Þjóðviljinn - 05.05.1984, Síða 17
Helgin 5. - 6. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
daegurmál
Ný spor Bubba og...
Þaö er best að slá tvær flugur í
einu höggi og fjalla saman um
fjórðu sólóplötu Bubba Ný spor
og þriðju Egóplötuna sem heitir
einfaldlega Egó. Ekki verður
kvartað undan afköstum þeirra
félaga. Þau eru meiri en við
eigum að venjast en það getur
haft slæmar hliðar jafnt sem góð-
ar.
Ef við byrjum á sólóplötu
Bubba, þá verður að segjast að
hún rennur átakalítið í gegn. Það
er lítið um nýja spretti en þó
heyrast þeir inni á milli. Erfitt er
að fara fram á miklar breytingar
ef afköst Bubba eru höfð í huga
undanfarin fjögur ár. Ný spor er
fjórða sólóplata hans, hann hefur
sungið inn á þrjár plötur með Ut-
angarðsmönnum og þrjár með
Egóinu auk annars sem hann hef-
ur gert. Þessi kappsigling er dá-
lítið varhugaverð. Ef hún verður
ekki stöðvuð á hann á hættu að
sigla inn í tónlistarlega
lognmollu. Því held ég að það
hafi verið rétt hjá honum að
skipta um umhverfi, hvíla sig í
nokkurn tíma, reyna eitthvað
nýtt, ganga í endurnýjun lífsdag-
anna Jnni á milli sýnir Bubbi sínar
bestu hliðar í íögum eins og
„Strákarnir á Borginni“ og „Vil-
mundur“ en þess á milli dettur
hann ofaní algjöra flatneskju í
lögum eins og „Pönksvíta no. 7“
og „Utangarðsmenn“.
Á Nýjum sporum nýtur Bubbi
aðstoðar nokkurra valinkunnra
tónlistarmanna: Fúsa fallbyssu úr
Baraflokknum sem leikur á
trommur, Þorleif bassaleikara úr
Frökkunum og Þorsteins
Magnússonar fyrrum liðsmanns í
Þey. Þessir þrír bera uppi hitann
og þungann af tónlistarflutningn-
um en auk þeirra koma ýmsir
aðrir góðir kappar fram. Platan
er tekin upp á stuttum tíma og ber
þess nokkur merki. Ekki svo að
það spilli neitt fyrir, yfirleitt er ég
hrifnari af plötum þar sem stúdíó-
vinnan er í lágmarki.
Stemmningin verður allt önnur.
Söngur Bubba á þesari plötu er
góður, hann hefur meira vald á
rödd sinni en áður og hún er
sterkari.
Umslagið er ágætt en óþarflega
mikið er af villum á textablaðinu.
Ný spor er að mínu mati sísta
sólóplata Bubba og þarf hann að
taka sig saman í andlitinu ef hann
á ekki að enda sinn tónlistarferil
sem lifandi steingervingur
Á Egóplötunni kveður við allt
annan og freskari tón. Egó er tví-
mæialaust besta plata Egósins til
þessa. Margir hafa verið með efa-
semdir um framtíð hljómsveitar-
innar eftir að Bubbi fór til Amer-
íku en þeir tveir meðlimir Egós-
ins sem eftir eru á landinu ætla að
halda áfram af fullum krafti.
Þessi þriðja plata Egósins kem-
ur svo sannarlega á óvart. Þyngri,
kröftugri og í alla staði betri en
hinar. Einhverjir kunna að sakna
laga á borð við „Stórir strákar“
og „Móðir", því að ólíklegt er að
eitthvert lag á þessari plötu öðlist
neinar vinsældir í líkingu við fyrr-
nefndu lögin. Þeir Beggi og Rún-
ar eru mennirnir á bak við þessa
plötu. Sömdu sex af átta lögum
plötunnar en hin tvö eru samin af
þeim og Bubba. Einnig annast
þeir tveir upptökustjórn. Styrkur
þessarar plötu felst í hugmynda-
auðgi þeirra bæði hvað varðar
lagasmíð, útsetningar og upp-
tökustjórn.
Hljóðfæraleikurinn á Egó er
allur til fyrirmyndar enda að-
stoða tveir af okkar bestu hljóð-
færaleikurum þá við plötugerð-
ina, þeir Ásgeir Óskarsson á
trommur og Pétur Hjaltested á
hljómborð. Þeir eru allir pott-
þéttir en sérstaklega er trommu-
leikur Ásgeirs góður. Bubbi
syngur vel eins og á Nýjum spor-
um. Sándið er mjög gott, eins er
hljóðblöndunin ágæt.
Eins og fyrr eru textar Bubba
beinskeyttir og koma við kauninn
á mörgum. Hann tekur sem fyrr
fyrir málefni líðandi stundar og
gerir þeim skil á sinn góða máta.
Þannig fær vor ástkær fjármála-
ráðherra sinn skammt, karl-
mennskuímynd samtíðarinnar
og tvískinnungur í siðferðismál-
um. En áhrifamesti texti á þess-
um tveimur plötum finnst mér
„Blýhöfuð". Hann hittir beint í
mark.
Hann var öðruvísi.
Dálítið feiminn
inní sér á svipinn dreyminn.
Ekki var hann Ijótur,
ekki fríður var hann fríður.
Gal verið grimmur gal verið blíður.
Dagurinn tók aldrei enda.
Hann lifir í honum enn.
Það álti bara að prófa að fljúga og
lenda,
hann er víst þar enn.
Augun tóm,
slefan hylur brjóstið.
Heilann þekur storknað lím.
Enginn veit hvað hann skilur,
á sama stigi og fóslrið.
Nema fóslrið mun þroskast
en í honum tómið býr.
Dagurinn tók...o.s.frv.
Skakkur og skœldur,
eins og límbrunnið módel.
Votar varir reyna að mynda hljóð.
Hann brosir ef þú nefnir spítala eða
hótel,
nema brosinu fylgir alls engin glóð.
Dagurinn tók...o.s.fr.
Þó að textar Bubba séu efnis-
miklir og beinskeyttir þá finnst
mér hann mætti laga fráganginn á
þeim. Það er töluvert af klaufa-
legu orðalagi sem stingur í augu,
villum sem eru langt fyrir neðan
... nýju sporin Egósins
það sem við fáum vanalega frá
honum.
Egó platan er góð og stendur
sannarlega undir nafni sem besta
Egóplatan. Það kann að hljóma
undarlega að hrósa Egóplötunni
en kvarta undan sólóplötu
Bubba. Hann syngur jú á báðum
plötunum og semur textana á þær
báðar. Munur á þessum tveimur
plötum liggur fyrst og fremst í
tónlistinni. Mér finnst tónlistin
betri á Egóplötuni og kannski á
gamla lumman við hér, í yfir-
færðri merkingu, betur sjá augu
en auga.
-jvs
Eitt ömurlegasta og sorgleg-
asta dæmi um hljómsveit sem far-
in er í hundana er Thompson
Twins. Hljómsveitin hefur tekið
miklum mannabreytingum á
undanförnum þremur árum.
Árið 1981 var hún sex manna
hljómsveit en er tríó í dag. Að-
eins tveir eru eftir af þeim sex
sem voru á plötunni A Product of
Participation sem kom úr árið
1981. Nýjasta plata hljómsveitar-
innar Into the Gap á í raun ekkert
skylt við fyrstu plötu hennar frá
1981 og væri í raun betra að tala
um tvær hljómsveitir með sama
2 stuttur plöttifréttir
nafni. Breytingin á tónlist hljóm-
sveitarinnar er ömurleg. Má með
nokkuð góðri samvisku líkja
henni við að Talking Heads færi
að leika tónlist eins og Human
Legue. Sorglegur ferill vægast
sagt.
Alarm er nafn á enskri hljóm-
sveit sem hefur getið sér gott orð
þar í landi seinustu misserin. Þeir
THEfliiflHIH
OEGLARATiOH
sendu fíá sér litla plötu á seinasta
ári og voru í alla vega einu ensku
tónlistarblaði kosnir efnilegasta
hljómsveitin. Það þykir nú gott
fyrir eina litla plötu.
Þeir flytja líka tónlist og Clash,
ekki bætir úr skák að stundum
mætti halda að Joe Strummer
söngvari Clash væri að syngja.
Þeir eru glettilega líkir hann og
söngvari Alarm, Mike Peters.
Tónlist Alarm er kröftug og mei-
ódísk, textarnir góðir, þannig að
hér er á ferðinni afbragðs góð
plata sem hægt er að mæla með.
jvs