Þjóðviljinn - 24.12.1965, Page 22

Þjóðviljinn - 24.12.1965, Page 22
ILL- KYNJAÐUR DRAUGUR — Trúið þið á drauga? spurði mr. Mulliner skyndilega. Ég tók málið til ítarlegrar yfirvegunar en raunar dálítið undrandi, þar eð ekkert í und- anfarandi umræðum hafði lotið að þessum efnum. — Bæði og, svaraði ég svo. — Með öðrum orðum sagt, hélt mr. Mullinger þolinmóður áfram, trúið þér á draugagang í húsum. Trúið þér því, að það sé mögulegt fyrir ill áhrif að ná til þeirra, sem í húsdð koma? Ég hikaði. Bæði og, sagði ég svo aftur. Mr. Muiliner gaf frá sér stunu. Það var eins og hann væri að velta þvi fyrir sér, hvort ég væri alltaf svona treggáfaður. — En auðvitað hefur maður lesið draugasögur. hélt ég á- fram. — Ég er ekki að tala um skáldsögur. — Ég hitti raunar mann einusinni sem þekkti náunga . . — Frændi minn James Rod- man eyddi nokkrum vikum í draugahúsi. sagði mr Mulliner, sem ekki tekur alltaf sem bezt eftir því, sem aðrir seg.ja. Það kostaði hann fimm búsund sterlingspund. Það er að segja, hann fórnaði þessari fjárupp- hæð með því að vera ekki um kyrrt. Hafið þér nokkurn tíma heyrt getið um Leilu J. Pinck- ney? sagði svo mr. Mulliner skyndilega. og að þvl er virtist alveg út í bláinn. Auðvitað hafði ég heyrt getið um Leilu J. Pinckney. Hún var látin fyrir fám árum, og frægð hennar nokkuð tekin að dvína, en um tlma var ógjörlegt að fara framhjá bókabúð án þess að rekast á langa röð af rit- verkum hennar. Sjáifur hafði ég aldrfi lesið neitt eftir han^ 1 en vissl þiá, að á væmnisbók- menntasviðinu átti hún fáa sína líka. Gagnrýnendur gátu vanalega um útkomu bóka hennar með orðunum: Nýr Pinckney, eða — ef þeir vildu vera ósvífnari: Enn einn Pinckneyi! Og einn gagnrýn- andinn lauk dómi sínum um ritverkið. Ástin sigrar allt, með orðunum: Ó guð minn góður! — Hvað um Leilu Pinckney? spurði ég. — Hún var frænka James Rodmans. — Nú? — Jú. — Og þegar hún dó komst James að því, að hún hafði arfleitt hann að fimm þúsund sterlingspundum og sveitar- húsinu, þar sem hún hafði bú- ið síðustu tuttugu ár. — Allra laglegasti arfur, það. — Síðustu tuttugu ár, endur- tók mr. Milliner. Takið vel eftir þvl. það hefur úrslitaþýð- ingu fyrir það, sem á eftir fer. í tuttugu ár hafði Leila J. Pinckney reglulega gefið út tvær skáldsögur árlega, auk tólf smásagna, og gefið auk þess ungum stúlkum mánaðar- lega góð ráð og leiðbeiningar í einu afþreyingartímaritinu. Þetta hefur það svo aftur I för með sér. að fjörutíu skáldsögur hennar að minnsta kosti og hvorki meira né minna en 240 smásögur voru skrifaðar innan veggja þessa húss. Húsið hét Unaðslundur — Fallegt nafn. — Nafnið er hrein viður- styggð. sagði mr. Mulliner í ströngum tón, og hefði átt að geta orðið James frænda mín- um aðvörun þegar I upphafi. Eruð þér með blað og biýant á yður? Hann krotaði nokkrar tölur á blað og yggldi sig síðan yfir útkomunni. Jú, ef útreikn- ingar mínir standast hefur Leila J. Pinckney skrifað níu miljónir, eitt hundrað og fjöru- tíu búsund orð af væminni 22 ~ JÓLABLAÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.