Þjóðviljinn - 24.12.1961, Blaðsíða 27
BENEDIKT GISLASON frá Hofteigi:
HINN VALTI VINUR
Sagt frá Poka-ÞórSi og œttmönnum hans
, • ■ „Ættum Austfirðinga“ er talin Arn-
I M heiðarstaðaætt, allfjölmenn ætt og í
I ýmsu merk. Gjörð eru góð skil á upp-
! íruna hennar og fylgja ættarsagnir.
,Var höfundurinn, séra Einar Jónsson,
!af sömu ætt til hliðar og lágu þrjár
'konur mili, er allar voru miklar skýr-
leikskonur og langminnugar. . .
j Amheiðarstaðaætt er rakin frá Þórði
Arnasyni, er kallaður var Poka-Þórður,
en bróðir hans var Erlendur, faðir
Gróu, móður Margrétar, móður Jám-
gerðar, móður séra Einars.
Gjörð er sú grein á uppruna þeirra,
að þeir hafi verið húnvetnskir menn,
en fjórir bræður hafi komið frá Mó-
bergi í Langadal austur á Fljótsdals-
hérað og átt þar siðan staðfestu.
Sögn var líka, að foreldrar þeirra
hafi komið austur og þá öll fjölskyld-
an og mun það sönnu næst. Því fyr-
ir .utan þessa fjóra bræður, sem getíð
er um, áð austur hafi komiðl ér ÞÓr-
leifur sem er á Víðivöllum i Fljótsdal
1703, eflaust einn bróöirinn, Fyrir utan
þá, sem nú hafa nefndir verið; . eru
svo Bessi og Grímur. Eftiy aldri þeirra
í manntalinu eru þeir fæddir, Þorleif-
ur 1659, Þórður 1662, Bessi 1667 og
Erlendur 1675. Grímur drukknaði í
Lagarfljóti, og hefur það verið fyrir
1693, því að Þorleifur á son, Grím, sem
er 10 ára 1703 í fóstri hjá Þórði.
Foreldrar þeirra hétu Árni Þorleifs-
son og Gtiðrún Þórðardóttir. Árni var
' sonúr Þörleifs'Jórissonar' lögmanns,' er
missti lögmannsdæmi 1618 fyrir barn-
eign, Sigurðssonar sýslumanns á
Reynistað, Jónssonar á Svalbarði,
Magnússonar. Jón lögmaður átti Þor-
björgu, dóttur Magnúsar sýslumanns á
Eiðu'm, Vigfússonar, og hefur Þorleifur
eflaust" vérlð ábiiírf'þéhnar, þótt munn-
mæli segi, að hann sé það launbarn
Jóns, er fæddist 16Í7. Auðsætt er,
að það er fangt. Ef Þorleifur væri
iæddur um það leyti, væri það held-
ur stutt, í tíma, að sonarsonur hans,.
Þorleifur, fæðist 1659.
Arni Þorleifsson hefur eflaust heit-
ið eftir Arna sýslumanni á Eiðum,
bróður Þorbjargar, og sjálfsagt er það,
JOLABLAÐ ÞJÓÐVILJANS - BV