Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Page 26
26 ’tónHst
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1995
Topplag
Bresku hljómsveitimar Blur
og Oasis njóta hvaö mestra vin-
sælda í Bretlandi þessa dagana
og efni frá þeim rýkur strax á
topp vinsældalista þarlendis.
Lagið Country House, sem nú
situr á toppnum á íslenska list-
anum, fór beint á toppinn i Bret-
landi strax eftir aö lagið var gef-
iö út.
Hæsta
nýja lag
Svo mikil samkeppni ríkir á
milli sveitanna Oasis og Blur að
meðlimir Oasis ákváðu aö gefa
út smáskífu með laginu Roll
with It sama dag og Blur gaf út
lag sitt, Country House. Roll
with It kemst alla leið í 10. sæt-
ið á íyrstu viku sinni á íslenska
listanum.
Hástökk
vikunnar
Hástökk vikunnar á banda-
ríska hljómsveitin Jayhawks
með lag sitt, Bad Time, sem fór
úr 33. sæti listans í það 16. Bad
Time er endurgerð gamals lags
hljómsveitarinnar, Grand Punk
Railroad.
Úhreint
sakavottorð
Breska hljómsveitin The
Charlatans hefur neyðst til að
stytta tónleikaferð sina um
Bandaríkin vegna þess að fyrir-
tækið Ocean Spray, sem ætlaði
að fjármagna stóran hluta ferð-
arinnar, dró framlag sitt skyndi-
lega til baka. Ástæðan fyrir
þessu óvænta áhugaleysi Ocean
Spray á hljómsveitinni má rekja
tU þess að frammámenn fyrir-
tækisins komust að því að Rob
Collins, hljómborðsleikari
Charlatans, sat inni fyrir
nokkru vegna þátttöku í vopn-
uðu ráni. Slíkur ferill þótti ekki
samboðinn trönuberjasaftinni
sem fyrirtækið framleiðir.
Rappið
heitt vestra
Umræðan um rappið og þann
siðferðisboðskap sem það hefur
fram að færa heldur áfram í
Bandaríkjunum og tekur á sig
ýmsar myndir. Er svo langt
komið að tónlistardeUd útgáfú-
fyrirtækisins Time Wamer er
alvarlega að hugsa um að hætta
að dreifa rapptónlist. Þá hefur
fyrirtækið Interscope Records,
sem hefur menn eins og Snoop
Doggy Dogg og Dr Dre á sínum
snærum, kært C. DeLores
Tucker, formann Landssam-
taka blökkukvenna í stjómmál-
um, fyrir atvinnuróg, en frúin
er hatrammur andstæðingur
rapptónlistar. Forráðamenn
Interscope halda því fram að
Tucker hafi boðist til að greiða
götu keppinauta fyrirtækisins í
samningum við Time Wamer ef
þeir hreinsuðu tU í rappdeUd-
inni hjá sér.
1
I-
i
!C
í BOIH BYLG.H XM Á LAIJGAKDAG KL. 16.00
suim
VIK
Uj
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
d> 3 9 3 ••• 1 VIKA NR. f— COUNTRY HOUSE BLUR
2 1 1 5 MISSING EVERYTHING BUT THE GIRL
3 2 2 8 '74-'75 CONNELS
C3) 10 13 3 VÍSINDASPUNI ÚR ROCKY HORROR
5 5 5 5 ÁSTIN DUGIR UNUN OG PÁLL ÓSKAR
o> 9 14 6 ALRIGHT SUPERGRASS
7 6 7 4 FAT BOY MAX A MILLION
8 4 3 4 SUPERSTAR ÚR SUPERSTAR
<3>- 11 15 5 YOU ARE NOT ALONE MICHAEL JACKSON
1 ••;• NÝTT Á LISTA ••• ROLL WITH IT OASIS
11 8 10 7 SHY GUY DIANA KING
(S> 14 39 3 LET ME BE THE ONE BLESSED UNION OF SOULS
13 7 4 7 ENGU ER AÐ KVÍÐA ÚR SUPERSTAR
25 - 2 ALL OVER YOU LIVE
GTs> 23 31 4 SEI LA PIU'BELLA DEL MONDO RAF
G5> 33 2 ••• HÁSTÖKK VIKUNNAR ••• BAD TIME JAYHAWKS
<3z> 21 23 4 ONLY WANNA BE WITH YOU HOOTIE & THE BLOWFISH
18 18 16 7 SAY IT AIN'T SO WEEZER
19 16 27 4 COLORS OF THE WIND VANESSA WILLIAMS
(2) 24 36 3 BABY, NOW THAT I FOUND YOU ALISON KRAUSS
21 13 8 7 VILLIDÝR SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
(2) 29 - 2 THIS IS A CALL FOO FIGHTERS
HH NÝTT 1 ISOBEL BJÖRK
24 15 11 8 A GIRL LIKE YOU EDWYN COLLINS
25 19 25 5 BÍ Bl TWEETY
26 12 6 6 TÍÐHNIT ÚR ROCKY HORROR
(2> NÝTT 1 DREAM A LITTLE DREAM/LES YEUX OUVERTS BEAUTIFUL SOUTH
28 17 12 7 WATERFALLS TLC
29 20 17 4 UPP i SVEIT STJÓRNIN HANS BUBBA MÍNS
GJ) NÝTT 1 POUR QUE TU M'AIMES ENCORE CELINE DION
NÝTT 1 FAIRGROUND SIMPLY RED
32 22 20 4 FALLIN'IN LOVE LA BOUCHE
(5) 36 - 2 ON THE BIBLE DEUCE
34 28 30 3 MIKIÐ ERTU UÚF GCD
m NÝTT 1 PANINARO '95 PET SHOP BOYS
i® 39 2 ALL I NEED TO KNOW FOREIGNER
m NÝTT 1 I COULD FALL IN LOVE SELENA
ds) 40 2 HAPPY JUST TO BE WITH YOU MICHELLE GAYLE
39 40 NÝTT 1 l'M YOUR MAN LISA MOORISH
2li 40 | 3 BLACK ROSES INNER CIRCLE
Islenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DVog Coca-Cola á Islandi. Listinn erniðurstaða skoðanakönnunarsem er framkvæmdaf markaðsdeild DV i hverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 13.00 a laugardögum. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski listinn
tekurþáttí vali "World CharC'sem framleiddur er af Radio Express i LosAngeles. Einnig hefurhann áhrifá Evrópulistann sem birtureri tónlistarblaðinu Music & Media
sem er rekið af bandaríska tónlistarblaðinu Billboard.
£&9
'UKMMáflXI
GOTT ÚTVARPI
Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og (var Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel ólafsson
Ekkert
R.E.M.
-súkkulaði
PUtamir í R.E.M. hafa höfðað
mál á hendur súkkulaðiframleið-
j andanum Hershey’s fyrir ólög-
lega og siðlausa notkun á nafni
hljómsveitarinnar. Hershey’s-
fyrirtækið notaði tækifærið og
birti auglýsingar á framleiðslu
sinni í tengslum við tónleika sem
R.E.M. hélt á Hershey Park Stadi-
um í Pennsylvaniu. Og þar sem
þetta var gert án samráðs eða
j samninga við hljómsveitina var
höfðað mál sem þykir nokkuð
pottþéttur vinningur.
Kröftug
mótmæli
Lollapalooza-tónleikaferðin
um Bandaríkin hefur ekki geng-
ið þrautalaust fyrir sig fram tU
þéssa og litlar líkur á að svo verði.
Á dögunum þurfti lögregla enn
að skerast i leikinn og nú var það
Kim Shattuck, söngvari hljóm-
sveitarinnar Muff, sem var sett-
ur hak við lás og slá um stundar-
sakir. Hann var eitthvað óhress
með sjónvarpsdagskrána þar
sem hann var stadduí á hótelher-
bergi í Alabama og gerði sér lít-
ið fyrir í mótmælaskyni og henti
sjónvarpinu út um lokaðan
glugga á þriðju hæð hótelsins.
Fækkar
í Elasticu
Talsmenn bresku hljómsveit-
arinnar Elastica hafa tilkynnt op-
inberlega að bássaleikari sveitar-
innar, Annie Holland, sé hætt. í
yfirlýsingunni segir einungis að
Holland hafi ekki þolað hinar
löngu og ströngu tónleikaferðir
sveitarinnar og að aðrir liðs-
menn Elasticu muni sakna henn-
ar.
Plötufréttir
Mike Scott, sem fram tU þessa
hefur gefið út plötur undir nafhi
hljómsveitarinnar The Water-
boys, sendir frá sér fyrstu sóló-
plötu sína undir eigin nafni nú
um miðjan september. Hún á að
heita „Bring ‘Em AU in“ ... Bri-
an Eno hefur tekið upp samstarf
við Jah Wohble og senda þeir fé-
lagar frá sér plötuna „Spinner"
nú með haustinu . . . Og Alison
Moyet er komin í hljóðver en út-
gáfudagur á nýrri plötu frá henn-
ar hendi hefur ekki verið ákveð-
inn...
-SþS-