Þjóðviljinn - 05.05.1984, Síða 9
Helgin 5. - 6. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Afstaða meirihluta borgarstjórnar til Fjalakattarins:
Sólrún Davíð Álthelður Slgurður E.
Tak þennan kaleik frá mér
Það kom greinilega fram á
fundi borgarstjórnar sl. fimmtu-
dagskvöld að meirihluti borgar-
stjórnar hefur varpað frá sér
ábyrgð á framtíð Fjalakattarins
í Aðalstræti. í bókun, sem Da-
víð Oddsson lét gera, stendur
„Eðlilegast er að viðræður
nefndra samtaka (þ.e. Níu líf)
og eiganda hússins fari fram á
ábyrgð þessara aðila sjálfra".
Álfheiður Ingadóttir, borgar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins, sagði
við umræðurnar að samþykktin um
heimild til niðurrifs Fjalakattarins
markaði kaflaskil. Sú vinnuregla
hefur verið við lýði undanfarin ár
að heimila ekki niðurrif húsa nema
vitað sé hvað ætti að koma í stað-
margir einstaklingar og félaga-
samtök hafi boðist til að leggja
málinu lið og axla hluta þeirrar
fjárhagsábyrgðar sem af varðveislu
hlýst. I bókuninni er einnig bent á
að samkvæmt gildandi aðalskipu-
lagi er leyfð nýting við Aðalstræti
2.0 en nýtingarhlutfall á lóðinni
Aðalstræti 8 sé 2.36. 1 niðurrifs-
heimild felist því ekki neitt vilyrði
til eiganda lóðarinnar, um að hærri
nýting fáist þó nýbygging verði
reist á lóðinni. Slík ákvörðun væri á
valdi borgarstjórnar og hlyti að
taka mið af því deiliskipulagi sem
nú er í burðarliðnum. Meðan það
liggur ekki fyrir né heldur tillaga
frá eiganda lóðarinnar um hugsan-
lega nýtingu hennar telji framang-
eindir borgarfulltrúar ótímabært
nokkurn þokka til að bera. Segir
hann að Fjalakötturinn sé eitt
þeirra húsa sem ofangreind um-
mæli eigi við. Síðan segir:
„Sá galli er þó á gjöf Njarðar að
þrátt fyrir 40 ára umleitanir
eigenda hússins, hafa borgaryfir-
völd aldrei viljað taka af skarið um
málefni þess. Því síður hefur ríkis-
valdið látið sig nokkru skipta hver
yrðu örlög þess. Til þessa hefur
enginn aðili fengist til að taka á sig
ábyrgð af endurreisn þess og fram-
tíðarnotum og því er ekki sjáan-
legur fjárhagslegur grundvöllur
þar að lútandi. Virðast því örlög
þess ráðin.“
Þá segir Sigurður að lokum að
hann sé ekki reiðubúinn að standa
að því að Borgarsjóður einn fjár-
magni kaup þess og endurreisn og
því sitji hann hjá.
Niðurrif hússins var samþykkt
með 11 atkvæðum gegn 8 en 2 sátu
hjá. Það vakti athygli að Hulda
Valtýsdóttir, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins og formaður Um-
hverfismálaráðs greiddi atkvæði
gegn niðurrifi.
- GFr.
mn. Sjálfstæðismenn hafi verið
samþykkir þessari vinnureglu á síð-
asta kjörtímabili en nú sé verið að
fara inn á braut gömlu niðurrifs-
stefnunnar. Þá sagði Álfheiður að
þessi samþykkt væri gerð þvert á
vilja borgarminjavarðar, umhverf-
ismálaráðs og húsafriðunarnefndar
og í tillögu, sem liggur fyrir um
deiliskipulag svæðisins sé gert ráð
fyrir að Fjalakötturinn sem væri
einstakur í sinni röð fengi að
standa. Það væri rangt að sleppa
hendi af honum með þessum hætti.
Þá vítti Álfheiður framkomu
Ragnhildar Helgadóttur í þessu
máli. Húsfriðunarnefnd og þjóð-
minjavörður sem eiga að vera
menntamálaráðherra til ráðuneytis
í slíkum málum, hafa mælt með
friðun Kattarins en ráðherra hefur
algerlega hundsað álit þeirra.
Sólrún Gísladóttir, fulltrúi
Kvennaframboðs, sagði að hér
væri aðeins spurning um vilja og
skilning og borgin gæti eignast lóð-
ina með makaskiptum, eins og
samtökin Níu líf hafa stungið upp
á, ef hún aðeins vildi það.
Þær Sólrún og Álfheiður bentu á
að verð hússins væri á bilinu 12-20
miljónir og það væru mörg for-
dæmi um slíkt utan fjárhagsáætlun-
ar. Var bent í þessu sambandi á
útleysingu á mannvirkjum fyrir-
tækjanna Kolsýruhleðslunnar og
Eims við Seljaveg sem kostað hefði
Borgarsjóð 11 milj. kr., kaupin á
Viðey, sem kostuðu Borgarsjóð 22
milj. kr. og framlagið til Isfilm upp
á 2 milj. kr.
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði að veittur hefði verið frestur
á málinu til 3. maí en ekkert hefði
heyrst í samtökunum Níu líf upp á
síðkastið, hvort þau hefðu t.d. far-
ið út í fjársöfnun. Hilmar Guð-
laugsson, formaður bygginganefn-
dar, sagði að meirihlutinn hefði
tekið ábyrga afstöðu í málinu.
í sameiginlegri bókun Kvenna-
framboðs og Alþýðubandalags
segir m.a. að þeir harmi viljaleysi
borgaryfirvalda og menntamála
ráðuneytis til að. tryggja varð
veislu Fjalakattarins. Hafi þau
ekki haft neitt frumkvæði
að því að grípa mn í mál Fjalakatt-
arins þrátt fyrir að borgarminja-
vörður, umhverfismálaráð og hús -
friðunamefnd hafi eindregið mælt
með varðveislu hússins og fjöl-
og engum til hagsbóta að sam
þykkja niðurrif.
Gerður Steinþórsdóttir, annar
fulltrúi Framsóknarflokks, greiddi
atkvæði gegn niðurrifi og lét m.a.
bóka að hún teldi ekki fullreyndar
leiðir til að varðveita húsið. Segir
síðan í bókuninni:
„Samtökin Níu líf hafa t.d. sett
fram hugmynd um makaskipi lóða
og kaup á húsinu. Samþykki á nið-
urrifi nú ber einungis vott um
áhugaleysi borgaryfirvalda í þessu
máli en ekki peningaleysi. Þá tel ég
ríkið bera einnig ábyrgð á menn-
ingarsögulegum byggingum, og
harma afstöðu menntamálaráð-
herra þar sem húsfriðunarnefnd
hefur mælt með friðun hússins.
Hverfi Fjalakötturinn af sjónar-
sviðinu ber það vott um andvara-
leysi ráðamanna gagnvart menn-
ingarsögulegum verðmætum.
Staðreyndin er sú að þjóð sem hef-
ur efni á því að ganga í 40 milj. kr.
ábyrgð í leit að gullskipi er ekki
fjárhagslega á flæðiskeri stödd.“
Sigurður E. Guðmundsson, full-
trúi Alþýðuflokksins, sat hjá við
atkvæðagreiðslu og lét bóka af-
stöðu sína. Hann segist eindregið
vera þeirrar skoðunar að leggja
beri áherslu á að vernda og varð-
veita sem allra best þær byggingar í
Reykjavík, sem eigi langa sögu að
baki, hafi menningarlegt gildi og
| E RA kæliskápar
T0RTILB0D!
. ab^
o<íl
HUOMBÆR
HUOM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI si'^'^fgg010 103
J
blaðið
sem vitnað er í
Bifreiöa eigendur
Tökum að okkur
Við önnumst m.a.:
— Mótorstillingar í
— fullkomnustu tækjum
— Ljósastillingar
— Sjálfskiptingaviö-
— gerðir
— Boddyviðgeröir
— Almennar viðgerðir
Varahlutir ávallt til á
staðnum. Bifreiðaverk-
stæði í alfaraleið. Reynið
viðskiptin.
Leigjum út litlasendibíla.
þjónustu fyrir flestar gerðir bifreiða.
i OATSLJNI @
NISSAN
S\í^9a v
w°Scv><vs'e'
TALBOT
V/SA
Bifreiðaverkstæði
Þórðar Sigurðssonar
Armúla 36 - Sími 84363.