Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1995
41
Kom frá Indlandi til
að giftast á íslandi
í júlí síðastliðnum yfirgaf Mercy
Washington ijölskyldu, vini og
hjúkrunarstarf í 8-9 milljóna
manna borg i heimalandi sínu, Ind-
landi, til að giftast unnusta sínum
sem beið hennar á Selfossi. Unnust-
inn er Indverjinn William Varad-
araj sem búið hefur á íslandi í fimm
ár.
„Hann kom í heimsókn til
Bangalore í fyrrasumar og það var
þá sem við kynntumst," segir
Mercy. Frá því að William settist að
íslandi hefur hann farið í heimsókn
til heimaborgar sinnar, Bangalore á
Suður-Indlandi, á hverju ári. „Bróð-
ir minn sagði við mig að hann vildi
kynna mig fyrir stúlku sem hann
starfaði með. Þetta var ást við
fyrstu kynni,“ segir William. Hann
dvaldi þó aðeins um mánaðarskeið í
Bangalore og við tóku bréfaskriftir
og mörg símtöl milli íslands og Ind-
lands.
En hvers vegna flutti William til
íslands?
„Það er löng saga. Um það leyti
hafði ég nýlokið námi í hagfræði og
ég var með útþrá. Margir í minni
fjölskyldu eru við störf í öðrum
löndum, í Mið-Austurlöndum, Ástr-
alíu, Evrópu og Bandaríkjunum. Ég
á bróður og systur hér á íslandi.
Systir mín kom fyrst hingað. Það
vildi þannig til að stúlka héðan frá
Selfossi kynntist frænda mínum í
Danmörku. Þau gengu í hjónaband
og þegar þau voru í heimsókn á Ind-
landi varð stúlkan, sem heitir Berg-
ljót, mjög hrifin af landinu. Hún
dvaldi hjá minni fjölskyldu í um
það bil eitt ár. Bergljót spurði syst-
ur mína hvort hún vildi ekki koma
í heimsókn til íslands og það varð
úr. Systir mín varð svo ástfangin
hér á íslandi og býr hér með manni
sínum. Þegar foreldrar Bergljótar
komu í heimsókn til Indlands kom
það til tals að ég hefði hug á aö
flytja úr landi. Þau spurðu hvort ég
vildi ekki koma til íslands en ég var
ekki viss. Þegar systir mín spurði
mig einnig hvort ég vildi ekki koma
sló ég til. Ég kom hingað í maí 1990.
Það var vel tekið á móti mér og ég
fékk vinnu hjá Alpan. Atvinnuleyfið
gilti hins vegar ekki nema í þrjá
mánuði og þá fór ég til Svíþjóðar í
nokkra mánuði. Síðan kom ég aftur
hingað og hef verið hér síðan. Mér
líður mjög vel á íslandi,“ greinir
William frá. Hann hefur búið víða
hér, á Eyrarbakka, í Þorlákshöfn,
Reykjavík og nú á Selfossi. Honum
hefur alls staðar verið vel tekið. „ís-
lenska þjóðin er lítil en hún er með
stórt hjarta,“ segir hamn.
Mercy hefur gefið honum loforð
um að þau haldi heimili á íslandi í
að minnsta kosti tvö ár. Svo ætla
þau að sjá til.
Að sögn Mercy, sem er þrítug og
á ekki lengur foreldra á lífi, var
erfitt fyrir hana að sannfæra systk-
ini sin um að það væri viturlegt að
yfirgefa öruggt starf hjúkrunarfræð-
ings á sjúkrahúsi til þess að setjast
að í framandi landi. „En þau gerðu
sér grein fyrir því að ég var ákaf-
lega ástfangin," segir hún.
Mercy kom svo loks til íslands í
júlí síðastliðnum og þann 26. ágúst
síðastliðinn gaf séra Þórir Jökull
Þorsteinsson saman þau William og
Mercy.
r
Anægður með
svalt veður
m
menmng
Djassrapp
Hið danska tríó trommarans Thomas Blachman er í einu oröi sagt al-
veg dúndurgott. Það er sjálfur Lennart Ginman sem plokkar strengi
kontrabassans, en hann lék með Sigurði Flosasyni á geislaplötunni
Gengið á lagið. Píanóleikari er Carsten Dahl sem leikúr með góðri til-
finningu, smekklegur, blúsaður og ljóðrænn. Á geislaplötu þeirra frá
síðasta ári, þar sem einnig má finna rappdúettinn Alwayz in Axion, má
heyra bassann hljóðblandaðan mjög framarlega, svona svipað og hjá
Cleveland Eaton er hann lék með Ramsey Lewis í tríóinu um og upp úr
1970, enda er keyrslan stundum í meira lagi.
Marga góða standarða má heyra á þessari plötu, flutta með ágætum
tilþrifum af tríóinu. Það sem gerir músíkina fráhrugðna öðrum píanó-
tríóplötum er viðvera rappkarlanna Keith Marable og Eyih Adjavon.
Þeir sleppa ágætum textum sem til eru við lögin „Night in Tunisia"
(Jon Hendricks), „Take Five“ og fleiri, en rappa þetta svona sjálfir sval-
ir og kæruleysislegir eins og hæfa _______________
þykir. Ég veit satt að segja ekki
hvort rapp þeirra er í betra lagi
eða ekki. Þetta er eiginlega hálf-
gert rapp stundum. Þegar á leið
fannst mér þaö bara trufla þessa Ingvi ÞÓr KormáksSOIl
annars ágætu músik, þótt ekki sé -----------------
því að neita að „Christopher Col-
umbus" og „7 Come Eleven" virkuðu nokkuð vel. Besta lagið á plötunni
er „When You Wish upon a Star“ en í því er að mestu þagað.
Það gengur ekki alveg upp að leiða saman tvær músikstefnur, en að-
skilja samt þannig að fulltrúar hvorrar um sig halda sínu striki í sinni
veröld án þess að bræða neitt saman. Breyting verður þó á þessu í
tveimur síðustu lögum plötimnar sem eru frumsamin eftir Blachman í
Acid-Jazz stíl. í þeim gengur samvinna þessara tveggja aðila eftir von-
um.
Eitt er víst að óhætt er að hvetja allt áhugafólk um djass og jafnvel
hiphop og rapp til.að mæta á tónleika hópsins í Tunglinu fóstudags-
kvöldið 8. sept. og kvöldið eftir á Ingólfstorgi klukkan 21.
Blachman Introduces
Standard Jazz and Rap, vol. 1
YMQMM. Mega Records
Hljómplötur
fyrir sig kuldann inni á hálendinu
að vetrarlagi sem hann hefur
kynnst í jeppaferðum með vinum
sínum.
Kuldinn kom Mercy ekki veru-
lega á óvart en hún varö undrandi
yfir að finna öll krydd sem hún þarf
til indverskrar matargerðar í litlum
bæ á íslandi. Hún er enn ekki farin
að spreyta sig á íslenskri matar-
gerð. „Ég hef smakkað íslenskan
mat og mér finnst hann góður. En
hann er einkennilega lítið kryddað-
ur,“ segir hún og hlær.
Þau hjónin tala saman á ensku.
„Enskan er enn við lýði í Indlandi
eftir nýlendutímabilið. Það er mjög
algengt á Indlandi að fólk tali sam-
an á ensku. Það lærir ensku um leið
og það kemur í skóla. En fylkismál-
ið okkar heitir kannada. Á foreldra-
heimUi mínu var hins vegar talað
tungumál sem heitir pamU vegna
þess að það var tungumál afa míns
og ömmu sem voru úr öðru fylki,“
segir William á ágætri íslensku. í
næsta mánuði ætlar Mercy að hella
sér út í íslenskunám tU að geta
fylgst með því sem er að gerast í
nýjum heimkynnum.
Hamingjusöm brúðhjón. William Varadaraj og Mercy Washington voru gefin
saman á Selfossi í ágúst síðastliðnum.
Þegar Mercy fór frá Indlandi var
þar 38 stiga hiti og henni þótti ákaf-
lega kalt hér þegar hún kom hingað
í júlí. Hún fékk snert af lungnabólgu
en er nú búin að ná sér. WUliam
tekur það fram að hann geti stund-
um orðið þreyttur á veðrinu héma
en samt sem áður líki honum betur
að vera í kulda en hita. ,;Uppáhalds-
veðrið er þegar það er logn og 7 til 8
stiga hiti.“ Hann setur heldur ekki
ÞJÓÐDANSAFÉLAG REYKJAVIKUR
Vetrarstarf hefst fímmtudaginn 14. september
að Álfabakka 14 A.
Þjóðdansar á fimmtudagskvöldum. Kenndir verða léttir dansar - allir geta verið með! Kennari er Kolfinna
Sigurvinsdóttir. Kennsla hefsl 14. september.
Gömlll dansarnir á mánudagskvöldum. Byrjendur og framhaldshópur. Kcnnari er Helga Þórarinsdóttir
og undirleikari er Páll Kárason harmoníkuleikari. Kennsla hefst mánudaginn 18. september og er námskeið-
ið 12 tímar. Er þetta ekki gamall draumur sem verl er að láta rætast?
Opnir tímar verða annan hvern miðvikudag kl. 20.30-23. Þú mætir þegar þú vilt og greiðir fyrir hvert
skipti. Nokkrir dansar eru rifjaðir upp og síðan dansa allir af hjartans lysl. Stjórnandi er Helga Þórarins-
dóttir. Fyrsta opna kvöldið verður 27. september. Mikið fjör!!
Nýjung hjá Þ.R.!!
Kennsla í hinum vinsæla dansi „Lanciers“. Kennari er Sigríður Þ. Valgeirsdóttir. Kennt verður
á þriðjudagskvöldum kl. 20-21 og hefst kennslan 19. september. Æskilegt er að þátttakendur séu í pörum -
þó ekki skilyrði.
Barna- og unglingaflokkar.
Áhugavert og þroskandi starf þar sem börnin dansa innlenda og erlenda þjóðdansa, syngja og læra ógrynni
af vísum. Kennsla fer fram síðdegis á þriðjudögum og á laugardagsmorgnum (ef þátttaka er næg).
Þrír aldurshópar: 3-5 ára; 6-8 ára; 9 ára og eldri.
Kennari er Elín Svava Elíasdóttir og hcfst kennslan 19. september.
■5'7'0FNN^,
IÚ NÍ
Allt dansáhugafólk
velkomið!!
Upplýsingar og innritun
í síma 587-1616
Þjóðdansaféiag Reykjavíkur
%
/>-5>ofnnv'’,x
" 10 Nl 'qS'
MM89MW8B8BWMWSIWWHHIHWIIÍ
MUNIÐ NYTT SIMANUMER
550 5000