Þjóðviljinn - 05.05.1984, Page 16
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 5. - 6. maí 1984
Sundkaffi
auglýsir
Kaffi, kökur, smurt brauð.
Heitar og kaldar samlokur.
Hamborgarar og franskar kartöflur
Heitar pylsur, tóbak, öl og sælgæti.
Opið alla virka daga frá kl. 7 - 22,
laugardaga frá kl. 8-19,
sunnudaga frá kl. 10 - 19.
Sundakaffi, Sundahöfn.
Rafmagnsveitur ríkisins
auglýsa laust til umsóknar starf deildarstjóra
hagdeildar. Viðskipta- eða hagfræðimennt-
un tilskilin.
Umsóknir er greini menntun, aldur og fyrri
störf sendist fyrir 20. maí 1984 merkt starfs-
mannahaldi. Upplýsingar veitir forstöðumað-
ur fjármálasviðs.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi118
105 Reykjavík.
Hafnfirðingar -
Matjurtagarðar
Leigjendum matjurtagarða í Hafnarfirði er
bent á að síðustu forvöð að greiða leiguna
eru föstudaginn 11. maí nk. Eftir þann dag
verða garðarnir leigðir öðrum.
Bæjarverkfræðingur.
Lækningastofa
Hef opnað lækningastofu að Bjargi, Bugðu-
síðu 1,600 Akureyri. Stofutími: Þriðjudagar
kl. 14 -18. Tímapöntunum veitt viðtaka í síma
26888 alla virka daga kl. 8 - 15.30.
Þorkell Guöbrandsson dr. med.
Sérgrein: Lyflækningar og hjartalækningar.
ÚTBOÐ
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í
SAUÐÁRKRÓKSBRAUT III
(4,5 km, 44.000 m3). Verkinu skal lokið fyrir
15. september 1984. Útboðsgögn verða af-
hent hjá Vegagerð ríkisins í Reykjavík og á
Sauðárkróki frá og með 7. maí nk. Skila skal
tilboðum fyrir kl. 14.00 þann 21. maí 1984.
Vegamálastjóri.
Við þökkum af alhug öllum þeim er vottuðu okkur samúð við
andlát og útför systur okkar og mágkonu,
Guðbjargar (Stellu) Stefánsdóttur
frá Hvalskeri.
Þórir Stefánsson Sigurbjörg Sigurbergsdóttir
Pálína Stefánsdóttir Hörður Kristófersson
Pétur Stefánsson Þórhalla Björgvinsdóttir
Arnfríður Stefánsdóttir Ari ívarsson
og börn.
Llstaverk eftir Eyborgu Gunnarsdóttur, Ragnhildi Jónsdóttur, Nínu Tryggvadóttur og fleiri konur prýða veggi
kaffistofunnar á Keldnaholti. Á myndinni eru Þuríður Magnúsdóttir sem er forstöðumaður fræðslumiðstöðvar
iðnaðarins og Svanlaug Baldursdóttir bókasafnsfræðingur sem hafði veg og vanda af því að fá sýnlnguna.
Mynd - eik.
Vinnustaðasýningar Listasafns ASÍ
Kvennalist á
Keldnaholti
Listaverk eftir konur skreyta
nú veggi kaffistofu Rannsókna-
stofnunar byggingariðnaðarins
á Keldnaholti. Verkin eru frá
Listasafni ASÍ sem sér um
vinnustaðasýningar um allt
land. Vinsældir þeirra hafa farið
vaxandi og nú í maíbyrjun hefur
verið ráðinn starfskraftur til
Listasafnsins sem eingöngu
sér um sýningarnar sem kallast
List fyrir landið.
„Ég var ánægð þegar ég sá að
hægt var að koma upp frá Lista-
safni ASÍ svo frambærilegri sýn-
ingu eftir konur“, sagði Svanlaug
Baldursdóttir bókasafnsfræðingur
sem er í Fræðslu- og menningar-
deild starfsmanna á Keldnaholti.
Sýningin hefur verið nefnd
Kvennalist og á henni eru málverk,
grafíkmyndir og vefnaðarlist eftir
konur. Frá Listasafninu fylgja upp-
lýsingar um verkin og höfunda
þeirra. Sýningartíminn er 1 mán-
uður, því starfsmannafélagið réð
ekki við að fjármagna lengri tíma,
sagði Svanlaug.
Þorsteinn Jónsson forstöðumað-
ur Listasafns ASÍ sagði Þjóðviljan-
um að nálega 30 sýningar væru nú í
gangi frá þeim. Þær standa ýmist í
1-4 mánuði og eru allt frá 10 til 50
myndir á hverjum stað. Hópar sem
eru í verkalýðsfélagi innan ASÍ
greiða 3.700 krónur lántökugjald
fyrir 4 mánuði ef þeir eru með sýn-
ingar að staðaldri, en sýningar á
vegum annarra aðila kosta 6.400
sem er raunkostnaður. Einnig er
hægt að fá stakar sýningar í 1 mán-
uð fyrir þetta verð. Þorsteinn sagði
að Listasafnið sjái um uppsetningu
og velji verkin en hægt er að óska
I eftir ákveðnu þema eins og gert var
fyrir sýninguna sem er á Keldna-
holti um þessar mundir.
-jP
Bragi Agnarsson sagöi upplífgandi aö hafa myndlr á veggjum kaff istofunnar
frá ýmsum listamönnum. „Mér fannst mjög skemmtileg sýning hér í vetur
eftir Jónas stýrimann Guömundsson“. Mynd - eik.
Almenn ánægja er með veggskreytingarnar á Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins. Hér eru myndlr eftir
Slgrúnu Eldjárn og fleiri grafíklistakonur. Mynd- eik.