Þjóðviljinn - 05.05.1984, Qupperneq 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 5. - 6. maí 1984
Sigrún Eldj árn
sýnir í Höfn
í dag, 5. maí kl. 16, opnar Sig- Sigurðssonar við Oster Voldgade
rún Eldjám sýningu í húsi Jóns 12 í Kaupmannahöfn. Þetta er
Jón Gunnarsson opnar um helgina sýnlngu á verkum sínum í Hafnarborg
í Hafnarfir&l. Myndirnar sem hann sýnir eru iandslags- og sjávarlífs-
myndir unnar á undanförnum 2-3 árum.
Kvenfrelsi, nefnist þessi mynd eftir Björgvin Björgvinsson sem í dag
opnar myndllstarsýningu í Bókasafni Vestmannaeyja.
Finnsk listakona í heimsókn:
Ulla í Norræna
Ulla Rantanen, ein af þekkt-
ustu listamönnum Finna af
yngri kynslóðinni sýnir nú í Nor-
ræna húsinu í boði þess og Félags
ísienskra myndlistarmanna.
Ulla Rantanen er fædd árið
1938 í Keitele, Finnlandi. Hún
stundaði nám við Listaháskóla
Finna 1955-1959.
Ulla hefur sýnt víða um heim
jafnt einkasýningar sem tekið
þátt í samsýningum. Hún hefur
sýnt á vegum Finna á Feneyjar-
biennal 1976 og var fulltrúi þeirra
á Parísarbiennal 1967, sem er
sýning fyrir unga listamenn og í
Bratislava 1968. Hún hefur sýnt á
alþjóðlegum grafíkbiennölum í
Ljubljana, Krakow og Lugano og
unnið til margra verðlauna m.a. á
Alþjóðlega teiknibiennalnum í
Rijeka 1972 og fékk Grand Prix á
Cagnes-sur-Mer sýningunni í
Frakklandi 1980.
Verk eftir hana eru í eigu safna
á Norðurlöndum og víðar í Evr-
ópu. Ulla er nú styrkþegi finnska
ríkisins með iaunum í fimmtán
ár. Til að vinna að sýningunni hér
fékk hún styrk frá Menningar-
sjóði Finnlands og íslands.
Á sýningunni hér eru um 30
myndir, málverk, sem flest eru
frá þessu ári og nokkur frá ís-
landi, grafíkmyndir og teikning-
ar. Myndirnar verða til sölu.
Sýning Ullu Rantanen verður
opnuð kl. 15 í dag, laugardag 5.
maí og henni lýkur sunnudaginn
20. maí. Sýningin er opin daglega
kl.14 - 19.
fjórða einkasýning Sigrúnar og á
henni verða grafíkmyndir og
teikningar gerðar 1983 og 1984.
Sigrún dvelur um þessar mund-
ir ásamt fjölskyldu sinni í fræði-
mannsíbúðinni í Jónshúsi. Sýn-
ingin er opin virka daga kl. 17 -
22, laugardaga kl. 14 - 22 og
sunnudaga kl. 14 - 20. Hún er
lokuð á þriðjudögum og stendur
fram til 27. maí.
Spáð í vorið
Listin
til sölu
Einsog Pylsuvagninn er Hótel
Borg orðið að menningarstofnun
og hýsir nú fleira en gleðimenn að
stíga í vænginn við félaga Bakk-
us. Þar munu nefnilega boðin
upp verk 20 ungra myndlistar-
manna á sunnudaginn klukkan
þrjú. Þetta splunkunýja uppá-
tæki mun tengt vorkomunni og
vorhreingerningum á vinnustof-
um, enda mál til komið að rýma
fyrir verkum morgundagsins.
Aðferðirnar sem notaðar eru í
verkunum eru hefðbundnar, en
að sögn uppboðshaldara höfða
þær eigi að síður til morgundags-
ins, en það mun vera listræn að-
ferð til að segja að þær séu ekki
mjög gamaldags. Þar er meðal
annars að ræða sáldþrykk, æt-
ingu, klippimyndir, olíu og dú-
ristu, en þó ekki kviðristu.
Allir hressir myndlistarunn-
endur eru náttúrlega hvattir til að
mæta, þeir sem eru óhressir mega
líka koma ef þeir eiga pening.
Listaverkin, sem ábyggilega eiga
eftir að verða fræg, verða til sýnis
í Gyllta salnum á Borginni um
tveggja stunda bil fyrir sjálft upp-
boðið. Ap
Vorsýning
Vorsýning Myndlista-
skólans í Reykjavík stend-
ur aðeins um þessa helgi í
Tryggvagötu 15 6. hæð.
Reynir Gu&mundsson
Tónleikar
í Norræna
Reynir Guðmundsson tenór-
söngvari heldur tónleika í Nor-
ræna húsinu á sunnudagskvöld
kl. 20.30. Undirieikari er Ólafur
Vignir Albertsson.
Reynir er Reykvíkingur og
stundaði söngnám hjá Rut
Magnússon en hefur nú stundað
tónlistarnám og kennslu í Banda-
ríkjunum um 15 ára skeið. Hann
vinnur nú að doktorsritgerð í
kennslufræðum við Boston há-
skóla.
Á efnisskrá tónleikanna eru
gamiar ítalskar aríur, lög eftir ís-
lensk og erlend tónskáld og óper-
uaríur eftir Mozart, Bizet og
Puccini
Bergspricka e&a fjallagil nefnlst þessi mynd eftir Ullu Rantanen.
um Kelgina
myndlist
Vorsýning
Vorsýning Myndlistaskólans (Reykjavík
verður opnuð f dag laugardag kl. 14. Á
sýningunni sem er í Tryggvagötu 15. 6.
hæð eru verk úr öllum deildum skólans.
Hæst ber kannski höggmyndadeildina,
en þar sýna nemendur sem hafa lokið
tveggja ára námi í þeirri deild. Sýning-
unni lýkur á sunnudagskvöld.
Akureyrl:
I dag verður opnuð í Listsýningarsaln-
um, Glerárgötu 34, sýning á verkum
Jóns heitins Engilberts, listmálara og
nefnist sýningin „Brot úr lífsspegli". A
sýningunni verða 64 verk. Hún stendur
til 13. maí og er opin virka daga kl. 20 -
22 og kl. 14 - 22 um helgar.
Hótel Borg:
Á sunnudag kl. 15 verða boðin upp á
Hótel Borg myndlistarverk eftir 20 unga
myndlistarmenn. Listaveritin sem boðin
verða upp verða til sýnis í Gyllta salnum
á Borginni eftir kl. 13.
Hefnarfjörður:
Jón Gunnarsson listmálar iopnar 16.
málverkasýningu sina á laugardag í
Hafnarborg, Menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar. Sýningin er opin daglega
frá kl. 14 - 19 og stendur til 20. mai.
Aðgangseyrir er enginn.
Vestmannaeyjar:
I dag kl. 14 opnar Björgvin Björgvinsson
myndlistarsýningu ( anddyri Bókasafns
Vestmannaeyja. Hann sýnir myndverk
gerð með blandaðri tækni og collage-
myndir. Þetta er önnur einkasýning
Björgvins og hún er opin til 25. maí kl. 14
- 18 fyrstu sýningarvikuna en að öðru
leyti fylgir opnunartími bóka- og byggð-
asafns Vestmannaeyja.
Gallerf Lækjartorg:
Sýningu Friðríks Róbertssonar og Guðr-
únar Eddu Káradóttur „Aprflsól á bláum
himni" hefur verið framlengt til sunnu-
dagskvöld. Opin um helgina kl. 14 - 22.
Gallerf Langbrók:
Kolbrún Björgólfsdóttir og Steinunn
Bergsteinsdóttir sýna keramik og fatnað
f Gallerí Langbrók. Sýningin verður opn-
uð f dag ogopinkl.14-18um helgar og
12 - 18 á virkum dögum. Hún stendur f
tvær vikur.
Gallerf Islensk llst:
I dag opnar Jóhannes Jóhannesson 14.
einkasýningu sína í Galleríinu á Vestur-
götu 17. Hann sýnir 20 málverk á þess-
ari sýningu sem er 14. einkasýning hans
en hann hefur komið mjög við sögu
frægra samsýninga, svo sem Septemb-
ersýningu bæði fyrr og síðar. Sýningin er
opin til 27. maí.
Norræna húsið:
Finnska listakonan Ulla Rantanen sýnir
málverk grafík og teikningar í sýningar-
sal Norræna hússins. Hún er hér i boði
FlM og Norræna hússins. Sýningin
verður opnuð á laugardag og veröur
opin daglega kl. 14 - 19 til 20. mai.
I anddyri hússins er sýning á skartgrip-
um eftir fjóra norska gullsmiði, sem allir
eru konur. Þær sýna skartgripi úr silfri og
öðaim málmum auk þess sem þær nota
leður, fjaðrir og fleira f skartgripina.
tónlist
Muslca Nova:
I dag laugardag heldur blásarakvintett
Reykjavíkur tónleika á Kjarvalsstöðum á
vegum Musica Nova og hefjast þeir kl.
17. Flutt verður pólsks samtfmatónlist.
Vortónar skólanna:
Lokatónleikar Vortóna skólanna verða f
Háskóalbfói á laugardag kl. 14. Þar
koma fram kórar og lúðrasveitir úr hinum
ýmsu skólum borgarinnar. Aðgangur er
ókeypis og alir velkomnir.
Tónmenntakskólinn:
Tónmenntaskóli Reykjavíkur heldur tón-
leika kl. 14 á laugardag f Austurbæjar-
bíói. Þar koma einkum fram yngri nem-
endur skólans með einleik og samspils-
atriði á ýmis hljóðfæri. Þá verðurhópatr-
iði úr forskóladeild. Aðgangur er
ókeypis.
íslenska óperan:
Rakarinn f Sevilla, vinsæl gamanópera
eftir Rossini verður sýnf á laugardags-
kvöld kl. 20 og er þetta næst sfðasta
sýningarhelgí.
Norræna húsið:
Reynir Guðmundsson tenórsöngvari og
Ólafur Vignir Albertsson píanóleikari
halda tónleika f Norræna húsinu á sunn-
udag kl. 20.30. A efnisskránni eru gaml-
ar ítalskar aríur, lög eftir islensk og er-
lend tónskáld og óperuaríur eftir Mozart,
Bizet og Puccini.
leiklist
Þjóðleikhúsið:
Gæjar og pfur á iaugardagskvöld, upp-
selt. Næstu sýningar þriðjudag og mið-
vikudag.
Amma þól Eftir Olgu Guðrúnu Árnadótt-
ur verður sýnt kl. 15 á sunnudag og eru
aðeins örfáar sýningar eftir á þessu vin-
sæla barnaleikriti.
Sveyk f síðari heimsstyrjöldinni verð-
ur sýnt f næst síðasta sinn á sunnudag.
Leikfélag Reykjavfkur:
Bros úr djúpinu eftir Lars Norén á
laugardagskvöld. Gfsl 41. sýning á
sunnudagskvöld.
Leiklistarskóllnn:
Reykjavík er peria, nefnist leik- og lestr-
ardagskrá með söngvum sem Leiklistar-
skóli Islands og Reykjavíkurdeild Nor-
ræna félagsins standa að í Norræna
húsinu á sunnudag kl. 15. Flutt verður
efni úr dagblöðum þriðja áratugarins,
Ijóð og gamanmál og sungnir revíu-
söngvar frá þeim tíma. Aðeins þessi eina
sýning og miðaverð er 100 krónur.
ýmislegt
Landmótun:
Mánudaginn 7. maf flytur prófessor Bri-
an Whalley frá Belfast fyrirlestur um
landmótun f háfjöllum. Hann lýsir þar
rannsóknum sínum á fjöllum í Afganist-
an en hann hefur einnig starfað hér á
landi í Bandaríkjunum og vlðar. Fyrirlest-
urinn er á vegum Jarðfræðifélags (s-
lands og hefst kl. 20.30 f stofu 101 f
Lögbergi.
Kaffisala:
Sunnudaginn 6. maí kl. 15 halda fær-
eyskar konur sina árlegu kaffisölu i hinu
nýreista færeyska Sjómannaheimili að
Brautarholti 29, Reykjavík. Allur ágóði
rennur til sjómannaheimilisins.
Fjölskylduskemmtun:
Foreldra- og kennarafélag Æfingaskóla
Kennaraháskólans gengst fyrir fjölskyld-
uskemmtun í skólanum laugardag kl. 15.
Skemmtunin er haldin í fjáröflunarskyni
og verður það sem aflast notað til að
fegra skólann. Veitingasala að
skemmtun lokinni.
Norðurljós:
Kvikmyndaklúbburinn Norðurljós sýnir á
sunnudag kl. 17 dönsku myndina Harry
og Kammertjeneren í Norræna húsinu.
Myndin er gerð 1961 og leikstjóri er Bent
Christensen.
Lfffræðlstofnun:
i tilefni af 10 ára afmæli Lfffræðistofnun-
ar háskólans verður húsnæöi stofnunar-
innar að Grensásvegi 12 opið kl. 14 -19
á sunnudag og munu kennarar og nem-
endur veita gestum leiðsögn. Fjórir stutt-
ir fyrirlestrar verða um rannsóknir sem
nú er unnið að á Lfffræðistofnun og hefj-
ast þeir kl. 14.30. Kl. 17 verður sýnd ný
kvikmynd um Mývatn sem Magnús
Magnússon hefur gert í samvinnu við
Lfffræðistofnun.
Landafræðlkennsla:
Landfræðingafélagið gengst f dag, laug-
ardag fyrir málþingi um landafræði-
kennslu I framhaldsskólum, og gerð
námsefnis og stöðu landafræði f efstu
bekkjum grunnskólans. Málþingið er
haldið (Kennslumiðstöð Námsgagnast-
ofnunar að Laugavegi 166 og hefst kl. 10
árdegis. Málþingið er öllum opiö og eru
kennarar sérstaklega hvattir til þátttöku.
LATIÐ FAGMENN VINNA VERKIÐ
Tökum að okkur aö
þétta sprungur
i steinvegjum,
iógum alkalískemmdir,
þéttum og rydverjum
gömul bérujárnsþók.
Sprungu-
og þak
pj- Upplýsingar i simum
(91) 66709 & 24579
þétting
Hófum háþróuö
amerisk þéttiefni trá RPM
11 ára reynsla á efnunum
hér á landi.
Gerum föst verötilboA
yAur aA kostnaAarfausu
án skuldbindinga af
yAar hálfu.