Þjóðviljinn - 28.08.1982, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 28—29. ágúst. 1982.
Minning
Heilsurækt —
og heilsuvernd
Verzlunarmannafélag Reykjavikur
gengst íyrir námskeiði i heilsurækt og
heilsuvernd fyrir félagsmenn sina.
Námskeiðið verður á miðvikudögum kl.
18:30—20:30 og hefst 8. sept. n.k.
Farið verður yfir eftirfarandi efni:
1. Starfsstöður og likamsbeitingu.
2. Streita — fyrirbygging og meðferð.
3. Leikfimi á vinnustað.
4. Næring og fæðuval
Námskeiðið er eingöngu ætlað félags-
mönnum i Verzlunarmannafélagi Reykja-
vikur og verður endurgjaldslaust. Þátt-
taka tilkynnist á skrifstofu V.R. i sima
26344 til 6. sept.
Nánari upplýsingar um námskeiðið
veittar i sama sima.
Verzlunarmannafélag Reykjavikur
Fóstrur
Börnin i Fiskalandi i Hamraborg vantar
fóstru 1. sept. eða sem fyrst. Þau eru 3ja
til 6 ára og deildin þeirra er reglulega
skemmtileg.
Upplýsingar i sima 36905.
Félagsstofnun stúdenta
óskar eftir starfskrafti hálfan daginn við
vélritun.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri i
sima 16482.
;]M RÍKISSPÍTALARNIR
iis lausar stödur
II.JÚKRUNARFRÆDINGUR óskast sem
fyrst á lyflækningadeild 1.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri i
sima 29000.
STARFSMAÐUR við heilalinurit óskast á
taugalifeðlisfræðideild nú þegar.
Upplýsingar veittar i sima 29000-459 milli
kl. 10-12 f.h. næstu daga.
STARFSMENN óskast i eldhús
Landspitalans. Upplýsingar veitir yfir-
matráðskona fyrir hádegi i sima 29000.
VÍFILSSTAÐASPÍTALI
ADSTOÐARMAÐUR óskast á deildir frá
ca. 20 september. Umsóknir sendist Skrif-
stofu rikisspitalanna fyrir 10. september
n.k.
Upplýsingar veitir hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri i sima 42800.
KLEPPSSPÍTALI
IDJUÞJALFI óskast á dagdeild Klepps-
spitala.
IIJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI óskast á
deild VIII.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir
hjídírunarforstjóri i sima 38160.
STARFSMADUR óskast til afleysinga i 2-3
mánuði i eldhús barnaheimilis Klepps-
spitala. Vinnutimi 10,30 til 14.30. Upplýs-
ingar veitir forstöðumaður barnaheimilis-
ins i sima 38160.
Reykjavik 29. ágúst 1982.
RÍKISSPÍTALARNIR
Snæbjöm Jónsson
bóndi á Staö á Reykjanesi
Fæddur 8. nóvemberl909
Dáinn 21. ágúst 1982
Þegar túnin eru alhirt, hlöð-
urnar fullar, en sumarið ennþá
bjart og hlýtt, þá er hugblærinn
vær og þakklætið til gjafarans
allra góðra hluta öðru ofar. Þó
slátturinn væri búinn á Stað,
reyndist þó vera óslegið eitt ljá-
far. Þar reiddi dauðinn til höggs
meö sigö sinni.
Snæbjörn bóndi hafði starfað
eins og endranær, en dó i svefni i
þann mund sem dagur rann.
Hefur á sannast þar, að enginn
veit sitt endadægur.
Snæbjörn var fæddur á Stað,
elstur þeirra þriggja systkina
sem lifðu. Foreldrar hans voru
Jón prestur Þorvaldsson og Ólina
Kristin frá Hergilsey
Snæbjarnardóttir Kristjánssonar.
Hann ólst upp við sveitastörf
undir handleiðslu mætra ráðs-
manna á Stað. Hann fór aldrei i
skóla annan en heima á Stað og
var aldrei að heiman nema einn
vetur i Reykjavik, þegar hann
var meira að leika sér en læra.
Innan við tvitugt varð hann
ráðsmaður á búi foreldra sinna og
hafði hann allstórt hjábú sjálfur,
góðhesta sina og arðsamt fjárbú.
Sú skipan stóð uns íaðir hans dó
31. desember 1938. Fram að þvi
tók hann við búi af móður sinni,
enda kvæntist hann um þær
mundir Unni Guðmundsdóttur frá
Skjaidvararfossi á Barðaströnd.
Hafa þau búið þar óslitið. Snæ-
björn var stefnufastur bóndi meö
ólikindum. Hann tryggði sér ábúð
á Brandsstöðum, hjáleigu frá
Staö, kæmi búandi prestur að
Stað. Þegar prestsetrið var flutt
aö Reykhólum fékk Snæbjörn
Stað hálfan og Brandsstaði, en
nýbýlið Arbær reis á hálflendu
Staðar. Sauðfjárbú sitt hafði Snæ-
björn þó á Brandsstööum fram á
1959. Hann var metnaðargjarn
bóndi, fjárbóndi af lifi og sál,
stórbóndi i eöli og athöfnum og
sýnt um að færa út kviarnar, en
heimakær og allur fyrir lands-
störfin en ósýnt um þá sjó-
mennsku sem hlunnindin á Stað
útheimta.
Þó Snæbjörn á Stað stæði
jafnan framar sveitungum sinum
og aldrei neinum að baki i
búskapnum, sótti hann siður en
svo út á við. Hann var eitt kjör-
timabil i hreppsnefnd, um
nokkurt skeið i stjórn Kaupfélags
Króksfjarðar og i stjórn Spari-
sjóðs Reykhólahrepps. Þá sá
hann um að raða niður slátrun
um langt skeið. Gott dæmi um
dug hans og framtaksemi er það,
að hann verslaði með kjarnfóöur
lengi i seinni tiö. Voru viðskipta-
menn hans ekki aöeins i Austur-
Baröarstrandasýslu, heldur og
við Isafjarðardjúp. Enn eitt
áhugamál hans var aö safna fri-
merkjum og kvað þar aö honum
eins og við annað sem hann gaf
sig að.
Svo hagar til á Stað, að þar
liggur þjóðvegurinn beint heim að
bæjardyrum, enda er gestkvæmt
eftir þvi og aldrei iát á gestrisni
þeirra hjóna. Það vita bæði kunn-
ugir og ókunnugir og hafa lengi
sannreynt og minnst hversu
öllum var tekið með glaðlegu við-
móti og einlægni.
Systkini Snæbjarnar, Ragn-
heiður og Kristján, seinast
borgardómari, urðu bæði
stúdentar og eins fósturbróðir
hans og frændi, séra Jón Arni
Sigurðsson. Þrir synir Unnar og
Snæbjarnar urðu búfræðingar og
einn þeirra, Arni, langskólageng-
inn búvisindamaður og löngu orð-
inn kennari á Hvanneyri. Kona
hans er Sigriður Héðinsdóttir úr
Borgarnesi. Jón er þeirra elstur,
bóndi i Mýrartungu, kvæntur
Aöalheiði Hallgrímsdóttur frá
Dagverðará. Guðmundur Frið-
geir er kvæntur Eddu Jónsdóttur
frá Klukkufelli. Þau eru i Reykja-
vik. Eirikur, yngsti bróðirinn,
hefur búið i félagsbúi á Stað með
foreldrum sinum, kvæntur Sigriði
Magnúsdóttur frá Hólmavik.
Sigurvin ólafsson stjúpsonur
Snæbjarnar er löngu farinn að
heiman. A heima á Stokkseyri
með Svandisi seinni konu sinni.
Unnur og Snæbjörn ólu upp
Guðmund son Sigurvins af fyrra
hjónabandi.
Þegar Snæbjörn er horfinn
sjónum, kemur piargt i hugann
eftir ævilangt nágrenni. Furðu-
legtvar um þann framtaksbónda,
að hann lærði aldrei á bil og ók
ekki dráttarvél nema til neyddur.
Svo rótgróin var i honum tryggðin
við minningu góðhestanna, sem
áttu hug hans allan fyrstu fjörutiu
árin. Hana varðveitti hann
ómengaöa til hinsta dags, enda
eru þeir liklegir til að taka á móti
honum á landi lifenda, þeir
Skundi og Eldur og aðrir horfnir
góðhestar liðinna daga.
Aöstandendum votta ég samúð,
en Snæbirni samgleðst ég að
losna við allan hrumleika og
hverfa, með fyllstu reisn.
Játvarður Jökull Júliusson.
Við fráfall sómamannsins Snæ-
bjarnar Jónssonar á Stað fyllumst
við söknuði. Gott var hann heim að
sækja og allra götu vildi hann
greiða. Þar naut hann góðrar og
dyggrar aðstoðar sinnar mætu
eiginkonu Unnar Guðmundsdótt-
ur, og sona þeirra. Okkar kynni
hófust á árinu 1971 þegar við
byrjuðum uppbyggingu bæjar okk-
ar að Börmum. Fyrir okkur kom
hann sem náttúrubarn, ríkt mótað-
ur af fögru umhverfi heimabyggðar
sinnar og ávallt reiðubúinn að taka
því sem að höndum bar. Forsjálni
og fyrirhyggja virtist honum í blóð
borin og ríka áherslu lagði hann á
að aðrir gætu notið hennar með
honum. Ekki virtist honum um það
gefið að vera of háður öðrum til
munns og handa og var reiðubúinn
að taka ýmsar áhættur vegna þessa.
Er við Iítum á bak okkar horfna
vini er margs að minnast. Ekki
hvarflaði það að okkur í júlí sl. þeg-
ar við gengum saman um kirkju-
garðinn á Stað Og rifjuðum upp
hvíldarstaði látinna sveitunga, vina
og ættingja að það yrði síðasta
skipti sem við hittumst, þessa
heims. Þá eins og svo oft áður sló
logagylltum geislum kvöldsólar-
innar yfir Breiðfirsku byggðina.
Eins og unaðsemd þeirrar stundar
er minningin um hinn látna vin
okkar.
Far þú í friði,
friður guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Fjölskyldu Snæbjarnar, ættingj -'
um og vinum sendum við okkar
dýpstu samúðarkveðjur og biðjum
góðan guð að styrkja þau og
vernda.
Jón Ólafsson,
Ingibjörg Árnadóttir og
annað heimilisfólk á Börmum.
RÍKISSPÍTALARNIR
Stór íbúð óskast á leigu
5—6 herbergja ibúð óskast fyrir hjúkr-
unaríræðing sem næst Landspitalanum.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri
Landspitala i sima 29000.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Vonarstræti 4 - Sími 25500
Lausar stöður
1. Eftirtaldar nýjar stöður við litið heimili
fyrir unglinga: Staða forstöðumanns.
Reynsla af starfi með unglingum i
vanda og menntun sem nýst getur i sliku
starfi áskilin. Staða aðstoðarmanns.
Reynsla af starfi með unglingum i
vanda sem nýst getur i sliku starfi
ákilin. Umsóknarfrestur er til 15.
september n.k. Upplýsingar gefur yfir-
maður f jölskyldudeildar i sima 25500 og
74544.
2. Staða fulltrúa. Hálf staða eftir hádegi i
fjármála- og rekstrardeild. Reynsla i
skrifstofustörfum nauðsynleg.
3. Staöa ritara. Góð vélritunarkunnátta og
starfsreynsla áskilin. Umsóknarfrestur
um tvær siðastnefndu stöðurnar er til
15. sept. Skrifstofustjóri veitir upplýs-
ingar i sima 25500.
Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar.