Þjóðviljinn - 05.05.1984, Blaðsíða 21
Helgin 5. - 6. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21
Minning
Guðlaugur Gunnar Jónsson
F. 8. febr. 1894 - D. 24. apríl 1984
í dag verður til moldar borinn afi
minn og vinur, Guðlaugur Gunnar
Jónsson en hann andaðist 24. apríl
sl., níræður að aldri. Hann er
syrgður af stórum hópi afkomenda
en afkomendur hans og ömmu
minnar, Guðlaugar Matthildar
Jakobsdóttur sem lést árið 1938 á
fertugasta og sjötta aldursári,
munu vera orðinir 164 talsins. Sú
sem þetta skrifar er ein úr hópi 65
barnabarna.
Þegar ég kveð þennan glaðværa
og góða mann í hinsta sinn er mér
efst í huga þakklæti fyrir að hafa átt
hann að sem kærleiksríkan afa og
vin og einnig stolt yfir því að vera
afkomandi slíks manns sem afi var.
í mínum huga er hann verðugur
fulltrúi alþýðu þessa lands, maður
sem háði harða lífsbaráttu til að
koma stórum barnahópi til þroska
við þröngan kost en óbilandi trú á
lífið. Mætti fordæmi hans og lífs-
viðhorf verða okkur afkomendun-
um leiðarljós og veganesti.
Á kveðjustundinni sækja minn-
ingarnar að, en afi er órjúfanlega
tengdur uppvaxtarárum mínum í
Vík í Mýrdal. Ég er fædd í Guð-
laugshúsi en svo er hús hans jafnan
nefnt. Fannst mér það hús alltaf
vera mitt annað heimili og þangað
sóttum við mikið börnin í fjölskyld-
unni. Mínar fyrstu minningar eru
úr því húsi.
Áfi vann lengstum í pakkhúsi
Kaupfélags Skaftfellinga og var
oftast kenndur við starf sitt og kall-
aður Guðlaugur pakkhúsmaður.
Þar var hann kóngur í ríki sínu og
þangað áttum við krakkarnir ófáar
ferðir. Við skólakrakkarnir vorum
viktuð þar á haustin og þar
keyptum við stelpurnar sippubönd
sem voru kaðlar af mjóstu gerð
sem þeir afi og Hákon Einarsson,
sem einnig vann í pakkhúsinu,
hnýttu listilega á endunum svo að
úr urðu fínustu höldur. Þangað fór-
um við lfka með masónítplöturnar,
sem við fengum á smíðaverkstæð-
inu hjá Matthíasi, og fengum snæri
í. Þessum plötum renndum við
okkur síðan á í snjónum í Þor-
steinsbrekku rétt þar hjá sem
pakkhúsið stóð. Gamla pakkhúsið
var okkur krökkunum ævintýra-
heimur með öllum sínum krókum
og kimum. Mörgum var eftirsjá í
því þegar það var rifið þótt annað
nýtt kæmi í staðinn. Áfi stendur
mér ljóslifandi fyrir hugskotssjón-
um eins og hann var í þá daga, hár
og grannur, með silfurgrátt hár,
oftast í gráum vinnuslopp með der-
húfu og mér fannst hann alltaf svo
fallegur. Einnig man ég hann í
góðra vina hópi, stundum við skál,
eða þá í útreiðartúr á einhverjum
gæðingnum eða á hestamanna-
mótum. Þá vorum við bamabörnin
alltaf svo montin af honum, enda
var hann landskunnur hestamaður
og átti margan gæðinginn um
ævina.
Guðlaugur Gunnar Jónsson
fæddist á Suður-Fossi í Mýrdal 8.
febrúar 1894. Foreldrar hans voru
þau hjónin Jón Árnason frá Suður-
Fossi og Valgerður Bárðardóttir
frá Ljótarstöðum í Skaftártungu.
Annan son áttu þau einnig, Bárð,
sem líka var búsettur í Vík en hann
lést fyrir tuttugu árum. Afi var hjá
foreldrum sínum til þriggja ára
aldurs en þá urðu þau að senda
hann frá sér sökum fátæktar. Var
hann í fóstri í Suður-Vík í 7 ár.
Sagði hann mér að fólkið þar hefði
verið sér gott en aldrei gat hann
gleymt sorginni við aðskilnaðinn
við foreldrana og hvað hann grét
sárt lengi á eftir. Tíu ára gamall fer
hann aftur til foreldra sinna sem þá
bjuggu á Sólheimum. Fluttist hann
síðan með þeim að Ketilsstöðum,
Höfðabrekku og loks að Kerlingar-
dal.
Árið 1918 kvæntist afi ömmu
minni, Guðlaugu Matthildi
Jakobsdóttur frá Fagradal. Fengu
þau hálfa jörðina í Kerlingardal til
ábúðar á móti foreldrum afa. En í
október 1918 gaus Katla og þótti þá
ekki fýsilegt að búa í Kerlingardal.
Fluttu þau afi og amma þá til Víkur
þar sem þau bjuggu ávallt síðan.
Afi hafði alltaf mikla ánægju af
sveitastörfum og sagði hann mér að
helst hefði hann vilja búa, en ýmis-
legt kom í veg fyrir að svo yrði. Var
sagt um hann að hann hefði verið
glöggur bæði á fé og hross.
Eins og margir sömu kynslóðar
naut afi lítillar skólagöngu, var að-
eins stutt í barnaskóla hjá Stefáni
Hannessyni í Litla-Hvammi.
Reyndist honum þó sá lærdómur
notadrjúgur og enginn skyldi held-
ur vanmeta þá þekkingu sem hon-
um áskotnaðist í hörðum og
margbreytilegum skóla lífsins.
Eftir flutninginn til Víkur vann
afi ýmis störf, var í vegavinnu, í
póstflutningum o.fl. Snemma hóf
hann störf hjá Kaupféiagi
Skaftfellinga og var fastráðinn þar
1935 sem pakkhúsmaður. Vann
hann eftir það hjá Kaupfélaginu
allt fram á áttræðisaldur. Pakk-
húsmannsstarfið var erilsamt starf
en hann sá um allar útsendingar og
pantanir fyrir bændur. Var einhver
tímann sagt að þar væri réttur mað-
ur á réttum stað vegna þess að hann
hefði þekkt vel þarfir bænda og því
orðið vinsæll í starfi. Til gamans má
geta þess að hann var með eindæm-
um árrisull maður og alltaf mættur í
pakkhúsið fyrir allar aldir, enda
var hann ekki að telja eftir sér
vinnustundimar fyrir samvinnu-
hreyfinguna.
Frá 1942 til 1971 var hann verk-
stjóri í sláturtíð hjá Sláturfélagi
Suðurlands í Vík. Einnig sá hann
um sandgræðsluna í Vík frá því að
hún hófst og þar til nokkrum mán-
uðum áður en hann lést. Sagði
hann eitt sinn við mig að þar sæist
þó a.m.k. einhver árangur af ævi-
starfinu: Þar sem áður voru svartir
sandar eru nú grónar grundir.
Sem barn og unglingur vann ég
undir hans stjóm í sláturhúsinu og
við melskurð og hafði mikla
ánægju af. Sum barnabarnabörnin
urðu einnig þeirrar ánægju aðnjót-
andi að skera mel í vinnu hjá lang-
afa sínumogvorusynirmínirtveir
meðal þeirra.
Afi starfaði einnig mikið að fé-
Iagsmálum.Hann var mikill fram-
sóknarmaður alla tíð og sat lengi í
hreppsnefnd Hvammshrepps fyrir
Framsóknarflokkinn. Hann var
einn af stofnendum Hestamanna-
félagsins Sindra og jafnan virkur
félagi og formaður þess um árabil.
Þeim afa og ömmu varð fimmtán
barna auðið. Þau eru þessi: Jakob,
f. 1917, býr að Skaftafelli í
Öræfum, kvæntur Guðveigu
Bjarnadóttur. Valgerður, f. 1918,
Vík, gift Magnúsi Þórðarsyni. Jón,
f. 1919, Reykjavík, kvæntur Mar-
gréti Ógmundsdóttur. Anton, f.
1920, Vík, kvæntur Charlottu, fæ-
ddri Tilsner. Guðrún, f. 1922,
Reykjavík, gift Sigursveini Jó-
hannessyni. Guðfinna, f. 1923,
Reykjavík, gift Björgvin Ól-
afssyni. Sólveig, f. 1924, Reykja-
vík, gift Guðjóni Eggertssyni.
Guðlaug Sigurlaug, Vík, gift Ein-
ari Bárðarsyni. Einar, f. 1927,
Reykjavík, kvæntur Guðlaugu
Höllu Jónsdóttur. Guðbjörg, f.
1929, Vík, gift Ólafi Ögmundssyni.
Ester, f. 1931, Vík, gift Guðmundi
Sigfússyni sem lést 1978. Erna, f.
1932, Reykjavík, var gift Birni
Óskarssyni. Þorsteinn, f. 1933,
Reykjavík, kvæntur Ingibjörgu
Ágústsdóttur. Svavar, f. 1936,
Reykjavík, kvæntur Steinunni
Auði Guðmundsdóttur. Guðlaug
Matthildur, f. 1938, Sólheimum í
Mýrdal, gift Þorsteini Einarssyni.
Amma lést árið 1938. Hún var
manni sínum og börnum mikill
harmdauði. Hefur það verið þungt
hlutskipti að standa einn uppi með
þennan stóra barnahóp. Afa tókst
þó að mestu að halda heimilinu
saman með dyggilegri aðstoð
tveggja elstu dætra sinna, þeirra
Valgerðar móður minnar og Guðr-
únar sem þá voru nítján og sextán
ára gamlar. Lögðu þær oft nótt við
dag að halda heimilinu gangandi.
Oft var erfitt um vik sökum fátækt-
ar og þröngbýlis. Einnig var mjög
gestkvæmt og hefur móðir mín sagt
mér að nærri daglega hafi afi tekið
með sér gesti heim í mat eða kaffi.
Oftast voru það bændur úr nær-
liggjandi sveitum sem áttu erindi til
Víkur. En einhvern veginn tókst
þetta nú allt saman og börnin kom-
ust öll til manns. Held ég að
bjartsýnin og létta lundin hans afa
hafi átt stóran þátt í því. Hann
hafði þann hæfileika í ríkum mæli
að sjá það jákvæða í tilverunni.
Einnig voru systkinin ákaflega
samrýmd og samhent.
Sambandið milli afa og barna
hans var einstaklega hlýtt og gott
og var hann umvafinn ástúð þeirra í
ellinni. Dóttir hans Ester og maður
hennar Guðmundur Sigfússon
bjuggu í Guðlaugshúsi allan sinn
búskap eða þar til Guðmundur lést
fyrir fáum árum. Þau voru honum
stoð og stytta í ellinni. Afi naut
þess að geta verið á heimili sínu þar
til aðeins nokkrum mánuðum áður
en hann lést. Var það m.a. að
þakka ástúð og umhyggju Esterar
og barna hennar að slíkt var mögu-
legt. Má segja að hann hafi upp-
skorið eins og hann sáði, einnig í
samskiptum við aðra en sína nán-
ustu. Bændurnir og aðrir, sem
hann vann svo vel fyrir á langri ævi,
endurguldu honum það með því að
sækja hann heim í ellinni. Ég held
að vart hafi liðið sá dagur að ekki
hafi einhver litið inn og stytt hon-
um stundir. Sama gilti þegar hann
var kominn á sjúkrahús í Reykja-
vík og síðast á Selfossi. Ótrúlegur
fjöldi fólks kom og fór allan daginn
til að heilsa upp á heiðursmanninn
Guðlaug Jónsson. Hann lifði það
að halda níræðisafmæli sitt á
sjúkrahúsinu, umkringdur börnum
sínum og vinum. Þegar hann svo
lést aðfaranótt 24. apríl sl. á sjúkra-
húsinu á Selfossi voru þrjú barna
hans hjá honum.
Hvíli hann í friði.
Guðlaug Magnúsdóttir.
bridge
Umsjón
Ólaffur Lárusson
Metþátttaka í Islandsmóti í tvímenningi
Metþáttaka er í íslandsmótinu í
tvímenningi 1984. Vel yfir 90 pör
eru skráð til leiks í undanrásirnar
sem verða spilaðar um þessa helgi á
Hótel Esju. Keppendum verður
skipt í 14-16 para riðla (eftir þátt-
töku) og slönguraðað í 2. og 3. um-
ferð 24. efstu pörin spila svo til úr-
slita seinna í maí.
Spilamennska hefst kl. 13.00 í
dag. Næsta umferð verður í kvöld
og undanrásum lýkur svo seinni
partinn á morgun. Búast má við
mikilli keppni um þessi 24 sæti,
þegar svo mörg pör taka þátt. Eins
má búast við að ýms „þekkt“ nöfn
nái ekki í úrslit, þegar svona fjöldi
er samankominn.
Úrslit í þessu móti verða birt í
bridgeþætti á miðvikudaginn.
Landsliðskeppnin
Á fimmtudaginn voru 12 pör
skráð til leiks f landsliðskeppni
Bridgesambands íslands.sem hald-
in er til undirbúnings þátttöku okk-
ar á Ólympíumótið í sveitakeppni,
sem haldið er í Seattle, USA, í
haust. Búast má við að 14-16 pör
taki endanlega þátt í landslið-
skeppninni, sem verður spiluð um
næstu helgi í Drangey í Síðumúla.
Keppnin hefst á föstudagskvöid,
síðan allan laugardaginn og um
kvöldið, og lýkur á sunnudag. Spil-
uð eru 10 spil milli para með But-
gler útreikningi.
Sumarbridge 1984
Hin árlega sumarspilamennska
bridgefélaganna í Reykjavík, hefst
fimmtudaginn 17. maí nk. Spilað
verður að þessu sinni í sal að Borg-
artúni 18, í sama húsi og Sparisjóð-
ur vélstjóra. Aðstæður eru allar vel
í meðallagi, góð lýsing og loftræst-
ing og veitingasala.
Að venju mun Ólafur Lárusson
sjá um stjórnun á Sumarbridge
1984.
Keppni hefst semsagt
fimmtudaginn 17. maí og síðan
verður spilað tvo næstu miðviku-
daga (23. maí og 30. maí) en síðan
alla fimmtudaga út sumarið. Spila-
mennska hefst í síðasta lagi kl.
19.30, en að líkindum eitthvað fyrr
í fyrstu riðlum. Keppnisgjaldi er
stillt í hóf og verður kr. 100 pr.
spilara.
Spilað verður um meistarastig,
auk heildarverðlauna til stigefstu
spilara að sumri loknu. Fólk er
hvatt til að benda byrjendum á, að
Sumarbridge er tilvalið tækifæri til
að hefja reglulega keppni. í
Sumarbridge hittirðu fyrir meistar-
ann, jafnt sem byrjandann.
Frá Bridgefélagi
Reykjavíkur
Fyrstu tvímenningskeppni hér á
landi með forgjafarsniði lauk sl.
miðvikudag hjá félaginu. 30 pör
tóku þátt í keppninni, sem var með
hefðbundnu sniði (utan forgjafar).
Sigurvegarar urðu þeir Árni
K.Bjarnason og fsak Sigurðsson. í
verðlaun fengu þeir að launum ut-
anlandsferð, nánar tiltekið til
Amsterdam með
Samvinnuferðum-Landsýn.
Röð efstu para varð þessi (for-
gjöf innan sviga):
stig
1. Árni K. Bjarnason -
Isak Sigurðsson 811 (101)
2. Björgvin Þorsteinsson -
Jón S. Gunnlaugsson 779 (101)
3. Valgarð Blöndal -
Þórir Sigursteinsson 762 ( 76)
4. Hjálmtýr Baldursson -
Ragnar Hermannsson 753 (101)
5. Rúnar Magnússon -
Stefán Pálsson 733 ( 50)
6. Böðvar Magnússon -
Ragnar Magnússon 732 ( 76)
Efstir án forgjafar urðu þeir
Árni og ísak með 710 stig en Guð-
laugur R. Jóhannsson og Hjalti
Elíasson urðuí 2. sæti með 707 stig.
Skor þeirra Guðlaugs og Hjalta
gefur tilkynna að forgjafarreikn-
ingurinn hefur að líkindum verið
nokkuð hár, betri (stighærri) pöru-
num í óhag. Þess má geta að þeir
Björgvin og Jón Steinar, sem urðu í
2. sæti fengu í verðlaun spilaborð
frá SOLO-húsgögnum.
Þetta var síðasta keppniskvöldið
hjá B.R., á þessu starfsári. Ekki
hefur verið ákveðið hvenær aðal-
fundur félagsins verður haldinn.
Frá TBK
Síðastliðinn fimmtudag 3. maí
lauk 36 para Barometerkeppni fél-
agsins, sem var jafnframt síðasta
varð þessi:
1. Ingvar Hauksson -
Onvell Utley
2. Sigurður B. Þorsteinsson -
Gylfi Baldursson
3. Sigtryggur Sigurðsson -
Sverrir Kristinsson
4. Anton R. Gunnarsson -
Friðjón Þórhallsson
5. Sveinbjörn Guðmundsson -
Bryiyólfur Brynjólfur Guð
mundsson
6. Gunnlaugur Óskarsson —
Helgi Einarsson
7. Guðjón Jóhannsson -
Þórhallur Þorsteinsson
8. Þorsteinn Kristjánss -
Rafn Kristjánsson
9. Ómar Jónsson -
Jón Þorvarðarson
10. Dagbjartur Grímsson -
Alfreð Alfreðsson
TBK þakkar öllum spilurum þátt-
tökuna á liðnum vetri sem var frá-
bær og við vonumst til að sjá ykkur
sem allraflest aftur í haust, nýir
spilarar eru velkomnir. TBK þakk-
ar einnig vinafélögum sínum sem
spilað hafa við okkur ánægjulegar
samverustundir.
Frá Bridgefélagi
Breiðfirðinga
Eftir tvær umferðir í Butler-
tvímenningskeppni deildarinnar er
staða efstu para þessi:
1. Ingibjörg Halldórsdóttir -
Sigvaldi Þorsteinsson 119
2. Eggert Benónýsson -
Sigurður Ámundason 106
para 3. Magnús Oddsson -
Jón G. Jónsson 4. Birgir ísleifsson - 104
Gujðón Sigurðsson 101
347 5. Erla Sigvaldadóttir -
Lovísa Jóhannsdóttir 97
264 6. Brandur Brynjólfsson -
Þórarinn Alexandersson 97
210 7. Ámi Magnússon -
Jón Ámundason 96
194 8. Gísli Stefánsson -
Kristján Ólafsson 95
171 Meðalskor er 80 stig. 32 pör þátt í mótinu. Alls taka
138 Ný bridgebók
136 á markaðinn
124
112
100
út er komin þriðja bókin í bóka
safninu „íslenska bridgesafnið
sem Sigurjón Þór Tryggvason
stendur að og þýðir. Að þessu sinni
hefur Sigurjón valið bók til þýðing
ar eftir hinn fræga bridge-og skák
blaðamann, Svend Novrup. Fjall
að er um „uglurnar" svokölluðu
þ.e. þá sem sitja við hiiðina á kepp
endunum og sjá yfirleitt allt betur
en spilararnir sjálfir. Nokkuð fróð
legt viðfangsaefni, ekki satt?
Bókin fæst hjá Bridgesamband
inu og einnig á bóksölustöðum
Óhætt er að mæla með þessari bók
fyrir allan þorra bridgeáhuga
manna.
Sigurjón Þ. Tryggvason gat sér
gott orð við spilaborðið hér á árum
áður, m.a. í sveitum Gests Jóns
sonar og Ólafs Lárussonar. Nú hin
síðari ár hefur Sigurjón mest megn
is fengist við stjórnun í bridgekepp
num, auk útgáfustarfsemi sinnar.