Þjóðviljinn - 24.12.1965, Page 34

Þjóðviljinn - 24.12.1965, Page 34
 Séö yfir Napólí-borg við flóann. Eldfjallið Vesúvíus sést í baksýn. Cr fjarska séð er Napólí tignarleg, en þegar nær en komið hverfur samræmið og aðkoman minnir á óskapnað. Þannig er borgin nú á dögum. Á götum hennar ægir öllu sam- an; saga henrar, húsagerðarlist, stjómmál og tungutak fólks- ins, allt þetta beggja blands og af ýmsum toga spunnið. Borg- in er undarlegt og miðaldalegt sambland villimennsku og há- menningar, myrkurs og ljóss, þar sem hið ljótasta og hið feg- ursta, fátækt og auðævi, lestir og dyggðir eru eins og óað kilj- anlega samfléttuð. Og í andlit- um fólksins er eins og speglist samtimis grátur og hlátur, vin- semd og grimmd, kjarkur og kjarkleysi. Dómar þeirra sem hafa heimsótt borgina eru Iíka býsna misjafnir. Shelley kennir hana við Sæluvelli, í augum Somerset Maughams er hún spilltasta borg í Evrópu. En þrátt fyrir alla ósamræmni sína og andstæður er engin ítölsk borg með jafn sérkenni- legan svip og þessi, jafn glögg sérkenni og þessi, hvergi ber borgarlýðurinn það eins vel með sér að vera óháður og að áhrif einstaklinganna koma fram. Við hinn fagra hálfhring- laga flóa breiöir borgin Napólí úr sér upp til landsins og um hæðakambana mitt á milli höfðanna við Sorrento og Miseno. Undan landi standa 34 — J ÓLABLAÐ Kaprí og Ischia eins og verðir við innsiglinguna, en inn til landsins sést hinn þungbúni Vesúvíus gnæfa við himin. Þegar nær er komið sést að hæðardragið sem aðalborgin stendur á nær frá hæðunum við Sant Elmo fram að úfnum klettahöfðanum þar sem sjávar- löðrið leikur um grundvöll Ovo kastalans. Á báða vegu teygir borgin anga sína út með afmá- anlegum flóanum, unz hún fer að dreifast kringum viðborgirn- ar Baia, Pozzuoli og Castella- mare. Lauguð sjávaröldum og sterku skini sólar er þessi strönd enn eins töfrandi ogunaðslegog hún var þegar Grikkir komu hér fyrir þrjú þúsund árum. Á undan því sem segir af Grikkj- um er ekki við neitt að styðj- ast um það hvað gerðist hér á þessum slóðum Sírenanna, nema sögusagnir og ágizkanir. En þetta er sviðið þar sem áttu að gerast sögur Hómers, þar sem Eneas steig á land á leið sinni til Rómar, þar sem hell- ar og vötn áttu að vera op niður til undirheima og þar sem Tröllaskeiðið mikla eða gatan greiða meðfram Lúkrín- vatni var gerð að vegi sem Herkúles hefði lagt til að geta hrakið Oxen af Geryon yfir fenin. Napólí sjálf er borg Sír- enanna og heitin eftir hinni fagurrödduðu Parthenópu, sem seiddi menn í dauðann hjá Galli-eyjum handan við Sorr- ento. En eftir að Odysseifur hafði staðizt hana, fleygði hún sér í sjóinn og líkið bar á land á þeim stað sem enn er við hana kenndur, Via Parthen- ope. Grikkir settust fyrst að á eynni Ischiu um það bil 1000 árum fyrir Krist, en seinna byggðu þeir borgina Kúma á meginlandinu, og færðu sig síð- an smám saman suður á bóg- inn og reistu nýjar byggðir cg ein þeirra varð Neapolis eða Nýja borgin. Staðurinn blómgv- aðist og þegar veldi Rómverja fór að færast suður á bóginn, náðu þær nýjungar sem sú þjóð flutti með sér fljótlega fram að ganga hér: stjórnsemi, blómleg verzlun og hringleika- húsin með því sem þar fór fram, hélt innreið sína, en einn- ig bjó staðurinn að menningu og verklegri kunnáttu hinna fornu Grikkja. Hingað bótti einnig munaðarseggjum gott að koma, vínið afbragð og mafcur- inn ágætur (einkum ostrur) og svo voi-u hinir undraverðu eig- inleikar hvera og lauga á þessu jarðhitasvæði, en þetta varð með öðru til þess að þarna varð brátt hinn eftirsóttasti veru- staður í öllu heimsveldinu. Og til að auka á lystisemdirnar var hið ,,umdeilda andrúms- loft‘‘ í Napólí, en það sögðu menn stafa af undraverðum eiginleikum loftsins þar sem byggi yfir ,,töfrafullum ynging- armætti“. Jafnan þegar keisur- um fór að leiðast þrasið og fyrirhöfnin í höfuðborginni leit- uðu þeir sér afþreyingar með því að skreppa suður að flóa, og fylgdi þeim mikill skari ríkra Rómverja, sem mjög fúsir voru til hverskonar mun- aðar og svalls. Því að Övi- díus hafði sagt þeim, að ,,In otia natam Parthenopen" eða að Pathenópu hafði verið eiginlegt að lifa í iðjuleysi, og þeim var mjög hugleikið að njóta lystisemda þvílíks lífs. Hvar sem farið er um Napólí- flóann mæta manni minn- ingar um fræga Rómverja. Ágústus keypti Kaprí til bess að njóta þar næðisstunda, Tí- beríus dó í Miseno, Neró iðk- aði söng sinn í Napólí, en í Baia varð honum það að myrða móður sína. Það er kunn- ugt að Virgilíus samdi nokkurn hluta Eneasarkviðu í Posillipo; Brútus og Cassius gerðu sam- særið um að myrða Cæsar f Nisida og sælkerinn Lúcúllus átti herragarð á Castel dell Ovo þar sem hann lét múrenu- fiska þá sem hann hafði mikið dálæti á éta þræla sína lifandi. Frá Pozzuoli, þar sem Páll post- uli kom að landi á leið sinn! til Rómar, lét Kaligúla gera bátabrú þriggja og hálfrar mílu langa til borgarinnar Baia þar sem almælt var að lauslæti væri meira en I öðrum stöðum. Virgilíus lofsöng Baia að vera ,,göfugrar gyðju ástar, gullin-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.