Þjóðviljinn - 28.08.1982, Blaðsíða 15
Helgin 28—29. ágúst. 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Paolo Rossi er þjóðhetja ítala um þessar mundir — en hann hefur ekki
gleymt fortíðinni og lætur frægðina ekki stíga sér til höfuðs.
heimsmeistari
eftir tveggja ára keppnisbann
Ef ekki hefðu uppgötvast lítt þekkt
lagaleg formsatriði fyrir tveimur og
hálfu ári, hefði Ítalía tæplega orðið
heimsmeistari í knattspyrnu árið 1982!
Þegar þjóðhetja dagsins í dag á Ítalíu,
Paolo Rossi, var fundinn sekur um að
hafa þegið mútur og dæmdur í tveggja
ára keppnisbann, átti hann yfir höfði sér
að vera dreginn fyrir borgaralegan
dómstól sem hefði líklega dæmt hann í
fangelsi.
Ákærur dómstólsins voru að lokum felldar niður
vegna lagalegra formsatriða og rúmlega tveimur árum
síðar var Rossi mættur til leiks á ný. ítalska landsliðið
varpaði viðjum varnarleiksins og vann heimsmeistar-
atitilinn á verðskuldaðan hátt.
Rossi fór að skora.
Það voru fyrst og fremst mörkin sem Rossi skoraði,
þrjú gegn snillingum Brasilíu, tvö í undanúrslitunum
gegn Pólverjum og fyrsta markið í úrslitaleiknum
gegn Vestur-Þjóðverjum, sem gerðu Ítalíu kleift að
ná sér á strik eftir slakan árangur í undankeppninni
þar sem liðið vann ekki leik og skreið áfram á þremur
jafnteflum.
Á svipstundu breyttist allt. ítalskir knattspyrnu-
unnendur, sem höfðu snúið við honum bakinu, gerðu
hinn 26 ára gamla Paolo Rossi á ný að guði sínum.
Fréttamennirnir, sem áður níddu hann niður, áttu
ekki til nógu hástemmd orð í pennum sínum til að lýsa
snilli hans. Fortíðin virtist gleymd. En einn maður
gleymdi engu.
Rossi hélt rósemi sinni og hélt í sumarleyfi á lítt
þekktum stað ásamt Simonettu, eiginkonu sinni, um
leið og heim til Ítalíu var komið. Á meðan kepptist
fjöldinn við að koma nafni hans og andliti á hvað sem
var frá nærbolum til auglýsingaskilta. Rossi steig hins
vegar sjálfur hæversklega út úr sviðsljósinu.
Formaðurinn sagði af sér.
Það var í heimsmeistarakeppninni í Argentínu árið
1978 sem Paolo Rossi hlaut alþjóðlega frægð fyrir
knattspyrnusnilli sína. Miðherjinn mjóvaxni skoraði
mörk gegn Frökkum, Ungverjum og Austurríkis-
mönnum, sem allt voru sigurleikir, lék alla sjö leiki
Ítalíu og skaust upp á stjörnuhimininn.
Heima á Ítalíu verðlagði félag hans, Lanerossi
Vincenza hann óheyrilega hátt, eða á þrjár milljónir
enskra punda, og formanni ítölsku deildakeppninnar
ofbauð svo, að hann sagði af sér.
Rossi, 22ja ára gamall, hafði lagt heiminn að fótum
sér og framtíðin blasti við björt og fögur en skyndilega
skall á þrumuveður. Samkvæmt upplýsingum ítalska
knattspyrnusambandsins hafði Rossi þegið mútur
upp á tvö þúsund ensk pund meðan hann lék með
Perugia, en þangað hafði Lanerossi lánað hann í smá-
tíma. Það kaldhæðnislega við þetta mútumál er það
að leiknum umrædda lauk með jafntefli, 2—2, og
Rossi skoraði bæði mörk Perugia!
Þriggja ára bann.
Öll Ítalía lék á reiðiskjálfi vegna mútuhneykslisins
sem var gífurlega umfangsmikið og meðal ann-
ars var hið fræga lið AC Milano dæmt niður í 2. deild.
Rossi var líka fundinn sekur og dæmdur í þriggja ára
bann.
Bannið var síðar stytt niður í tvö ár en nú varð Rossi
að æfa upp á eigin spýtur og á tímabili hugleiddi hann
alvarlega að fara til Suður-Afríku af stjórnmálalegum
ástæðum. Rossi fór ekki, enda hefði knattspyrnuferill
hans sennilega þar með verið á enda.
Ekkert til Spánar að gera.
Þegar Enzo Bearzot, landsliðseinvaldur ítala, til-
kynnti að Rossi yrði í hópnum sem færi til Spánar í
heimsmeistarakeppnina, ásökuðu margir heima fyrir
einvaldinn um að vera með því að grípa til örþrifa-
ráða. Leikmaður, nýstiginn úr tveggja ára keppnis-
banni, hefði ekkert til Spánar að gera.
Bannið var á enda í apríl síðastliðnum og Rossi æfði
betur en nokkru sinni áður. En hann skorti leikæfingu
og það kom átakanlega í ljós í fyrstu þremur leikjum
ítalaáSpáni, gegn Póllandi, Perú og Kamerún. ítalir'
skoruðu aðeins tvö mörk í þessum leikjum.
Hetja á ný.
Persónuleiki Rossi, sem hafði styrkst verulega í
hinni löngu útlegð, ásamt hinum meðfæddu knatt-
spyrnuhæfileikum, fleytti honum í gegnum þetta erf-
iða tímabif. Hetjan, sem hafði orðið að þorpara, var
skyndilega orðin hetja á ný. Paolo Rossi var kjörinn
besti leikmaðurinn í heimsmeistarakeppninni af frétt-
amönnum heimspressunnar og hlaut rúmlega 200 at-
kvæðum meira en stórstjörnurnar Falcao, Socrates og
Rummenigge.
Meðan á keppnisbanninu stóð, keypti stórliðið Ju-
ventus Paolo Rossi á hálfa miljón enskra punda og þar
með er hann kominn aftur þangað sem hann byrjaði.
Hann hóf nefnilega feril sinn hjá Juventus en félagið
lét hann fara, kornungan að aldri, þar sem hann var
talinn of veikburða og með brothætt hné. í vetur
leikur Rossi við hliðina á Frakkanum Michel Platini
og Pólverjanum Zbigniew Boniek í Juventus-liði sem
virðist ætla að verða það öflugasta í sögu Ítalíu síðan
Inter Milano var upp á sitt besta á sjöunda áratug
aldarinnar.
Lírurnar flæða.
Bak við tjöldin flæða ítölsku lírurnar eins og stór-
fljót þessa dagana. Viðskiptafyrirtæki nokkurt ætlar
sér stórgróða með því að selja myndir af Rossi.
Stígvélaframleiðendur berjast um að fá hann til að
auglýsa ágæti sinnar vöru. Skóframleiðandi hefur
lofað að sjá hinum dýrmætu fótum hans fyrir skóm til
æviloka. Vínframleiðendur senda honum tugi lítra af
bestu fáanlegu hvít- og rauðvínum og safnarar eigin-
handaráritana eru við hvert fótmál.
Sigur hins sterka.
Árangur Rossi er sigur í innri baráttu. Hann hafði
hugrekki og nægilega sterkan persónuleika til að
gjalda fyrir mistök sín, halda á brattann á ný og standa
uppi sem sigurvegari.
Einkastrtð Rossi varð til þess að Ítalía hampar nú
heimsmeistaratitlinum en bikarinn gæti hæglega hafa
lent í aðra heimsálfu ef lagalega formsatriðið hefði
ekki komið til skjalanna fyrir tveimur og hálfu ári
síðan!
—VS (þýtt og cndursagt)
Lagalegt formsatriöi færöi
Ítalíu heimsmeistaratitilinn!
PAOLO
ROSSI