Þjóðviljinn - 23.12.1947, Blaðsíða 43
Jólin 1947
ÞJÖÐVILJINN
41
fékk áhuga fyrir grundvallaratriðum lífeðlisfræð-
innar og hefur nú í allmörg ár starfað að rannsóknum
á bakteríuvinisum. Hann er nú meðal hinna fremstu
á því sviði. Það var ekki tilviljun að prófessor Del-
briick valdi virusana sem rannsóknarefni, því að þeir
gefa einstætt tækifæri til þess að rannsaka þróunar-
gang lífsins. Vírusarnir eru mjög smáir, minni en
nokkur baktería, og það hefur jafnvel verið deilt rnn,
hvort þeir væru lifandi eða dauðir. Þeir líkjast lif-
andi verum i þvi, að ein vírusögn orsakar myndun
annarrar sams konar agnar, þó ekki nema í sambandi
við lífvenrr. Á hinn bóginn hafa vírusarnir aðra eig-
inleika, sem annars koma aðeins fyrir hjá dauðum
efnum. Það hefur t. d. tekizt að kristallisera suma
þeirra.
Hér höfum við þá agnir, varla stærri en stór móle-
kúl (sameindir), sem eru þeim hæfileikum gæddar að
geta orsakað myndun sams konar agna með nærveru
sinni. Það mætti því ætla að rannsóknir á háttarlagi
þessara agna yrðu til þess að kasta einhverju ljósi á
hinar óleystu gátur arfgengisins, einnig 'hjá fjöl-
breyttari lífverum. I vírusunum koma einnig fyrir
breytingar, sem að öllu leyti líkjast stökkbreyting-
vun hjá lífverunum, þ. e. a. s. breytingar, sem gerast
skyndilega og ganga í erfðir. Vírusamir eru af sömu
stærðargráðu og genin, sem valda stökkbreytingum
hinna f jölbreyttari lífvera, svo að hér höfum við að-
stæður ,sem jafnast á við, að við gætum rannsakað
breytingamar í genunum sjálfum, án þess að þurfa
að fást við áhrif þeirra á frumur likamans.
Einna auðveldast er að gera tilraunir á bakteríu-
vírusum. I>eir lifa sem ,,snýkjudýr“ á bakteríum, en
sambúð þeirrá við bakteríumar er þarrnig varið, að
vímsögn, sem tekur sér aðsetur á eða. í bakteríu,
gengur af henni dauðri, því að eftir svo sem 20 mín-
útur springur bakterían, en út úr henni koma um
100 nýjar vírusagnir. Með hverjum hætti margföld-
unin gerist, er þó ekki útkljáð mál.
Um áramótin ’45—’46 tók ég að starfa við há-
skólann í Princeton og vann að rannsóknum á geim-
Hernám vísindanna — radartæki
....
íi lp' f|!
1-.. 1 ' *
KjarnorkustÖð Bandaríkjamanna við Pasco í Washington
1