Þjóðviljinn - 28.08.1982, Blaðsíða 31
Helgin 28—29. ágúst. 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 31
Landssamband iðn-
verkafólks ályktar
um efnahagsaðgerð-
irnar:
Ljósm. gel
Hjörleifur Guttormsson dreifir kynningarriti frá Alþýðubandalaginu á
Lækjartorgi f gær. Ljósm gel.
ilafur Ragnar Grimsson ávarpar vegfarendur á Lækjartorgi f gær.
Alþýðubandalagið með vinnustaðafundi og útifund á Lækjartorgi:
Allir aðrir
ilokkar
í felum
Tillögum stjórnarandstöðunnar
best lýst með einnar mínútu þögn
Þingmenn og ráðherrar Alþýðubandalagsins héldu áfram
fundaherferð sinni á vinnustöðum í gær og efndu til útifundar á
Lækjartorgi. Átorginu sögðu ráðherrarnir Ragnar Arnaldsog Hjör-
leifur Guttormsson og Ólafur Ragnar Grímsson þingflokksformað-
ur frá efnahagsráðstöfunum ríkisstjórnarinnar, tillögum Alþýðu-
bandalagsins og skýrðu þann vanda sem við er að etja í efnahags-
málum.
Fundurinn á Lækjartorgi var
hinn líflegasti og tóku vegfarendur
virkanþáttíhonum. Máendasegja
að það hafi ekki gerst í áratugi að
þingmenn og ráðherrar fari út á
torg í kjölfar efnahagsráðstafana til
þess að ræða við fólk. Mikið var um
frammíköll á fundinum, gagnrýnis-
raddir heyrðust og fyrirspurnir
voru settar fram, sem forsvars-
menn Alþýðubandalagsins svör-
uðu. Þar var ekki látið staðar num-
ið því hljóðneminn var boðinn upp
og flutti Pétur Pétursson útvarps-
þulur tölu, og fulltrúi
Kommúnistasamtakanna, auglýsti
fund á þeirra vegum.
Pétur mótmælti kjaraskerðing-
unni í efnahagsráðstöfunum og
minnti á sögu Alþýðuflokksins,
sem Alþýðubandalagið væri farið
að draga dárn af. Olafur Ragnar
svaraði og minnti á það að Morg-
unbiaðið hefði leitt fram fulltrúa
atvinnurekenda, verslunarinnar,
útgerðarinnar og fleiri aðila sem
allir hefðu stunið yfir aðgerðunum
fyrir sitt leyti og óskað eftir harðari
ráðstöfunum gagnvart launafólki.
Þá sagði hann mikinn mun á að-
gerðum Geirs 1978 og ráðstöfun-
um stjórnarinnar nú, því ’78 hefðu
þjóðartekjur verið á uppleið en nú
væru þær á niðurleið og atvinnu-
leysi og skuldasöfnun blasti við ef
ekki væri tekið á hlutunum. Enda
þótt framkölluð yrði kaupmáttar-
rýrnun hjá launafólki kæmí hún
vægast við láglaunafólk og bitnaði
einnig á atvinnurekendum, en
kaupránslögin 1978 hefðu einungis
bitnað á launafólki.
Þá var á það bent af hálfu tals-
manna Alþýðubandalagsins á
fundinum að tillögum stjórnar-
andstöðuflokkanna í efnahagsmál-
um væri best lýst með einnar mín-
útu þögn. Allir aðrir flokkar en Al-
þýðubandalagið væru í felum. Geir
feldi sig í Morgunblaðshöllinni og
Kjartan Jóhannsson í útlöndum.
Alþýðubandalagið opnaði hins-
vegar lýðræðislega umræðu við
almenning um þann vanda sem við
væri að glíma og um tillögur sínar
til úrbóta.
Eins og áður sagði var fundurinn
hinn fjörugasti rneð snörpum orða-
skiptum og spennu og lauk með
lófaklappi vegfarenda sem greini-
lega kunnu að meta það að komast
í tæri við aðila í landsstjórninni að
tala við og skamma.
A fundinum var og dreift kynn-
ingarriti frá Alþýðubandalaginu
sem ber heitið Verjum Island gegn
atvinnuleysi. Þingmenn og ráð-
herrar Alþýðubandalagsins fóru
einnig á vinnustaði í gær og komu
m.a. í Kassageröina, Vélsmiöjuna
Héðin og matstofu tolls og skatts.
Þá héldu Svavar Gestsson og Skúli
Alexandersson vinnustaðafund í
Skipavík í Stykkishólmi í gærmorg-
un og litu við á sex öðrum vinnu-
stöðum í Hólminum. -ekh
m
Ragnar Arnalds var í hádeginu i gær I VélsmiOjunni HéOni og svaraOi snörpum spurningum starfs-
manna þar. Ljósm. eik.
Mótmælír
verðbóta-
skerðingu
Stjórnvöld hafa nú
ákveöíð margvíslegar að-
gerðir í efnahagsmálum. I
þeim er enn einu sinni
gripið með lagaboði inn í
gerða kjarasamninga með
lækkun umsaminna verð-
bóta. Þeirri aðgerð mót-
mælir stjórn Landssam-
bands iðnverkafólks harð-
lega.
Ekki fer á milli mála aö við
margs konar vanda er aö glima i
islenskum efnahagsmálum.
Vandamál þessi má ekki undir j
neinum kringumstæöum leysa á
kostnaö láglaunafólks.
Stjórn Landssambands iön- j
verkafólks minnir á aö atvinnu- j
ástand iönverkafólks er nú sums
staöar ótryggt og treystir þvi aö !•
stjórnvöld sjái til þess aö full at- ;
vinna veröi tryggö áfram.
t yfirlýsingu rikisstjórnarinnar
er gert ráö fyrir ýmsum aö-
geröum til hagsbóta fyrir hina
lægst launuöu og treystir stjórn
Landssambands iönverkafólks
þvi aö þessi loforö veröi efnd og
komi sem allra fyrst til fram-
kvæmda._______________
Verslunarmanna-
félag Reykjavíkur:
Laun eru
ekki orsök
vandans
Stjórn Verslunarmannafélags
Reykjavikur hefur á fundi sinum
mótmælt harölega nýsettum
bráöabirgöalögum rikisstjórnar-
innar og i ályktun fundarins
segir aö stjórnvöld hafi enn einu
sinni mætt efnahagsvandanum
meö ógildingu kjarasamninga.
Meö siendurteknum aðgeröum af
þvi tagi hafi rikisvaldið i reynd
svipt stéttarfélögin frjálsum
samningsrétti þeirra.
í lok ályktunar fundar Versl-
unarmannafélags Reykjavikur
segir: „Launataxtar, sem fjöldi
fólks býr viö og eru um 8.000 kr á
mánuöi eru ekki orsök efnahags-
vandans. Þessi laun veröa nú
skert um nærri 10% samkvæmt
lögunum. Félagiö mótmælir
harölega þvi aö laun þessa fólks
skuli enn á ný vera skert meö
lagaboöi, þar sem þeim aöal-
rökum er beitt, að slikt sé nauð-
synlegt til aö ráöa niðurlögum
verðbólgunnar”. —v.
Bókagerðarmenn:
Fordæma
árásir á
líiskjör iólks
„Félag bókageröarmanna for-
dæmir þessar síendurteknu árás-
ir á lifskjör fólks og bendir á aö
fólk er oröið langþreytt á aö þurfa
aö hlusta á „landsfööurlegan”
boöskap stjórnmálamanna um aö
nú þurfi þjóöin aö taka sameigin-
lega á vandamálum þjóöarbús-
ins, þegar raunin er ævinlega sú
að verkafólk er látiö taka skell-
inn”.
Þetta segir m.a. i ályktun fund-
ar Félags bókageröarmanna,
sem haldinn var 25. ágúst sl. Sið-
ar i ályktun bókagerðarmanna
segir:
„A sama tima er ekkert eftirlit
haft meö gjaldeyrissóun i land-
inu, svo dæmi sé tekiö, hömlulaus
innflutningur á sér stað um leið
og framleiösla og útflutningur
hefur dregist verulega saman.
Ötal önnur atriði mætti nefna um
óstjórn i rikisbúskapnum fyrir ut-
an allt þaö svokallaöa „frelsi”
sem ævintýramenn á viöskipta-
sviöinu búa viö”. -"v-