Þjóðviljinn - 01.05.1983, Síða 27
Helgin 30. aprfl/1. maí 1983 'ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27
Jón t.h. og Elvar. Myndir Atli.
Jón Guðmundsson og Elvar Halldórsson:
Þarf meiri jöfnuö
,Já jiað held ég að hljóti mega
gera. Eg held að það sé ekki hægt
að ná fram þessum jöfnuði nema í
gegnum vísitöluna. Greiða hærri
prósentu til þeirra sem hafa lægri
laun“, sagði Jón Guðmundsson
verkamaður hjá Vatnsveitu
Reykjavíkur.
Elvar Halldórsson starfsbróðir
hans tók undir með Jóni og sagði
að launamunur væri orðinn meiri
en góðu hófu gegndi.
En eru ekki einmitt skiptar skoð-
anir um þetta atriði innan verka-
lýðshreyfingarinnar. Lítið hefur
miðað í það minnsta?
„Nei, ég held að það séu ekki svo
skiptar skoðanir um þetta atriði, en
vissulega vilja menn komast eins
hátt og þeir geta og sitja að því
einir. En þá má gleyma þeim sem
lægst hafa launin. Þarna þarf að
vera meiri jöfnuður en er í dag“,
sögðu þeir Jón og Elvar.
Sigurður
Þorkelsson
járnsmiður:
Alls ekki
útilokað
„Það er alls ekki útilokað að
hægt sé að jafna launakjörin frá því
sem nú er. Launamunur í dag er
meiri en hann ætti að vera. Það er
alls ekki borgað nógu vel fyrir okk-
ar mikilvægustu störf í sambandi
við sjávarútveg og iðnað. Þessir
undirstöðuatvinnuvegir sitja alveg
á hakanum", sagði Sigurður Þor-
kelsson járnsmiður, sem var við
vinnu á Grandanum.
„Launakjör á að miða fyrst og
fremst við vinnuaðstöðuna. Er hún
erfið eða góð? Slíkt skiptir miklu
máli. Svo finnst mér að menn
mættu leggja meiri áherslu á að
tryggja viðgang iðnaðar hérlendis.
Sjávarútvegurinn er að dragast
saman hjá okkur og það þarf að
beina fleira fólki í iðnað. bæði stór-
og smáiðnað. Þá þarf líka að borga
vel fyrir slík störf“, sagði Sigurður.
Gisli Guðmundsson
húsasmiðameistari:
Hækka
þarf
lægstu
launin
„Eru mörkin ekki nokkuð jöfn?.
Vissulega mega þau lægstu hækka,
annars er ástandið nokkuð viðun-
andi að mínu mati“, sagði Gísli
Guðmundsson húsasmíðameistari.
Eftir hverju á að meta laun
fólks?
„Ég held að starfsaldur eigi að
ráða miklu í því sambandi. Nú er
þetta mikið upp og ofan. Það sem
þarf fyrst og fremst að gera er að
hækka lægstu launin. Þau mættu
vera miklu hærri“, sagði Gísli.
Ingólfurt.v.ogKristbjörn. Myndir - Atli.
Kristbjörn
Sævarsson og
Ingólfur Níelsson
verkamenn
Of mikill
munur
„Það er ekki nokkur efi á því, að
þaðþarf að minnka laupamuninn
stórlega og það hlýtur að vera
raunhæfast að gera slíkt í gegnum
kjarasamninga“, sögðu þeir Krist-
björn Sævarsson og Ingólfur Níels-
son verkamenn í byggingarvinnu.
„Sem dæmi get ég nefnt að
trésmiðir hafa allt að 50% hærri
laun en við verkamenn. Þetta er of
mikill munur.“
Hvað á að miða við varðandi
launakjör?
„Starfsaldur, menntun og hvers
eðlis vinnan er. Staðreyndin er sú
að í dag er vinnan betur borguð
eftir því sem starfsaðstaðan er
betri. Þetta er rangt, því það er
ekkert réttlæti í því að þeir sem
vinna erfiðustu vinnuna fái lægstu
launin. Við þurfum að jafna þetta
bil. Það er vel hægt ef menn ei.i-
beita sér að því“, sögðu þeir Krist-
björn og Ingólfur.
©S)
Sumarbúðir
clfóta
Ulfljotsvatni
Sumarbúðir verða reknar á vegum skáta að Úlfljóts-
vatni sumarið 1983. Börn fædd 1970 til 1975 geta
dvalið í viku eða hálfan mánuð við leik og störf í fögru
umhverfi.
Eftirfarandi tímabil eru í boði:
Brottför heimkoma
1. 9. júnítil.................................16. júní
2.16. júnítil.................................23. júní
3. 27. júní til................................4. júlí
4. 4. júlítil............................ 11. júlí
5.13. júlítil.................................20. júlí
6. 20. júlítil................................27. júlí
7. 2. ágúst til........................9. ágúst
8. 9. ágúst til......................16. ágúst
Innritun hefst mánudaginn 2. maí að Snorrabraut 60,
2. hæð. Opið verður kl. 13 - 17. Upplýsingar eru í
símum 25022 og 23190 (erfitt getur verið að ná sam-
bandi í síma fyrstu dagana).
Úlfljótsvatnsráð
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Félagsstarf eldri
borgara í Reykjavík
Á undanförnum árum hefur Félagsmála-
stofnun Reykjavíkur gengist fyrir orlofsdvöl
aldraðra í Löngumýri í Skagafirði, í samvinnu
við íslensku þjóðkirkjuna.
Á komandi sumri hafa eftirtalin tímabil verið
ákveðin:
1. 30. maí til 10. júní
2. 27. júní til 8. júlí
3. 11. júlí til 22. júlí
4. 25. júlí til 5. ágúst
5. 22. ágúst til 2. sept.
6. 5. sept. til 16. sept.
Áætlað verð fyrir ferðir og uppihald er
kr. 3.500.-
Allar nánari upplýsingar og tekið á móti á-
skriftum á skrifstofu félagsstarfsins, að
Norðurbrún 1 frá kl. 9-17 sími 86960.
Veiðifélag Elliðavatns
Stangaveiði á vatnasvæði Elliðavatns hefst 1. maí.
Veiðileyfi eru seld í Vesturröst, Vatnsenda, Elliðavatni
og Gunnarshólma. Á sömu stöðum geta unglingar og
ellilífeyrisþegar í Reykjavík fengið afhent ókeypis
veiðileyfi.
Veiðifélag Elliðavatns
Orlofshús
Sjómannafélags
Reykjavíkur
Mánudaginn 2. maí n.k. frá kl. 9 verður tekið
á móti umsóknum um dvöl í orlofshúsum fé-
lagsins að Hrauni í Grímsnesi og að Húsa-
felli.
Þeir félagsmenn sem hafa dvalið í orlofshúsi
félagsins að Húsafelli 1981 eða 1982 koma
ekki til greina við úthlutun á þessu sumri í
Húsafelli.
Stjórnin