Þjóðviljinn - 01.05.1983, Page 5
Helgin 30. apríl/1. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Akranes á 1. maí
Hátíðar-
fundur í
Bíóhöllinni
Hátíðarhöldin 1. maí á Akranesi
hefjast með því að safnast verður í
kröfugöngu við hús
verkalýðsfélaganna að Kirkjub-
raut 40 kl. 14.00. Gengið verður
þaðan í Bíóhöllina þar sem hátíðar-
fundur fer fram. Lúðrasveit Akr-
aness gengur fyrir göngunni og í
Bíóhöllinni. Aðalræðu dagsins
flytur Hákon Hákonarson formað-
ur Félags málmiðnaðarmanna á
Akureyri. Félagar úr Skaga-
leikflokknum flytja söngva og
ávörp frá stéttarfélögunum á Akra-
nesi verða flutt. Einnig verður up-
plestur. 1. maí merki verða seld af
félögum úr Sundfélagi Akraness.
Ný bók frá
Erni og Örlygi:
Listin
að klífa
fjöll
Fjallamennska heitir bók eftir
Ara Trausta Guðmundsson og
Magnús Guðmundsson sem Örn og
Örlygur gefur út - bók sem að sögn
útgefanda „á erindi við alla sem
hafa áhuga á áð ganga um landið og
á fjöll, bók til að efla öryggi og
ánægju ferðamannsins“.
Á blaðamannafundi sögðu höf-
undar, sem hafa gert textann í ná-
inni samvinnu, frá helstu efnisþátt-
um. í bókinni eru kaflar um ferða-
slóðir, val leiða, um útbúnað fjalla-
manna. Kafli er um „gönguferðir
með útbúnað" - hvað menn þurfa
til að vera sjálfum sér nógir á slíkri
ferð og hvernig er best háttað skip-
ulagningu hennar. Þá er kafli um
jöklaferðir og mönnum m.a. kennt
að umgangast jökulsprungur, búa
til snjóhús og fl. Sérhæfðir kaflar
eru um bergklifur og ísklifur.
Einnig er fjallað um snjóflóð og
nokkur þau grundvallaratriði sem
gott er ab kunna þeim sem háska
vilja forðast. Að lokum er svo kafli
um nokkrar háfjalla- og klifurleiðir
á íslandi og smákafli um ferðir í
Alpana.
1 bókinni, sem kostar 698 krón-
ur, eru um 180 myndir - sumar
teknar í ferðum, aðrar „sviðsettar“
í kennsluskyni. Þær hefur langflest-
ar tekið Hreinn Magnússon.
Teikningar skýra björgun úr snjó-
flóði og sprungum.
Höfundarnir eru allir meðlimir í
Alpaklúbbnum, tveir þeirra eru
leiðsögumenn hjá Ferðafélaginu
og hinn þriðji er í Hjálparsveit
skáta.
- áb.
Kvenfélag Breiðholts og
kvenfélagið Fjallkonurnar
Sameiginlegt skemmtikvöld veröur þriöju-
daginn 10. mai i menningarmiðstööinni við
Gerðuberg og hefst meö borðhaldi kl. 20.
Tilkynniö þátttöku fyrir 8. maí (síma 72002
Hildigunnur, 73240 Brynhildur, 71449 Þór-
anna og 71031 Sonja.
Hollustuvernd ríkisins:
Hættulegir
sólarlampar
„Notkun sóllampa getur fylgt
nokkur áhætta. Af þeim sökum og
vegna fjölda fyrirspurna hefur
Hollustuvernd ríkisins sent út
dreifibréf til heilbrigðisnefnda með
upplýsingum og leiðbeiningum um
slíka starfsemi.“
Þannig hljóðar upphaf tilkýnn-
ingar frá Hollustuvernd ríkisins og
þar segir ennfremur:
„Geislar lampanna geta skaðað
augun, ef ekki eru notuð þar til
ætluð varnargleraugu og vitað er
að langvarandi útfjólublá geislun
getur valdið varanlegum breyting-
um á húð. Gestum sólbaðsstofa
skal ennfremur bent á að leita ráða
læknis noti þeir lyf t.d. fúkalyf eða
geðlyf. Þá er vitað að viss fegrunar-
lyf geta valdið ofnæmi og ber því að
hreinsa húðina vandlega fyrir sól-
böð. Persónulegt hreinlæti og góð
þrif alls búnaðar eru mikilvæg.
Aðeins er heimilt að nota sól-
lampa sem viðurkenndir hafa verið
af Hollustuvernd ríkisins og þess
gætt að farið sé eftir þeim reglum er
um slíka lampa gilda og notkun
þeirra.
Eftirfarandi leiðbeiningar skulu
hanga uppi á sólbaðsstofum:
1. Notið hlífðargleraugu. 2.
Baðið yður að lokinni geislun. 3.
Hafið samráð við lækni yðar, ef þér
notið lyf. 4. Viss fegrunarlyf geta
valdið ofnæmi, hreinsið því húðina
vandlega fyrir sólböð. 5. Búnaður
sé hreinsaður eftir hverja notkun.
6. Fylgið leiðbeiningunt um lengd
og tíðni sólbaöa."
Combi Camp
3 útgáfur
’83
CC 150______
Háfættur fjallavagn sem
kemst um allt hálendiö.
Svefnpláss fyrir 4.
Verð kr. 29.775.-
CC 200
Sá reyndasti í fjölskyldunni
Svefnpláss fyrir 5-8. Gott far
angursrými.
Verö kr. 41.600.-
cc 202_______________________
Lúxus útgáfan sem tekur viö
af hinum vinssela Easy.
Svefnpláss fyrir 5-8 og gott
farangursrými.
(Fæst einnig meö 2 öxlum til
fjallaferöa.)
Verö kr. 53.435,-
m
Benco
Bolholti 4 sími 91-21945/84077
Gengi 10.2.83.
Gagnfræðaskólinn
á Höfn
2 kennara vantar. Aðalkennslugreinar:
enska, íslenska og raungreinar.
Húsnæði til staðar.
Upplýsinqar gefur skólastjóri í síma 97-8348
eða 97-8321.
Rétt/erö
á réttu verði
KYNNIST FEGURÐ ÞÝSKALANDS
2ja og 3ja vikna hópferðir til Þýska/ands, sem hefjast um borð í
/úxusferjunni M/S Eddu. Stutt sig/ing til Bremerhaven og síðan verður
ekið á ís/enskum langferðabí/um um fögur héruð og borgir Þýskalands.
Fjö/breytt og áhyggjulaus skemmtiferð fyrir fó/k á öllum a/dri.
íslenskur bílstjóri og íslenskur fararstjóri eru með hópnum alla ferðina.
Brottfarardagar: 1., 8. og 15. júní. 13. júlí. 3., 24. og 31. ágúst.
Bókanir eru hafnar - Hafðu samband við okkur sem fyrst.
Helgarpakkarnir vinsælu á London: Verð frá kr. 9.346,- í 5 nætur. Brottför alla
fimmtudaga. Gildir til 15 maí n.k. Flug og bíll: í eina til fjórar vikur til
Glasgow, London, Kaupmannahafnar, Ósló, Stokkhólms, Frankfurt,
Parísar og Luxemborgar í sumar.
Öll almenn farseðlaþjónusta
innanlands og utan.
FERDAllMVAL
Ferðaskrifstöfa - Kirkjustræti 8 - Símar: 19296 og 26660 VW