Þjóðviljinn - 01.05.1983, Síða 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 30. aprfl/1. maí 1983
um helgina
Brynhildur
í Nýlista-
safninu
í gærkvöld opnaði Brynhildur
Þorgeirsdóttir myndlistarmaður
sýningu á skúlptúrum í Nýlista-
safninu Vatnsstíg 3b. Verkin á
sýningunni eru unnin úr mótuðu
gleri steinsteypu og járni.
Sýningin er opin alla daga frá
kl. 16-22 og lýkur 8. maí. Þess má
geta að í Gallery Langbrók Amt-
mannsstíg 1, stendur nú yfir sýn-
ing á eldri verkum Brynhildar,
sem eingöngu eru unnin úr gleri.
Útskriftar-
tónleikar
Tónlistar-
skólans
Tónlistarskólinn í Reykjvík
heldur þrenna tónleika í Austur-
bæjarbíói í byrjun maí. Fyrstu
tónleikarnir verða mánudaginn
2. maí, en það eru hinir árlegu
vortónleikar skólans með bland-
aðri efnisskrá. Þann 3. maí lýkur
Auður Hafsteinsdóttir fiðlunem-
andi seinni hluta einleikaraprófs
síns. Á efnisskrá eru m.a. verk
eftir Bach, Beethoven og Karó-
línu Eiríksdóttur. Snorri Sigfús
Auður Hafsteinsdóttir . Gréta Guðnadóttir
Birgisson leikur með á píanó.
Miðvikudaginn 4. maí lýkur
annar fiðlunemandi seinni hluta
einleikaraprófs síns en það er
Gréta Guðnadóttir.
Á efnisskrá hennar eru m.a.
verk eftir Bach, Mozart og
Brahms. Anna Guðný Guð-
mundsdóttir leikur með á píanó.
Þessir tónleikar hefjast allir kl.
19 og er aðgangur ókeypis og öll-
um heimill meðan húsrúm leyfir.
Tónleikar
Tónmenntaskólans
Einleikur
og samspil
í dag, laugardag kl. 14.00 held-
ur Tónmenntaskóli Reykjavíkur
tónleika í Austurbæjarbíói. Á
tónleikunum koma einkum fram
yngri nemendur skólans með ein-
leik og samspilsatriði á ýmis
hljóðfæri. forskóladeild. Aðgangur er
Auk þess verður hópatriði úr ókeypis og öllum heimili.
Norrœna húsið
mánndag:
Sœnsk
myndlist
Á mánudag kl. 18.00 verður
opnuð í Norræna húsinu sýning á
verkum sænska myndlistarmann-
sins Svens Hagmans. Sýnd verða
20 olíumálverk og 14 teikningar.
Viðfangsefni Svens í myndlist-
inni eru lýsingar á hefðbundnu
þjóðlífi á landsbyggðinni, striti
bóndans og sorgum, jafnt sem
gleði og hátíðum.
Sven Hagman verður staddur í
Reykjavík meðan á sýningu hans
stendur. Á fimmtudag ætlar hann
að spjalla um gamalt og nýtt í
sænsku þjóðlífi og og þær
breytingar sem orðið hafa á hög-
um manna á síðustu áratugum og
sýna lítskyggnur. Fyrirlesturinn
verður í fundasal Norræna húss-
ins og hefst kl. 20.30.
Constantin Zaria
syngur Túríddús
Þjóðleikhúsinu hefur tekist að
ná í þekktan rúmenskan tenór-
söngvara, Constantin Zaria, til
þess að syngja hlutverk Túríddús
í uppfærslu leikhússins á óper-
unni Cavalleria Rusticana, eftir
Mascagni, sem frumsýnd verður
6. maí nk.
Zaria fæddist í Búkarest og ólst
þar upp. Strax að námi loknu
vakti hann mikla athygli og kom
fram í óperum í heimalandi sínu
og í útvarpi og sjónvarpi. Árið
1973 tók hann þátt í þremur al-
þjóðlegum söngkeppnum og
vann til verðlauna í þeim öllum,
m.a. fyrstu verðlaun í keppni í
Barcelona á Spáni.
Síðan 1978 hefur hann verið
lausráðinn og sungið m.a. í
óperuuppfærslum í Frakklandi
(Nancý, Lyon, Toulouse og Par-
ís), Austurríki (Graz) og V-
Þýskalandi (Hamborg og
Múnchen).
Constantin Zaria.
Myndiist
Gallerí Austurstrætl 8:
Haukur Friðþjófsson sýnir 20 málverk.
Hann stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskóla Islands og hefur áður
tekið þátt i nokkrum samsýningum.
Gallerí Lækjartorg:
Um helgina lýkur samsýningu fjölda
listamanna sem SATT- samband al-
þýðutónskálda og tónlistarmanna
stendur fyrir. Eftirmyndir af málverkum
eru seldar á sýningunni og rennur helm-
ingur andvirðis í húsbyggingasjóðs
SATT.
Bókasafn ísafjarðar:
Valgerður Bergsdóttir sýnir 16 verk sem
unnin eru á þessu og síðasta ári.
Fríkirkjuvegur 11:
Ketill Larsen sýnir 45 myndir, málaðar í
olíu og akrylliti.
Hamraborg 12, Kópavogi:
Þór Magnússon sýnir oliumálverk og
teikningar. Þór er V-lslendingur og sýnir
hér i fyrsta sinn. Síðasta sýningarhelgi.
Kúnfgúnd:
Helgi Björgvinsson leirkerasmiður sýnir
leirmyndir og aðra leirmuni í versluninni
Kúnígúnd um helgina. Opið frá 14-22.
Myndlistarskólinn í Reykjavík:
Árleg vorsýning Myndlistarskólans verð-
ur haldin nú um helgina í húsakynnum
skólans að Tryggvagötu 15. Sýnd verða
verk eftir nemendur úr öllum deildum
skólans sem eru 21 en nemendur eru
liðlega 300. Teikningar, málverk, högg-
myndir, dúkristur og fleira. Sýningin er
opin frá 14-22 um helgina.
Kjarvalsstaðir:
Nú er slðasti möguléiki aö sjá sýningar
þeirra Guðmundar Björgvinssonar
„Rennt i gegnum listasöguna" og Vil-
hjálms Bergssonar „Lífrænar víddir".
Báðar athyglisverðar. Síðasta sýningar-
helgi.
Norræna húsið:
Sýninau Þórðar Hall lýkur á sunnudag 1.
mai. A sýningunni eru 50 verk, bæði
málverk og teikningar. Opið er um helg-
ina frá 14-22.
Á mánudag kl. 18.00 opnar í Norræna
húsinu sýning á verkum sænska mynd-
listarmannsins Svens Hagmans. Á sýn-
ingunni eru 20 ollumálverk og 14
teikningar. Opið daglega 14-19 til
15.maí.
Nýlistasafnið:
Bryrihildur Þorgeirsdóttir sýnir skúlp-
túra. Verkin eru unnin úr mótuðu gleri,
steinsteypu og járni. Stendur til 8. maí.
Þess má geta, að í Galleri Langbrók
stendur yfir sýning á eldri verkum Bryn-
hildar, sem eingöngu eru unnin úr gleri.
Skálinn Strandgötu 41, Hafnarfirði:
Um helgina lýkur samsýningu þeirra
Sigrúnar Guðjónsdóttur og Sigurðar
Arnar Brynjólfssonar í Skálanum, Hafn-
arfirði. Sigrún sýnir leirmyndir og Sigurð-
ur teikningar. Skemmtileg sýning í
nýuppgerðu húsnæði. Á sunnudag 1.
maí verður kaffisala á vegum
Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði eftir
útifund, á hæðinni fyrir ofan sýningarsa-
linn.
Skruggubúð:
I dag opnar Þorsteinn Hannesson sýn-
ingu á málverkum og vatnslitamyndum í
Skruggubúð. Þorsteinn er fæddur 1906
og hefur ekki sýnt opinberlega síðan
1962. Sýningin er opin á virkum dögum
frá 17-21 og um helgar frá 15-21 til 15.
maí.
Tónlist
steinsdóttir seinni hluta einleiksprófs
síns á fiðlu. Á miövikudaginn lýkur annar
fiðlunemandi seinni hluta prófi, en þaö er
Greta Guðnadóttir. Báðir tónleikarnir
hefjast kl. 19.00.
Hallgrímskirkja:
Náttsöngur er nú að nýju orðinn reglu-
bundinn þáttur I helgihaldi Hallgrlms-
kirkju eftir það hlé sem varð um föstutím-
ann. Náttsöngurinn fer fram á miðviku-
dagskvöldum kl. 22.00
Kjarvalsstaðir:
I dag, laugardag kl. 18.00 þreytir Erik
Mogensen gítarleikari lokaprófstónleika
sína frá Tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar að Kjarvalsstöðum. Hann flytur
verk eftir Navarez, Bach, Ponce, Ber-
kley og Torroba. Allir eru velkomnir á
tónleikana.
Þjóðleikhúsið:
Hinn þekkti rúmenski tenórsöngvari,
Constantin Zaria, mun syngja hlutverk
Túrlddús í uppfærslu leikhússins á óper-
unni Cavalleria Rusticana, eftir Masc-
agni sem frumsýnd verður n.k. föstu-
dagskvöld.
Leikíist
Leikfélag Reykjavikur:
Aðeins fáar sýningar eru eftir á leikriti
Kjartans Ragnarssonar, Skilnaður, en
leikritið verður sett upp í Iðnó í kvöld.
Síðar um kvöldið verður aukasýning á
hinum geysivinsæla gamanleik Dario
Fo, Hassið hennar«nömmu i Austur-
bæjarbiói,
Á sunnudagskvöld, 1. maí, verður Salka
Valka aö sjálfsögðu á sviðinu i Iðnó en
aöeins örfáar sýningar eru eftir á þessu
leikári.
Þjóðleikhúsið:
Grasmaðkur, nýja leikritið hans Birgis
Sigurðssonar verður sýnt á aðalsviðinu,
bæði í kvöld og annað kvöld. Þá verður
Lina langsokkur einnig tvisvar á ferð-
inni, i dag kl. 15.00 og á morgun kl. 14.00
37. sýning á Súkkulaði handa Silju,
eftir Nínu Björk Árnadóttur verður á litla
sviðinu annað kvöld.
íslenska óperan:
Ein sýning verður á gamanóperunni
Míkadó um helgina, á Sunnudagskvöld
kl. 20.00. Verkiö höfðar jafnt til barna
sem fulloröinna og er óperan sýnd víða
um heim um þessar mundir, en hún var
frumsýnd í London árið 1885.
ýmislegt
Ymislegt:
Hótel Hekla:
Vorfundur Jöklarannsóknarfélagsins
verður haldinn fimmtudaginn 5. maí kl.
20.30. Ari Trausti segir frá Alpaför. Haf-
liði Jónsson ræðir um snjóflóö vetrarins
og Magnús Hallgrímsson ræðir um
snjóflóð.
Tónabær:
Ferðafélagið Askja stendur fyrir fjöl-
skylduhátíð á morgun sunnudag I Tóna-
bæfrákl. 14.00-17.00. Danssýning, Tóti
trúður, bingó og fleira.
Ferðalög:
Útivist
ætlar í tvær ágætar dagsferðir 1. maí. Kl.
10.30 verður lagt I göngu yfir Esju. Brott-
för frá BSl, vel skóað og nestað í
gönguna.
Kl. 13 verður farið i kræklingaferð að
Marluhöfn og Búðasandi I Hvalfirði. Til-
valin ferð fyrir alla fjölskylduna. Lagt upp
frá BSl.
Austurbæjarbíó:
I dag, laugardag kl. 14.00 heldur Tón-
menntaskóli Reykjavikur tónleika í
Austurbæjarbiói. Yngri nemendur
skólans koma fram og leika einleik og
smáleik á ýmis hljóðfæri. Aðgangur er
ókeypis.
Tónlistarskólinn-vortónleikar
Tónlistarskólinn heldur þrenna vortón-
leika nú i byrjun mai. Þeir fyrstu verða á
mánudag en þá lýkur Auöur Haf-
Kvikmyndir
MÍR-salurinn:
Sunnudaginn 1. maí verður sýnd ballett-
myndin „Spartakus" við tónlist Arams
Khatsatúrjans. Það eru dansarar og
hljómsveit Bolsoj-leikhússins í Moskvu
sem flytja ballettinn. Aðgangur öllum
heimill og ókeypis.
Erik Mogensen gítarleikari
Erik Mogensen gítarleikari
þreytir í dag lokaprófstónleika
sína frá Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar.
Erik Mogensen hóf gítarnám
við Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar, undir handleiðslu
Gunnars H. Jónssonar, árið
1974.
Veturna 1979-1982 dvaldi
hann á Spáni og nam við Tónlist-
arháskólana í Malaga og Alic-
ante. Meðal kennara hans þar
voru Jose Tomas og Jose Louis
Gonzales.
í vetur hefur Erik á ný stundað
nám við •Tónskólann. Kennari
hans hefur verið Arnaldur Arn-
arsson.
A tónleikunum mun Erik flytja
verk eftir Navaez, Bach, Ponce,
Berkeley og Torroba.
Tónleikarnir verða að Kjarv-
alsstöðum og hefjast kl. 18 - allir
eru velkomnir á tónleikana.
Þorsteinn Hannesson eftir 20 ára hlé
í dag opnar sýning á málverk-
um og vatnslitamyndum eftir
Þorstein Hannesson, í Skruggu-
búð, Suðurgötu 3a, kl. 15.00.
Þorsteinn er fæddur 18.6.06 að
Grunnasundnesi v/Stykkishólm.
Hann hefur ekki sýnt verk sín síð-
an 1962 en þá sýndi hann í Ás-
mundarsal. Hann lærði teikningu
og litameðferð hjá Birni Björns-
syni, Brynjólfi Þórðarsyni, Rík-
harði Jónssyni og Ásmundi Jóns-
syni. Einnig var hann í Kaup-
mannahöfn eitt ár. Síðan hefur
hann unnið að málverkum meira
og minna í 50 ár og hafa margir
eignast myndir eftir hann, bæði
hér heima og erlendis.
Sýningin er opin kl. 17-21 á
virkum dögum en kl. 15-21 um
helgar og stendur til 15. maí. Öll
verkin á sýningunni eru til sölu.