Þjóðviljinn - 23.12.1947, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 23.12.1947, Blaðsíða 9
Jólin 1947 ÞJÓÐVILJINN 7 Hann gat ekki varizt því að kenna í brjósti um þessa tusku, þó að hann hefði viðbjóð á líferni hennar, hún var einstíöðingur og ólánsmanneskja. Hálfklæddur skygndist hann fram á ganginn. Jú rétt, þama lá hún á hliðinni og hafði troðið pokaskudda undir höfuðið. Fyrir framan hana flóði spýjan og lyktaði um allan gang. Hann stjakaði við henni. ,,Komdu inn og legðu þig fyrir á bekknum, skinnið mitt,“ sagði hann, studdi hana inn fyrir og lánaði henni volgu yfirsængina sína til að breiða yfir sig á bekknum, sem stóð undir súðinni gegnt rúmiriu hans. Hann tók af henni hattinn og hagræddi höfði hennar. ,,Ósköp ertu full núna, Sibba mín.“ „Ég er ekkert full, bara mjúk.“ drafaði i henni, en hún laug, því að hún var moldfull, andartaki siðar hraut hún eins og gamall drykkjusvoli. — Þessi morgunn leið í árangurslausri bið við Þjóðleikhúsið. Um 'hádegisbilið rölti hann heim á leið með lífsbjörg handa sér og Sibbu Sæm. Hann vakti hana til að borða, en hún var óðara oltin út af aftur. Það var því ekki mn annað að gera en skilja hana þarna eftir í ólæstu herberginu, þegar hami lagði upp í nýja atvinnuleit. Á afliðandi nóni var hann orðinn úrkula vonar rnn að hann kæmist í vinnu þennan dagimi og lötraði af stað heimleiðis á þessum lúalega seinagangi, sem var óbrigðult merki þess að stöður hans og vakk, vonir og bænir hefðu orðið til einskis. Þetta var einstakur blessaður sólskinsdagur með fjörugu götulífi, sumarbúnu fólki, barnavögnum, stálpuðum krökkum, sem sleiktu rjómaís, veðurbitn- um hennönnum í mógrænum einkennisbúningum með byssur á’baki. Verkamaðurinn, sem þrammaði bón- leiður úr bjargarleit kunni ekki skil á þeirri sól, sem er mönnum til skemmtunar. Hann þekkti aðeins þá sól, sem þurrkar hey og flattan fisk. Hann kunni heldur ekki upp á það að si>óka sig i sólskininu, hann hafði aldrei átt sumarföt, þekkti ekki sumarfrí nema af orðspori og rjómaís hafði hami ekki smakkað nema einu sinni og þá fengið eft- inninnilegt tannkul. Sólskinið gladdi hann ekki, hann var stúrinn í bragði. „Það er góða veðriö", var sagt við hliðina á hon- um. Hann leit út undan sér, sá sem hafði ávarpað hann var ungur maður, vart meira en þrítugur, vel búinn og þóknanlegur. Verkamaðurinn játti þessari aug- ljósu staðreynd og hélt áfram nokkru greiðara en áð- ur. Ókunni maðurinn fylgdist með honum og braut upp á samtali um atvinnulífið og kaup verkamanna. „Þið eruð ekki lengi að losa hvert hundraðið, ef þið hafið vinnu,“ sagði hann. „Ég sé að þú munir ekki hafa haft handtak að gera í dag, en þín ferð verður væntanlega betri á morgun." Verkamaðurinn leit upp með vonarglampa í aug- unum. Ef til vill var þessi maður leppur h já Englend- inguniim og gat með einu orði komið honum í varan- lega vinnu. „Maðurinn er kaimske í brezkri þjónustu," sagði hami varfæmislega. Nei, það var maðurinn ckki. Hann lét ekkert uppi um stöðu sína í mannfélaginu, en hélt áfram að tala um verkamenn, kjör þeirra og aðbúnað við vinnu. „Þú munt vera þaulkunnugur þessu öllu,“ sagði hann. „Ójá, ég er nú búinn að vera verkamaður hér í rúm þrjátiu ár,“ svaraði hann og fræddi ókmma mann- inn tortiyggnislaust um það, sem hann vildi vita. Hann fann velvildarhug hans streyma til sín og þvi var hpnum hugarléttir að því að telja honum atvinnu- raunir sínar og umkomuleysi. . „. . . . Okkur, þessum eldri mönnum, er að verða of- aukið á vinnumarkaðinum, þó að við séum fullfærir til vinnu. Til að mynda er ég litið farinn að tapa kröftiun, en maður stirðnar við aðgerðaleysið. í hita- veituna á ekki að taka neina meim, sem eru eldri en fimmtugir. Til kaupavinnu þyki ég líka of gamaD nema fyrir liðlettingskaup, ekki tjóar að tala um rikisverksmiðjurnar, sjómennsku eða vegagerð, hafi maður ekki komizt inn á einhvern vinnuveitanda og hangið á honum árum saman. Yngri menn sitja fyrir allri vinnu. Ég er svo sem ekki að segja að það sé óréttlátt, en yfirtak er það samt kveljandi að vera útskúfað frá vinnu á meðan maður er bráðfrískur og vill reyna að bjarga sér, og þarf að aura saman fyrir seinni tímanum. Enginn veit, hvers gamall maður getur þurft með, og alltaf þykir það sómasamlegra að eiga fyrir útförinni sinni, en það er rétt svo sem að maður leggi fyrir. Stjóniirnar plokka hverja krónu og því verri verða þær sem hausarnir á þeim eru fleiri.“ Hann þagnaði hræddur um að hann hefði gengið of langt í ádeilu sinni á stjórnir bæjar og ríkis. „Yerst er þó að skilja svo við þennan heim, að ekkert liggi eftir mann,“ sagði hann í armæðutón, sjálfsásökun yrði honum þó ekki til dómsáfellis. „O, mörg muntu nú eiga handtökin hér í þessum bæ,“ sagði ókunni maðurinn. „Skyldi það ekki vera ,þú og þínir líkar, sem hafið sprengt upp klappirnar i holtunum hérna og byggt heil 'hverfi, þar sem áður

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.