Þjóðviljinn - 10.07.1982, Síða 30
, -- l'. o«. .IVO-.'I 1 Í892 l'l'l ll-.Of 0i^M’
30 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 10.-11. júll 1982
Hestamannamótið á Vindheimamelum:
„Mfldl framför frá
síðasta landsmóti’
„Það hafa aldrei verið sýndir
jafnmargir stóöhestar með af-
kvæmum á íslandi”, sagði Leifur
Jóhannesson, kynbótadómari, við
Þjóðviljann i gær. „Það hefur
orðið greinileg framför frá sið-
asta landsmóti, sérstaklega hjá
stóðhestunum. Einnig hefur sýn-
ingin á kynbótahrossum verið
mjög góð”.
Þegar á fimmtudagskvöld var
lokið við að dæma alla flokka og i
gær hófst unglingakeppni 12 ára
og yngri, stóðhestar og kynbóta-
hryssur voru sýnd og kynnt. sið-
ari hluti Evrópumótsins fór fram
og undanrásir kappreiða hófust.
Eftir hádegið setti Stefán Páls-
son, formaður Landssambands
hestamannafélaga, mótið og i
gærkvöldi var kvöldvaka.
Orslit i öllum flokkum verða
ljós i dag og verður skýrt frá þeim
i Þjóðviljanum eftir helgi.
A skrifstofu mótsins fékk Þjóð-
viljinn þær upplýsingar að kl. 8 i
gærmorgun hefðu verið komnir
hingaðum 3.500manns, fyrir utan
unglinga 12 ára og yngri, og um
1.000 hross. Búist var við að þessi
tala myndi tvöfaldast i gærkvöldi
og i dag.
Aðstaða öll er til fyrirmyndar
hér á mótinu, jafnt fyrir fólk sem
hesta, t.d. má nefna að hér eru
klósett, en ekki kamrar.
Veðrið hefur ekki verið með
skemmtilegra móti, það hefur
rignt nær stanslaust, en menn
bjuggust við betra veðri i dag.
Þar sem Evrópumót islenskra
hesta er haldið hér á Islandi i
fyrsta sinn, eru margir útlending-
ar á mótinu, og láta mun nærri,
að annar hver maður hér tali
þýsku.
— kjv. á Vindheimamelum.
Stutt við staur. Ljósm. — gel
Sýning á örtölvum fyrir kennslu
’Miðvikudaginn 14. júlf n.k. kl. 13:00-16:00 heldur Reiknistofnun Háskólans
sýningu á örtölvubúnaði í húsakynnum rafmagnsverkfræðiskorar, stofum
148-151 á jarðhæð 2. áfanga verkfræði- og raunvísindadeildar, Hjarðarhaga
4.
Til sýnis verða allflestar gerðir örtölva sem eru til sölu hér á landi og sem
þykja henta til kennslu og annarrar tölvunotkunar i skólum.
Kennarar og aðrir sem áhuga hafa á örtölvum og notkun þeirra i kennslu
eru hvattir til að notfæra sér þetta tækifæri til að skoða tækin og kynnast
þeim af eigin raun.
REIKNISTOFNUN HÁSKÓLANS *
Jon Faukstad
Norskur harmonikuleikari
Norskur harmonikkuleikari er
hér á ferð og heldur sina fyrstu
tónleika i Norræna húsinu n.k.
mánudag. Siðan heldur hann upp
i Borgarfjörð og leikur þar að
Logalandi þann 14. og siðan á
Húsavik, Mývatnssveit og Egils-
stöðum. Þessi ágæti harmonikku-
leikari heitir Jon Faukstad og
hefur hann ritað doktorsritgerð
um norska þjóðlagatónlist. Hann
leikur klassisk verk og léttari lög
eftir ýmsa höfunda.
Einræðistilhneigingar ,,lýðræðisflokkanna,,
í Keflavík:
Felldu tillögu Al-
þýðubandalagsins
um aukið lýðræði
Á fyrsta fundi nýkjör-
innar bæjarst jórnar í
Keflavík lagöi bæjarfull-
trúi Alþýðubandalagsins/
Jóhann Geirdal fram svo-
hljóöandi tillögu: „Bæjar-
stjórn Keflavíkur sam-
þykkir að þeir f lokkar sem
fulltrúa eiga i bæjarstjórn
en ekki í bæjarráöi, megi
tilnefna fuiltrúa til aö sitja
fundi bæjarráðs með mál-
frelsi og tillögurétti". Til-
laga þessi var eins og oft
áður felld af meirihluta
Sjálfstæðisf lokksins og
Framsóknarflokksins auk
þess sem annar bæjarfull-
trúa Alþýðuf lokksins,
Ólafur Björnsson útgerð-
armaður var á móti þess-
ari tillögu um aukið lýð-
ræði í bæjarstjórn Kefla-
víkur.
„Ég benti á það við umræðurn-
ar um þetta mál, að i bæjarmála-
samþykktum Siglufjarðar, Seyð-
isfjarðar, Selfoss, ólafsfjarðar og
Patrekshrepps, svo dæmi séu tek-
in, eru skýr ákvæði um að fulltrú-
um allra flokka skuli gefinn setu-
réttur I bæjarráðum”, sagði Jó-
hann Geirdal I samtali við Þjóö-
viljann I gær. „Auk þess hefur svo
Neskaupstaður sérstöðu i þessum
efnum þar sem þetta ákvæði er
ekki i bæjarmálasamþykkt held-
ur flutti meirihlutinn tillögu i bæj-
arstjórn um að fulltrúum minni-
hlutans skyldi heimilt aö eiga
fulltrúa i bæjarráði til að þeim
gæfist tækifæri til að fylgjast bet-
Jóhann Geirdal: fulitrúar gam-
alla viðhorfa snerust gegn hug-
myndum um aukið lýðræði I bæj-
arstjórn Keflavlkur.
ur með framvindu mála”, sagði
Jóhann ennfremur.
Alþýðubandalagið hefur flutt
tiliögu um aukiö lýðræöi i bæjar-
stjórn Keflavikur um árabil, en
þær jafnan verið felldar. Það bar
hins vegar við nú að varabæjar-
fulltrúi Alþýðuflokksins, Hannes
Einarsson, var tillögu Jóhanns
Geirdal meðmæltur og einn bæj-
arfulltrúi Sjálfstæöisflokksins af
4, sat hjá við atkvæðagreiðsluna.
2 fulltrúar Framsóknarflokks
voru tillögunni andvigir. —v.