Þjóðviljinn - 01.05.1983, Page 25
Helgin 30. apríl/1. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 25
útvarp • sjonvarp
Sigríður P. Gröndal
Sigrún Valgerður Gests-
dóttir
Júlíus Vífill Ingvarsson
Elín Ósk Óskarsdóttir
Eiríkur Hreinn Helgason
Kristín Sædal Sigtryggs-
dóttir
Söngkeppni sjónvarpsins:
Keppt í beinni útsendingu
Sex ungir söngvarar keppa í
kvöld til úrslita í Söngvakeppni
Sjónvarpsins 1983. Þetta er bein út-
sending og hefst hún kl. 21.20. Til
mikils er að vinna hjá þessu unga
fólki, því sigurvegarinn hlýtur
margs konar verðlaun. Hann faer
tækifæri til að keppa í Cardiff í Wa-
les á mikilli tónlistarhátíð þar, sem
BBC stendur fyrir. Fyrstu verð-
laun eru £ 2000 (66.600 ísl. kr.).
Auk þess fær sigurvegarinn í þeirri
keppni tækifæri til að koma fram í
tveimur útvarpstónleikum, syngja
fyrir sjónvarpið og syngja fyrir
framáfólk óperunnar í Cardiff.
Sá, eða sú, sem sigrar í Söngkep-
pni sjónvarpsins fær, auk ferðar-
innar til Cardiff, tækifæri til að
syngja á einum tónleikum hjá Sin-
fóníuhljómsveit íslands. Önnur
verðlaun eru 5 þúsund krónur og
þriðju verðlaun þrjú þúsund
krónur.
Hver söngvari, söngkona, mun
syngja tvö lög við píanóundirleik.
Síðan kemur Sinfóníuhljómsveit
íslands undir stjórn Jean-Pierre
Jacquillat og mun leika með söngv-
urunt og söngkonum í sex aríum og
að auki leika nokkur lög í sjón-
varpssal.
í dómnefnd sem valdi fólkið úr
hópi fimmtán umsækjenda, eiga
sæti: Eyjólfur Melsted, Jón As-
geirsson, Þorgerður Ingólfsdóttir,
Kristinn Hallsson og Jón Þórarins-
útvarp
lauqardagur
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Tónleik-
ar. Puiur velur og kynnir.
7.25 Leikfimi
8.00 Fréttir. 8.15 Veöurfregnir. Morgun-
orö: Yrsa Pórðardóttir talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.).
8.50 Leikfimi
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Lóa Guðjóns-
dóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.).
11.20 Hrimgrund - litvarp barnanna.
Blandaður þáttúr fyrir krakka. Stjórnandi:
Sigríður Eyþórsdóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Helgarvaktin Umsjónarmenn:
Arnþrúður Karlsdóttir og Hróbjartur Jón-
atansson.
15.10 í dægurlandi Svavar Gests rifjar
upp tónlist áranna 1930-60.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Þá, nú og á næstunni Fjallað um
sitthvað af þvi sem er á boðstólum til
afþreyingar fyrir börn og unglinga. Stjórn-
andi: Hildur Hermóðsdóttir.
16.40 Islenskt mál Jón Aðalsteinn Jóns-
son sér um þáttinn.
17.00 Síðdegistónleikar
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 A tali Umsjón: Helga Thorberg og
Edda Björgvinsdóttir.
20.00 Harmonikuþáttur Umsjón: Sigurður
Alfonsson.
20.30 a. Dagbók úr strandferð. Guðmundur
Sæmundsson frá NeðraHaganesi les 5.
hluta frásagnar sinnar.
21.30 Ljáðu mér eyra Skúli Magnússon leikur
og kynnir sígilda tónlist (RÚVAK)
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Órlagaglíma" eftir Guðmund L.
Friðfinnsson Höfundur les (9).
23.00 Laugardagssyrpa - Páll Þorsteins-
son og Þorgeir Ásfvaldsson.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
sunnudagur_____________________________
1. maí
Hátiðisdagur
verkalýðsins
8.00 Morgunandakt Séra Sigmar Torfason
prófastur á Skeggjastöðum flytnr ritningar-
orð og bæn. ■
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr..).
8.35 Morguntónleikar
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Út og suður Þáttur Frioriks Páls Jóns-
sonar.
11.00 Messa í Langholtskirkju Prestur: Séra
Sigurður Haukur Guðjónsson. Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir prédikar. Organleikari: Jón
Stefánsson. Hádegistónleikar
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.30 Frá liðinni viku Umsjónarmaður: Páll
Heiðar Jónsson
14.15 Útvarp frá hátíðarhöldum í Laugar-
dalshöll Frá baráttusamkomu Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna í, Reykjavik, BSRB og
Iðnnemasambands islands. Flutt verður
samfelld dagskrá með ræðum fulltrúa
launþegasamtakanna. Fram koma m.a.:
Þursaflokkurinn, Sigrún Valgeröur Gests-
dóttir, Samkór Trésmiðafélagsins, Kristín
Ólafsdóttir, Lúðrasveit verkalýðsins o.fl.
Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.16 Veðurfregnir.
16.20 Nokkrir þættir úr verkalýðssögu
kreppuáranná Ólafur Þ. Jónsson flytur
sunnudagserindi.
17.20 Lúðrasveit verkalýðsins leikur a tón-
leikum í Háskólabiói 12. mars s.l. Stjórn-
andi: Ellert Karlsson. - Kynnir: Jón Múli Árn-
ason.
17.55 Völuspá, tónverk fyrir einsöngvara,
kór og hljómveit eftir Jón Þórarinsson.
Guðmundur Jónsson og Söngsveitin Fíl-
harmonia syngja með Sinfóníuhljómsveit is-
lands; Karstein Andersen stj.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurlregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.25 Veistu svarið? - Spurningaþáttur út-
varpsins á sunnudagskvöldi
20.00 Sunnudagsstúdióið - Utvarp unga
fólks'ms Guðrún Birgisdóttir stjómar.
20.45 Nútimatónlist Þorkell Sigurbjörnsson
kynnir.
21.30 Um sigauna 3. erindi Einars Braga,
byggt á bókinni „Zigenare" ettir Katerina
Taikon.
22.05 Tónleikar
22.15 Veðurtregnir. Fréttir. Dagskrá morgund-
agsins. Orð kvöldsins
22.35 „Örlagaglíma" eftir Guðmund L.
Friðfinnsson Höfundur les (10).
23.00 Sameinaðir stöndum vér. Þáttur i tali
og tónum um,1 maí. Umsjón: Helgi Guð-
mundsson (RÚVAK).
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
mánudagur
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Séra Eirikur
J. Eiríksson flytur (a.v.d.v.). Gult í mund -
Stefán Jón Hafstein - Sigríður Árnadóttir -
Hildur Eiríksdóttir. 7.25 Leikfimi. Umsjón:
Jónina Benediktsdóttir.
8.00 Fréttir. 8.15 Veöurfregnir. Morgunorð:
Sigriður Halldórsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.45 Landbúnaðarmál Umsjónarmaður:
Óttar Geirsson.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
landsmálabl. (útdr.).
11.05 „Ég man þa tíð“ Lög frá liðnum árum.
Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson
11.30 Lystauki Þáttur um lifið og tilveruna í
umsjá Hermanns Arasonar (RUVAK).
12.00 Ðagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Mánudagssyrpa - Ólafur Þórðarson,
14.30 „Vegurinn að brúnni“ eftir Stefán
Jónsson Þórhallur Sigurðsson les þriðja
hluta bókarinnar (15).
15.00 Miðdegistónleikar
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 íslensktónlist
17.00 Við - Þáttur um fjölskyldumál Um-
sjón: Helga Ágústsdóttir.
17.40 Skákþáttur Umsjón: Guðmundur Arn-
laugsson.
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mal
19.40 Um daginn og veginn Halldór Krist-
jánsson frá Kirkjubóli talar.
20.00 Lög unga fólksins. Þórður Magnússon
kynnir.
20.40 Anton Webern - 8. þáttur Atli Heimir
Sveinsson ræðir um tónskáldið og verk
' þess.
21.10 Óperutónlist Karl Ridderbusch syngur
21.40 Utvarpssagan: Ferðaminningar
Sveinbjörns Egilssonar. Þorsteinn Hann-
esson les (8).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgund-
agsins. Orð kvöldsins
22.35 Gandhi frumherji óvirkrar andstöðu
Sr. Árelíus Nielsson flytur erindi.
23.00 Frá tónleikum Sinfóniuhljómsveitar
íslands í Háskólabíói 28. april s.l. Stjórn-
andi: Jean-Pierre Jacquillat
23.44 Fréttir. Dagskrárlok.
sjenvarp
lauqardaqur
16.00 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
18.25 Steini og Olli.
18.45 Enska knattspyrnan.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Þriggjamannavist. Breskur gaman-
myndaflokkur. Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
21.00 Leifur Breiðfjörð Svipmynd af gler-
listamanni. Umsjónarmaður Bryndís
Schram. Upptöku stjórnaði Viðar Vik-
ingsson.
21.20 Söngkeppni Sjónvarpsins Undan-
úrslit fóru fram i mars og voru eftirtaldir
söngvarar valdir til úrslitakeppni: Eiríkur
Hreinn Helgason, Elín Ósk Öskarsdóttir,
Július Vífill Ingvarsson, Kristin Sig-
tryggsdóttir, Sigríður Gröndal og Sigrún
Gestsdóttir. Keppendur syngja tvö lög
hver með pianóundirleik og eitt með
Sinfóniuhljómsveit Islands undir stjórn
Jean-Pierre Jacquillat. Sigurvegarinn
tekur þátt í söngkeppni BBC í Cardiff i
Wales. Formaður dómnefndar er Jón
Þórarinsson. Kynnir er Sigríður Ella
Magnúsdóttir. Umsjón og stjórn: Tage
Ammendrup.
23.00 Forsiðan (Front Page) Bandarísk
gamanmynd frá 1974. Leikstjóri Billy
Wilder. Aðalhlutverk: Jack Lemmon,
Walter Matthau, Susan Sarandon, David
Wayne og Carol Burnett. Fréttaritari við
dagblað i Chicago segir upp erilsömu
starfi vegna þess að hann ætlar að
kvænast. Honum reynist þó erfitt að slíta
sig lausan, því ritstjórinn vill ekki sleppa
honum og mikilvægt mál reynist flókið
úrlausnar. Þýðandi Kristmanna Eiðsson.
00.45 Dagskrárlok
sunnudagur
18.00 Hugvekja Skúli Svavarsson, kristni-
boði, flytur.
18.10 Bjargið Ný kvikmynd islenska sjón-
varpsins í norrænum barnamyndaflokki.
Myndin gerist í Grímsey að vori til og er
um nokkur börn sem fá að fara í fyrsta
skipti í eggjaferð út á bjargið. Leikendur:
Hulda Gylfadóttir, Þóra Þorleifsdóttir,
Svavar Gylfason, Konráð Gylfason og
Bjarni Gylfason. Kvikmyndun: Baldur
Hrafnkell Jónsson. Hljóð: Sverrir Kr.
Bjarnason. Þulur: HallgrimurThorsteins-
son. Umsjón og stjórn: Elín Þóra Frið-
finnsdóttir.
18.30 Daglegt Iff í Dúfubæ Breskur brúðu
myndaflokkur. Þýðandi Óskar Ingimars-
son. Sögumaður Sigrún Edda Björns-
dóttir.
18.45 Palli póstur Breskur brúðumynda-
flokkur, Þýðandi Óskar Ingimarsson.
Sögumaður Sigrún Edda Bjömsdóttir.
18.45 Palli póstur Breskur brúðumynda-
flokkur. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
Sögumaður Sigurður Skúlason. Söngv-
ari Magnús Þór Sigmundsson.
19.00 Sú kemur tíð Franskur teiknimynda-
flokkur um geimferðaævintýri. Þýðandi
Guðni Kolbeinsson, þulur ásamt honum
Lilja Bergsteinsdóttir.
19.25 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarp næstu viku Umsjónarmað-
ur Magnús Bjarnfreðsson.
20.55 Stiklur 10. þáttur. Fámennt í fagurrí
sveit Byggðir, sem fyrrum voru blómleg-
ar við Breiðafjörð, eiga nú í vök að verjast
og allstór eyðibyggð hefur myndast I
Barðastrandarsýslu. I þessum þætti er
farið um Gufudalssveit. Þar er byggð að
leggjast niður f Kollafirði og siðasti
bóndinn flytur úr firðinum í ár. Mynda-
taka: Helgi Sveinbjörnsson. Hljóð: Agnar
Einarsson. Umsjónarmaður: Ómar
Ragnarsson.
21.35 Ættaróðalið Sjötti þáttur. Breskur
framhaldsflokkur í ellefu þáttum gerður
eftir skáldsögu Evelyns Waughs. Efni
fimmta þáttar: Charles dvalur á Brides-
' head um áramótin 1925. Sebastian og
Samgrass eru þar fyrir, nýkomnir frá
Austurlöndum nær. Lafði Marchmain
son, sem jafnframt er formaður
dómnefndar.
ast
gerir ráðstafanir til að halda yngri syni
sínum frá drykkju. Sebastian býðst tæki-
færi til að sniðganga bann móður sinnar
þegar safnast er saman til refaveiða.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
22.25 Placido Domingo Spænskur tónlist-
arþáttur. Þýðandi Sonja Diego.
23.30 Dagskrárlok
mánudagur
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Tommi og Jenni
20.45 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felixson
21.20 Já, ráðherra 11. Metorðastiginn
Breskur gamanmyndaflokkur. Þýðandi
Guðni Kolbeinsson.
21.50 Vörðurinn (Kontrolloren) Ný, dönsk
sjónvarpsmynd. Höfundur og leikstjöri Jon
Bang Carlsen. Aðalhlutverk: Leif Sylvester
Petersen, Rita Baving og Kasper Spaabæk.
Vörðurinn óttast eitthvað sem hann getur
ekki skilgreint. Honum finnst samfélagið
vera i upplausn og alls staðar leynist hættur
sem honum beri skylda til að vara við. í
smábænum, þar sem hann býr og starfar,
virðist áþreifanlegasta ógnin stafa af er-
lendum innflytjendum. Þýðandi Veturliði
Guðnason. (Nordvision - Danska sjón-
varpið)
23.20 Dagskrárlok
Ólafur Þ. Jónsson: ræðir um tilurð
Kommúnistaflokks Islands árið
1930 og vcrkalýðssögu kreppuá-
ranna.
Eríndi kl. 16.20
á morgun
Verka-
lýðssaga
kreppu-
áranna
A dagskrá hljóðvarps á baráttu-
dcgi verkalýðsins 1. maí verður er-
indi á ábyrgð Ólafs Þ. Jónssonar
skipasmiðs er hann nefnir: Nokkrir
þættir úr verkalýðssögu kreppu-
áranna. Hefst flutningur þess kl.
16.20.
Að sögn Ólafs víkur hann í er-
indi sínu að heimskreppunni og ,
stofnun Kommúnistaflokks íslands
allt til þess að Sameiningarflokkur
alþýðu, Sósíalistaflokkurinn er
stofnaður árið 1938. Lítið hefur
verið ritað unt þetta tímabil ís-
landssögunnar og er því eflaust
fengur að þessu innleggi á baráttu-,
degi verkalýðsins 1. maí.
Bjargið heitir íslensk kvikmynd um
börn í Grímsey, sein sýnd Verður á
sunnudag kl. 18.10.