Þjóðviljinn - 01.05.1983, Side 19
Helgin 30. apríl/1. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
dægurmál (sígiid?)
The Fall
til tslands
Ýmsum finnst tónlist hljóm-
sveitarinnar The Fall hávær,
ruddalcg og vanþróuð. Það er
ekki tónlist til að dilla sér eftir í
Hollywood eða til að nota sem
bakgrunn fyrir samræður um
síðustu uppfærsluna í íslensku
óperunni. En þeir sem á hinn bóg-
inn hafa hleypt þessari tónlist inn
á sig standa sig að því að hlaupa
heim úr strætó til að setja Fall-
plöturnar á fóninn. Lög eins og
„Lie Dream of a Casino Soul“,
„Look, Know“, „The Classical“
hafa orðið til þess að fólk hefur
farið út af bíó í hléi til að setja
kasettutækið í gang í bílnum.
Umfram allt tjáir þessi tónlist
andrúmsloftið í Bretlandi undir
Thatcher-stjórninni með síauknu
atvinnuleysi og kreppu. Hún er
rödd verkamannahverfanna í
Manchester þaðan sem hljóm-
sveitin er upprunnin. Það er reiði
og óþreyja sem brýst fram í þess-
ari tónlist, söngvarinn Mark E.
Smith spýtir frá sér orðunum,
undirleikurinn er ómstríður, raf-
ntagnaður og ógnvekjandi.
TilJslands
Fall komu hingað haustið
1981. Þrátt fyrir að þeir yrðu illa
fyrir barðinu á drukknunt sjóur-
um í þeirri heimsókn, bjórleysi
og óhóflegum kröfum til klæða-
burðar á vínveitingahúsum er
von á þeint hingað aftur eftir
nokkra daga. Þeir leika á tón-
leikum í Austurbæjarbíói föstu-
daginn 6. maí. Enda þótt hljóm-
sveitin hafi gert víðreist undan-
farin ár og ferðast vítt og breitt
unt Evrópu, Bandaríkin og Ástr-
alíu er ísland hið eina af Norður-
löndunum sem hingað til hefur
verið undirbúið fyrir komu Fall
eða hljómsveitin haft geð í sér til
að heimsækja.
„Mesta þrusa
ársins“
Síðan Fall voru hér síðast hefur
hljómsveitin sent frá sér tvær
stórar plötur, „Hexenduction
Hour“ og „Room to Live“. Þá
fyrrnefndu kallaði blaðamaður
New Musical Express „mestu
þrusuna og dirfskufyllstu hljóm-
plötu ársins 1982“. Á þessari
plötu fer hljómsveitin út á enn
nýjar brautir í kraftmiklum
híjóðfæraleik sínum, trommu-
leikarar eru tveir og gefa þeir
músíkinni ryþmíska breidd sem
sjaldgæf er í rokktónlist. Um
fjórðungur plötunnar er hljóðrit-
aður hér á Islandi í Hljóðrita og
Brot úr texta Mark E. Smith „Ice-
land“ af plötu The Fall, „Hexend-
uction Hour“:
To be hutnbled in Iceland
sing of legend sing of destruction
witness the last of the Godmen
hear about Megas Jonsson
to be humbled in Iceland...
sit in the gold room
fall down flat in the Cafe Iol
without a glancefrom the clientele
the coffee black as well
and be humbled in Iceland...
Verkakvennafélagið Framsókn
Orlofshús
Mánudaginn 2. maí nk. verður byrjað að
taka á móti umsóknum félagsmanna varð-
andi dvöl í orlofshúsum félagsins.
Þeir sem ekki hafa dvalið áður í húsunum
hafa forgang vikuna 2.-6. maí.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
félagsins.
Vikugjald er 12.00.-
Félagið á 3 hús í Ölfusborgum,
1 hús í Flókalundi, og 2 í Húsafelli.
Upplýsingar í síma 26930 og 26931 frá kl.
9-16.
Stjórnin
Æskulýðsbúðir
í DDR
Sumardvöl í alþjóðlegum æskulýðsbúðum í
Þýska alþýðulýðveldinu á vegum félagsins
ísland - DDR fyrir 10 unglinga, 11-14 ára,
dagana 11. júlí til 12. ágúst. Islenskur farar-
stjóri, börn á vegum félagsmanna ganga
fyrir.
Upplýsingar gefa: Sigrún Einarsdóttir sími
53516 og Örn Erlendsson sími 72830.
fjallar eitt lagið beinlínis um dvöl
þeirra hér, þ.e. lagið „lceland".
Páfinn og
Faikiandseyjar
Síðari platan, „Roont to Live"
hefur að geyma sjö lög. Meðal
þeirra eru lög sem fjalla beint unt
atburði í samtíðinni, svo sem
„Papal Visit" um heimsókn páf-
ans til Bretlands. „The biggest
fucking hypocrite in the world",
segir söngvarinn Mark E. Smith
um páfann enda þótt allir hljóm-
sveitarmeðlimirnir utan einn
fengi sannkaþólskt uppeldi.
Annað lagið á þessari plötu,
„Marquis Cha Cha“, hefur verið
kallað besta lagið sern sarnið hef-
ur verið um Falklandseyjastríðið.
Að mati Mark E. Smith er „Hex-
enduction Hour“ úthugsaðri,
skipulagðari og áleitnari plata en
„Room to Live“, en sú síðar-
nefnda aftur meira spontant og
unnin í anda eldri Fall-platna,
þ.e. meira og minna spunnin í
stúdíóinu.
Engir
stórstjörnudraumar
Fall er ein af fáum hljómsveit-
unt sem urðu til í pönkbylgjunni í
kringum 1977-78 sem enn er star-
fandi og það sent rneira er hefur
haldið áfram að þróast og fara
„Mark Smith er kaldhæðinn, bit-
ur gagnrýnandi ensks samfélags.
Hann er jafnframt dóni og
ruddi... Eg fékk megna óbcit á
manninum...“ (M. Ryan - RAM
magazine.... Astralíu).
sínar eigin leiðir án tillits til tí-
skunnar í tónlistariðnaðinum
hverju sinni. Hljómsveitin hefur
aldrei sóst eftir stórstjörnufrægð.
„Við eigunt aldrei eftir að gera
hit-lag þvi rnaður verður að vera
algjört skítseiði til að láta plötu-
fyrirtækin búa eitthvað svoleiðis
til úr sér", segir Mark E. Srnith.
Það er Grammið, Hverfisgötu
50 sem gefur okkur kost a að
heyra og sjá þessa framverði
rokksins í Bretlandi. Tónleikarn-
ir verða sem fyrr segir föstudag-
inn 6. ntaí kl. 21.00 í Austurbæ-
jarbíói. Auk Fall koma hljóm-
sveitirnar iss!, Mórall og Þeyr
fram á tónleikunum. Forsala
aðgönguntiða verður í Gramm-
inu, Stuðbúðinni ogFálkanum.
Athugið að þaö verða bara þessir
einu tónleikar.
bmhiiHftig
llvmdagsmatur hátidairnutíiir
íslensk lambalifur er einhver hollasti matur sem völ er á:
- Hún er bætiefnaríkari en flestar ef ekki allar matvörur aörar.
- Hún er ein besta A vítamínuppspretta sem þekkt er.
- Hún er einkar fitulítil og því fyrirtaks megrunarfæði-ekki síst meðj
tilliti til þess hve auðug hún er af nauðsynlegum bætiefnum og
- hún er að auki rík af járni, kopar, fólasíni og B12 vítamíni.