Þjóðviljinn - 01.05.1983, Blaðsíða 11
Hclgin 30. apríl/1. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
myndlist
Þórður Hall í
Norræna húsinu
Þórður Hall er þekktari sem
grafík-listamaðuren málari.
Hingað til hefur hann beitt mestu af
kröftum sínum í þágu þrykksins og
var m.a. formaður félagsins
íslensk grafík frá 1978-81. En nú
hefur hann sett upp sýningu á 40
málverkum og 10 teikningum í
kjallara Norræna hússins.
Sýning Þórðar kemur í kjölfar
hins mikla málaraæðis sem gripið
hefur um sig í íslensku listalífi. Þó
væri ranglátt að halda því fram að
hann hafi orðið fyrir áhrifum af
þessari nýju sveiflu. Öllu nær er að
ætla að Þórður hafi fundið hjá sér
hvöt til að bæta við sig nýrri grein
og öðrum aðferðum, hvíla sig um
stund frá grafíklistinni. Reyndar
hlýtur það að vera þreytandi að
einskorða hæfileika sína við eitt
svið myndlistar og hef ég áður bent
á hve óheillavænlegt það er. Það
hlýtur að vera þroskandi hverjum
listamanni að glíma við sem flesta
miðla og greinar innan listarinnar.
Það verður þó hverjum manni
ljóst sem skoðar sýningu Þórðar,
að málverk hans standa nærri þrykk-
verkunum að innihaldi og ásýnd.
Sama náttúrulýsingin, litföróttar
fjallakeilur, skornar af línum og
einfaldaðar í frumform. Munurinn
á málverkinu og þrykkmyndunum
er þó alltént nokkur og stafar hann
eflaust af tæknilegum orsökum.
Olíumyndur Þórðar eru einfaldari
Halldór B.
Runólfsson
skrifar
en grafíkin og dílar þeir sem setja
svo mjög svip sinn á fjöll hans,
verða punktakenndari í málverk-
unum. Oft kemst hann skrambi
nærri niðurstöðum franska mál-
arans Seurat og litgreiningarað-
ferð hans.
Þórður leyfir sér þó mun flatar-
kenndari formbyggingu og kúb-
ískari ljósbrot, eitthvað í ætt við
Lyonel Feininger. Hann horfir á
landslagið með augum borgarbú-
ans, sem hefur rökfært náttúruna,
sniðið af henni augljósa formfræði-
lega vankanta og breytt henni í
kaldranalega rúmfræði. Erfitt er að
greina hvort hér er um háð að
ræða, staðfestingu á sannindum,
eða tilfinningu listamannsins sjálfs.
Slík afstaða er síður en svo ný af
nálinni, því meir en þrjár og hálf
öld er liðin frá fæðingu garð-
yrkjumeistarans André Le Notre,
þess manns sem snyrti gróður í
keilur og kúlur. Þórður lætur sér
nægja strigann. Þar setur hann
fram afstöðu sem gengur þvert á
íslenska landslagshefð og er mun
raunhæfari en síð-ásgrímskan og
kjarvalskan. Þetta er sá tónn sem
hentar þeim nútíma sem þekkir
ekki fjöll nema gegnum bílrúður,
eða með skíðalyftum.
Það er ef til vill gegn hinum falska
tóni í landslagsmyndagerð sem
Þórður mundar pensilinn. Hann er
vissulega arftaki Jóns Stefáns-
sonar, sem fyrstur gerði sér grein
fyrir geometríunni í íslensku lands-
lagi. Á hinn bóginn gerir Þórður
sér ljósa hina vélrænu afstöðu nú-
tímans til náttúrunnar. Þess vegna
virkar málverk hans svo vélrænt og
agað.
Sýning Þórðar er athyglisverð og
fölskvalaus. Þó nær hann vart því
næmi fyrir efninu sem gætir svo
mjög í þrykkverkum hans. Það er
síður en svo undarlegt, því langan
tíma tekur að laða fram eigindir
miðilsins. Þrátt fyrir það eru mál-
verk Þórðar betri helmingur sýning-
ar hans, þar sem þau snerta vissan
kjarna sem teikningarnar skortir.
MIÐIER
MÖGULEIKl
s
a
Sexhundruð húsbúnaðarvinningar á 7.500 kr. hver og sexþús-
undeitthundraðáttatíuogátta húsbúnaðarvinningar á
1.500 kr. hver, verða dregnir út á næsta happdrættisári.
Sala á lausum miðum og endurnýjun ársmiða og flokksmiða stendur yfir.
dcje
HAPPDRÆTTI '83-84
Kvikmyndaklúbbur
til sölu
Fjalakötturinn, Kvikmyndaklúbbur fram-
haldsskólanema er til sölu. Um er aö ræöa
eignir allar klúbbsins. Þar á meöal: Kvik-
myndablaðið ásamt lager, ný sýningarvél
Ernemann 12S 35/16 mm, tvær 16 mm kvik-
myndatökuvélar, nýtt sýningartjald, kvik-
myndasafn (30-40 myndir), bóka- og blaða-
söfn, vélrúlla og splæsari, segulband og
magnari, aukýmissa fylgihluta. Heildartilboð
eða tilboð í einstaka hluti óskast sent til Fé-
lagsstofnunar stúdenta,po. box21 Reykjavík
fyrir föstudaginn 6. maí. Nánari upplýsingar
fást hjá Barða Valdimarssyni sími 46781 eða
Önnu Kristínu Traustadóttur í síma 15918.
CHF
Mikil gæði á ótrúlegu verði
Já þú færð mikið fyrir krónuna þegar þú kaupir SONY CHF kassettur.
Og við fullyrðum að gæðin eru langt fyrir ofan hið hagstæða verð:
JAPIS hf.
BRAUTARHOLTI 2 - SÍMI 27133
REYKJAVlK: Japis, Hljóöfærahús Reykjavíkur, Grammið, Stuö, SS - Hlemmi, Hagkaup,
Gallerý. KÓPAVOGUR: Tónborg. HAFNARFJÖRÐUR: Kaupfélagið, Músík og Sport.
KEFLAVÍK: Studeo. AKUREYRI: Kaupangur, Tónabúðin. VESTMANNAEYJAR: Músíkog
Myndir. NESKAUPSTAÐUR: Bókaverslun Höskuldar Stefánssonar. HÚSAVÍK: Bóka-
verslun Þórarins Stefánssonar. REYÐARFJÖRÐUR: Kaupfélagið. SEYÐISFJÖRÐUR:
Kaupfélagið. ÍSAFJÖRÐUR: Eplið. BOLUNGARVÍK: Einar Guðfinnsson. AKRANES:
Studeoval, Bókaverslun Andrésar Níelssonar. SAUÐÁRKRÓKUR: Radio og Sjónvarps-
þjónustan. HELLA: Mosfell. VOPNAFJÖRÐUR: Bókaverslun Steingríms Sæmundssonar.
SELFOSS: Radio og Sjónvarpsþjónustan.