Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Síða 8
Frönskunámskeið Alliance Franciase Haustnámskeið verða haldin 18. sept. til 15. des. Innritun fer fram alla virka daga frá kl. 15.00-19.00 að Vesturgötu 2, sími 552 3870. Alliance Francaise Skattstjóri Staða skattstjóra í Vestfjarðaumdæmi er laus til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi í lögfræði, hagfræði, viðskiptafræði eða hlotið löggildingu í endurskoðun. Æski- legt er að umsækjendur hafi jafnframt góða þekkingu á skattalögum og skattaframkvæmd. Staðan veitist frá 1. janúar 1996. Laun skattstjóra eru ákveðin af kjaranefnd samkvæmt lög- um nr. 120/1992 um kjaradóm og kjaranefnd. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist fjármálaráðuneytinu fyrir 10. október 1995. Fjármálaráðuneytið, 7. september 1995 Starfsnám fyrir uppeldis-, meðferðar- og stuðningsfulltrúa og fólk í hlið- stæðum störfum. Þann 9. október næstkomandi hefst í Reykjavík starfsnám (grunnnám) fyrir uppeldis-, meðferðar- og stuðningsfull- trúa og fólk í hliðstæðum störfum. Námið er 160 kennslustundir og stendur yfir veturinn 1995-1996. Markmiðið með þessu námi er að efla þekkingu og færni starfsmanna sem vinna við viðkomandi störf. Umsóknarfrestur er til 19. september og fást umsóknar- eyðublöð í félagsmálaráðuneytinu, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, Reykjavík, s. 5609000 og hjá Starfs- mannafélagi ríkisstofnana, Grettisgötu 89, Reykjavík, s. 5629644. Fræðslunefnd félagsmálaráðuneytisins JAPANSKAR SKYIMINGAR IAIDO LIST JAPANSKA SVERÐSINS, FELST í EINSTAKLINGSBUNDNUM ÆFINGUM Á FYRIRFRAMÁKVEÐNUM HREYFIMYNSTRUM (KATA) SEM ERU AFRAKSTUR ÞROTLAUSRAR VIÐLEITNI SAMURAIANNA TIL FULLKOMNUNAR Á LIÐNUM ÖLDUM. KENNARI: TRYGGVI SIGURÐSSON 4 DAN. KENDO SKYLMINGAR í HLÍFÐARBÚNING ÞAR SEM ÁSTUND ER SETT OFAR KEPPNI. GÖFUG OG KREFJANDIÍPRÓTT SEM EFLIR LÍKAMAOG HUG. KENNARI: INGÓLFUR BJÖRGVINSSON 3 DAN. MEISHINKAN DOJO UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING í SÍMA 555 27 25 / 587 66 48 NÚ BJÓÐUM VIÐ UPP í QianSs NÝ NÁMSKEIÐ SEM HEFJAST A HAUSTÖNN BARNADANSAR GÖMLUDANSARNIR SUÐURAMERÍSKIRDANSAR SAMKVÆMISDANSAR KENNT I FRAMHALDS OG BYRJENDAFLOKKUM. EINNIG ER BOÐIÐ UPP Á EINKATÍMA. INNRITUN DAGLEGA FRÁ KL. 13 - 19. KENNSLA HEFST LAUGARDAGINN 16 9 95. AIVI DAhlSSKÓLm REYKJAVÍKURVEGI 72 HAFNARFIRÐI SÍMI 565 2285 NÝI DANSSKÓLINN SKILAR BETRI ÁRANGRI. matgæðingur LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 JD"V Tofu og þang með grænmeti „Þar sem það er krabbameins- sérfræðingurinn og vinur minn Sigurður Árnason sem skorar á mig sem matgæðing vikunnar þá kemur mér strax í hug tofu og þang,“ segir Ingunn Benediktsdótt- ir glerlistarkona og jógakennari. „Hin lága tíðni brjóstakrabba- meins meðal kvenna í Japan og það hversu þær virðast komast auðveldar í gegnum breytinga- skeiðið en konur á Vesturlöndum hefur meðal annars verið rakið til mataræðis þeirra. En eins og kunnugt er eru sojabaunir og soja- baunamassi, það er tofu, fiskur og þang, ein aðaluppistaðan í fæðu Japana,“ heldur Ingunn áfram. Ingunn bjó í sex ár í Ameríku og þar sem erfitt var að fá fisk fór hún að nota tofu í staðinn. Hún býður lesendum upp á tofu- og hrís- grjónarétt og þang- og grænmetis- rétt. Hennar eigin fjölskyldu þóttu þessir réttir lítið spennandi í byrj- un en er nú farin að biðja um þá. Tofu með hrísgrjónum 11/2 bolli brún hrísgrjón 375 g tofu 1 bolli saxað sellerí 1/2 bolli saxaðar svartar olífur 1/2 bolli pecanhnetur eða val- hnetur 1 1/2 tsk. tarragonlauf (mulin) 3 msk. ferskur graslaukur (11/2 ef þurrkaður) 1 dós jógúrt (án ávaxta) eða 1 bolli AB-mjólk Hrísgrjónin soðin í vatni söltuðu með sjávarsalti. Látið renna af Umsjón Ingunn Benediktsdóttir tofuinu undir krana og síðan kurl- að niður í hrísgrjónin. Öllu hinu blandað saman við. Látið í smurt eldfast fat. Muldu Ritzkexi dreift yfir og 1/2 bolla af rifnum, feitum og sterkum osti. Bakað við 200 g í 30 mínútur eða þar til rétturinn er orðinn gulbrúnn og heitur í gegn. Gott er að bera fram með þessu heimatilbúið eplamauk, gróft brauð eða salat. Þang með grænmeti Arame-þang (fæst í heilsubúð um) 3 tO 4 shitake-sveppir (fást í heilsubúðum) 1 laukur 2 gulrætur sesamolía Þangið er lagt í bleyti yfir nótt og síðan soðið í söltu vatni í 15 mínútur. Látið renna af þanginu. Laukurinn sneiddur fint og gulræt- urnar skornar langsum (ef þær eru skornar þversum gráta þær). Grænmetið steikt í olíunni. Bland- að saman við þangið og bragðbætt með tamari-sósu eða soju (venjuleg sojasósa er of sölt). Að sögn Ingunnar passar þang- rétturinn bæði með tofu-réttinum og kjöti og fiski. Hún skorar á Jón B. Stefánsson, verkfræðing og hagyrðing, að vera næsti matgæðingur. „Hann er listakokkur sem sá um matseldina á heimili sínu þegar konan hans fór í nám.“ hin hliðin r»v Námsbækumar em eina lesefnið -seglrTryggvi Knattspyrnulið Vestmarinaey- inga, ÍBV, hefur vakiö mikla at- hygli undanfarið þegar strákamir hafa tekið upp á því að „dansa“ fyrir áhorfendur og gera ýmsar kúnstir. „Þetta hefur gert fótbolt- ann meira fyrir augað jaíriframt sem andinn í hópnum er frábær,“ segir Tryggvi Guðmundsson. í dag keppa ÍBV og KR og má segja að það sé úrslitaleikur um annað sætið. l'ryggvi Guömundsson er fæddur og uppalinn í Vestmanna- eyjum og hefur spilað meö ÍBV frá barnæsku fyrir utan eitt ár er hann gekk til liðs viö KR. Þaö er Tryggvi sem sýnir hina hliðina aö þessu sinni: Fnllt nafri: Tryggvi Guðmundsson. Fæðingardagur og ár: 30. júli 1974. Maki: Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir. Börn: Engin. Bifreið: Engin. Starf: Nemi í Fjölbrauta- skólanum í Ármfila. Laun: Engin. Áhugamál: Allar íþróttir, sama hvaða nafni þær nefnast. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Neí, ég klikka alltaf á að vera með i því. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Spila knattspyrnu en allur minn frítími fer í það. Hvað finnst þér leiöinlegast að gera? Þrifa heima. Uppáhaldsmatur: Svínaham borgarahryggur. Uppáhaldsdrykkur: Sódavatn. Hvaða íþróttamaöur stendur fremstur í dag? Sigrún Huld. Uppáhaldstimarit: íþróttablaöið. Guðmundsson, knattspyrnumaður í ÍBV Hver er fallegasta kona sem þú Bjarni Ólafur Guðnason. hefur séð fyrir utan maka? Cindy Crawford. Ertu hlynntur eða andvigur ríkisstjórninni? Hlutlaus. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Það væri ágætt að hitta Rowan Atkinson. Uppáhaldsleikari: Rowan Atkin- son. Uppáhaldsleikkona: Demi Moore. Uppáhaldssöngvari: Villi Vill. (Vilhjálmur Vilhjálmsson). Uppáhaldsstjórnmálamaður: Hermann Hreiðarsson. Uppáhaldsteikni- myndapersóna: Bart Simpson. Uppáhaldssjón- varpsefiii: Simp- son-fjölskyldan. Uppáhaldsmat- sölustaöur: ítal- ía. Hvaöa bók langar þig inest aö lesa? Einu bækurn- ar sem ég les um þessar mundir eru námsbækurnar. Hver útvarps- rásanna finnst þér best? FM 957. Uppáhaldsút- varpsmaö- ur: Hvort horfir þú meira á Sjón- varpiö eða Stöð 2? Stöö 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Valtýr Björn. Uppáhaldsskemmtistaður: Kofi Tómasar frænda. Uppáhaldsfélag í íþróttum? ÍBV. Stefnir þú að einhverju sér- stöku í framtiðinni? Já, ég stefni á að kaupa eigin íbúð ein- hvern tíma. Hvað gerðir þú i sumarfriinu? Ég fékk ekkert sumarfrí, ég var aö vinna á skrifstofu Vinnslustöðvarinnar í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.