistaðan í fæðu
Japana,“ heldur Ingunn áfram.
Ingunn bjó í sex ár í Ameríku og
þar sem erfitt var að fá fisk fór hún
að nota tofu í staðinn. Hún býður
lesendum upp á tofu- og hrís-
grjónarétt og þang- og grænmetis-
rétt. Hennar eigin fjölskyldu þóttu
þessir réttir lítið spennandi í byrj-
un en er nú farin að biðja um þá.
Tofu með
hrísgrjónum
11/2 bolli brún hrísgrjón
375 g tofu
1 bolli saxað sellerí
1/2 bolli saxaðar svartar olífur
1/2 bolli pecanhnetur eða val-
hnetur
1 1/2 tsk. tarragonlauf (mulin)
3 msk. ferskur graslaukur
(11/2 ef þurrkaður)
1 dós jógúrt (án ávaxta) eða
1 bolli AB-mjólk
Hrísgrjónin soðin í vatni söltuðu
með sjávarsalti. Látið renna af
Umsjón
Ingunn Benediktsdóttir
tofuinu undir krana og síðan kurl-
að niður í hrísgrjónin. Öllu hinu
blandað saman við. Látið í smurt
eldfast fat. Muldu Ritzkexi dreift
yfir og 1/2 bolla af rifnum, feitum
og sterkum osti. Bakað við 200 g í
30 mínútur eða þar til rétturinn er
orðinn gulbrúnn og heitur í gegn.
Gott er að bera fram með þessu
heimatilbúið eplamauk, gróft
brauð eða salat.
Þang með grænmeti
Arame-þang (fæst í heilsubúð
um)
3 tO 4 shitake-sveppir (fást í
heilsubúðum)
1 laukur
2 gulrætur
sesamolía
Þangið er lagt í bleyti yfir nótt
og síðan soðið í söltu vatni í 15
mínútur. Látið renna af þanginu.
Laukurinn sneiddur fint og gulræt-
urnar skornar langsum (ef þær eru
skornar þversum gráta þær).
Grænmetið steikt í olíunni. Bland-
að saman við þangið og bragðbætt
með tamari-sósu eða soju (venjuleg
sojasósa er of sölt).
Að sögn Ingunnar passar þang-
rétturinn bæði með tofu-réttinum
og kjöti og fiski.
Hún skorar á Jón B. Stefánsson,
verkfræðing og hagyrðing, að vera
næsti matgæðingur. „Hann er
listakokkur sem sá um matseldina
á heimili sínu þegar konan hans
fór í nám.“
hin hliðin r»v
Námsbækumar em eina lesefnið
-seglrTryggvi
Knattspyrnulið Vestmarinaey-
inga, ÍBV, hefur vakiö mikla at-
hygli undanfarið þegar strákamir
hafa tekið upp á því að „dansa“
fyrir áhorfendur og gera ýmsar
kúnstir. „Þetta hefur gert fótbolt-
ann meira fyrir augað jaíriframt
sem andinn í hópnum er frábær,“
segir Tryggvi Guðmundsson. í
dag keppa ÍBV og KR og má segja
að það sé úrslitaleikur um annað
sætið. l'ryggvi Guömundsson er
fæddur og uppalinn í Vestmanna-
eyjum og hefur spilað meö ÍBV
frá barnæsku fyrir utan eitt ár er
hann gekk til liðs viö KR. Þaö er
Tryggvi sem sýnir hina hliðina
aö þessu sinni:
Fnllt nafri:
Tryggvi Guðmundsson.
Fæðingardagur og ár:
30. júli 1974.
Maki:
Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir.
Börn: Engin.
Bifreið: Engin.
Starf: Nemi í Fjölbrauta-
skólanum í Ármfila.
Laun: Engin.
Áhugamál: Allar íþróttir, sama
hvaða nafni þær nefnast.
Hefur þú unnið í happdrætti
eða lottói? Neí, ég klikka alltaf á
að vera með i því.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Spila knattspyrnu en
allur minn frítími fer í það.
Hvað finnst þér leiöinlegast að
gera? Þrifa heima.
Uppáhaldsmatur: Svínaham
borgarahryggur.
Uppáhaldsdrykkur: Sódavatn.
Hvaða íþróttamaöur stendur
fremstur í dag? Sigrún Huld.
Uppáhaldstimarit: íþróttablaöið.
Guðmundsson, knattspyrnumaður í ÍBV
Hver er fallegasta kona sem þú Bjarni Ólafur Guðnason.
hefur séð fyrir utan maka?
Cindy Crawford.
Ertu hlynntur eða andvigur
ríkisstjórninni? Hlutlaus.
Hvaða persónu langar þig mest
að hitta? Það væri ágætt að hitta
Rowan Atkinson.
Uppáhaldsleikari: Rowan Atkin-
son.
Uppáhaldsleikkona:
Demi Moore.
Uppáhaldssöngvari: Villi Vill.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson).
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Hermann Hreiðarsson.
Uppáhaldsteikni-
myndapersóna: Bart
Simpson.
Uppáhaldssjón-
varpsefiii: Simp-
son-fjölskyldan.
Uppáhaldsmat-
sölustaöur: ítal-
ía.
Hvaöa bók
langar þig
inest aö lesa?
Einu bækurn-
ar sem ég les
um þessar
mundir eru
námsbækurnar.
Hver útvarps-
rásanna finnst þér
best? FM 957.
Uppáhaldsút-
varpsmaö-
ur:
Hvort horfir þú meira á Sjón-
varpiö eða Stöð 2? Stöö 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Valtýr Björn.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Kofi Tómasar frænda.
Uppáhaldsfélag í íþróttum?
ÍBV.
Stefnir þú að einhverju sér-
stöku í framtiðinni? Já, ég
stefni á að kaupa eigin íbúð ein-
hvern tíma.
Hvað gerðir þú i sumarfriinu?
Ég fékk ekkert sumarfrí, ég var
aö vinna á skrifstofu
Vinnslustöðvarinnar í