Þjóðviljinn - 23.12.1947, Blaðsíða 34

Þjóðviljinn - 23.12.1947, Blaðsíða 34
32 ÞJÓÐVILJINN Jólin 1947 öllum lokið klukkan 6—7 um kvöldið. Kertalykkjurnar lágu á baðstofuborð- inu, og byrjaði mamma að kveikja á þeirri fyrstu og lét brenna sundur rakið á milli þeirra, logaði þá á tveim kertum undir eins. Þau vora svo gefin elztu mönmun í baðstofunni. Þessi athöfn stóð talsverðan tíma, og biðum við börnin, meðan allt eldra fólk tók á móti sínum kertum. Loksins tók mamma kertalykkjuna okkar og kveikti á henni. Svo rétti hún mér og Óíu systur sitt kertið hvoru með ljósi. „Takið þið við, börnin mín góð,“ sagði hún, og tárin rannu niður kinnar henni. Ég tók við mínu kerti og kyssti mömmu og strauk með litlu lófunum tárin henn- ar. Hún brosti og sagði: ,’,Þykir þér falleg jólaljósin, Eyfi minn. Þrír bræður þínir og systir njóta þó fegurri jólaljósa hjá jólabarninu Jesú.“ Svo kveikti hún á tveim hákertmn, sem stóðu í stjökum á borðinu, — það voru hjónaljósin. Gesturinn, sem var aldraður bóndi, sat við annan borðs- endann og fékk líka sitt kerti. Af háhillunni yfir baðstofugluggamun vora nú teknar lestrabækurnar. Það var Péturspostilla, bænakver og tvær sálma- bækur. Pabbi flutti sig inn til mömmu sinnar í norðurbaðstofuna, en söngfólk- ið var kyrrt í frambaðstofunni. Gesturinn var góður raddmaður og bvrjaði jólasálminn. Tveir sálmar voru sungnir á undan og tveir á eftir. Hjá pabba sat ég allan lesturinn og mændi á opna postilluna.' Hvenær ætlaði þessi lestur að enda? Og svo átti ég að muna eitthvað úr honum. Þetta mundi ég: ,,Guð — Drott- inn — allt — Amen!“ og pabbi brosti. Þetta var allt og sumt, en söngnum tók ég betui' eftir. Og braut heilann um það, hvað Guð mundi eiga margt í ,,horn- um“ sínum. Seinna um kvöldið spurði ég ömmu, hvort hún vissi það. Hún varð byrst og sagði, að hjá Guði væru engin horn. „Svona máttu ekki spyrja, dengi minn,“ sagði hún. baðið, og fólkinu létti 1 skapi. Vænir spaðbitar — feit- „En það var sungið i jólasálminum," sagði ég. Það ur og magur — voru í hvers manns aski. Allir höfðu mundi ég glöggt. Forsöngvarinn sagði svo skýrt: skipt u. nærföt, er þeir komu úr baöinu, og nú ,,. . . .minn Guð gaf af hornum sér“. Amma leiðrétti klædd ; ir sig í sparifötin. Svo var kvöldverkum mig með andakt, og bágt átti ég að skilja, að hennar stóð stór skál á borðinu með hreinu köldu vatni og sápu, sem hver notaði síðast — eftir vild. Þegar búio var að skola okkur börnin, kom full- orðna íóikið og lét lika lauga sig. Það var bara ein- staka manneskja, sem ekki tók nema keytuþvottinn. Þegar stúlkurnar voru búnar, lokuðu karlmennirnir sig inni og bára áður að margar fötur af volgu og köldu. vatni. Mátti þá heyra^bomsara boms, en ekki fékk ég að korna inn til þeirra. Það var talsvert verk á efiir að hreinsa út úr vefjarhúsinu og færa þar í lag. Að öliu þessu loknu var borin inn rjúkandi kjöt- súpa, þykk eins og grautur. Það verkaði vel á mann

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.