Þjóðviljinn - 01.05.1983, Side 21
Helgin 30. aprfl/1. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21
brMae
Úr ýmsum áttum
í dag kl. 10., hefst í Menning-
armiðstöðinni við Gerðuberg í
Breiðholti, hið árlega „Portoroz“
mót B. í. og Samvinnuferða-
Landsýn. Ekki er vitað um þátt-
töku í mótinu, en gert var ráð fyrir
36 pörum, eða 42 pörum. Keppt er
um ákaflega góð verðlaun. Mótinu
verður skipt í 3 umferðir og munu
efstu pörin eftir 2 umferðir skipa
A-riðil, þarsem keppt verður um
aðalverðlaunin. Veitt verða svo
aukaverðlaun þeim pörum er efst
Verða í B og C riðlum, kr. 2.500
fyrir hvort sætið.
Keppnisstjóri verður sennilega
Guðmundur S. Hermannsson, fá-
ist ekki annar stjórnandi.
Mót þetta er orðinn árlegur við-
burður í okkar bridge, og er það
vel.
Með hækkandi sólu fer að draga
úr starfsemi bridgefélaganna í
landinu. Einu reglulegu mótin á
sumrin, eru Bikarkeppni B. í., og
Sumarspilamennskan í Reykjavík.
Þar af leiðir að bridgeskrif drag-
ast saman, og framvegis verður
aðeins einn þáttur í viku, þ. e. helg-
arþátturinn.
Högni Torfason fyrir hönd Skák-
blaðsins (Jóhanns Þóris) stendur
nú í stórræðum. Hann er að undir-
búa viðtöl og frásagnir úr íslands-
mótinu í sveitakeppni, í sérstöku
riti (fylgiauka) Skákblaðsins. Má
vænta góðs af þessu starfi Högna,
en hann er þaulvanur þessháttar
vinnu, sem gamall fréttahaukur.
Eins og áður hefur komið fram í
þættinum, er búið að velja landslið
okkar, sem fer á EM í júlí í Wiesba-
den Þýskalandi. Fyrirliði liðsins
verður hinn góðkunni og fyrrum
landsliðsmaður, Guðmundur Pét-
ursson.
Gott val það, því Guðmundur er
ekki með öllu óvanur keppnum
sem þessum.
Fyrir nokkrum árum síðan skrif-
aði Guðmundur grein um lands-
liðsmál sem birtist í Vísi. Það var
eftir eina förina út, þar sem sumum
þótti uppskeran frekar rýr. Þessi
grein Guðmundar stendur enn
fyrir sínu, því á það er. að líta að
þessir kappar sem skipa landsliðin
úti í heimi eru velflestir atvinnu-
menn í greininni, eða sem næst því.
Þess vegna er allur samanburður
mun erfiðari í dag heldur en fyrir
tuttugu eða þrjátíu árum síðan.
Tækninni fleygir fram, og allir vita
að jurtir þrífast síður í grýttum
jarðvegi.
Hvernig skyldi standa á því, að
svo margir snjallir bridgespilarar
hefji keppnisferil sinn í skák en
ljúka honum í bridge?
Lygilega margir af okkar keppn-
ismönnum hafa einmitt fetað þessa
slóð, að hefja keppni í skák en gefa
það síðan á bátinn og snúa sér al-
farið að bridge.Nú er ég ekki að
segja, að að liggi í augum uppi hver
ástæðan er, en vil aðeins í því sam-
bandi nefna nokkur nöfn: Hjalti
Elíasson, Benedikt Jóhannsson,
Brynjólfur Stefánsson, Jónas P.
Erlingsson, Ómar Jónsson, Björ-
gvin Víglundsson, Ásgeir P. Ás-
björnsson, Björn Halldórsson, Jón
Þorvarðarsón, Þórir Sigursteins-
son, Jón Baldursson, Sigurður
Sverrisson, Þórarinn Sigþórsson
o.fl.
Er þetta tilviljun? Eða hafa
skákmenn, sem jafnframt snúa sér
að bridge betri möguleika á ár-
angri? Hver veit.
Oddur A. Sigurjónsson fv.
skólastjori í Víghólaskóla í Kópa-
vogi lést fyrir skömmu.
Oddur var einn af stofnendum
Ásanna í Kópavogi og mjög virkur
í starfi þeirra meðan hans naut við í
Kópavogi. Umsjónarmaður vill
þakka fyrir þau kynni sem hann
hafði af Oddi, bæði sem skóla-
stjóra og vini.
Guðmundur Sveinsson -
Mikill áhugi virðist vera fyrir
Bikarkeppni Bridgesambandsins,
sem senn verður hleypt af stokkun-
um. Þar spilar eflaust inní, að meg-
inpartur þátttökugjaldsins rennur
nú beint í ferðastyrk viðkomandi
sveita, sem lengst þurfa að fara til
keppni. Þetta þýðir, að allir geta
verið með því formið á þessari kep-
pni hentar velflestum, enda rúnrar
keppnistími í hverri umferð. Og þá
er ekkert annað en að tilkynna
þátttöku sem fyrst.
Umsjón
Ólafur
Lárusson
Spilarar eru minntir á að til-
kynna þátttöku í íslandsmótið í tví-
menning hið allra fyrsta. í síðasta
lagi næstu helgi.
Frá Bridgedeild
Skagfiröinga
Nú mun um nokkurt skeið verða
spilaður tvímenningur á þriðju-
dagskvöldum, í einum eða tveim
riðlurn eftir þátttöku.
26. apríl urðu eftirtalin pör efst
(átján para riðill):
1. Sigmar Jónsson -
Vilhjálmur Einarsson 272
2. Guðni Kolbeinsson -
Magnús Torfason 261
3. Baldur Ásgeirsson -
Magnús Halldórsson 225
4-5. Baldur Árnason -
Sveinn Sigurgeirsson 218
4-5. Bjarni Pétursson -
Ragnar Björnsson 218
Meðalskor 210
Spilað er í Drangey, Síðumúla
35. Keppnisstjóri er Guðmundur
Kr. Sigurðsson, hinn „síungi“
stjórnandi
Frá Bridgefélagi
Hafnarfjardar
í annarri umferð hraðsveita-
keppninnar náðu hæstri skor
sveitir: stig:
Sævins Bjarnasonar 512
Aðalsteins Jörgensen 471
Einars Sigurðssonar 461
Mcðalskor 432
Að tveimur umferðum loknum
eru efstar sveitir: stig:
Sævins Bjarnasonar 100
Aðalsteins Jörgensen 972
Einars Sigurðssonar 902
Síðasta umferð sveitakeppninn- ar verður spiluð mánudaginn 2. maí n.k. og verður það jafnframt síðasta spilakvöld á þessum vetri.
Frá Bridgefélagi fíeykjavíkur
Nú er lokið undankeppni i butler
keppni félagsins og urðu úrslit þar
þessi: A-riðill
Sigtryggur Sigurðsson - Stcfán Guðjónsson Sigurður Vilhjálmsson - 192
Sturla Geirsson Bragi Erlendsson - 182
Ríkharður Steinbergsson Sigurður Sverrisson - 179
Valur Sigurðsson Guðmundur Arnarson - 174
Þórarinn Sigþórsson 166
Þorgeir Eyjólfsson 166
B-riðill: Guðlaugur Jóhannsson - Örn Arnþórsson 180
Guðni Þorsteinsson - Sigurður B. Þorsteinsson 180
Þorfinnur Karlsson - Gísli Hafliðason 176
Jón Baldursson - Hörður Blöndal 169
Jakob R. Möller - Runólfur Pálsson 168
Aðalsteinn Jörgensen - Stefán Pálsson 164
Þessi pör munu spila til úrslita
n.k. miðvikudag og byrja þau með
einn þriðja af skor úr undankeppn-
inni. Að auki verður frjáls spila-
mennska á miðvikudaginn skv.
nánari ákvörðun stjórnar, en þetta
kvöld er síðastá spilakvöld hjá fé-
laginu á þessu starfsári.
Frá Bridgefélagi
Keflavíkur
Nú eru aðeins loka umferðir eftir
í undankeppni meistaramóts B. F.
S. og er keppnin sérlega skemmti-
leg, 7 sveitir hafa möguleika á að
komast í lokakeppnina Qg er stað-
an þessi, leikjafjöldi fylgir með:
1. Haraidur Brynjólfsson, 129 9
2. Alfrcð Alfreðsson, 127 9
3. Sigurður Brynjólfsson, 124 10
4. Jóhannes Ellertsson, 108 9
5. Einar Baxter, 106 9
6. Grethe Iversen, 101 8
7. Guðmundur Ingólfsson, 98 9
Félagsmálastofnun
Selfoss
Staða umsjónarmanns Hótel Selfoss er laus
til umsóknar. í starfinu felst meðal annars
yfirumsjón með rekstri og umsjón með veit-
ingasölu, þar með talið tilboð veitinga.
Umsóknum sé skilað á skrifstofu Félagsmál-
astofnunar, Tryggvaskála, sími 99-1408.
Umsóknarfrestur er til 9. maí.
Félagsmálastjóri
1.MAI
Opið hús
Kaffiveitingar
Hið nýja húsnæði VR í Húsi Verzlunarinnar
verður til sýnis fyrir félagsmenn og fjölskyldur
þeirra 1. maí frá kl. 15.00-18.00.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.
Kaffiveitingar.
Lúðrasveit leikur frá kl. 15.00.
Verið virk í VR.
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur
HJA OKKUR NA GÆÐIN IGEGN
Við hjá Ramma h.f. í Njarðvík notum eingöngu úrvals við frá Norður-Kirjalalandi
(Karelia) í Finnlandi. Á svo norðlægum slóðum vaxa trén hægt. Árhringir trjánna liggja því
þétt — viðurinn verður betri en annars hefði orðið raunin. í sögunarmillu Nurmeksen Saha
er viðurinn flokkaður eftir gæðum og útliti. Við kaupum af þeim eingöngu I. flokk.
Og við notum ekkert annað timbur. Kröfur okkar eru því mun meiri en þær sem gerðar
eru samkvæmt íslenskum staðli IST 41. Þar ná ákvæðin aðeins til þeirra flata sem eru
sýnilegir. Hjá okkur ná gæðin í gegn.
*NURMES*
I. FLOKKUR
NUR*MES
2. FLOKKUR
NURMES
3. FLOKKUR
niiHi m o
íuiöaverksmiðja
NJARÐVÍK Sími 92-1601 Pósthólf14 Söluumboð í Reykjavík: IÐNVERKH.F. Nóatúni 17, sími 25930 og 25945