Þjóðviljinn - 01.05.1983, Side 20
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 30.apríl/l.maí 1983
Elsta hús Reykjavíkur, hið
eina sem eftir er af Innréttingum
Skúla Magnússonar, en þær gerðu
Reykjavík fyrst að bæ, stendur
við Aðalstræti 10, elstu götu
Reykjavíkur. Mikil er niður-
læging þess húss. Ekki er nóg
með að það hafi verið eyðilagt að
nokkru fyrir löngu heldur hefur
undanfarið veríð unnið að því að
eyðileggja það að fullu. Barbarar
hafa farið höndum um ytra sem
innra byrði þess. Nú er verið aö
kóróna sköpunarverkið með því
að koma fyrir lágkúrulegum
leiktækjum í húsinu. Ef ég væri
ekki löngu orðinn samdauna
borgarlífinu skammaðist ég mín
fyrir að vera Reykvíkingur.
En ég yppi bara öxlum og held
áfram að vinna fyrir daglegu
brauði. Ég geng sofandi um göt-
urnar án ilms, smekks og sjónar.
t>að er ekki nema ég sé sérstak-
lega upplyftur að augu mín sjá,
eyru mín heyra og nef mitt nem-
ur. Þegar ég vaknaði á sunnu-
dagskvöld eftir að hafa vakað alla
kosninganóttina leit ég út um
gluggann og sjá: það var komið
vor. Gult, rautt, blátt og grænt.
Loksins vor. Ég fór út með kon-
unni að ganga til að ná úr mér
kosningarkarnivalinu og svalur
andblær lék um vanga þar sem
við gengum hægt upp með Elliða-
ánum. Nasavængirnir þöndust út
og við fundum að moldin var
byrjuð að anga. Áin var að brjóta
Að sjá, nema og heyra
af sér klakaböndin og kvöldloftið
kvikt af einhverju óútskýranlegu.
Eldrauð sólarkringlan gekk til
viðar í vestri og það byrjaði að
húma.
Við gengum ofan í hófaförin á
Vatnsveituveginum og fórum svo
upp í nýja villuhverfið í Selásnum
og virtum fyrir okkur nýjustu
afrek íslenskra arkitekta. Þau eru
stórkostleg, sannarlega stórkost-
leg. Þarna standa í röðum félags-
heimili handa einstaklingum sem
eiga mikla peninga. Sum húsin
eru ofurlítið falleg, flest ofurlítið
ljót eða jafnvel ofurlítið mikið
ljót. Ég tek ekki dýpra í árinni
enda komið vor. Eitt augnablik
hvarflaði þó að mér að öfunda
svo stórhuga húsbyggjendur. En
þá stansaði ég, barði mér á
brjóst, leit til himins og sagði: Það
er sælt að vera fátækur. Og svo
fór ég með Dísu í Dalakofann.
Já, það er eins gott að vera
kokhraustur enda skilst mér
reyndar að fáir séu meira á
hausnum en einmitt þeir sem
byggja þessi hús. Enginn atvinn-
urekstur á íslandi ber sig nú til
dags, sögðu þeir í kosningasjón-
varpinu.
Við gengum í svalri kvöldgol-
unni og stefndum heim á leið.
Mér er alveg sama um þetta
hverfi og þetta fólk.
Hitt get ég ekki fyrirgefið
þeim. Að eyðileggja litla, ris-
mikla og svipþunga húsið við
Aðalstræti og leggja það síðan
undir það auvirðilegasta af öllu
auvirðilegu. Það kemur mér við
því að það er partur af sjálfum
mér.
-Guðjón
sunnudagskrossaátan
Nr. 369
/ 2. 3 Y 2 % Is / T~ 1
9 3 )0 )l )Z )3 T~ )¥ <9 )S~ J(> §2 )3 )S
b V n )¥ )é 9 3 )4 )2 9 8 3 )2 ¥
'f /S V )X w 12 <9 9 'S/ )S )2 9 9
9 )S )(p )Z )S V > l ¥ 12 18 20
1 2 9 2/ V 12 22 23 ,cs 2, 2 2o ¥ /)
*■ I- )? 19 2</ 2S "Ð 12 / )? V S
f If W 12 e N- y / /2 22 * V ' sl )£ /0
/3 'T V /9 3 Z / sr )? 2(? 26> 2 18 1 2 V
3 f Y V n 7- 12 V 9 /s A 18 2 9
d 2/ /2 U 12 13 2? 1 (* il /8 1S £ W~
29 3o / v 12 !t r 12 H? s /(o 12 V- 2
3o / 2 t z I 31 Ý S2 32 2o /2 <2 /S '2
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá götuheiti í
Reykjavík. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj-
ans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 369“. Skilafrest-
ur er þrjár vikur. Verðlaun verða send til vinningshafa.
7 9 1 5 30 Í9 /2 Y
Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort
sem lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að
finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp, þvi
með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum.Það eru því eðlilegustu
vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem
tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í þessari
krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða og
breiðum, t.d. getur aldrei a komið í stað á og öfugt.
Verðlaunin
Verðlaun fyrir krossgátu
nr. 365 hlaut Áslaug Ólafs-
dóttir, Stuðlaseli 15, Rvík.
Þau eru Hrakfallabálkur-
inn eftir Einar Braga.
Lausnarorðið var Öskju-
hlíð.
Verðlaunin að þessu sinni
er bókin Pabbadrengir
eftir Egil Egilsson.
EGILLEGIl
—j
v - ' h,