Þjóðviljinn - 28.08.1982, Blaðsíða 30
30 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNHelgin 28—29. ágúst. 1982.
Þing
lífeðlisfræðinga
í Reykjavík:
Þrír
Nóbels-
verðlauna-
menn
mæta
Nú á sunnudagsmorgun hefst
á Hótel Loftlciðum þing norrænna
lifeðlisfræðinga og sækja það
margir ágætir visindamenn,
þeirra á meðai þrir Nóbelsverð-
launahafar.
Alls verða erlendir gestir um
250 talsins. Þingið verður sett aö
viðstöddum forseta islands, sem
ávarpar gesti. Fyrstur visinda-
manna til að flytja erindi verður
heiðursgestur þess Sviinn Ulf von
Euler Nóbelsverðlaunahafi. Ann-
að erindið flytur annar handhafi
þeirra verðlauna, Torsten Wiesel,
sem ágætur hefur orðið af rann-.
sóknum sýnum á sjóninni.
Prófessor Jóhann Axelsson
sagði i stuttu spjalli við Þjóðvilj-
ann i gær, að allir islenskir lifeðl-
isfræðingar hefðu lagt sig fram
um að gera þetta þing veglegt, en
undirbúningur hefur verið i hönd-
um starfsmanna Rannsóknastofu
Háskólans i lifeðlisfræði. Þetta
verður ekkert venjulegt skýrslu-
þing, sagði prófessor Jóhann enn-
fremur — ágætir menn hafa tekið
að sér að gagnrýna það sem fram
kemur svo þingið Verður i öðrum
anda en mörg hliðstæð.
Hátíð og
kátína í bás
Þjóðviljans
„Það er óhætt að segja, að
undirtektir gesta á heimilissýn-
ingunni hafa verið hreint ótrúlega
góðar,” sagöi Kristin ólafsdóttir,
en hún hefur haft veg og vanda af
skipulagningu og undirbúningi
þess mikla starfs, sem þar fer
fram i básnum. Og það er tölu-
vert, þegar að er gáð: starfsfólk
Þjóðviljans safnar áskrifendum,
gestir og gangandi geta tekið þátt
i verölaunagetraun, sem byggir á
fréttum úr Þjóðviljanum og reynt
að vinna til verölauna, sem eru
ferð til Amsterdam með Sam-
vinnuverðum/Landsýn, börnin
geta teiknað eða skrifað i Barna-
horn Þjóöviljans og þegar ráö-
herrar eða þingmenn Alþýðu-
bandalagsins eru til staðar I Þjóð-
viljabásnum, er sjálfsagt að
spjalla við þá um pólitikina og
horfurnar i efnahagsmáiunum.
„Fyrir helgina höfðu safnast á
áttunda hundrað kynningar-
áskrifenda, og á annað þúsund
manns höfðu tekið þátt i frétta-
getrauninni”, sagði Kristin, „og
þá er ógetiö alls efnisins, sem
börnin hafa verið dugleg að vinna
fyrir Barnahornið. Þau hafa
skrifað smásögur, teiknað
margar bráðskemmtilegar
myndir, samið gátur og visur
skritlur, og afrakstur þess er m.a
að finna i þvi aukablaði, sem
Þjóðviljinn gaf út fyrir þessa
helgi i tilefni Heimilissýningar-
innar”.
I dag, laugardag, mun Helgi
Ólafsson vera með uppákomu
tengda skák, i Þjóðviljabásnum,
en hann skrifar, eins og kunnugt
er, reglulega skákskýringar i
Sunnudagsblað Þjóðviljans. Á
sunnudaginn mun svo Arni Berg-
mann, ritstjóri koma við i bás
Þjóðviljans milli kl. 15 og 17 og
lesa úr einhverjum af sinum
blaðagreinum.
— jsj.
Harðar deilur um stöðu bæjarritara í Eyjum:
S j álf stæðismenn
samir við sig
segir Sveinn Tómasson bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum
Sveinn Tómasson bæjarfulltrúi
Alþýöubandalagsins i Vest-
mannaeyjum: refirnir voru
greinilega þannig skornir að
sjálfstæðismaður skyldi fá stöð-
una.
jLeiðrétting
II opnugrein um atvinnu-
ástand á Akureyri i blaöinu i
fyrradag vantaði nöfn ,
• tveggja sem sæti eiga i sam- ■
Istarfsnefnd um iðnþróun á I
Eyjafjarðarsvæði. Þau eru: I
Þóra Hjaltadóttir og Sigurð- ,
■ ur Arnórsson. Þá misritaðist ■
Ieftirnafn eins nefndar- I
manns. Hann heitir Bjarni |
Guðleifsson en ekki Guð- ,
• mundsson. i
„Fólk hér i Vestmannaeyjum
er verulega hneykslað á þessari
ákefð Sjálfstæðismanna að koma
gæðingum sinum i embætti og á
þeim 3 mánuðum sem Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur farið með völd
I bæjarstjórninni hefur þeim tek-
ist að koma i valdastöður hverri
silkihúfunni upp af annarri”,
sagði Sveinn Tómasson bæjar-
fulltrúi A1 þýöubandalagsins I
Vestmannaeyjum, en talsverðar
dcilur hafa verið i Eyjum vegna
ráðningar I stöðu bæjarritara
þar.
Forsaga málsins er sú að i
Vestmannaeyjum hefur um, ára-
bil verið háskólamenntaður mað-
ur I stöðu bæjarritara og gegndi
þvi starfi siðast Páll Guðjónsson,
núverandi sveitarstjóri i Mos-
fellshreppi. Eftir kosningar i vor
sagði hann sinu starfi lausu og
var þá auglýst eftir manni i starf-
ið. Skókaupmaður einn i Vest-
mannaeyjum, Axel Ó. Lárusson
sótti um stöðuna en samkvæmt
upplýsingum frá Vestmannaeyj-
um opnuðu bæjarstjóri ólafur
Elisson og forseti bæjarstjórnar
Sigörgeir Ólafsson bréf umsækj-
andans áður en umsóknarfrestur-
inn rann út! Jafnframt báðu þeir
Axel um að draga umsókn sina til
baka en hann þráaðist við og
skömmu áður en umsóknarfrest-
urinn rann út barst önnur umsókn
um bæjarritarastöðuna. Reyndist
þar vera á ferðinni bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, Sigurður
Jónsson.
„Refirnir voru greinilega þann-
ig skornir að sjálfstæðismenn i
bæjarstjórn höfðu fyrir löngu
ákveðið að Sigurður fengi stöð-
una”, sagði Sveinn Tómasson
ennfremur. „S.l. mánudag var
hent inn á borð til okkar bæjar-
fulltrúa starfslýsingu fyrir um-
rættstarf og nú var þar ekki leng-
ur um stöðu bæjarritara að ræða
heldur skrifstofustjóra kaupstað-
arins! Virðist greinilegt á hinni
nýju starfslýsingu að þetta nýja
starf er sniðið fyrir Sigurð Jóns-
son enda var hann siðan kjörinn i
stöðuna fyrir tilstilli atkvæða
bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins.”
Bæjarstjórnarfundurinn á
fimmtudag var afar fjölmennur
enda mál þetta náð að vekja
mikla athygli i Vestmannaeyjum.
Svo fóru leikar að Sigurður fékk 5
atkvæði sjálfstæðismanna en einn
þeirra, kona Axels Ó. Lárussonar
sem einnig hafðisóttum stöðuna,
sat hjá. Gegn veitingunni voru 3
bæjarfulltrúar minnihlutans i
Eyjum.
—v.
Minnihluti þingmanna getur gert
meirihluta óstarfhæfan:
Gfldandi regla
segir Sighvatur Björgvinsson og telur
bráðabirgðalögin verða felld í neðri deild
Sighvatur Björgvinsson. Þarf 32
þingmenn i starfhæfan meiri-
hluta.
Félag ísl.
stórkaupmanna:
Flutt í Hús
verslunarinnar
Húsið er samtals
40.000 rúmmetrar
Fyrirtæki eru óðum að koma
sér fyrir i hæsta húsi á tslandi
sem er Hús verslunarinnar sem
svo hefur verið nefnt. A fimmtu-
daginn bauöFélag islenskra stór-
kaupmanna til fagnaðar á 5. hæð
þessa risastóra húss, sem þeir
eru eigendur að.
Hús verslunarinnar er samtals
tæplega 40.000 rúmmetrar en
arkitektar þess eru Ingimundur
Sveinsson og Einar Þorsteinn
Asgeirsson. Félag islenskra stór-
kaupmanna á alla 5. hæð hússins
sem er um 520 fermetrar að stærð
og Stefán Snæbjörnsson innan-
hússarkitekt hannaði allar inn-
réttingar 5. hæöarinnar sem er
6.92% af heildarstærð hússins.
Verslunarbanki Islands á 42% I
Húsi verslunarinnar en næst
stærsti hluthafi er Lifeyrissjóður
verslunarmanna sem á 24.6% i
húsinu. Aðrir eignaraðilar eiga
minni hluti en það eru Félag
— Er eðlilegt að minnihlutinn á
alþingi geti stöðvað mál sem
meirihlutinn fylgir einsog útlit er
fyrir um bráöabirgðalögin, sem
forsætisráöherra undirritaði fyrir
skömmu? Við lögðum þessa
spurningu fyrir Sighvat Björg-
vinsson formann þingflokks Al-
þýðuflokksins. Sighvatur sagði að
i sjálfu sér væri ef til vill óeðlilegt
að þingiö starfaði í tveimur deild-
um. Einmitt þess vegna hefði
náðst nokkuð viðtækt samkomu-
lag um það i stjórnarskrárnefnd
að gera þingiö að einni málstofu.
En þarsem um þingræðisvenju
væri að ræða kæmi ekki til mála
annaö en að menn létu sannfær-
ingu sina i Ijósi og greiddu at-
kvæði gegn bráðabirgðalögunum.
Það myndu þingmenn Alþýðu-
flokksins gera þegar þar að
kæmi.
— Ég vildi gjarna minna á það,
sagði Sighvatur, að eftir kosn-
ingarnar 1979, var efnt til sam-
starfs Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks um kosningu I
deildir til þess að koma i veg fyrir
þann möguleika að Sjálfstæðis-
flokkurog Alþýðuflokkur sem þá
höfðu meirihluta þingmanna i
sameinuðu þingi, gætu myndað
samsteypustjórn. Það var gert
með þvi að þessir tveir flokkar
höföu samstarf um kosningu I efri
deild þannig að meirihluti þing-
manna hafði ekki meirihluta i
deildinni.
— Það var ekki talin ástæða til
að mótmæla þessu þá, þvi svona
eru nú einu sinni leikreglurnar
sem við störfum eftir. Og eins er j
þessu nú varið. Minnihlutinn
hefur hugsanlega meirihluta i
neðri deild og getur gert rikis-
stjórnina óstarfhæfa. Við þetta
verða menn að búa, enda eildandi
reglur. —
Fundur Verð-
lagsráðs í gær:
24,2%
hækkun á
kaffinu
Talsverðar hækkanir voru
samþykktar á verði ýmissa vara
og þjónustu á fundi Verðlagsráðs
I gærmorgun. Til dæmis hækkar
verð aðgönguiniða að kvik-
myndahúsunum um 25% og kaffi
um 24,2%
Bensin hækkaði um 8,98%, gas-
olia um 14,3% Svartolia um 15,6%
smjörliki um 19,9% brauð um
16,5—19,2%, saltfiskur um 31,6%,
útseld vinna um 7,5% og gos-
drykkir um 5%.
Við það að sykur fór i 40% vöru-
gjaldsflokk hefur orðið um 66%
hækkun á útsöluveröi sykurs en
þar eru einnig áhrif gengisfell-
ingarinnar. 20. ágúst var heim-
iluö 12% hækkun á verði gos-
drykkja en nú er aftur leyfð 5%
hækkun á þeim vegna sykurs-
hækkunarinnar.
Talsmaður Verðlagsstofnunar
kvað fyrrgreindar hækkanir aðal-
lega stafa af gengisfellingunni og
gengissigi undanfarinna mánuða.
Þá vegur hækkun vörugjalds
einnig talsvert.
Skyldu þeir vera aö ræða sölutregðu á áli ellegar bollaleggja um hag
verslunarinnar i landinu? Frá opnun húsnæðis Félags islénskra stór-
kaupmanna i Ilúsi Verslunarinnar. Ljósm. gel.
islenskra stórkaupmanna, Kaup-
mannasamtök Islands, Versl-
unarráð Islands, Verlunar-
mannafélag Reykjavikur og Bil-
greinasambandið. A 13. og 14.
hæð hússins er svo sameiginlegt
húsnæöi.
Þaö mátti sjá margan kátan
kaupmanninn i veislu FIS og mun
þess nú ekki langtaö biöa að félög
þeirra og stofnanir helstar komist
allar undir sama þak i húsinu
stóra austur i Kringlumýri.