Þjóðviljinn - 01.05.1983, Qupperneq 7
Helgin 30. apríl/1. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SH>A 7
Svölurnar
með samkomu
Eins og undanfarin ár gengst fé-
lagið Svölurnar fyrir kaffisölu
ásamt skyndihappdrætti og tísku-
sýningu í Súlnasal Hótel Sögu í dag,
sunnudaginn 1. maí.
Félagið sem er á níunda starfs-
ári, hefur í vetur gefið tvö tæki til
sjúkrahúsa og veitt 5 náms- og
ferðastyrki til sérkennara.
Á s.l. hausti greiddu Svölurnar í
félagi við Flugleiðir, fargjöld tal-
kennaranna Lars Nygaard og
Marianne Bjerregaard. Þau héldu
hér námskeið í nýrri aðferð við
málkennslu þroskaheftra, er nefn-
ist „Tákn með tali“. Þetta nám-
skeið sóttu 66 kennararvíðs vegar
að af landinu, sem síðan hafa notað
þessa nýju kennsluaðferð með
góðum árangri.
Fjáröflunarleiðir félagsins eru
aðallega tvær: Sala jólakorta og
kaffisala ásamt happdrætti 1. maí.
Allt starf við fjáröflun vinna félags-
konur í sjálfboðavinnu. Happ-
drættisvinningar eru fengnir hjá
vinum og velunnurum.
Svölurnar senda hlýjar kveðjur
og þakkir öllum þeim fyrirtækjum
og einstaklingum sem hafa stutt fé-
lagið með rausnarlegum gjöfum til
happdrættisins 1. rnaí. Sérstakar
þakkir eru sendar Árna Egilssyni
hljómlistarmanni fyrir höfðinglegt
framlag.
Súlnasalurinn verður opnaður
kl. 14.00 en tískusýningar verða kl.
14.30 og 15.30.
Mígrenesamtökin 5 ára:
Meö kaffisölu á
Hallveigarstöðum
1. maí
Um þessar mundir eru 5 ár liðin
frá stofnun Mígrensamtakanna á
íslandi, eða Samtökum mígren-
sjúklinga eins og nafnið var í upp-
hafi. Nafninu var breytt árið 1981
vegna þess að ýmsir fleiri en míg-
renþolendur vildu ganga í félagið,
bæði aðstandendur og fyrrverandi
mígrensjúklingar.
Félagið starfar með svipuðu
sniði og önnur mígrensamtök á
Vesturlöndum. Markmiðin eru:
að auka samkennd og samstöðu
mígrensjúklinga,
að veita fræðslu með fræðslufund-
um, útgáfu fréttabréfs og annars
fræðsluefnis,
að berjast fyrir bættum rannsókn-
um og meðferð t.d. með göngu-
deildarþjónustu o.fl.
Að þessu hefur verið unnið og
formlega hefur félagið fengið
aðstöðu fyrir mígrensjúklinga á
Göngudeild Taugadeildar Land-
spítalans. Þar hafa að vísu verið
byrjunarörðugleikar en vonandi
rætist úr því sem fyrst.
Mígrensamtökin héldu nýverið
aðalfund sinn. í stjórn voru kosnir:
Björg Bogadóttir formaður, Vald-
emar S. Jónsson varaformaður,
Jóna Dóra Karlsdóttir ritari, Rég-
ína Ingólfsdóttir gjaldkeri, Erla
Gestsdóttir spjaldskrárritari,
Helga Jónsdóttir meðstjórnandi og
Norma E. Samúelsdóttir sem sér
um útbreiðslu og tengsl við félaga.
Fyrir utan félagsgjöld og sölu
minningarkorta safna samtökin fé
til starfseminnar með kaffisölu að
Hallveigarstöðum 1. maí ár hvert
og verður svo einnig 1. n.k. Þar
verða veittar upplýsingar og tekið á
móti nýjum félögum.
Stiaxí
fi/rsta flol<l<l
Pann 4. maí verða dregn-
ir út vinningar að verð-
mæti 2.921.000 krónur.
1 vinningur til íbúðarkaupa á 400
þús. kr.
10 bifreiðavinningará 75 þús. kr. hver.
25 ferðavinningar á 25 þús. kr. hver.
50 húsbúnaðarvinningar á 7.500 kr.
hver og 514 húsbúnaðarvinningar
á 1.500 kr. hver.
MIÐI ER MÖGULEIKI
Sala og endurnýjun
stendur yfir
e
HAPPDRÆTTI 83-84
1
>
llltnr
Bmertoiimir
20 dagar fyrir aðeins kr. 11.800
Innifalið: Flug, gisting, rútuíerðir, hálít íœði í rútuíerðum
og íslensk íararstjórn.
í samvinnu við Alþýðuorlof og Dansk Folke-Ferie eínir Sam-
vinnuíeróir-Landsýn til þriggja einkar hagstœðra skemmti-
ierða til Danmerkur í sumar. Með góðum samningum, m.a.
um skipti á orlofshúsum, heíur tekist að halda verði í algjöru
lágmarki þannig að einsdœmi hlýtur að teljast.
í þessum sérlega ódýru Danmerkuríerðum, sem einkum eru
skipulagðar með aðildaríélaga í huga, sameinum við kosti
góðrar rútuíerðar og ánœgjulegrar dvalar í sumarhúsi.
Við dveljumst alls i 9 daga i notalegum sumarhúsum þar
sem aðstaða öll er eins og best verður á kosið. Þar skipu-
leggjum við leiki, kvöldvökur og skemmtanir, bregðum okkur
i stuttar gönguferðir eða heimsœkjum nálœga merkisstaði
og njótum líísins ríkulega í gullfallegu umhverfi.
í 11 daga rútuíerðum kynnumst við síðan nánar danskri
náttúru og einlœgri gestrisni, komum víða við á Jótlandi og
Sjálandi og gerum ógleymanlega úttekt á danskri matar-
gerðarlist.
íslenskur leiðsögumaður veróur íerðalöngum að sjálfsögðu
til trausts og halds í öllum íerðunum.
Bókanir fara fram á skrilstotu Samvinnuferða-Landsýnar í
Reykjavik og hjá umboðsmönnum um allt land.
Barnaafsléttur kr. 1.500
fyrir börn 2-11 ára.
1. ferð 11. júní-30. júní
2. ferð 1. júlí-20. júlí
3. ferð 22. júlí-11. ágúst
Sjáumst í góðri
Danmerkurferð
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899