Þjóðviljinn - 05.05.1984, Síða 7
Helgin 5. - 6. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Söngnemendur úr Nýja tónlistar-
skólanum og Tónlistarskólanum
í Reykjavík
SarnafH
VIÐHALDSFRITT ÞAKEFNI
TIL ENDURNÝJUNAR - TIL NÝBYGGINGA
FAGTÚN HF. LÁGMÚLA 7, 105 REYKJAVIK, SIMI 28230
|Flytj a óperuna
Brottnámið úr
kvennabúrinu
Söngnemendur úr Nýja tónlist-
arskólanum og Tónlistarskólanum
í Reykjavík ásamt sinfóníuhljóm-
sveit flytja „Brottnámið úr kvenna-
búrinu“ eftir W.A. Mozart í
Hvassaleitisskóla á morgun sunnu-
daginn 6. og mánudaginn 7. maí kl.
20. Þetta mun vera í fyrsta skipti
hér á landi að söngnemendur flytji
óperu með því sem til þarf, þ.e.a.s.
með leik, búningum, leikmynd og
sinfóníuhljómsveit. Sönghlutverk
eru flmm í óperunni og öll nokkuð
jafn stór.
Fjórir söngvaranna eru nemend-
ur Sigurðar Demetz Franzsonar í
Nýja tónlistarskólanum, en einn
söngvarinn (Konstanze) er nem-
andi Sieglinde Kahmann úr Tón-
listarskólanum í Reykjavík. Tutt-
ugu og fimm manna hljómsveit
leikur í sýningunni og er hún að
mestu skipuð hljóðfæraleikurum
úr Sinfóníuhljómsveit íslands. Hér
er um gamanóperu að ræða þar
sem húmor Mozarts á að glitra
hvað mest, þegar vel tekst til.
Sönghlutverkin eru flutt af Jó-
hönnu G. Linnet (Konstze), Helgu
Baldursdóttur (Blonde) Guðbirni
Guðbjörnssyni (Belmonte) Magn-
úsi Gíslasyni (Pedrillo) og Odd.
Sigurðssyni (Osmin) auk þess tal-
hlutverk (Selim) flutt af Reyni
Bjarnasyni. Þess utan koma fram í
sýningunni dömur úr kvennabúri
Selims og fleiri sem í lokin mynda
lokakór óperunnar.
Leikstjóri sýningarinnar er Sig-
rún Björnsdóttir en leikmynd gerir
Gylfi Gíslason, hljómsveitarstjóri
er Ragnar Björnsson. Óperan er
sungin á þýsku en taltexti á ís-
lensku, auk þess að sögumaður
segir jafnóðum fram efni óperunn-
ar. Eins og segir í leikskrá sýning-
arinnar er hér um frumtilraun að
ræða sem vonandi verður framhald
á og að allir tónlistarskólarnir á
Reykjavíkursvæðinu a.m.k. standi
sameinaðir að í framtíðinni. Að-
eins tvær sýningar eru fyrirhugaðar
á „Brottnáminu“ og verða að-
göngumiðar seldir í bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar.
FULLBUIÐ EINBYLI
170 fm + bílskúr á einum besta stað í Hafnar-
firði í skiptum fyrir raðhús á einni hæð í Hafn-
arfirði. Upplýsingar á skrifstofunni.
HÓFGERÐI KÓP.
85 fm. sérhæð + 47 fm. bílskúr, bein, ákveð-
in sala. Verð 2.0 milj.
KLIFJASEL
280 fm. einbýli, bein ákveðin sala eða eigna-
skipti, verð 3.7 milj.
Við leitum að 4 herb. íbúð fyrir mjög fjársterka
kaupendur.
Leitarþjónusta
ANPRO leitar aö hinni réttu eign
ÁN ALLRA skuldbindinga af þinni hálfu
símar 687520
39424
687521
Bolholti 6 4. hæðl
Frá 7. maí til 1. september
loka skrifstofur félagsins kl. 16.00.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Húsi Verzlunarinnar 8. hæð.
Auglýsing frá Framleiðslueftirliti
sjávarafurða varðandi vinnsluleyfi
til frystingar á sjávarafurðum
Athygli hefur veriö vakin á því, aö nú sé víöa unnið aö undirbúningi aö
uppsetningu á búnaöi til frystingar, sem í sumum tilvikum getur orkað
tvímælis frá gæöa- og markaðssjónarmiðum. Nýjar reglur varöandi búnað
og frystingu í landi og um borö í fiskiskipum eru nú í undirbúningi á vegum
sjávarútvegsráðuneytisins. Framleiöslueftirlit sjávarafuröa mun því ekki
veita ný vinnsluleyfi til óhefðbundinnar frystingar þar til hinar nýju reglur
hafa veriö gefnar út. Þaö eru tilmæli Framleiöslueftirlitsins, að aðilar kynni
sér málin rækilega áöur en ráöist er í fjárfestingar eöa veigamiklar ákvarö-
anir eru teknar.
Framleiöslueftirlit sjávarafurða.
ÚTBOÐ -
STÓLAR
Langholtskirkja Reykjavíkur
Byggingarnefnd Langholtskirkju í Reykjavík óskar eftir tilboðum í stóla fyrir
kirkjuna og safnaðarheimilið. Um er að ræða ca. 550 stóla í kirkjuna og ca.
100 stóla í safnaðarheimilið.
Áætlaður afhendingartími er í ágústlok nk.
Opnun tilboða fer fram 25. maí n k.
Útboðsgögn afhendir Kjartan Jónsson, innanhússarkitekt, Pósthússtræti 17,
Reykjavík, sími 28660.
Byggingarpefndin.
Laura Ashley
KISTAN
Laugavegi 99
S - 16646 -
póstsendum