Þjóðviljinn - 24.12.1965, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 24.12.1965, Qupperneq 13
LEIGUHERBERGI MEÐ HÚSGÖGNUM Eirðarlausir, flöktandi, stöðv- unarlausir og óstöðvandi eins og sjálfur tíminn, þannig er farið sérstökum flokki manna, sem rauðu tígulsteinshúsin í neðsta Vesturbæ hýsa. Heimil- islausir, sem þeir eru, eiga þeir sér þó ótal smugur. Þeir flytja í sífellu stað úr stað, úr einu leiguherbergi með húsgögnum í annað. og herbergi þessi, sem hýst hafa svo marga, ættu að geyma ótal sögur, að vísu ekki merkilegar allar. en þó væri furða, ef ekki leynist einn og einn svipur horfins manns í fyrri híbýlum þessara farand- svipa. Það var kvöld eitt eftir sól- setur, að ungur maður sást á vakki fyrir utan þessi hrörlegu, rauðu hús. Hann hringdi hverri dyrabjöllunni eftir aðra, og er hann kom að hinum tólftu, lagði hann frá sér tösku sína, litla fyrirferðar, og þurrk- aði svitann af enni sér og af svitagjörðinni á hattinum. Þeg- ar hann studdi á hnappinn, hljómaði bjallan eins og úr fjarska og með holum hljómi. tJt í gættina á þessu hinu tólfta af húsunum kom kona, sem honum fannst líkjast feit- um, oföldum maðki, sem búinn væri að éta allt innan úr hnot- skel sinni, og væri nú áfjáður að fylla hann aftur af ein- hverju ætilegu. Hann spurði hvort hún hefði herbergi til leigu. ..Gerið svo vel að koma inn‘‘, sagði hún. Röddin kom neðan úr barka. og sá barki virtist vera fóðraður loðskinni „Ég hef herbergi á þriðju hæð- sem hefur staðið autt í viku.. Mund- uð þér vilja líta á það?“ Ungi maðurinn fór með henni upp. Birtan á göngunum var dauf, og virtist ekki koma úr neinni sérstakri átt, svo að skuggar urðu tæplega greindir. Á teppunum í stigunum heyrð- ist ekki fótatak, en annars var svo um þau háttað að vefar- inn. sem óf þau, mundi hafa aftekið að hafa gert það: Það virtist vera komin í þau nokk- urskonar ofhyidgun, eins og hefðu þau orðið fyrir þeim á- lögum hér í þessu rakafulla hálfrökkri, að umbreytast í lif- andi vef af sveppum og myglu eða mosa, svo þau voru sleip undir fæti eins og bessar jurt- 1 ir. ( Á hverjum stigapalli voru SMÁSAGA EFTIR O. HENRY útskot í veggina, sem öll voru auð. Líklega höfðu einhvern- tíma verið settar þarna jurtir til prýði, en ekki getað þrif- izt þar í slíku birtuleysi og saggafullu ólofti. Einnig hefðu það getað verið myndir af dýrlingum, en það mátti vel ímynda sér að púkar og árar hefðu stolizt að þeim í myrkri og dregið þær niður í eitthvert óþrifadýki í kjallaranum. „Þetta er nú herbergið,“ sagði konan hálfu loðmæltari en áður. ,,Þetta er fallegt her- bergi, aldrei stendur það lengi autt. f fyrrasumar hafði ég úr- vals leigjendur, sem aldrei fundu að neinu, og borguðu alltaf á réttum gjalddaga. Vask- urinn er þarna við endann á ganginum. Sprowls og Moony voru hérna í þrjá mánuði. Þeir voru að semja söngleik í ljóð- um. Þarna er gasið, og þér sjá- ið að hér er fjöldinn allur af skápum f þessu herbergi líður öllum vel. Það stendur aldrei lengi autt.“ „Leigja margir leikarar hér?“ spurði maðurinn. ,.Já, þeir koma og fara. All- margir af leigjendum mínum eru eitthvað við leikhús riðnir. En leikarar verða aldrei mosa- grónir neinsstaðar. Já, þeir koma og fara.“ Hann tók herbergið á leigu og borgaði viku fyrirfram. Hann sagðist vera þreyttur, og þurfa að hafa næði án tafar. Hann taldi peningana fram og iagði þá á borðið. Konan sagði að herbergið væri alveg tif reiðu. það væri búið að leggja fram handklæði og vatn. Þeg- ar hún fór að búast tif að kveðja. herti hann upp hugann og bar fram spurninguna. sem brunnið hafði honum á tungu allan tímann. spurninguna sem hann hafði ótal sinnum áður spurt. „Þér munið víst ekki eftir að nokkurn tíma hafi leigt hjá yður ung stúlka sem heitir Eloise Vashner? Það er líkleg- ast að hún hafi haft fyrir at- vinnu að syngja í einhverju feikhúsi. Þetta er bjartleit stúlka, meðallagi há og grönn, hefur rauðgult hár og dökk- brúna vörtu við vinstra gagn- auga.“ „Nei, ég man ekki eftir bessu nafni. leikhúsfóik er allt- af að skipta um nöfn. Það kemur og fer. Nei. ég man ekkert eftir þessari stúlku.“ Þetta var ekki í fyrsta skipti, sem spurningunni var neitað. Fimm mánuðir höfðu farið í þrotlausa leit, og svarið var alltaf hið sama. Á hverj- um degi sleitulaust span frá einum forstöðumanni til ann- ars, frá einum umboðsmannl til annars, einum skóla til ann- ars, og á kvöldin frá einu leik- húsinu til annars, einni söng- höll til annarrar, allt frá hin- um frægustu til svo laklegra, að hann hræddist að finna þar það sem hann annars langaði mest af öllu til að finna, Það var stúlkan hans, sú sem hann aldrei gat gleymt og hann hafði leitað hennar lengi. Hann þóttist handviss um það að einhversstaðar í þessari sæ- girtu borg væri hennar að leita, en borgin var lík þeim kviksandi, þar sem hvert korn færist til án afláts, og ekk- ert stendur á stöðugu, heldur er það, sem efst lá í dag, graf- ið djúpt í slý og leðju á morg- un. Herbergið virtist gestinum ekki með öllu fráfælandi við fyrstu sýn, það heilsaði gestin- um með einhverskonar tilfinn- ingarlausri ákefð, grunnfærn- um fleðuskap og uppgerðar- brosi hálfgildings vændiskonu. Það var eins og þessi úr sér gengnu húsgögn, þetta slitna, þvínær tætta, glitofna áklæði á sófanum og tveimur stólum, spegillinn milli glugganna, mjór og lítilfjörlegur, tvær myndir í gylltum römmum, og látúnsrúmið, vildu gera sitt ýtrasta til að gera herbergið vistlegt og aðlaðandi, en það var síður en svo að það mætti takast. Hann lét fallast niður í stól, sat grafkyrr og fór að virða fyrir sér herbergið, en það var sem talaði það til hans mörg- um tungum, að hver horfinn íbúi þess hefði einhverja sögu að segja. Á miðju gólfi var skrautlegt teppi, en utar frá var allt þak- ið óhreinum mottum, og þetta líktist fallegri frjósamri eyju úti í öldóttu hafi. Veggfóðrið var litskrúðugt og á veggjun- um héngu þessar myndir sem ætíð verða fyrst fyrir augum hins heimilislausa í hverju nýju herbergi, sem hann leigir sér: Fyrsta sennan Hádegis- JÓLABLAÐ -
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.