Þjóðviljinn - 23.12.1947, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 23.12.1947, Blaðsíða 19
Jólin 1947 ÞJÓÐVILJINN 17 The Tower of Londón, kastolinn og dyflissan, þar sem kon- ungar Englands geymdu „hættulega" menn og gerðu þá oft % höfðinu styttri, er eins gan;alt og á grönum má sjá. Talið er að elzti hluti hans sé frá 1078. foss til Borgarness. Mér þótti kaldinn 4 sundinu nap- ur og kom mér undir þiljur. 1 veitingasalnum varð ekki séð að þetta skip væri að láta úr höfn frá hungrandi meginlandi. Lystisemdir matmanna virt- ust þar nægar. Eg varð að fara upp og láta Emil vita af þessu. Yfir veitingasalnum voru tvær sam- hliða dyr út að dekkinu. Yfir öðrum þeirra stóð: Að- eins fyrir dömur. Nú varð mér það á að fara. einmitt inn um þessar dyr. Inni í hinni rúmgóðu vistlegu kvennadyngju sátu aðeins þrjár innþornaðar hefðar- frúr með eldsúnim svip. Það var því engin uppgerð, þegar þjónustustúlkan gekk í veg fyrir mig til að endurtaka áletrunina á hurðinni, að ég sagði henni að ég hefði sannarlega ekki komið hingað til þess að setjast hér að. Hvar voru allar kvinnumar? Auðvit- að voru þær uppi á þilfari og um allt skipið — hjá karlmönnunum! Um kvöldið sofnuðum við út frá brimgný umferð- arinnar í London. Gistihússtjórinn virtist kátur yfir ,, .n,T . a„„„ því að við hefðum komið aftur til > sín, og var hinn ræðnasti. Hann kvaðst margan Islendinginn hafa hýst, þetta væru í rauninni ágætir náungar. Svo þuldi hann upp: þessi hafði verið gentleman, þessi hafði verið gefinn f jári mikið fyrir kvenfólk og wiský, þessi hafði oft komið harla seint heim o. s. frv., o*s. frv. Hvort við þekkt- um þá? Meðan við biðum eftir því að íslenzkur togari kæmi til 'hafnar í Bretlandi notuðum viá tímann til að nasa ofurlítið af London, þessari alitgleypandi borg, scm sumstaðar minnir á eyðihraun, en annarsstaðar á Eden. — Eg hef nú bráðum verið í London 20 ár, en samt þekki ég hana ekki, sagði einn kunningja okkar. Þó er áuðvelt að fá þar á nokkrum dögum efni í margra blaðsíðna ferðaþistil —, en þótt það væri kannske einhverjum til ánægju yrði það öðrum til leiðinda, og af þvi það eru jólin er bezt að vera jafn sáttur (eða ósáttur) við báða. Og hver vill t. d. lesa á jólunum um The Tower, kastalann og dyfliss- una þar sem konungar Englands fyrr á öldurn geymdu andstæðinga sína (oft saklausa) og gerðu þá höfðinu styttri ? Og gengur það ekki guðlasti næst Hér sést hvernig aðeins hlutar sumra húsanna í London stóðu uppi eftir sprer.gjuárásir Þjóðverja.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.