Þjóðviljinn - 01.05.1983, Blaðsíða 17
Helgin 30. apríl/1. mai 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
PIONO
Guðrún Ásmundsdóttir í hlutverki primadonnunnar Jóhönnu Heiberg og Þorsteinn Gunnarsson í hlutverki
ævintýraskáldsins H.C.Andersen. Ljósm.: Atli.
Úr lífi ánamaðkanna
Leikritið Úr lífi ánamaðkanna
eftir Per Olov Enquist hefur farið
sigurför um öll Norðurlönd síðan
það var frumsýnt í Konungiega
leikhúsinu í Kaupmannahöfn fyrir
tveimur árum og nú er verið að
setja það upp víða um heim. M.a.
er Ingmar Bcrgmann að sviðsetja
það í Múnchen um þessar mundir.
Og hjá Leikfélagi Reykjavíkur
verður það frumsýnt á miðviku-
daginn kemur undir stjórn Ilauks
Gunnarssonar.
í sýningunni í Iðnó leika þau
Þorstéinn Gunnarsson og Guðrún
Ásmundsdóttir ævintýraskáldið og
leikkonuna. Steindór Hjörleifsson
leikur Jóhann Heiberg og Margrét
Ólafsdóttir þá gömlu. Þýðandi
verksins er -Stefán Baldursson,
leikmynd gerði Steinþór Sigurðs-
son, íýsingu annast Daníel Wil-
liamsson, umsjón með tónlist hefur
Snorri Sigfús Birgisson og Ingi-
björg Björnsdóttir æfir dansa.
Per Olov Enquist hefur á síðustu
árum unnið sér nafn sem meiri
háttar leikritahöfundur á
heimsmælikvarða. Nótt ást-
meyjanna var sett upp í
Þjóðleikhúsinu árið 1976 en hér á
landi er hann auk þess einkum
þekktur fyrir bókina Málaliðana
sem hann fékk bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs fyrir árið
1969.
-GFr
1. maí kaff i
Svalanna
Hótel Sögu
- kl. 14.00
Hlaðin borð af kræsingum.
Stórkostlegt happdrætti - ferðavinningar, listaverk,
hljómplötur, leikföng og margt fleira.
Tískusýningar kl. 14.30 og kl. 15.30.
Fatnaður frá Tískuverslun Guðrúnar.
Snyrtivörur frá Ellen Beatrix
Svölukaffi svíkur engan. Allur ágóði renn-
ur til líknarmála.
Svölurnar, félag fyrrverandi og núverandi
flugfreyja
Leikrit eftir
P.O.Enquist
verður
frumsýnt í
Iðnó á
miðvikudag
Úr lífi ánamaðkanna hefur sem
undirtitil Fjölskyldumálverk frá
1856. Aðalpersónur leikritsins eru
danska ævintýraskáldið H.C.And-
ersen og leikkonan Jóhanna Lovísa
Heiberg, sem á síðustu öld var ekki
bara primadonna dansks leikhúss
heldur þótti einn besti listamaður
Norðurianda. Verkíð gerist á einni
kvöldstund og nóttu á heimili
Heiberg hjónanna, en Jóhann
Heiberg var mikill framámaður í
dönsku menningarlífi, leikhús-
stjóri Konunglega leikhússins um
skeið og einn vinsælasti leikritahöf-
undur Dana á síðustu öld. Hann er
einkum kunnur fyrir söngvaleiki
sína, frægasta verk hans er Alfhóll,
sem sýnt hefur verið oftar í Dan-
mörku en nokkurt annað þarlent
verk. Mörg leikrita hans voru sýnd
hjá Leikfélagi Reykjavíkur hér
áður fyrr, m.a. Álfhóll í tvígang.
CiD PIONEER
Larvdsírvs mesta úrvad ai
heimsins vinsælustu bHtækjum
r.mm
ítlfiÖ
\öö\
=»IO tMEEJR
/
| WJMC'e/f
PIOMGEH
HLJÖMBÆR
HLJOM*HEIMIllS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGOTU 103 SIMI 25999
Opiö til 4
í dag
laugardag
Vörumarkaðurinn hf.
| Ármúla 1A - Simi 86112
Frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík
Inntökupróf í tónmenntakennaradeild
skólans verður mánudaginn 16. maí n.k. Um-
sóknarfestur er til 10. maí. Umsóknareyðu-
blöð eru afhent á skrifstofu skólans og þar
eru einnig gefnar nánari upplýsingar um
prófkröfur og nám í deildinni.
Skólastjóri