Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1995, Qupperneq 37
45 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1995 Friðriksmótið hálfnað: Hannes Hlífar og Margeir standa best að vígi Frídagur er í dag, laugardag, á Friðriksmótinu i Þjóðarbókhlöðunni en sjöunda umferð mótsins hefst.kl. 14 á morgun. Þá mætast Margeir Pét- ursson og Hannes Hlifar Stefáns son en fyrir sjöttu umferð í gærkvöld voru þeir jafhir í efsta sæti. Staðan eftir fimm umferðir var þessi: I. -2. Hannes Hlifar Stefánsson og Margeir Pétursson, 4 v. 3. Jóhann Hjartarson, 2,5 v. og ein frestuð skák. 4. -7. Jón L. Ámason, Smyslov, Glig oric og Sofla Polgar, 2,5 v. 8. Helgi Ólafsson, 2 v. og ein frest- uð skák. 9. -10. Helgi Áss Grétarsson og Þröst ur Þórhallsson, 2 v. II. Bent Larsen, 1,5 v. 12. Friðrik Ólafsson, 1 v. Aðstæður til skákiðkunar í Þjóðar bókhlöðunni eru með besta móti, enda húsið glæsilegt. Áhorfendur sjá leikina birtast jaöióðum á sjónvarps skjám og geta valið um að fylgjast með skákmönnunum að tafli eða set ið í veitingasal í hæfllegri fjarlægð. Samhliða mótinu hefur verið sett upp sýning á skákmunum og ljós myndum sem tengjast ferli Friðriks Ólafssonar, auk skákrita í eigu Landsbókasafns. Er sýningin hin merkasta og er ástæða til að hvetja skákunnendur til þess að láta hana ekki fram hjá sér fara. Vai erlendu keppendanna er sér lega vel heppnað frá sjónarhóli áhorf- enda. Bent Larsen er þekktur fyrir að taka áhættu í skákum sínum og ekki sist hefur líf verið í tuskunum þegar þeir Friðrik hafa glímt við skákborð- ið. Skák þeirra nú var þar engin und- antekning en á endanum hafði Larsen betur. Þeir Larsen og Friðrik hafa raunar átt erfitt upp dráttar á mótinu. Gligoric er kunnasti skákmaður Júgóslava um árabil, þekktur fræði maður og „stöðubaráttujaxl". Hann er nú aftur að ná sér á strik eftir lægð undanfarinna ára en eflaust hef- ur ástandið heima fyrir haft þar sitt að segja. Hann hefur barist í öll um skákum sínum til þessa en öllum hef- ur þó lyktað með jafntefli. Koma Sofíu Polgar hingað verður vonandi til þess að glæða skákáhuga meöal stúlkna og kvenna. Þær er lendu skákkonur sem hér hafa teflt hafa ávallt verið aðsópsmiklar, allt frá því Nona Gaprindahsvili gerði garðinn frægan fyrir liðlega þrjátíu árum. Loks er nefndur fyrrverandi heimsmeistari, Vassilí Smyslov, skáksagan holdi klædd. Smyslov tefldi fyrst i heimsmeistarakeppn inni 1948 og á að baki þrjú einvígi um heimsmeistaratitilinn við Bot vinnik. Smyslov var orðinn sextugur er hann komst síðast í áskorenda keppnina (1982) en í úrslitaeinvígi um áskor- endaréttinn beið hann lægri hlut fyr- ir Kasparov. Hann hef ur áreynslu- lausan, tæran skákstil og hefur sjálf- ur líkt taflmennsku sinni við sam- hljóm tónanna. Smyslov lék af sér. manni í 2. um ferð gegn Jóhanni og kaus að gefast upp eftir aðeins 16 leiki. Nú virðist hann hins vegar vera búinn að finna rétta taktinn. Grípum niður í skák hans við Soflu Polgar í fjórðu um ferð. Smyslov hefur hvítt og á leik: 8 7 6 5 4 3 2 1 19. f4! exf4 20. e5 Hae8 Eftir 20.-Bxd3 21. Dxd3 Dxd3 (22. -Dc5+ 23. Bd4) 22. cxd3 Rd5 23. axb5 á svartur einn ig í miklum vanda. 21. Ddl Nú kemst svartur ekki hjá manns Umsjón Jón L. Árnason tapi. Eftir 21. De7 22. exfB RxfB 23. BxfB Dxf'6 24. Rxf4 vann Smyslov létt. Smyslov tefldi hér á Reykjavíkur skákmótinu 1974 og sigraði glæsi lega, hlaut 12 vinninga úr 14 skákum. Hrein unun var að fylgjast með hon um að tafli á mótinu. Tvær skáka hans, gegn Friðriki og Guðmundi, hefur hann sjálfur sett í safn sinna bestu skáka en önnur verk hans frá mótinu eru ekki síðri. Rifjum upp skák hans við Ingvar Ásmundsson. Mér er minnisstætt sem unglingi hvað mér þótti Smyslov fljótur að breyta betra tafli í unniö, án þess að ég áttaði mig á því hvernig hann fór að því. Hvítt: Vassilí Smyslov Svart: Ingvar Ásmundsson Hollensk vörn. 1. d4 f5 2. c4 e6 3. Rc3 RÍ6 4. e3 Be7 5. Bd3 d5 6. Dc2 c6 7. b3 0 0 8. Bb2 a6 9. Rf3 Bd7 10. Re5 Be8 11. Re2 Bb4+ 12. Bc3 Bd6 13. f3 Rbd7 14. Rf4 De7 15. h4! Treystir í sessi riddarann á f4 sem er lykilmaður í stöðu hvíts. Þrátt fyr ir varfærna og rólyndislega byrjun hefur hvítur náð þægilegri stöðu. 15. -Bc7 Til greina kemur 15.-a5. 16. 0-0-0 Rxe5 17. dxe5 Rd7 18. cxd5 cxd5 19. Db2 Rc5 20. Be2 a5 21. Kbl Bd7 22. h5 b5? Betra er -a4 og svartur er ekki án gagnfæra en nú lendir hann í erflð leikum. 23. Bd4! Hfc8 24. h6 g6 8 7 6 5 4 3 2 1 25. g4(!) Það er athyglisvert að Smyslov skuli í skýringum við skákina ekki minnast á möguleikann 25. Bxc5 Dxc5 26. Rxd5 og ef 26. -exd5, þá 27. e6 með hótun á d7 og g7. Með texta leiknum losnar hann við að reikna út langar leikjaraöir og heldur svört um í spennitreyju. 25. -fxg4 Þvingað því að hvítur hótaði sjálf- ur að taka á f5 og opna g-línuna. 26. Hdgl! gxf3 27. Bxf3. Skyndilega hafa flóðgáttir að svarta kónginum opnast og svartur stendur frammi fyrir óleysanlegum vandamálum. Eftir opnun g-línunn ar ræður hann ekki við sóknina. 27. -Re4 28. Bxe4 dxe4 29. Rxg6! hxg6 30. Hxg6+ Kh8 31. h7! Og svartur gaf. Hvítur hótar 32. Dg2 og næst 33. Hg8+ og mátar. jdge Ursllt heimsmeistaramóts yngri spilara 1995: Bretar sigruðu Nýsjálendinga Bretar sigruðu Nýsjálendinga á heimsmeistaramóti yngri spilara sem haldið var á eyjunni Bali í júlí mánuði sl. Tólf sveitir unnu sér rétt til þátt töku og var byrjað á seríukeppni. Að henni lokinni spiluöu fjórar efstu sveitirnar útsláttarkeppni um heimsmeistaratitilinn. Breska sveitin vann seríukeppn- ina með yfirburðum og valdi sveit Kanada sem andstæðing. Þar meö Umsjón Stefán Guðjohnsen lentu Danmörk og Nýja-Sjáland sam an í hinum undanúrslitaleikn- um. Breska sveitin vann síðan Kanada og Nýja-Sjáland Danmörku. Nýju heimsmeistararnir eru ekki með öllu ókunnir íslendingum, þvi fjórir þeirra spiluðu á bridgehátíð Flugleiöa og Bridgesambands ís lands fyrr á árinu. Þ.eir heita Justin og Jason Hackett, Jeffrey Allerton og Tom Townsend, Danny Davies og Phil Souter. Stærsta sveifla mótsins kom fyrir í undanúrslitunum : N/N-S 4 G652 * ÁKDG8 * 96 * Á8 4 10943 9754 * 3 * KG73 * AD7 * 62 ♦ ÁKD1087 * D10 Norður Austur 1 hjarta pass 2 spaðar pass 4 lauf pass 4 hjörtu pass 6 tíglar pass Suður Vestur 2 tiglar pass 3 tíglar pass 4 tíglar pass 4 spaðar pass 7 tíglar Allir pass Allerton og Townsend voru n-s en Blond og Levy a-v. Þetta er ágæt sagnröð hjá þeim bresku en það var líklegt að a-v fengju samt töluna vegna tromplegunn ar. En til allrar hamingju fyrir þá aðhyllt ist vestur þann flokk manna sem ávallt tromp- ar út gegn alslemmu! Það voru 2140 til Bretanna. Á hinu borðinu sátu n-s Kovacz og Pollack en a-v Jason og Justin. Norður Austur 1 hjarta pass 2 spaðar pass 4 tíglar pass 4 grönd pass 6 tíglar pass Suður Vestur 2 tiglar pass 3 tíglar pass 4 spaðar pass 5 lauf pass pass pass Justin spilaði út laufi og sagnhafi var augsýnilega mjög óánægður með að hafa misst alslemmuna. Hann gætti því ekki að sér, drap á laufás og tók tvisvar tromp. Hann gat samt ennþá unnið spilið með því aö fara inn á hjarta og svina spaða drottningu. Síðan spilar hann hjarta og meira hjarta. Ef austur trompar ekki fær hann trompslag en sagn- hafi vinnur samt sitt spil. í hinum undanúrslitaleiknum enduðu Nýsjálendingamir í fimm tíglum en á hinu borðinu fóru Dan- irnir í sjö tígla. Nýsjálendingurinn í vestur spil- aði út spaða, lítið, kóngur og ás. Sagnhafi tók nú tvo hæstu í trompi og fékk vondu fregnirnar. Hann fór nú í hjartað og í þriðja hjartað gerði austur þau mistök að kasta laufí í stað spaða. Sagnhafí spil aði meira hjarta, austur kastaði öðru laufi og sagnhafi trompaði. Spilið stendur nú upp í loft. Allt sem sagnhafí þarf að gera er að fara inn á laufás, trompa lauf og spila spaða á gosann. Síðan kemur síðasta hjartað og austur er fastur í svo kölluðu „stór“ bragði. Það er sama hvað hann ger- ir, sagnhafi á afganginn. Daninn fór hins vegar villur vegar og varð einn niður. STORMÐBURDUR 3 HiQLUNNI! Ferða og útmstarsýnimg fgoSskyiduni?iar I Laiuigareialshöi 21.-24. sept. '95 eMet, . —^ /fllJLUlU Pressuleikur Mizuno-deildarinnar Úrvalslið Mizuno gegn íslenska kvennalandsliðinu sunnudag 10. sept. kl. 14.00 á Stjörnuvellinum, Garðabæ Mætum öll Ókeypis aðgangur Landhelgisgæsla íslands hefur opið hús milli kl. 13.00 og 17.00 í dag. Varðskip við Ingólfsgarð verður til sýnis. í flugskýli Landhelgisgæslunnar við Naut- hólsvík eru flugvélar Gæslunnar ásamt bún- aði til sýnis. Einnig verða Sjómælingar ís- lands og sprengjudeild Landhelgisgæslunn- ar með kynningu. ALLIR ERU VELKOMNIR. Landhelgisgæsla íslands NORDMENDE SURROUND-SJONVARPSTÆKI MEÐ NÝJUM OG BETRI SKJÁ Nordmende Spedra SC-72 SFN er vandaÖ 29" sjónvarpstæki: • Black D.I.VA flatur svartur myndlampi meS PSI/CTl/ISO tækni sem auka myndskerpuna til muna og aSdróttarstilling |zoom) í tveimur þrepum. • 40 W Stereo Surround- magnari, 4 innb. hátalarar og tengi fyrir 2 bakhátalara. • 2 Scart-tengi, video/audio tengi og tengi fyrir heymartól. • AuÖnotuS fjarstýring, aSgerSastýringar á skjá, stillanleg stöSvanöfn, íslenskt textavarp, tímarofi, vekjari o.m.fl. ÞÝSK HÁGÆÐAVARA ! BLACK D.I.V.A. ^o-hátölurum tilbOÐá sem'iSupa nordmendE FYRIR þa ^ónvarpst^ki. SC-72,! ,3 000,- kr. Par,ð AÐEINS 13.9WW, RAÐGREIÐSLUR SKIPHOLTI TIL ALLT AÐ 36 MÁNAÐA ™ ÁLLT AÐ 24 mANAOA Sími: 552 9800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.