Þjóðviljinn - 23.12.1947, Blaðsíða 32
30
ÞJÓÐVILJINN
Jólin 1947
Dr „Vökunóttum”
eftir Eigjólf Guðmundssim á iivoli
ÞORLÁKSMESSA
Eyjólfnr Guðmundsson, höfundur „A-fa og limmu" og
„Pttbba inömmu", scndi í fyrra frá sór htna ranunv
Þegar lokið var útiönnum, tók pabbi
hangikjötslæri ofan úr eldh#si, afturfall
af sauð, bjúgu og fleira smávegis. Kjöt-
ið brytjaði hann í mátulega parta, eftir
því 'hvað margir voru á heimili, en Anna
gamla skóf það og þvoði upp í pottinn.
Var þá heldur matarþefur í bænum, og
við bömin fengum sneið af hráu hangi-
kjöti, en svo máttum við ekki vera í
eldhússvælunni hjá önnu. Þegar við
skutumst þangað, rak hún okkur óðara
til baka. Þar var samt gaman að vera.
Þar logaði í tveim eldstæðum og brak-
aði í eldiviðnum, allavega litum logum
sló upp með pottinum og út úr hlóðar-
vikunum. Anna sat á torfbing eins og
drottning í hásæti og raulaði vísur.
Kirnum og koppum var snyrtilega raðað
meðfram taðstálinu, og grútarlampinn
vel tendraður. Ljósið á honum var eina
og rautt tungl í gufunni frá hlóðunum.
Þá var ilmur af hangikjöti og brauð-
bakstri ekki lítið heillandi. Og svo úti
í dimmunni, allt mnhverfis, voiu jóla-
sveinar og aðrar hræðilegar vofur.
Anna skipaði mér strax að fara inn,
þegar ég mæltist til, að hún segði
mér sögu.
„Hérna er ekki óhætt fyrir krakka,“
Þorláksmessa, það var fallegt nafn á degi. Og dag-
urinn var eins og morgunroði jólahátíðarinnari Eftir
mörgum björtum Þorláksmessum man ég. Aðeins ein-
um Þorláksmessubyl — frá æskudögum. Þessi Þor-
láksmessa var björt. Pabbi og drengirnir komu inn,
þegar sólin var að renna sér á rönd ofan í hafið. Anna
gamla eldakona sópaði göngin, lagaði til í taðstálinu,
isicnzku barnubók .,Vökuna>tur“, J>ai- oeru luiuu
frú bernskuminniiif-um sinum. Nú er riýkomið út aun-
að blndl þessarar bókar, og eru Jrofr tvelr kaflar, sem
hér l'ara á eftir, teknlr lir Jnu.
setti eld í gömlu híóðimar, svo að tvennir eldar voru
í eldhúsinu. í öðrum hlóðúnum var sett jámhella á
glóð og hvolft potti á hana, s’vo var
kveikt í þurru torfi kringum pottinn.
Þar var bakað jólabrauðið.