Þjóðviljinn - 10.07.1982, Síða 32

Þjóðviljinn - 10.07.1982, Síða 32
DWDVIUINN Helgin 10.-ll.jUH 1982 Aðalslmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn hlaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 8i285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i af- greiðslu blaðsins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 nafn víkunnar Ellert Schram Ellert B. Schram ritstjóri Dagblaösins og Visis og út- varpsráösmaöur er nafn vik- unnar aö þessu sinni fyrir óvenjulegan hæfileika til aö leika tveimur skjöldum i sambandi viö svokallaö Videósónmál og málshöföun rikisútvarpsins á hendur Videósón. Svo sem kunnugt er er blað Ellerts eigandi að þessu fyrirtæki sem hefur látiö taka útsendingar frá heims- meistarakeppninni i knatt- spyrnu upp ófrjálsri hendi i Danmörku og selt þær siðan til brúks i heimahúsum. Samkvæmt þvi sem Helgar- pósturinnupplysiri gær voru spólurnar frá Danmörku stilaöar á Ellert sjálfan og er hann þvi potturinn og pann- an i þessu lögbroti. 1 auglýs- ingarskyni fyrir Videósón var lögbrotinu slegið upp á forsiðu i Dagblaðinu og Visi. I leiðara blaðsins um sið- ustu helgi skrifar Ellert svo um málið þar sem hann ræðst með offorsi á rikisút- varpið og forsvarsmenn þess fyrir slaka frammistöðu i sambandi við heimsmeist- arakeppnina og segir þar m.a.: „Nú sér fólk það svart á hvitu hvað það þýðir i raun að sitja uppi með einokun i fjölmiðlum, alræði nokkurra embættismanna sem eru meira eða minna úr öllum tengslum við vilja og áhuga fólksins sjálfs.” Allt væri þetta nú gott og blessað ef svo illa vildi ekki til að Ellert sjálfur situr i æðstu stjórn rikisútvarpsins sem i raun og veru ræður öll- um meginlinum i dagskrá og útsendingu og hefur auga með hverri hræringu þess. Bjarni Felixson, gamall fé- lagi Ellerts úr KR, lýsti þvi yfir i Timanum á fimmtudag að Ellert hefði látið þá skoð- un sina i ljós á útvarpsráðs- fundi að alltof mikið væri sent út frá heimsmeistara- keppninni i sjónvarpinu. Þetta er að visu borið til baka af Eiö Guðnasyni i Dagblaðinu og Visi i gær. Hitt er ljóst að þau skeyti sem Ellert sendir rikisút- varpinu hitta engan fyrir nema hann sjálfan og ögrun Videósóns viö þessa stofnun er ekki sist að undirlagi Ell- erts sjálfs. Mál hans fer þvi óneitanlega að minna á málshöföun Ingólfs Jónsson- ar kaupfélagsstjóra á Hellu á sinum tima á hendur Ingólfi Jónssyni samgöngumála- ráðherra fyrir brúarsmið yfir Rangá. Þess skal að lokum getið að Ellert er erlendis um þessar mundir og þvi ekki hægt að ná i hann. — GFr „Kirkjuhúsið” — þjónustumiðstöð kirkjunnar Biskupshjónin hr. Pétur Sigurgeirsson og frú Sólveig Ásgeirsdóttir á fundi i Kirkjuhúsinu með fréttamönnum og fleirum. Mynd.: —gel. — Tekin er til starfa þjón- ustumiðstöð kirkjunnar að Klapparstig 27, Reykjavik. Hefur hún hlotið nafnið Kirkjuhúsið. Með tilkomu hennar hefur hvoru tveggja I senn verið komið á: sameigin- legri afgreiðslu fyrir Biskups- stofu, Hjálparstofnun kirkj- unnar, Dtgáfuna Skálhoit og Æskuiýðsstarfið og svo hefur litið dagsins Ijós fyrsti visir hins nýja kirkjuhúss sem fyrirhugaðer að reisa á Skóla- vörðuholtinu. Svo fórust herra Pétri Sigureirssyni biskupi orð á fundi með fréttamönnum i fyrradag. Forsaga þessa merka á- fanga f Islenskri kirkjusögu er i stórum dráttum sú, að á sin- um tima fólu Biskupsembætt- ið og Kirkjuráð starfshópum aðathugamöguleikaá stofnun kirkjulegrar útgáfu. 1 áliti sem hóparnir skiluðu, var m.a. lagt til að við stofnun slikrar útgáfu yrði jafnframt fengin aðstaða til bóksölu. Um þessar mundir reyndist umrætt húsnæði að Klappar- stig 27 fáanlegt og var ákveðið að taka það á leigu i þessum tilgangi. Nokkru siðar ákváðu eigendur verslunarinnar Kirkjufells á Klapparstig að hætta rekstri hennar. Sú verslun hafði, sem kunnugt er verslað með kirkjugripi. Eigendur Kirkjufells sýndu þann velvilja að bjóða Bisk- upsembættinu að taka yfir þann hluta rekstrarins. Niður- staða varð þvi sú, að komið yrði á fót þjónustumiðstöð kirkjunnar þar sem afgreiðslu Biskupsstofu, Skálholts, Hjálparstofnunar og Æsku- lýðsstarfsins yrði komið fyrir á einum stað. Sú þjónusta sem veitt verð- ur i Kirkjuhúsinu verður i stórum dráttum sú að þar verða hinar ýmsu útgáfur bibliunnar og sálmabókarinn- ar á boðstólum svo og úrval bóka með kristnum boðskap, bæöi á islensku sem erlendum málum. Sérstaklega verður kappkostaðað búa vel aö bók- um sem styðja við trúarlegt uppeldi barna. Ýmiss konar kirkjumunir svo sem altarisbúnaður, hökl- ar og kirtlar verða fáanlegir og aðstoð verður veitt við út- vegun slikra hluta. Þá verður margskonar fræðsluefni til nota á heimilum, skólum og i söfnuðum i Kirkjuhúsinu, og verður það bæði til útláns og sölu. Fermingarþjónusta verður veitt og minningar- spjöld hverskonar afgreidd. Einnig verður tekið á móti áheitum m.a. til Strandar- kirkju og framlögum til Hjálp- arstofnunar kirkjunnar. Kirkjuhúsið verður fyrst um sinn opið kl.10-17 alla virka daga. Rekstrarstjóri verður Þorbjörg Danielsdótt- ir, sem áður gegndi starfi full- trúa á Biskupsstofu. — mhg. : Þorbjörg Danielsdóttir, rekstrarstjóri, „Kirkjuhússins” 0g sýnis- ‘ horn af þeim bókum, sem þar fást. Mynd: — geK Ny jógúrt: „Tuuutti Frrrutti!' Sannkölluð sumarblanda.. ..frískog fjörefnarík

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.