Þjóðviljinn - 08.06.1980, Síða 19

Þjóðviljinn - 08.06.1980, Síða 19
Sunnudagur 8. júnl 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19 Morphy frábær skáksnillingur en gæfusnauður í lifandi lífi Eftir þvi sem tíminn líður og liðnir atburðir fyrnast, er ekki laust við að frásagnir verða næsta goðsagnakenndar og f æ rikara mæli eftir þvi sem lengra er frá hverjum þeim atburði sem frá er skýrt. Þeir sem voru peyjar á dögum einvigis Spasskis og Fischers eiga eflaust eftir að setja sig i merkilegar stellingar þegar timar ifða og barnabörnin eru komin á stjá. Þannig má imynda sér að persóna Fischers fái ekkidsvipaða umfjöllun og eitt frægasta undrabarn skáksögunn- ar, Paui Morphy, en hann er ein- mitt á dagskrá skákþáttarins að þessu sinni. Mikið hefur verið rætt og ritað um þennan fræga meistara, mörgu sjálfsagt logiö, annað ýkt eða farið frjálslega meö stað- reyndir, hvað sem veldur; oft vegna öfundar manna sem lltt eru kærir þeim sem hefja sig uppúr meðalmennsku hvers tima. Þó er að finna rit um Morphy sem áreiðanlega er ekki komið fram af neinum óvildarhug, heldur er fjallað um staðreyndir af allri mögulegri nákvæmni og höfundur gerir sér far um að vanda frásögn slna sem best. Bók sú sem hér er átt við kom út ekki alls fyrir löngu, og eru höfundar tveir, Philip W. Sergeant og Fred Rein- feld. Sá fyrrnefndi sér um skák- lega hlið málsins en siðarnefndi um sögu Morphys, og kennir þar , margra grasa. Það sem _sá ,,er þessar linur ritar, vissi ekki um áður.og þótti hvað forvitnilegast kemur einkum inná ástæðurnar fyrir brotthvarfi hans úr skák- heiminum og svo það er hann að- hafðist eftir það.og iðkaði skákina vart i neinum mæli. Hvað brotthvarfinu viövikur kemurþaðt.a.m.skýrtframi bók . þeirra Sergeants og Reinfelds („Morphy’s games of chess”) að ein meginástæðan liggur I gffur- legum vonbrigðum hans með för- ina frægu til Evrópu þar sem hann sannaði umheiminum svo rækilega hvilíkur yfirburðamað- ur hann var. Morphy hafði á þeim tima þegar hann hélt til Evrópu lagt Bandarikin að fótum sér, og megintilgangur Evrópufararinn- ar var aö fá að kljást viö þá skákmeistara Evrópu sem vlð- frægastir þóttu, eða Adolph Andersen og Howard Staunton. Morphy lagði upp frá New York, og eftir u.þ.b. hálfs mánað- ar ferðalag varpaði farkostur hans akkerum I Liverpool. Þar var meiningin fyrst og fremst aö tefla við Staunton. (Fyrir þá, sem gaman hafa af ártölum, þá var þetta á þvi herrans ári 1858). Eft- ir að hafa heillaö enska með þvi aö sigra Ungverjann Löwenthal I einvigi og nokkra aðra minni spá- menn, auk þess sem hann tók þátt i nokkrum blindfjölteflum, var Umsjön: Helgi Ólafsson honum ekkert að vanbúnaði að tefla viö Staunton. Sagan greinir frá þvi að Staunton hafi færst undan, jafnvel þó svo einvigi hafi fyrir komu Morphys nánast verið fastmælum bundið. I fyrstu mun þó Staunton hafa beðið um nokk- urra vikna frest til að undirbúa sig sem best, en þegar einvigið dróst hvaö eftir annað á langinn þraut þolinmæði og Morphy hélt til Parísar. Þar gersigraði hann ( — I Paris fóru tafliðkanir Morphys aö öllu leyti fram á kaffihúsi nokkru sem ég hygg að enn þann dag I dag sé opiö — Café de la Régence) nokkra af snjöll- ustu meisturum Frakka. Hann notaði einnig timann til að reyna að koma á einviginu við Staunton, en allt kom fyrir ekki. Margar ljótar sögur eru sagðar af Staunton, þvi að augljóst þótti aö hann vildi fyrir alla muni koma i veg fyrir einvigið og ekki annaö aö sjá en að þar væri ein- berum héraskap um að kenna. Vonbrigði Morphys þegar allt var komið I strand skiljast vel, þvi Staunton var á þeim tima talinn sterkasti skákmeistari Evrópu og einnig fyrir þaö aö Morphy lagöi sig allan fram til að af einviginu gæti orðið, lét alla skilmála I hendur Staunton og sýndi af sér drengskap i alla staði. Adolph Andersen brást honum þó ekki. Þeir tefldu i lok ársins 1858, og fóru leikar svo að Morphy gjör- sigraði hina gömlu kempu, vann 7 skákir, tapaöi tveimur, og tveim- ur lauk með jafntefli. Keppnin fór i alla staöi vel fram, enda er oft- lega f annálum getið um hvilikur séntilmaður Andersen var. Morphy hélt kyrru fyrir I Evrdpu um nokkurt skeið en það flýtti fyrir brottför hans að fjöl- skyldan heima I New Orleans var farin að ókyrrast og var eitt ætt- mennið gert út af örkinni til að grennslast nánar fyrir um hinn týnda sauð. Til Bandarlkjanna kom Morphy aftur á miðju ári 1859. Honum var þar tekið með kostum og kynjum og var heiör- aður fyrir frábæra frammistöðu hvar sem hann fór. 1 Banda- rlkjunum tefldi hann talsvert fyrsta kastiö, en brátt kom I ljós að engan jafnoka hans var aö finna. Tók hann þá til aö tefla for- gjafarskákir og hafa nokkrar hans snjöllustu varðveist og þykja enn I dag meö þeim allra •snjöllustu. 1 tlttnefndri bók Sergeant og Reinfeld er þess oft- lega getiö hversu mjög það fór I taugar Morphy að vera titlaður atvinnumaður i ská. Eru jafn- vel leiddar að þvi likur, að það hafi flýtt uppgjöri Morphy viö skákgyðjuna. Alltént hugöist hann hafa nokkurt gagn af lög- fræðinámi slnu og setti upp skrif- stofu I heimabæ sinum, New Orleans. Spámaöur varö hann ekki mikil I þvl fagi I föðurlandi sinu, þvl I allra augum var hann ekkert nema skákmaöur, og við- skiptin urðu engin aö gagni. Til að bæta gráu ofan á svart varð hann svo ólukkulega ástfanginn. Hann var viðkvæm sál, þoldi illa mót- lætiö, og þar við bættist aö Þræla- striðið braust út um likt leyti og sem Suðurrikjamaöur varð hann að þola dapra daga. Hann var t.a.m. fangelsaöur af stjórnar- skrármönnum og er ekki óliklegt að þá hafi geðheilsu hans farið að hraka nokkuð. Öþarft er að rekja sögu hans frá þvl. Hann dvaldist að mestu I fæðingarbæ slnum New Orelans eftir lok Þræla- striðsins allt til dauðadags, 10. júli 1884. Hann lifði einangruðu llfi, og þrátt fyrir margltrekaðar tilraunir til aö fá hann að tafli aftur, kom allt fyrirekki. Margar sögur misjafnlega rætnar spunn- ust um dauða hans. Einhverntlm- ann var þaö kennt, aö hann hefði fyrirfariö sér með þvi að ganga riddaragang, út af svölum heim- ilis sins, en það er auövitaö ekkert annaö en aumkvunarverð útgáfa heimskra manna. Banamein hans var heilablóðfall. Saga Morphy er harmsaga sem á margt sammerkt með sögum mikilla andans manna. Hann var barn sins tima, þess tlma þegar þeir voru fáir er þorðu að gefa margháttuöum fordómum sam- feröamanna sinna langt nef. í upphafsorðum bókar þeirrar er ég hef að leiöarljósi samantektar þessarar stendur svo: „Paul Charles Morphy, the pride and the sorrow of chess ...” (Kórrétt útlegging reynist mér um megn). Snotur orö um þennan pislarvott skákarinnar. KLIPPINGAR/ PERMANENT/ LITUN Laugavegi 24 II. hæð. Sími 17144. M Húsnæði óskast Ungt par með eitt barn óskar eftir 2—3 herbergja ibúð til leigu fyrir 1. ágúst, helst i Hliðunum eða Háaleitisbraut. Reglusemi og góð umgengni. Upplýsingar i sima 29151 eftir kl. 8 á kvöldin. (Hanna). • Blikkiðjan Ásgarði 7, Garðabæ önnumst þakrennusmíði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SÍMI53468 Albert Guðmundsson var fyrstur norður/andamanna i fremstu röð knatt- spyrnumanna í Englandi, Frakklandi og Íta/íu. Iþróttum hefur hann unnið a/lt sem hann hefur mátt siðan hann kom heim. Vegur íslenzkrar knatt- spyrnu varð veru/egur, þegar Albert varð formað- ur Knattspyrnusam- bands Is/ands. Þannig eiga iþróttir hon- um margt að þakka frá /iðnum árum. Við /ýsum yfir stuðningi við Albert Guðmundsson og Bryn- hi/di Jóhannesdóttir við forsetakjör 29. júni nk. GIsli Halldórsson forseti 1S1. Sveinn Björnsson varaforseti 1S1. Heimir Sindrason formaöur Gróttu Böövar Björgvinsson form. Skallagrlms. Helgi Bjarnason form. körfuboltad. Skallagrlms. Jóhann Kjartansson Skallagrlm. Alfreð Þorsteinsson Fram. Hilmar Guðlaugsson form Fram. Jón G. Zoega form. knattspyrnud. Vals. Freyr Bjarnason form. Völsungs. Boði Björnsson form. Stjörnunnar. Jón Ólafsson hástökkvari. Einar Gunnarsson Keflavik. Hafsteinn Guðmundsson form. U.M.F.K. Helgi Hólm form. t.K. Sigurður Steindórsson form. K.F. Óskar Færseth knattspyrnum. Magnús Garöarsson handknattleiksráöi Keflavfkur. Kristbjörn Albertsson stjórn körfuknattleiksráös Sigurður Ingvarsson fv. form. Viðis. Július Jónsson viðskiptafr. Sandgerði. Óskar Valgarösson form. knattspyrnud. IR. Júllus Hafstein form. H.S.t. Baldur Jónsson vallarstjóri. Anton Orn Kjærnested form Vikings. Úlfar Þórðarson form. I.B.R. Kjartan Trausti Sigurðsson framkvæmdast. K.S.l. Ólafur Erlendsson form KRR Þórður Þorkelsson gjaldg. I.S.t. Sigurður Magnússon útbrstj. I.S.I. Haukur Bjarnason ritari I.B.R. Friður Guömundsdóttir form Iþróttafélags kvenna. Viktor Helgason þjálfari I.B.V. Tómas Sigurpálsson lyftingamaöur Þórður Hallgrimsson I.B.V. Snorri Þ. Rúts I.B.V. Sveinn B. Sveinsson I.B.V. Friðfinnur Finnbogason Í.B.V. Guðmundur Erlingsson I.B.V. Vignir Guönason forstööum. Iþróttamiðstöðvarinnar Gunnar Steingrlmsson lyftingamaöur GIsli Valtýsson gjaldk. Þórs. Marteinn Guöjónsson form. Golfklúbbs Vestm.eyja. Kjartan Másson þjálfari. Jóhann Ólafsson stjórn KSI og IBV. Finnbjörn Sævaldsson Blikanesi 3 G. Orn Clausen Blikanesi 5 G. Hreinn Elliðason Asbúð 5 G. Sæmundur Glslason IBR. Ólafur Jónsson ritari IBR. Agúst Asgeirsson frjálsiþróttam. Guðmundur Þórarinsson Iþróttaþjálfari. Bergur Guðnason form. Vals. Elmar Geirsson knattspyrnum. Eyjólfur Agústsson knattspyrnum. Haraldur Helgason fyrrv. form. Þórs. Haukur Jakobsson knattspyrnum. Jóhann Jakobsson, knattspyrnum. Jón Arnþórsson form. KA. Jónas Sigurbjörnsson sklðaþjálfari. Kjartan Bragason rally ökum. Kristján Grant knattspyrnum. Ragnar Sigtryggsson knattspyrnum. Sigurbjörn Gunnarsson knattspyrnum. Skúli Agústsson knattspyrnum. Stefán Gunnlaugsson fyrrv. form. knattspyrnud. KA. Vilhelm Agústsson fyrrv. form. Skautad. Akureyrar. Orlygur ívarsson form. knattspyrnud. KA.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.