Þjóðviljinn - 05.05.1984, Qupperneq 18
H8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN i Helgin 5. - 6. mal 1984
Kennarar
Kennara vantar við grunnskóla Eyrarsveitar í
Grundarfirði. Kennslugreinar: íslenska,
danska, enska, stærðfræði, raungreinar,
samfélagsfræði, myndmennt, tónmennt og
kennsla yngri barna. Auk þess skólaathvarf
og skólasafn. Nánari upplýsingar gefa Jón
Egill Egilsson skólastjóri (s. 93-8619 og 93-
8637) og Gunnar Kristjánsson yfirkennari (s.
93-8619 og 93-8685).
Sóknarfélagar - Sóknar-
félagar - Aðalfundur
Aðalfundur félagsins verður haldinn þriðju-
daginn 8. maí, að Borgartúni 6, kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sýnið félagsskírteini. Stjórnin.
Húsnæði óskast
strax
Félagsmálastofnun Kópavogs óskar eftir að
taka á leigu 4ra - 5 herb. íbúð í blokk, sérhæð
eða einbýli, í nokkra mánuði. Upplýsingar á
Félagsmálastofnun Kópavogs, Digranes-
vegi 12, sími 41570.
Félagsmálastjóri.
Námsvist við
Blaðamannahaskola Danmerkur
Samkvæmt nýjum reglum um inntöku nemenda í
Blaðamannaháskóla Danmerkur í Árósum er gert ráð
fyrir, að einum íslendingi verði heimiluð námsvist í
skólanum við hverja innritun, enda standist hann inn-
tökupróf skólans. Innritun fer fram tvisvar á ári og
verður inntökupróf háð 14. júní nk. fyrir þá sem óska
að hefja nám haustið 1984. Umsóknir um námsvist
skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6,101 Reykjavík, fyrir 20. maí nk. Tilskilin um-
sóknreyðublöð ásamt nánari upplýsingum fást í ráðu-
neytinu.
Menntamálaráðuneytið,
3. maí 1984.
Svæðisstjórn Vesturlands
Óskar að ráða starfsfólk við nýtt sambýli fyrir
fjölfatlaða á Akranesi. Um er að ræða nokkr-
ar stöður í vaktavinnu og við næturvörslu.
Umsóknum skal skilað til Málfríðar Þorkels-
dóttur, Vallholti 15,300 Akranesi, sem einnig
veitir nánari upplýsingar í síma 93-2403. Um-
sóknarfrestur er framlengdur til 15. maí.
Svæðisstjórn Vesturlands.
Þroskaþjálfar
Munið aðalfundinn annað kvöld. Mætið vel
og stundvíslega.
Stjórnin.
sKáh____________
Úr ýmsum áttum
Sjaldan hefur verið jafn mikill
uppgangur í skáklistinni og einmitt
nú. Hvert stórmótið rekur annað,
og í vændum er skemmtilegt
heimsmeistaraeinvígi sem og Ól-
ympíuskákmótið sem verður í
Grikklandi næsta vetur. En það
eru ekki bara alþjóðlegu mótin
sem vekja athygli, heldur einnig
landsmótin, sem eru nú mörg hver
búin eða yfirstandandi. Flestar af
Austur-Evrópuþjóðunum hafa til
að mynda lokið sínum og almennt
er talið að meistaramót Júgóslavíu
og Sovétríkjanna séu með merki-
j legri skákmótum sem haldin eru.
Það má til sanns vegar færa því þar
búa jú margir af sterkustu skák-
mönnum heims og einnig er þar'
! gífurleg breidd, enda eiga Sovét-
I menn besta útungunarkerfi skák-
sénía sem völ er á í heiminum.
Þegar síðast fréttist af Sovét-
meistaramótinu var spennan í há-
marki. Eftir 11 umferðir var And-
rei Sokolow efstur með IVi vinn-
ing, næstur kom K. Lerner með 6V2
vinning og biðskák og þriðji Belj-
I avsky með 6 vinninga og biðskák.
• Tvö efstu nöfnin kunna að virðast
sumum framandi en báðir eru þeir
| alþjóðlegir meistarar. Sokolow er
reyndar eitt af mestu efnum So-
í vétríkjanna um þessar mundir, að-
! eins 21 árs gamall. Það verður þó
að viðurkennast að mótið er með
j slappara móti, enda aðeins 6 af
i keppendunum stórmeistarar. Ekki
svo að segja að 6 stykki séu slæmt í
18 manna móti, en miðað við að
Sovétríkin eiga um 50 stórmeistara
þá verður það að teljast magurt. Af
frægum nöfnum, utan Beljavskys,
1 má nefna Tukmakov, Balashov,
Dorfman og Psahis. Vegna ofan-
greindra ástæðna hefur mótið feng-
ið litla umfjöllun og hefur ekki tek-
ist að fá skákir úr toppbaráttunni.
Engu að síður hefur undirritaður
undir höndum eina stutta skák sem
verður að nægja lesendum að sinni.
Hvítt: K. Lerner
Svart: W. Tschechov
Drottningarpcðsleikur.
1. d4 Rf6. 2. Rf3 e6.3. Bg5 c5 4. e3
Be7 5. Rbd2 Þessi leikaðferð á hvítt
er í hávegum höfð innan Sovétríkj-
anna um þessar mundir . - 0-0 6.
Bd3 b6. 7. De2 cxd3 8. exd4 Rd5 9.
h4! (á’ann). - f5 10. c4 Bxg5 11.
hxg5 Rf4 12. Dfl Rc6 13. 0-0-0 b5
14. c5 Ba6 15. g3 Rxd3+ 16. Dxd3
Da517. Db3 Da418. Hh4! Dxb319.
Rxb3 Bb7 20. d5! Rd8 21. c6! Hc8
22. Kbl dxc6 23. Hdhl cxd5 24.
Hxh7 R17 25. g6 Rh6 26. Hlxh6!
gxh6 27. Hxb7 f4? (Svartur er að
vísu í krappri vörn en nú hleypir
hann öllu draslinu inn á sig.) 28.
Re5 Hf5 29. Rg4! og svartur gafst
upp.
Gagnstætt Meistaramóti Sovét-
ríkjanna var hliðstætt mót Ung-
verja en þar mættu allar stjörnurn-
ar til leiks, utan Ribli sem var
veikur. Hann er kannski enn á
bömmer yfir því að tapa fyrir hálf-
ellilífeyrisþeganumSmysloví áskor-
endaeinvíginu. Sigurvegari mót-
sins var Andras Adorjan og kemur
það nokkuð á óvart af tveimur
ástæðum, í fyrsta lagi var súper-
stórmeistarinn Portisch meðal
þátttakenda og í öðru lagi er
Adorjan maður taugaslappur en
eins og gefur að skilj a telst það ekki
til hæfileika í snarpari toppbaráttu.
Engu að síður var sigur Adorjans
nokkuð öruggur; hann varð vinn-
ing ofar en Portisch, Farago og
Groszpeter, hlaut 7 vinninga úr 10
skákum. Lítum á eina af sigur-
skákum Adorjans. ,
Hvítt: A. Groszpeter
Svart: A. Adorjan
Drottningarindversk vörn.
1. d4 Rf6. 2. Rf3 e6 3. e3 (Þetta er
að vísu nokkuð hægur leikur, en
það táknar ekki að hvítur sé að
jarma á jafntefli, þvert á móti.
Staðreyndin er bara sú að Adorjan
er einhver mesti byrjanasérfræð--
ingur vorra daga og þekkir allar
hefðbundnar leiðir út í ystu æsar.
Ekki þar með sagt að hann sé vél-
rænn eins og oft vill verða um þá
sem treysta um of á fræðin. Hann
er einmitt nokkuð frumlegur og er
óhræddur við að prófa ýmislegt, ef
hann bara fílar það. Ég man eftir
Lárus Jóhannesson
skrifar um
nýlegu dæmi þar sem upp kom
mikið rannsökuð staða: 1. d4 Rf6
2. c4e6.3. Rf3 b6 4. g3 Ba6 5. b3 og
hér lék Adorjan 5. -b5!?!) 3. -c5 4.
Bd3 b6. 5. 0-0 Bb7 6. b3 (Slíkri
uppbyggingu er oft beitt er svartur
leikur d5, en það er mjög athyglis-
vert að Adorjan ýtir þessu peði
ekki strax og þá ekki nema um einn
reit. Á þann veg viðheldur hann
ákveðnum sveigjanleika í stöðu-
nni.) 6. - Rc6 (Það getur verið að
hér sé um smá ónákvæmni að ræða.
Betra væri að leika fyrst Be7 og
hróka síðan því þá gæti svartur
hugsanlega farið með riddarann á
d7. Framhald skákarinnar sannar
að ýmislegt er til í þessu.). 7. Bb2
Be7. 8. Rbd2 0-0 9. a3 cxd410. exd4
He8 11. Hel Hc8 12. Hcl d6 13 c4
Rb8!? (Þar eð hvíti riddarinn
stendur á d2 en ekki c3 er kannski
ekki svo vitlaust að endurskipu-
leggja stöðu svarta riddarans.
Stæði sá hvíti hins vegar á c3 væri
ákveðinn þrýstingur fólginn í því
að hafa riddara á c6 því þá er peðið
á d4 ekki eins vel valdað. Eins og
áður sagði hefði kannski sparast
tími með því að láta hvítan ákveða
staðsetningu síns á undan.) 14. Rfl
Rbd7 15. Re3 (Svartur hefur komið
liði sínu þannig fyrir að erfitt er
fyrir hvítan að finna átakspunkt.
Ætlun hvíts er nú aðleika d5, en
eins og framhaldið leiðir í ljós hefði
kannski verið sniðugra að leika
riddaranum til g3 og spila upp á
b4.) 15. - Bf8 16. d5?! - exd5 (16. -
e5 var einnig möguleiki með hug-
myndinni g6 og Bg7.). 17. cxd5
Hxcl 18. Bxcl Da8 19. Bb5? (Þetta
kann að virðast í hæsta máta eðli-
legur leikur. Biskupinn rekur
hrókinn af opinni línu. En með til-
liti til framhaldsins þá hefði 19. Bc4
Stjómendur Rokkrásarinnar
hafa ákveðið að gangast fyrir
vinsældakosningu meðal lands-
manna á bestu popplögum frá
upphafi.
Tilhögun er á þá leið að þátt-
takendur velja þau 3 lög sem þeir
telja best af popplögum síðustu
tveggja áratuga, eða frá tilkomu
Beatles, Rolling Stones og sam-
tímahljómsveita þeirra, og allt til
dagsins í dag.
verið betri leikur. Það er alltaf
hægt að vera gáfaður eftir á.) 19. -
Hd8 20. Bc4 a6 21. a4 Re5 22. Bb2.
22. - b5! (Með þessum snjalla
leik hrifsar Ádorjan til sín frum-
kvæðið). 23. axb5 axb5 24. Bxb5
(Nú sést hvað átt var við í skýring-
um við 19. leik hvíts. Ef svarti
hrókurinn stæði nú á e8 hefði ekki
verið mögulegt að framkvæma flét-
tuna). 24. - Rxd5 25. Rh4 (í raun
og veru þvingað eftir 25. Rxe5 dxe5
26. Dg4 Da5 27. De2 Rf4 tapar
hvítum manni.) 25. - Rf4 26. Bfl
Be7 27. Rhf5 Bf6 28. Bxe5? (Svart-
ur hótaði að vísu 28. - Rh3+ 29.
gxh3 Rf3+ o.s.fr. Betra var að
draga úr þessari hótun með stað-
setningu riddara á d4, en þegar hér
var komið átti hvítur aðeins 2 mín-
útur til þess að ljúka tilskildum 40
leikjum. Það er því skiljanlegt að
hann setti öll sín spil á sókn.) 28. -
dxe5 29. Dg4? (Nauðsynlegt var að:
reyna að draga úr þrýstingnum á
g2. Til þessvar29. Dal velfallinn.)
29. - h5 30. Dg3 Da5 31. Hbl Da2
32. Hel Dd2. (Sálfræðilega leikið!
Svartur leikur ekki eðlilegustu
leikjunum til þess að trufla hvítan í \
tímahrakinu, heldur leikjum sem!
hvítur hafði alls ekki búst við. Best
var að sjálfsögðu 32. - Dxd3
33. Bc4 Dxc4! 34. Rxc4 Re2+) 33.
Hal (Hvítur sá að sjálfsögðu að
ekki gengur 33. Hdl? vegna Dxdl)
33. - Be4 34. h4 Kh7? (Svartur
flýtir sér um of í tímahraki hvíts;
betra var að leika 34.-Dd7! strax.)
35. Kh2 Dd7 36. Hdl Dc7 37. Hxd8
Dxd8 38. f3 Bd3 39. Bxd3 Dxd3 og
hvítur féll á tíma.
Undirritaður hefur fengið spurn-
ir af því að endurtaka skuli keppn-
ina Sovétríkin - Heimurinn í Sviss í
sumar. Ef þetta er rétt er um meiri-
háttar skákviðburð að ræða. Eins
og menn muna var um sambærilega
keppni að ræða árið 1970. Teflt
verður á 10 borðum, fjórfalda um- i
ferð.
Þetta geta menn gert með
tvennum hætti: skrifað Rokkrás-
inni bréf með lögunum þremur
eða hringt upp í Rás 2 milli kl. 12
og 14 mánudaginn 7. maí. Ef
rnenn vilja skrifaokkurerheim-
ilisfangið þetta:
Rokkrásin
Rás 2,
Hvassaleiti 60,
108 Reykjavík.
Skúli Helgason og Snorri Skúlason, stjórnendur Rokkrásarinnar á Rás 2.
Ljósm.: Atli.
á Rokkrásinni