Þjóðviljinn - 24.12.1965, Page 86

Þjóðviljinn - 24.12.1965, Page 86
Eftir Eliza Orzeszkowa Hann naut almennrar viður- kenningar og áleit sig fyrrum vera gæfumann. Þó hann væri kominn fast að fimmtugu, var hann ekki farinn að grána, heldur var hárið jafn þykkt og jafn svart og það hafði allt- af verið, hann var jafn hör- undsprúður, jafn fimur og létt- ur í hreyfingum sem nokkru sinni fyrr. í þrjátíu ár hafði hann stefnt að settu marki; að komast hátt í þjóðfélaginu og að geta veitt sér hvað sem hugurinn girntist. Þetta hafði honum tekizt. „Vel hefur mér tekizt,“ sagði hann stundum við sjálfan sig. „Ekki var þó því fyrir að þakka, að nokkuð hefði verið lagt upp í hend- urnar á mér. Foreldrar mínir voru sannarlega fátæk, þó að þau væru ekki öreigar. Og því- lík ævi, ævin þeirra! — Sí- fellt basl, strit og stríð! Það mundi ekki þýða að bjóða mér slíkt. Skyldi það vera heigl- um hent að fara í fötin mín, að komast svona hátt alveg neðan frá, það þarf nokkuð til. Á sjálfan mig hlaut ég að treysta og engan annan, enda brást mér það ekki! Hvað am- ar að?“ Eitthvað hlaut að ama að, því tvö síðustu árin hafði hann ekki verið jafn glaður og á- nægður sem oft áður. En hann gat aldrei fundið hvað honum amaði. Hann leitaði til lækna, sótti baðstaði og heilsuhæli, reyndi ýmsar tegundir af böð- um, ýmsar tegundir af leik- fimi, — en ekkert dugði. Hann fann hvergi til og var ekkert máttlítill, en samt fannst hon- um hann vera sjúkur. Öllum sýndist þetta sama, jafnvel svallbræðrum hans. í ennið, sem áður var slétt, komu hrukkur, smáar í fyrstu, en dýpkuðu jafnt og þétt. „Hvað hefur komið fyrir hann?“ spurðu kunningjar hans. „Hvað hefur komið fyrir mig?“ spurði hann sjálfan sig. Og hann svaraði sér þessari spurningu sinni og kunningja sinna með þessum orðum: „Hvernig ætti ég að vita það. Annaðhvort er heimurinn orð- inn breyttur eða þá ég sjálfur búinn að missa vitið. Að minnsta kosti veit ég ekkert hvað að mér er.“ Hann fór í leikhúsið í dag eins og hann var vanur. Hann fór þangað til að sýna sig og sjá aðra, enda tókst það eins og til var ætlazt. En nú brá svo við, að honum leiddist þetta allt. Þetta var skemmtiþáttur, sýndur í tilefni af jólunum. Hann lét faliast í sætið í sleðanum, vafði að sér loðkápunni, og kaliaði; „Akið heim.“ Hestarnir tóku þegar til fót- anna, hratt og létt, og að vörmu spori var hann kominn heim. Hann geispaði um leið og hann sté inn, og bað þjón sinn að koma með heitt te. Síðan fleygði hann sér upp í legu- bekk, og andvarpaði. Stofan var ríkmannleg, húsgögnin vönduð, teppin, speglarnir. En í öllu húsinu var engin sál fyrir utan hann sjálfan nema herbergisþjónninn. Hann var ógiftur. Síðan fór hann að ganga um gólf í þessum björtu og skraut- legu stofum með starandi augnaráði, tuggði broddana á yfirskegginu og hreytti út úr sér hvað eftir annað: „Fjand- inn fjarri mér, þetta er auma lífið!“ Hann hafði ekkert yndi af neinu. Og samt hafði hon- um tekizt allt framar vonum, jafnvel framar óskum. Hvern- ig gat staðið á þessu? Hann gekk að skrifborðinu sínu og tók upp óopnað bréf. Þá birti snögglega yfir svinn- um og hann brosti. „Það er frá Anulku! Drott- inn minn dýri, frá Anulku! Það er svo langt síðan hún hefur skrifað mér, að ég var farinn að halda að hún mundi aldrei skrifa framar. — Þessu er ég sannarlega feginn!“ Anulka var systir hans og hafði alltaf átt heima í litla þorpinu þeirra, og þekkti hana enginn nema íbúarnir þar. Þau höfðu ekki sézt í tuttugu ár. Hún skrifaði honum sjaldan og svaraði jafnvel ekki bréfum hans nema endrum og eins. Mánuðir, jafnvel ár, gátu liðið án þess að hann myndi eftir því að hún væri til. En þegar hann las utan á bréfið og þekkti höndina, varð hann feg- inn, ákaflega feginn. Og með- an hann var að opna bréfið, uppljómaðist allt andlitið af brosi og hrukkurnar sléttuðust af enninu. Fyrri helming bréfsins las hann hratt og flausturslega, en síðari helminginn, hægt og vandlega og íhugaði hvert orð. „Manstu," — skrifaði þessi jarðeigandi og húsfreyja á litlu heimili, „manstu þegar faðir okkar var að tala við landset- ann á kvöldin, og þessu tali ætlaði aldrei að linna, en við vorum að gægjast fram úr skotum til að skoða skuggann af skegginu á honum, hvernig hann hreyfðist þegar hann var að tala, og hvað okkur þótti gaman að þessu? Já, lítið er ungs manns gaman! Manstu BIFREIÐA- EIGENDUR <§níineníal GÚMMÍ- VINMU- STOFAN h/f Skiphollj 35 — Reyk.javík Símj 31055. Athugið að bifreiðin sé á góðum hjólbörðum fyrir jólahátíðina. * Allir vita. að hjólbarðana, viðgerðir og góða þjónustu er að fá hjá okkur. 86 - J ÓLABLAÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.