Þjóðviljinn - 05.05.1984, Blaðsíða 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 5. - 6. maí 1984
„Eigi ástin að endast lengi,
verður hún að sameinast vinátt-
unni nánum tengslum. Þessar
tvær kenndir veita hvor annarri
gagnkvœman styrk, og við sam-
einingu þeirra verður ástin
traustari og vináttan innilegari".
Boudier de Villemert
/ skugga bankans
þrumar Jakinn silkiröddu.
Golan kyssir kinn.
Kvenhafið iðar
á Hallœrisplaninu.
Vorgolan þýtur.
Þar gnœfir kona
sem eitt sinn heilsaði mér
uppi á palli.
Rísið upp konur,
kljúfum karlrembukerfið
í herðar niður.
FG
Kvíaær
Brjefspjald gertaf
Einari Gunnarssyni,
Reykjavík
Það er fyrsti maí
frá Hlemmi á Lœkjartorg
sigurbraut fólksins.
Borðar á lofti
línið rautt, svartir stafir
sumstaðar hvítir.
Á þúsund fótum
þrammar borðalögð éining
dálítið klofin.
Maíhœkú
Nokkrir þelrra sem sýna nú í Listasafni ASÍ ásamt formönnum og öörum fulltrúum sambanda byggingarmanna og málm- og skipa-
smföa. (Ijósm. eik)
Þaö er einhver
innri þörf
Litið við á sýningu á
frístunda verkum
byggingarmanna,
málm- og skipa-
smiða
Úrstarfi í leik nefnistsýning áfrístunda-
verkum félaga í Sambandi byggingar-
menna og Málm- og skipasmiðasam-
bandinu, sem opnuð er nú í dag, laug-
ardag, í Listasafni ASÍ við Grensásveg.
Þátttakendur eru 23 og sýna þeir rúm-
lega hundrað verk og muni.
Þareru tréskurðarmyndir, rokkarog
skrín, kertastjakar og álskúlptúrar,
vatnslitamyndir og olíumálverk af
landslagi, sjávarplássum, fuglum,
mönnum og skipum með seglum
þöndum.
Nokkrir þátttakenda á sýningunni voru
teknir tali þegar verið var að festa upp sýn-
inguna á fimmtudag.
Jón Magnússon sýnir einkum manna-
myndir skornar í tré, fólk við ýmisleg hefð-
bundin störf.
Ég hef lengi fengist við þetta, sagði hann,
og haft gaman af. Ég ætlaði ungur í tré-
skurðarnám, en auraleysi á kreppuárunum
leyfði það ekki. Ég Iærði til húsgagnasmíða
en hefi alltaf stundað þetta með. Og ég hefi
ekki tímt að láta myndirnar frá mér, ég
geymi það hjá mér sem ég er sæmilega
ánægður með.
Georg Vilhjálmsson er húsa- og bflamál-
ari, sem sýnir vatnslitamyndir af fuglum og
landslagi.
Ég hafði, sagði hann, j afnan svo mikið að
gera við að mála bfla og annað hjá bróður
mínum Agli Vilhjálmssyni, að ég hafði ekki
tíma til neins fyrir sjálfan mig. En ég byrjaði
að föndra við vatnsliti í námskeiði hjá Val-
gerði Briem fyrir aldrað fólk árið 1980. Síð-
an hefi ég verið að fást við þetta og finnst
gaman að - þótt mér finnist svo að andinn
mætti koma miklu oftar yfir mig. Og kann-
ski er ég ekki nógu þolinmóður - mér finnst
ég endilega þurfa að klára mynd sem ég
byrja á - þetta er vaninn.
Björgvin Frederiksen sýnir stóra stjaka
og fánastengur sem hann hefur rennt.
Ég hefi verið í öllu mögulegu síðan ég
lauk við iðnskólann fyrir fimmtíu árum,
rekið vélsmiðju, verið formaður Lands-
sambands iðnaðarmanna og vasast í pólitík.
En nú er ég eins og kominn í hópinn aftur -
með öðrum sem hafa verið að fást við smíði
fyrir sjálfa sig. Ég hef verið að þessu vegna
þess að nú gefst betra næði, vegna þess að
ég á verkfæri í kjallaranum og er ekki skjálf-
hentur. Og þeta eru mínar hugmyndir,
bæði hönnun og útfærsla eins og nú er sagt.
Hann lyfti litlum fundarhamri með
fangamerki ristu í skallann og sagði:
Þessir gripir eru hjá mér og börnunum,
nema hvað svipaðan hamar gaf ég útvarp-
inu, þegar mér fannst að þeir mættu stjórna
sínum málum betur.
Guðmundur Kristinsson húsgagnasmið-
ur sýnir vatnslitamyndir frá sjávarsíðunni
og Þingvöllum.
Ég hef verið í 5-6 ár í Myndlistarklúbbi
Seltjarnarness og við höfum haft ýmsa
leiðbeinendur, m.a. Hring Jóhannessson.
Já það er ekki laust við, að mig hafi á
sínum tíma langað til að læra að mála. Ég
var farinn að teikna strákur og það kom sér
vel þegar ég fór í iðnskóla. En segja menn
I ekki, að það sé betra seint en aldrei? Og ég
hefi verið óvenju duglegur við þetta í vetur,
þótt mér finnist enn að ég gefi mér ekki
nógan tíma til þess að fara með liti.
Talsmenn verklýðsfélaganna, sem að
sýningunni standa, sögðu þetta vera fyrstu
sýningu af þessu tagi á þeirra vegum í
Reykjavík. Verslunarmenn hafa efnt til
i svipaðrar sýningar og á Akureyri hefur ver-
ið haldin sýning sem bar yfirskriftina
„Vinna - frístundir - heimili" þar sem
margt ágætt kom fram. Boðað var til sýn-
ingarinnar í félagsbréfum, auk þess sem
rætt var við menn sem vitað var af. En
margir eru sjálfsagt feimnir um of eða hlé-
drægir til að gefa sig fram.
Og vonandi er þetta vísir að meiru, sagði
Guðjón Jónsson, formaður Málm- og skip-
asmiðasambandsins. Það er einhver innri
þörf, sem er að verki í þessum mönnum,
margir þeirra vinna mjög mikið, en samt
finna þeir sér tíma til að stunda listasmíði og
málverk.
Sýningin er opin virka daga nema mánu-
daga kl. 14-20 og um helgar kl. 14-22 til 27.
maí.
-áb i
Kvtaær.