Þjóðviljinn - 01.05.1983, Síða 28
DIOÐVIIIINN
Helgin 30.apríl/l.maí 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt aö ná í blaðamenn og aöra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt aö ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
R íkisstjórnarmyndunin:_________________
Geir fékk umboðiö
Ríkisstjóm Sjálfstœðisflokks
og Framsóknarflokks er
líklegasta stjómarmynstrið
Geir Hallgrímsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins fékk í gær um-
boð frá f orseta íslands til myndun-
ar meirihluta ríkisstjórnar og hóf
hann þegar viðræður við formenn
annarra flokka. Þjóðviljanum er
kunnugt um að hann ræddi í gær
við þá Steingrím Hermannsson,
Svavar Gestsson og Kjartan Jó-
hannsson. Þjóðviljanum er ekki
kunnugt um hvort hann ræddi við
fulltrúa kvennalista og Vilmundar-
bandalagsins.
Mikið hefur verið rætt um þá
möguleika sem fyrir hendi eru til
stjórnarmyndunar og sýnist sitt
hverjum. Samkvæmt heimildum
Þjóðviljans telja raunsæir menn í
stjórnmálum að í raun sé aðeins um
einn raunhæfan möguleika að ræða
til myndunar meirihluta stjórnar,
en það er samstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks. Jafn-
framt hefur Þjóðviljinn heimildir
fyrir því að þessa leið muni Geir
Hallgrímsson reyna til þrautar.
Gegn þessu mælir að vísu and-
staða Steingríms Hermannssonar
að fara í stjórn með íhaldinu og
nokkrir þingmenn Framsóknar
fylgja honum að málum og vilja þeir
að Framsókn verði utan ríkis-
stjórnar meðan flokkurinn sleikir
sárin eftir kosningar. Aftur á móti
fer Ólafur Jóhannesson hamförum
í tilraunum sír.um til að fá menn í
slíka stjórnarmyndun og þá senni-
lega undir hans forsæti, enda hefur
hann sagt að Geir skuldi sér eitt
stykki ríkisstjórn síðan 1974 að
Ólafur myndaði ríkisstjórn fyrir
Geir.
Alþýðuflokkurinn vill allt til
vinna að komast í stjórn með íhald-
inu og fer Jón Baldvin Hannibals-
son þar fyrir. Honum hefur að vísu
ekki orðið neitt ágengt í viðræðum
við fulltrúa kvennalistans enda
munu þær vera mjög óráðnar í
hvað gera skuli.
Vitað er að innan Sjálfstæðis-
flokksins, eða réttara sagt þing-
flokks hans eru aðilar sem vilja
reyna stjórnarmyndunarviðræður í
alvöru við Alþýðubandalagið. En
svo mörg ljón eru þar í veginum að
engar líkur eru taldar á að endar
myndu nokkru sinni ná saman, auk
þess sem mjög almenn andstaða er
gegn slíkri stjórn innan Alþýðu-
bandalagsins í heild, þótt þar séu
líka til menn sem vilja gera tilraun
til slíkra viðræðna.
Margir spá því, þar á meðal þing-
menn, að í uppsiglingu sé stjórnar-
kreppa, sem muni leiða til utan-
þingsstjórnar og annarra kosninga
í haust. Þessir sömu aðilar segja að
einungis séu tveir kostir fyrir
hendi, stjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks ef þeir ná ekki
saman, þá utanþingsstjórn og
kosningar aftur í haust.
- S.dór.
Geir fékk umboð til stjórnarmynd-
unar í gær.
Baráttusam-
koma í Rein
Á Akranesi var nýlega stofnað
félag ungra sósíalista, sem þeir
nefna Verðandi. Þeir gangast fyrir
baráttusamkomu í Rein að kvöldi
1. maí og verður þar fjölbreytt dag-
skrá.
Flutt verður sögulegt yfirlit yfir
verkalýðsbaráttu liðinna ára,
ræðumenn brýna raustina og flutt
verður tónlist af ýmsu tagi. Þá
verða kaffiveitingar. Samkoman
hefst kl. 20.30.
Nú kynnum við allar gerðir af Slií0D/il ásamt hinum glæsilega nýja Skoda 3APiD
SM0O1
Sérstakt kynningarverð frá kr. 111.600
** gengl 01.04’83
Komið á staðinn, kynnist Skoda
og látið Halla svara öllum ykkar
spurningum.
JÖFUR
HF.
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600